Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um fréft, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hver’t fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Frjálst, óháð dagblaö
MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1991.
Sjómenn vilja
áhættuþóknun
„Stéttarsamtök finnskra og sæn-
skra sjómanna hafa þegar undirritaö
'<m. samninga um sérstaka áhættuþókn-
un þegar félagsmenn þurfa að starfa
á hættusvæðum eins og t.d. við Pers-
aílóann. Þar er kveðið á um 200%
álag og að allar tryggingar hækki.
Við stefnum að sambærilegum
samningum, enda eru mannslíf ekk-
ert ódýrari hér en í Finnlandi," sagði
Guðmundur Hallvarðsson, form.
Sjómannafélags Reykjavíkur, í sam-
tali við DV í gær.
Tildrög málsins má rekja til farar
Jökulfellsins með hergögn til
ónefndrar hafnar við Persaflóann en
nokkrir skipverjar hafa yfirgefið
skipið í kjölfarið. Fulltrúar Sjó-
mannafélagsins og Samskipa munu
koma saman til fundar í dag þar sem
^ áhættuþóknunin verður rædd og
segir Guðmundur að ekki komi ann-
að til greina en að íslenskir sjómenn
sitji við sama borð og kollegar þeirra
annars staðar á Norðurlöndum.
-GRS
Borgaraflokkurinn:
Ásgeir Hannes
ekkimeð
Ásgeir Hannes Eiríksson, alþingis-
maður Borgaraflokksins, skrifar
kjördæmisráði flokksins í Reykjavík
bréf í dag, þar sem hann hafnar þátt-
töku í könnun ráðsins á því, hverjir
skuli vera í efstu sætum flokksins
við þingkosningarnar.
Ásgeir Hannes segir í viðtali við
DV að pólitisk framtíð sín sé óráðin.
-HH
Fundu loðnu út
af Austfjörðum
Bæði Hólmaborg SU og Börkur NK
hafa orðið vör við loðnu á svæði út
af Austfjörðum. Rannsóknaskipin
Árni Friðriksson og Bjarni Sæ-
mundsson eru nú komin á slóðina til
að mæla það magn sem veiðiskipin
urðu vör við.
Vegna illviðris hefur ekkert verið
hægt að leita út af Norðurlandi til
þessa. -S.dór
Helgi tapaði
Helgi Ólafsson stórmeistari tapaði
skák sinni við Chandler í áttundu
umferð skákmótsins í Hastings en
hún var tefld síðdegis á laugardag.
-J.Mar
LOKI
Þetta hefurveriö
rafmagnað loft!
Rafmagn á Norðurlandi
er víðast komið á
- þó eru einstaka bæir enn rafmagnslausir - mikil vinna framundan
Gyffi Kristjánssan, DV, Akureyri:
Viðgerðarstörf vegna rafmagns-
leysisins á Norðurlandi gengu vel
i gærdag og er rafmagn nú víðast
hvar komið á.
Þó er mikil vinna framundan.
T.d. er hluti Reykjahverfis í Þing-
eyjarsýslu enn rafmagnslaust og
þar lýkur ekki vinnu fyrr en í viku-
lokin, að talið er. Þar í sýslunni og
eins í Eyjafirði eru enn einstaka
bæir rafmagnslausir en Unur að
þeim bæjum hafa verið mjög illa
farnar og veriö klipptar frá kerf-
inu.
Sömu sögu er að segja af Norður-
landi vestra að þar eru viða ein-
staka bæir rafmagnslausir. Veður
á Norðurlandi hefur nú breyst, þar
var ágætisveður í morgun en nokk-
uð hefur kólnað og snjór er þvi
hættur að leggjast á rafmagnslín-
urnar.
- sjá nánari fréttir á bls. 6
Talið er að um 300 staurar á Norðurlandi vestra og um 500 staurar á Norðurlandi öllu hafi brotnað vegna
ísingarinnar. Þá þarf að endurnýja tugi kílómetra raflina. DV-mynd Magnús Ólafsson
Mikið fjör var á þrettándagleði í Mosfellsbæ í gær. Það voru Hestamannafélagið Hörður, Björgunarsveitin Kyndill
og Leikfélag Mosfellsbæjar sem stóðu fyrir herlegheitunum. Að vonum voru hin ýmsu fyrirbæri á ferð, svo sem
Grýla, Leppalúði, einhverjir jólasveinar og að sjálfsögðu álfadrottning og álfakóngur. Það voru 2000-2500 manns
sem tóku þátt í gleðinni og gengu blysför að brennu sem kveikt var í við Álmholt. DV-mynd Hanna
Veðriðámorgun:
Éljagangur
fyrir
norðan
Á morgun má búast við norð-
austanátt með 4-6 vindstigum.
Éljagangur á Norður- og Austur-
landi og einnig vestur með suður-
ströndinni en léttskýjað vestan-
lands. Frost verður á bihnu 0-5
stig.
Stórgígureftir
öflugasprengingu
Mikil sprenging varð á Djúpavogi
í gærmorgun er sprengjusérfræðing-
ar Landhelgisgæslunnar sprengdu
tundurdufl sem höfðu rekið á Star-
mýrarfjörur. Alls var um fimm bresk
dufl að ræða og var eitt þeirra fullt
af sprengiefni. Að sögn lögreglu hef-
ur verið mikið brim á þessum stað
um áramótin og hafa duflin fundist
eftir að lækkaði í fjöruboröinu. Gæsl-
unni var gert viðvart á fimmtudag
og komu menn frá henni í gærmorg-
un.
Virka duflið skyldi eftir sig gíg sem
var tíu metrar í þvermál og þriggja
metra djúpur. „Sprengiefnið, sem er
í þessu, samsvarar flögur til fimm
hundruö kílóum af dínamíti," sagði
lögreglumaður á Djúpavogi í samtali
við DV. Hann sagði að bændum í
nágrenninu hefði brugðið er þeir
heyrði þessa miklu sprengingu.
„Þetta var geysiöflug sprenging."
Nokkuð algengt er að finna dufl í
Starmýrarfjöru og þá sérstaklega eft-
iraðbrimhefurveriðmikið. -ELA
/SM,V
£ c72177
SMIÐJUKAFFI
sm<m FRITT Hm
0PNUM KL. 18VIRKA DAGA
OG KL. 12 UM HELGAR
111 ALÞJÓÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ
LÁGMÚLA 5 • REYKJAVÍK • S. 681644