Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991.
3
Fréttir
Sérfræðingar á Borgarspítala:
Hættaviðað
hættaað
standa vaktir
- þartilum
Kjaradeila aöstoöarlækna, sem nú
er komin til ríkissáttasemjara, hefur
enn ekki haft mikil áhrif á Borgar-
spítalanum. Sérfræðingar á skurð-
deild ákváðu í síðustu viku að hætta
að standa vaktir aðstoðarlækna en
hafa nú hætt við að hætta þar sem
deilan er komin til sáttasemjara.
Örn Smári Arnaldsson, formaður
læknaráðs Borgarspítalans, segir að
sérfræðingar vonist nú til aö einhver
lausn fáist á deilunni og ætli aö
standa vaktir fram yflr næstu helgi.
Hins vegar er eingöngu bráðatilfell-
um sinnt og engar innkallanir verða
þessa viku. „Þeir sem eru á biðlista
verða að bíða áfram þar til málið
næstuhelgi
leysist," segir Örn Smári.
Sérfræðingar, eins og aðstoðar-
læknar, hafa í huga að segja upp
störfum sínum dragist deilan á lang-
inn. „Það er ekki búið að ákveða
þetta en menn hyggjast fara af stað
með eins konar könnun um hver
hugur manna sé varðandi slíkar að-
gerðir,“ segir Örn Smári.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari segir að á fyrsta fundinum,
sem haldinn var í gærmorgun, hafi
eingöngu verið lögð fram gögn og
staðan skoðuð. „Það er hins vegar
mikill ágreiningur og það ber mikið
í milli."
-ns
A KJORBOK
VAR 11,13-13,25%
ÞAD ÞÝÐIR ALLT AD *
RAUNÁVÖXTUN Á
UPPÁHALDSBÓK
Alþýðubandalagiö á Vestfjörðum:
Kristinn líklega
í fyrsta sætinu
- eftir aö Ólafur Ragnar, Svavar og Ásmundur höfnuðu
„Það er rétt að við höfum rætt við
þá Ólaf Ragnar, Svavar Gestsson og
Ásmund Stefánsson um að þeir taki
efsta sætið á listanum en þeir höfn-
uðu því allir. Þá er bara að sjá hvað
kemur út úr seinni umferð forvals-
ins,“ sagöi Karl Matthíasson, for-
maður kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum, í sam-
tali við DV.
í fyrri umferð forvalsins hlaut
Kristinn H. Gunnarsson úr Bolung-
arvík flest atkvæði. Kristinn var í
fyrsta sæti listans við síðustu al-
þingiskosningar en náði þá ekki
kjöri. Nú er talið víst að Kristinn
verði í fyrsta sæti listans aftur.
Hann var inntur eftir því hvemig
honum litist á að leiða listann í kosn-
ingabaráttu eftir að búið væri að
bjóða þremur mönnum utan kjör-
dæmisins efsta sætiö á listanum en
þeir allir hafnað því.
„Það er víst best að segja sem
minnst nema það að ég ætla að halda
áfram í síðari hluta forvalsins," sagði
Kristinn.
Hann sagðist hafa skilning á því
þegar reynt væri að fá þekkta stjórn-
málamenn til að taka sæti á listan-
um. Hins vegar sagðist hann telja
sterkara að tefla heimamönnum
fram en að sækja menn í önnur kjör-
dæmi.
-S.dór
Kjörbók Landsbankans var á árinu 1990
sami góði sparnaðarkosturinn og áður - jafnt fyrir
einstaklinga sem fyrirtæki. Grunnvextirá Kjörbók eru nú
9%. Standi hluti innstæðunnar óhreyfður hækka
vextirnir afturvirkt: í 10,4% eftir 16 mánuði
og í 11% eftir 24 mánuði. Þá er innstæða
á Kjörbók óbundin og að auki með verðtryggingu
á þann hluta hennar sem stendur óhreyfður yfir heilt
verðtryggingartímabil, en þau eru frá 1. jan.-30. júní
og frá 1. júlí til 31. desember.
Leiðretting vegna greinar um dauða
í helgarblaði DV var birt grein um
skilgreiningu dauða og brottnám líf-
færa og var hún sögð álitsgerð vegna
frumvarps til Alþingis. Það er ekki
rétt. Skýrsían var samin á vegum
Rannsóknarstofnunar í siðfræði fyr-
ir Kirkjuþing 1990. Skýrsluna sömdu
þeir Björn Bjömsson, prófessor í
guðfræði við Háskóla íslands, Mikael
M. Karlsson, dósent í heimspeki við
Háskóla íslands, Páll Ásmundsson,
yfirlæknir á Landspítalanum, og Vil-
hjálmur Árnason, lektor í siöfræði
við Háskóla íslands. Seinni hluti
greinarinnar verður birtur nk. laug-
ardag.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna