Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Page 10
10
MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1991.
Útlönd
í Grikklandi hafa flóttamannabúðir verið settar á stofn til að veita albönskum flóttamönnum húsaskjól. Talið er að
um fjögur þúsund Albanir séu þegar komnir til Grikklands. Flestir eru þeir af grískum uppruna.
Símamynd Reuter
Sprengja sprakk
á f undi í Albaníu
Baker hvetur til aðstoðar
Bandarískir hermenn með kistu eins af þeim þremur Bandaríkjamönnum
sem myrtir voru af vinstri sinnuðum skaeruliðum í El Salvador 2. janúar
siðastiiðinn. Simamynd Reuter
Utanríklsráöherra Bandarikjanna, James Baker, hvatti í gær Banda-
ríkjaþing til að veita aftur hemum í E1 Saivador tugi milljóna dollara
aðstoö. Það var í kjölfar árásar vinstri sinnaðra skæruliða í E1 Salvador
á bandaríska herþyrlu sem Baker fór þess á leit við þingið að aðstoð yrði
veitt á ný.
Tveir handarískir hermenn voru skotnir í höfuðið af stuttu færi eftir
aö þyrla þeirra haföi verið skotin niður að því er sendiherra Bandaríkj-
anna í E1 Salvador sagði. Þriðji Bandaríkjamaðurinn lést af völdum inn-
vortis meiðsla. Lík þeirra allra voru flutt til Bandaríkjanna í gær.
Vilja eftirlit með spilavítum
Jafnaðarmenn í Danmörku ætla að kretjast breytinga á lögunum um
spilavíti til að hægt verði að skrá gestina og fylgjast með spilavitunum á
sjónvarpsskjám.'Að sögn jafnaðarmanna bendir reynslan af fyrstu vik-
unni sem spilavíti eru leyfð í Danmörku til þess að þörf sé á fyrmefndum
breytingum.
Segja jafnaðarmenn að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir að brögð séu
höfð í tafh. Er ætlunin aö hægt verði aö skiptast á upplýsingum við spila-
víti í öðram löndum.
Spies-f yrirtækið til sölu?
Svo virðist sem Janni Spies Kjar
sé búin aö fá nóg af ferðabransan-
um. Erlent flugfélag er sagt hafa
fengið fyrirspurn um hvort það
hefði áhuga á að taka við ferða-
skrifstofu hennar að því er danska
dagblaðið Börsen skrifar.
Frá því í nóvember hefur Janni
varla látið sjá sig í fyrirtækinu.
Hún er nú farin í fri til Karíbahafs
ásamt eiginmanni og dóttur en þar
eiga þau eyju. Enginn sími er sagð-
ur vera á eyjunni og fjölskyldan er
ekki væntanleg heim til Danmerk-
ur fyrr en i febrúar.
Janni Spies Kjár, eigandi Spies-
ferdaskrifstofunnar.
Tugir látast í kuldakasti
Að minnsta kosti sextíu og fjórir hafa látið lífið í miklum kuldum sem
herjað hafa í fjallahéruðum í austurhluta Afganistans í síðustu viku.
Heimildarmenn afganskra skæruliða í Pakistan greindu frá þessu í gær.
í siðustu viku var greint frá þvi aö að minnsta kosti áttatíu manns
heiðu látist af völdum kulda í suðurhluta Afganistans og í tlóttamanna-
búöum í suðvesturhluta Pakistans.
- eitt bam særðist en ekki alvarlega
Sprengja sprakk á fundi nýja al-
banska lýðræðisílokksins í bænum
Vlore í suðurhluta Albaníu í gær.
Um 40 þúsund manns voru þar sam-
ankomin til aö hlýöa á ræður leiðtoga
flokksins. Fundurinn fór friðsamlega
fram þar til sprengjan sprakk. Hún
var þó ekki talin öflug og aðeins eitt
barn særðist lítilega á fæti.
„Við vitum ekki hver kom sprengj-
unni fyrir en það er augljóst að hér
voru einhverjir að verki sem vilja
koma í veg fyrir allar breytingar í
landinu með því að hleypa fundum
stjórnarandstæðinga upp,“ sagði
Genc Polo, talsmaður Lýðræðis-
flokksins, í símaviðtali við Reuters-
fréttastofuna.
Mikill órói er víða í borgum og
bæjum í Albaníu og hefur svo verið
allt frá því Ramiz Alia forseti ákvað
að slaka á tökum kommúnistaflokks-
ins á stjórn landins. Eftir atvikið í
gær kom til átaka milli mótmælenda
og lögreglu í nálægum bæjum í suð-
urhluta Albaníu. Mótmælendur
söfnuðust saman fyrir utan bygging-
ar flokksins og vitað er að einhveijir
særðust.
Á laugardaginn kom til átaka í
bænum Skóder í norðri eftir að hóp-
ur manna ætlaði að ganga að landa-
mærunum við Júgóslavíu og yfirgefa
landið. Áður höfðu borist fréttir um
að landamærin hefðu verið opnuð en
það var síðar borið til baka. Stjórnar-
andstæðingar segja að íjórir menn
hafi orðið fyrir skotum lögreglu í
Skóder en enginn þeirra sé lífshættu-
lega slasaður. \
Stöðugur straumur fólks hefur ver-
ið yfir landamærin til Grikklands í
suöri frá því fyrir áramót. Tahð er
að ekki færri en fjögur þúsund
manns hafi þegar komist yfir landa-
mærin með því aö ganga yfir fjall-
lendi þar sem landamæravarsla er
lítU.
Áætlað er að halda almennar kosn-'
ingar í Albaníu þann 10. febrúar.
Lýðræðisflokkurinn vill fá kosning-
unum frestað fram á vorið til að fá
betri tíma til að undirbúa kosninga-
baráttuna. Flokksmenn segja að
stjórnin vilji flýta kosningunum sem
mest til að þurfa ekki að fást við vel
skipulagða stjórnarandstöðu. Takist
ekki að fá kosningunum frestað kem-
ur til greina að hundsa þær alger-
lega. Reuter
Datt á son sinn og
krámdi hann til bana
Kona nokkur í Egyptalandi féll of-
an á fjögurra ára gamlan son sinn í
baðherbergi íbúðar sinnar og kramdi
hann til dauða.
Konan var 120 kíló að þyngd og
hafði átt við hjartasjúkdóm að stríða.
Hún lét einnig lífið í fallinu og er
talið að dauða hennar megi rekja til
hjartabilunar.
Mæðginin fundust látin þegar farið
var að grennslast fyrir um þau. Kon-
an hét Hindia Abdel-Hamid og var
tæplega fertug. Hún bjó ásamt syni
sínum í bænum Giza á vesturbakka
Nílar. Reuter
Jól haldin hátíðleg í Sovétríkunum
Nokkrlr Rússar klæddust herbúningum frá dögum Napoleons er þeir
sóttu messu um jólin sem haldin voru hátíðleg i gær. Samkvæmt göml-
um sið minnast kristnir Rússar á jólunum þeirra sem fallið hafa i stríði.
Síoiamynd Reuter
í fyrsta skipti í meira en sjö áratugi var almennur frídagur í Rússlandi
í Sovétríkjunum í gær er jóhn voru haldin hátíðleg. Flykktust menn í
kirkjur og á Rauða torginu í Moskvu söfnuðust menn saman með kyndla.
Sovéska sjónvarpið sendi beint út frá kvöldmessu í Jelokhov dómkirkj-
urini.
Rússneska þingið samþykktí í síöasta mánuði beiðni patríarksins um
að jólin yrðu almennur frídagur. Frí var einnig i Ukraínu og Moldovu.
í Sovétríkjunum og öörum Austur-Evrópulöndum halda réttrúnaðar-
menn jólin hátíðleg tveimur vikum á eftir Vesturlandabúum. í Eystra-
saltslöndunum þremur, þar sem kaþólikkar og mótmælendur eru i meiri-
hluta, vorujólin haldinhátíðleg25. desember. ReuterogRitzau