Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Blaðsíða 16
16
MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1991,
Erlend myndsjá
Moskvubúar þyrptust inn í mörg bakarí borgarinnar um helgina og var ekki laust við að
munnvatnið seytlaði ákaflega i biðröðunum. Tilefni asans var að bandariskt konfekt og
annað nammi var nýkomið í bakariin frá Ítalíu. Á myndinni sjást starfsmenn bakaris í
miðborg Moskvu afgreiða gotteríið.
Það er víðar ös en í Moskvu. í velflestum borgum Evrópu eru útsölur hafnar af miklum
krafti og líf í tuskunum. Myndin var tekin í hinum þekkta stórmarkaði Harrods í London
þar sem gott tilboð var á sængurfatnaði. Maðurinn fremst á myndinni þykist allavega
hafa komist í feitt.
Tveir grimuklæddir Palestínumenn búa sig undir að mála slagorð á hús-
vegg á Gazasvæðinu fyrir helgina. Annar er vopnaður vélbyssu en hinn
handsprengju og úðabrúsa. Frá áramótum hefur um tugur Palestínumanna
látið lifið í átökum við öryggissveitir ísraela.
Það er ekki mikið eftir af Beriínarmúrnum en þó standa hlutar hans
enn uppi. Sá hluti múrsins, sem myndin er af, er í námunda þinghússins
í Berlín. Hefur ónefndur listamaður verið í frekar raunsæjum og döprum
hugleiðingum. Tölurnar undir ártölunum tákna þann fjölda fólks er lét
lifið hvert ár þegar það reyndi að flýja yflr múrinn til Vestur-Berlínar.
Slmamyndir Reuter
Það muna víst flestir eftir kanadíska spretthlauparanum Ben Johnson sem setti eftirminnilegt heimsmet í 100
metra hlaupi á ólympíuleikunum í Seoul fyrir tveimur árum. Johnson var dæmdur í keppnisbann vegna ólöglegr-
ar lyfjanotkunar og sviptur heimsmeistaratitlinum í 100 metra hlaupi. Kappinn hefur nú náð sér eftir þetta leiðinda-
mál og undirbýr sig af krafti fyrir fyrstu íþróttakeppni sem hann tekur þátt í í tvö ár. Johnson mun hlaupa í 50
metra hlaupi á innanhússmóti í Ontario í Kanada 11. janúar. Á myndinni er hann með þjálfara sínum.
Um 50 þúsund Ástrálir úr
dreifbýlinu komu saman á
mótmælafundi við þing-
húsið i Melbourne fyrir
helgi. Tilefni fundarins var
almenn óánægja með
stjórn ráðamanna, bæði á
landsvísu og í bæjar- og
sveitarstjórnum. Voru fund-
irnir haldnir undir slagorð-
unum „Björgum Ástralíu".
Starfsmenn bensínstöðva í Búlgaríu nota tveggja vikna bensinsölubann til að dytta að dælum og öðrum tækjum
bensínstöðvanna. Meirihluti starfsmannanna hefur nauðugur þurft að taka ólaunað frí vegna bannsins.