Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Qupperneq 26
34
MÁNUDAGUR 7. JANTJAR 1991.
Afmæli
Svanlaug Pétursdóttir
Svanlaug Pétursdóttir, Dvalarheim-
ilinu Höfða á Akranesi, varð áttræð
27. desember.
Svanlaug fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún var í kvöldskóla
Verslunarskólans 1928-1930 og vann
í fiskverkun 1959-1966. Svanlaug
vannverksmiðjustörfhjá Sanitas
1966-1969 og hjá Nóa 1969-1972. Hún
fluttist á Akranes 1972 og átti heima
á Suðurgötu 94 þar í bæ.
Fjölskylda
Svanlaug giftist 2. febrúar 1935
Hannesi Guðjónssyni, f. 11. ágúst
1911, verkamanni í Rvík. Foreldrar
Hannesar: Guðjón Þorkelsson,
verkamaður í Rvík, og kona hans,
Jónína Ásbjörnsdótir. Þau skildu.
Synir Svanlaugar og Hannesar eru:
Guðjón Hermann, f. 8. ágúst 1932,
bifvélavirkjameistari í Rvík, kvænt-
ur Sjöfn Ólafsson, d. 1990; Tryggvi
Þór, f. 29. apríl 1935, kaupmaður í
Rvík, kvæntur Valdísi Vilhjálms-
dóttur bankamanni; Grétar, f. 9.
apríl 1937, eftirlitsmaður í Rvík,
kvæntur Sigrúnu Steingrímsdóttur,
hún vinnur á dagheimili, og Guöni,
verkstjóri í Rvík, kvæntur Valgerði
Jónsdóttur verslunarmanni.
Systkini Svanlaugar, samfeðra,
eru: Jóhanna Soffía, f. 2. nóvember
1904, d. 1935, gift Ingólfi Árnasyni,
er látinn,útgerðarmanni á Siglu-
flrði; Ingólfur, f. 21. október 1906, er
látinn, skrifstofumaður hjá Vega-
gerð ríkisins, kvæntur Sæbjörgu
Jónasdóttur; Hildur, f. 12. október
1907, d. 26. desember 1907; Viðar, f.
24. nóvember 1908, d. 8. febrúar 1988,
tannlæknir í Rvík, kvæntur Ellen
Knudsen; Zophonías, f. 17. maí 1910,
d. 1984, deildarstjóri hjá Trygginga-
stofnuninni, kvæntur Stellu Sigurð-
ardóttur; Hrafnhildur, f. 5. febrúar
1912, d. 1966, gift Sigurði Sigurðs-
syni, d. 1955, bankaritara í Rvík;
Áki, f. 22. september 1913, d. 1970,
deildarstjóri á Hagstofunni, kvænt:
ur Kristínu Grímsdóttur; Sturla, f.
6. september 1915, fyrrv. starfsmað-
ur hjá Rafmagnsveitu Rvíkur,
kvæntur Steinunni Hermannsdótt-
ur; Jakobína, f. 9. febrúar 1917, var
gift Hafsteini Gíslasyni, d. 1976,
starfsmanni Loftleiöa; Skarphéð-
inn, f. 11. október 1918, d. 1974, pró-
fastur í Bjarnanesi, kvæntur Sigur-
laugu Guðjónsdóttur; Friðrik Gunn-
geir, f. 28. janúar 1921, skrifstofu-
stjóri í Rvík, kvæntur Sigurrósu
Guðbjörgu Eyjólfsdóttur; Pétur
Vatnar, f. 11. september 1922, d. 3.
febrúar 1926; Helga Guðrún, f. 17.
nóvember 1925, gift Helga Thor-
valdssyni, starfsmanni Flugleiða, og
Jarþrúður, f. 27. ágúst 1927, gift ’
AntonLíndal Friðrikssyni, bryta í
Rvík.
Systkini Svanlaugar, sammæðra,
eru: Margrét Jakobsdóttir, gift
Gunnari Gunnarssyni, sjómanni í
Rvík; Ingileif Jakobsdóttir, er látin,
gift Jóni Gunnarssyni, verkamanni
í Rvík, og Gísh Jakobsson, er látinn,
fatapressari í Rvík, kvæntur Guð-
rúnu Ólafsdóttur.
Ætt
Foreldrar Svanlaugar voru Pétur
Zóphóníasson, f. 31. maí 1879, d. 21.
febrúar 1946, ættfræðingur í Rvík,
og Margrét Gísladóttir, f. 15. nóv-
ember 1879, d. 24. maí 1961, giftist
Jakobi Eyjólfssyni, sjómanni í Vest-
mannaeyjum. Fósturforeldrar
Svanlaugar: Guðjón Þórðarson,
pakkhúsmaður í Rvík, og kona
hans, Herdís Símonardóttir.
Bróðir Péturs var Páll búnaðar-
málastjóri. Faðir Péturs var Zóp-
hónías, prófastur í Viðvík, Halldórs-
son, b. í Brekku í Svarfaðardal,
Rögnvaldssonar. Móðir Halldórs
var Soífía Þorsteinsdóttir, systir
Hallgríms, föður Jónasar skálds.
Bróðir Soffíu var Baldvin, langafi
Jóhanns Sigurjónssonar skálds.
Móöir Péturs var Jóhanna, systir
Friðriks, fóður Sturlu erfðafræð-
ings. Jóhanna var dóttir Jóns dóm-
stjóra Péturssonar, bróður Péturs
biskups og Brynjólfs Fjölnismanns.
Móðir Jóhönnu var Soffía, systir
Benedikts, langafa Áslaugar, móður
Geirs Hallgrimssonar. Systir Soffíu
var Ragnheiður, langamma Guðnýj-
ar, móðurVals Arnþórssonar. Soff-
íu var dóttir Boga, fræðimanns á
Staðarfelli, ættfóður Staðarfellsætt-
arinnar, Benediktssonar, stúdents á
Staðarfelli, Bogasonar, b. í Hrapps-
ey, Benediktssonar, b. í Hrappsey,
Jónssonar, Brokeyjar-Jóns, fálka-
fangara í Brokey, Péturssonar.
Móðir Boga á Staðarfelli var Hildur
Magnúsdóttir, prests á Höskulds-
stöðum, Péturssonar og konu hans,
Ásgerðar Pálsdóttur, systur Bjarna
landlæknis. Móðir Soffíu var Jar-
þrúður Jónsdóttir, prests í Holti,
Sigurðssonar, og konu hans, Sol-
veigar Ólafsdóttur, lögsagnara á
Svanlaug Pétursdóttir.
Eyri, Jónssonar, ættfoður Eyrar-
ættarinnar.
Móðursystir Svanlaugar er Hall-
gríma, amma Helga V. Jónssonar
hrl. Margrét var dóttir Gísla, sjó-
manns í Eyvakoti á Eyrarbakka,
Jónssonar, borgara í Eyvakoti,
Jónssonar, formanns í Borg, Jóns-
sonar, beykis í Simbakoti, Jónsson-
ar í Salthóli, Jónssonar. Móðir Jóns
borgara var Ólöf Jónsdóttir, b. á
Sléttum, Hafliðasonar. Móðir
Margrétar var Guðlaug Jónsdóttir.
Hreinn Ragnarsson
Hreinn Ragnarsson kennari, Laug-
arvatni, Ámessýslu, varð fimmtug-
urágamlársdag.
Starfsferi II
Hreinn fæddist á Skagaströnd en
ólst upp á Ólafsfirði. Hann lauk
stúdentsprófi frá M A1959, kennara-
prófl frá KÍ1962, BA-prófi frá HÍ
1976, prófi í uppeldis- og kennslu-
fræðum frá HI1977 og cand mag-
prófi í sagnfræði frá HÍ1980. Auk
þess er Hreinn ökukennari.
Hreinn var kennari viö barna- og
unglingaskólann á Raufarhöfn
1959-60 og 1962-66, við Héraðsskól-
ann á Skógum 1960-61, var skóla-
stjóri í Skúlagarði 1966-70, kennari
viö Héraðsskólann á Laugarvatni
frá 1970. Hann hefur verið stunda-
kennari og prófdómari við ML af og
til frá 1975.
Hreinn stundaði síldarvinnu og
sjómennsku á sumrin frá 1956-67,
auk þess sem hann var skrifstofu-
stjóri SOdarverksmiðja ríkisins á
Raufarhöfn 1964-65.
Hreinn sat í stjórn Verkamannafé-
lags Raufarhafnar um skeið og var
hreppsnefndarmaður i Laugardals-
hreppi 1974-86. Hreinn hefur skrifað
ritdóma í tímaritið Sögu og er rit-
sjóri og aðalhöfundur sögu síldveiða
við ísland sem er í handriti.
Fjölskylda
Hreinn kvæntist 31.12.1960 Guð-
rúnu Einarsdóttur, f. 31.5.1942,
bókaverði en hún er dóttir Einars
B. Jónssonar, kaupmanns á Raufar-
höfn, sem lést 1968, og Hólmfríðar
Árnadóttur.
Hreinn og Guðrún eiga fjögur
börn. Þau eru Harpa, f. 14.9.1959,
íslenskukennari við Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi, en
hennar maður er Atli Harðarson,
heimspekingur og kennari, og eiga
þau eitt barn; Ragna, f. 10.7.1962,
kennari við Gagnfræðaskóla Eski-
fjarðar, en hennar maður er Friðrik
Þorvaldsson kennari og eiga þau
eitt barn; Freyja, f. 31.7.1964, stærð-
fræðingur, búsett í Boston í Banda-
ríkjunum, en hennar maður er Gísli
Másson stærðfræðingur og eiga þau
eitt barn, og Einar, f. 4.8.1969, sagn-
fræðinemi við HÍ.
Systkini Hreins: Hrafn, f. 1938,
skipstjóri á Ólafsfirði, kvæntur Lilju
Kristinsdóttur og eiga þau íjögur
börn; Úlfur, f. 1939, bifvélavirki í
Mosfellsbæ, kvæntur Unni Karls-
dóttur og eiga þau þrjú börn; Edda,
f. 1944, talsímavörðurí Reykjavík,
og á hún eitt barn; Örn, f. 1946, d.
1951; Guðrún, f. 1950, skrifstofumað-
ur á Hvammstanga, gift Vilhelm
Guðbjartssyni málarameistara og
eiga þau þrjú börn; Örn, f. 1953,
kennari að Eiðum, kvæntur Sól-
veigu Traustadóttur og eiga þau
þrjú börn; Þorsteinn, f. 1955, bif-
reiðasmiður í Reykjahreppi í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu, kvæntur Þor-
björgu Jóhannsdóttur kennara og
eiga þau fjögur börn, og Gísli, f. 1957,
bókavörður í Reykjavík, kvæntur
Áslaugu Guðmundsdóttur og eiga
þauþrjúbörn.
Foreldrar Hreins: Ragnar Þor-
steinsson, f. 28.2.1914, kennari, nú
búsettur í Kópavogi, og Sigurlaug
Stefánsdóttir, f. 25.9.1915, húsmóðir.
Ætt og frændgarður
- Meðal systkina Ragnars má nefna
Boga, fyrrv. yfirflugumferðarstjóra
á Keflavíkurflugvelli og fyrrv. for-
mann Körfuknattleikssambands-
ins. Ragnar er sonur Þorsteins, b. í
Ljárskógaseli, Gíslasonar, útvegsb.
í Móabúð í Eyrarsveit, Þorsteins-
sonar. Móðir Þorsteins í Ljárskóga-
seh var Ingveldur Jónsdóttir.
Móðir Ragnars var Alvilda, hálf-
systir, samfeðra, Ragnheiðar, móð-
ur Ólafs Gunnarssonar rithöfundar
og Ingibjargar, móður Gunnars
Björnssonar, prests í Holti í Önund-
arfirði. Alvilda var dóttir Boga,
kaupmanns í Búðardal, bróður
Bjöms, bankastjóra Landsbankans,
fóður Sigurðar, kaupmanns og
konsúls, fóður Níelsar P. sendi-
herra. Bogi var sonur Sigurðar, b. á
Sæunnarstöðum og á Þverá í Hall-
árdal og síðan í Búðardal, Finn-
bogasonar, b. á Kirkjubóli í Skaga-
firði, Sigurðssonar. Móðir Sigurðar
á Þverá var Guðrún Árnadóttir, b.
á Reykjarhóli, Ámasonar. Móöir
Boga var Elísabet Björnsdóttir, b. á
Þverá, Þorlákssonar. Móðir Alvildu
Hreinn Ragnarsson.
var María Guðmundsdóttir frá
Kollugerði.
Sigurlaug, móðir Hreins, er dóttir
Stefáns, b. á Smyrlabergi, bróður
Páls í Sauðanesi, fóður Sauðanes-
systkinanna en m.a. má nefna Jón
Helga, formann Hins íslenska garð-
yrkjufélags; Pál Sigþór hrl.; Her-
mann, doktor og prófessor við Edin-
borgarháskóla, og Gísla, fyrrv. odd-
vita á Hofi í Áshreppi. Stefán var
sonur Jóns, b. I Sauðanesi, Jónsson-
ar, b. á Syðsta-Vatni, Ólafssonar.
Móðir Jóns í Sauðanesi var Helga
Stefánsdóttir frá Flatatungu í
Skagafirði. Móðir Stefáns á Smyrla-
bergi var Helga Gísladóttir, b. í
Flatatungu, bróður Helgu á Syðsta-
Vatni. Móðir Sigurlaugar var Guð-
rún Kristmundsdóttir.
Hreinn og Guðrún dvöldu á heim-
ili dóttur sinnar í Boston um ára-
mótin.
Jón Trausti Pálsson
Jón Trausti Pálsson umsjónarmaö-
ur, til heimilis að Hólum í Hjaltadal
í Hólahreppi, er sextugur í dag.
Starfsferill
Jón Trausti fæddist að Hólum í
Hjaltadal og ólst upp í Hjaltadaln-
um. Hann lauk búfræðinámi við
Bændaskólann á Hólum 1952 og
stundaöi síðan ýmis störf næstu tíu
árin. Jón Trausti var bóndi á Lauf-
skálum í Hjaltadal 1962-82 en hefur
verið starfsmaður Bændaskólans á
Hólumfrál983.
Jón Trausti hefur gegnt margvís-
legum félags- og trúnaðarstörfum í
Hólahreppi og er nú oddviti Hóla-
hrepps og formaöur sóknarnefndar
Hóladómkirkju.
Fjölskylda
Jón Trausti kvæntist 1.12.1964
Öldu Björk Konráðsdóttur, f. 8.9.
1942, starfsmanni við Bændaskól-
ann á Hólum, en hún er dóttir Kon-
ráðs Ásgrímssonar og Guðrúnar
Þorsteinsdóttur frá Skálá í Sléttu-
hlíð en nú búsett á Akureyri.
Börn Jóns Trausta og Öldu Bjark-
ar eru Linda, f. 21.9.1965, nemi við
Kennaraháskóla íslands; Edda, f.
4.2.1968, nemi í hjúkrunarfræði við
HÍ, og Páll Rúnar, f. 16.12.1976, nemi
í Varmahlíðarskóla.
Systur Jóns Trausta eru Sigur-
laug, húsmóðir á Sauðárkróki, gift
Sighvati Torfasyni kennara, og
Anna Kristín, bókavörður á Sauðár-
króki, gift Ingólfi Sveinssyni útgerð-
armanni.
Foreldrar Jóns Trausta: Páll Jóns-
son, f. 8.8.1896, d. 28.10.1981, b. á
Laufskálum í Hjaltadal og síðar á
Sauðárkróki, og Guðrún Gunn-
laugsdóttir, f. 17.7.1907, húsfreyja,
Jón Trausti Páisson.
en hún dvelur nú á Dvalarheimili
aldraðra á Sauðárkróki.
Til
hamingju
með
daginn
85 ára
Svanhildur Guðmundsdóttir,
Dunhaga 11, Reykjavík.
Sigmundur Gestsson,
Bakkavegi 23, Þórshöfn.
80 ára
Lýdía Pálsdóttir,
Skólavörðustíg 43, Reykjavík.
75ára
Húnbogi Þorkelsson,
Bárustíg 16B, Vestmannaeyjum.
60 ára
Eygló Pálmadóttir,
Möðrufelli 1, Reykjavík.
50 ára
Sigurður Jónsson,
Löngubrekku 20, Kópavogi.
Ármann Olgeirsson,
Vatnsleysu II, Hálshreppi.
Arngrímur Arngrimsson,
Baldursgötu 23, Reykjavik.
Gigja Kristbjörnsdóttir,
Goðabraut 23, Dalvík.
40 ára
Ingvar Þór Bj arnason,
Hagamel 22, Reykjavík.
Jóna Kristjánsdóttir,
Nesbala25, Seltjarnarnesi.
Hans Gerald Haesler,
Vallarbraut 12, Seltjarnarnesi.