Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991.
Viðskipti
Nýja verðbréf afyrirtækið
blæs brátt í herlúðrana
- Siguröur Helgason og Gunnar Björgvinsson 1 Lúxemborg helstu hluthafar
Nýja verðbréfafyrirtækiö sem Sig-
urður Helgason, stjórnarformaður í
Flugleiðum, er að stofna hérlendis
ásamt dóttur sinni, Eddu Helgason,
sem búið hefur í London undanfarin
ár, blæs í herlúðrana um miðjan
þennan mánuð þegar félagið verður
skráð hjá Hlutafélagaskrá.
Með tilkomu þessa nýja verðbréfa-
fyrirtækis eykst samkeppnin mjög á
íslenska verðbréfamarkaðnum. Fyr-
ir eru fimm verðbréfafyrirtæki. Þau
eru Verðbréfamarkaður íslands-
banka, Fjárfestingarfélagið, Kaup-
þing, Landsbréf og Verðbréfavið-
skipti Samvinnubankans. -Öll þessi
félög eru tengd bönkum.
Mjög erfiðlega hefur gengið að fá
upplýsingar um • þetta nýja verð-
bréfafyrirtæki en samkvæmt heim-
ildum DV mun Sigurður Helgason,
stjómarformaður Flugleiöa, veröa
stærsti hluthafinn ásamt Gunnari
Björgvinssyni, flugvélasala í Lúxem-
borg.
Gunnar Björgvinsson var um ára-
Haraldurað
aukahlut
sinn í Stöð 2
Viðræöur eru í gangi á milli
þeirra Skúla Jóhannessonar í
Tékk-kristal, Bolla Kristinssonar
í Sautján og Garðars Síggeirsson-
ar í Herragarðinum og Haralds
Haraldssonar í Andra og fleiri um
kaup á hlut þeirra fyrrnefhdu í
Stöð 2. Samkvæmt heimildum DV
er málið enn fyrst og fremst á
viðræðustigi.
Hlutur þeirra Bolla og Skúla,
hvors um síg, nemur um 17 millj-
ónum króna á nafnverði. Hlutur
Garöars er um 6 milljónir að
nafnvirðl Samtals er hlutur þre-
menninganna í Stöð 2 því um 40
milljónir króna. Þeir hafa allir
verið í þeim hópi sem myndar
meirihluta í Stöð 2.
Haraldur er formaður Félags
íslenskra stórkaupmanna. Hann
á ásamt þeim Guöjóni Oddssyni,
formanni Kaupmannasamtak-
anna, Jóni Ólafssyni, eiganda
Skífunnar, og Jóhanni J. Ólafs-
syni, formanni Verslunarráðs,
fyrirtækið Fjórmenninga sf.
-JGH
Gunnsteinn
ístjórn
Stöðvar2
Gunnsteinn Skúlason, einn
aðaleigandi Sólningar hf. og hlut-
hafi i Stöð 2, hefur tekið sæti
Steingríms Ellingsen í stjórn
Stöövar 2. Gunnsteinn kom á sín-
um tíma inn í stöðina í hópnum
sem jafnan er kenndur við Ólaf
H. Jónsson. Sá hópur er í minni-
hluta.
Gunnsteinn var einn af vara-
mönnum í stjóm Stöðvar 2. Þegar
Hreinn Loftsson lögfræðingur
sagði af sér í lok nóveraber tók
varamaður hans, Steingrímur
Ellingsen hjá fyrirtækinu EU-
ingsen hf„ við af honum.
Þegar Steingrímur hætti töldu
sumir að kalla þyrfti saman hlut-
hafafúnd til að útnefha nýjan
stjómarmann. Að sögn Jóhanns
J. Óiafssonar, stjórnarformanns
Stöðvar 2, þurfti þess ekki heldur
settist Gunnsteinn í stjómina
semeinnvaramanna. -JGH
Gunnar Björgvinsson, flugvélasali í
Lúxemborg. Af mörgum talinn rík-
astur allra íslendinga.
bil framkvæmdastjóri í viðhalds- og
eftirlitsdeild flugfélagsins Cargolux.
Síðan stofnaði hann sitt eigið fyrir-
tæki í Lúxemborg sem kaupir og sel-
ur flugvélar og flugvélavarahluti.
Sigurður Helgason, stjórnarformað-
ur Flugleiða.
Gunnar er sterkefnaður og af mörg-
um tahnn ríkastur allra íslendinga.
Eftir því sem DV kemst næst eru
nokkur þekkt íslensk stórfyrirtæki á
skrá yfir hluthafa. Hlutur hvers
þeirra mun vera í kringum 5 milljón-
ir. Þá hafa nokkur fyrirtæki sýnt
áhuga á að koma inn í fyrirtækið
eftir að það hefur verið skráð og tek-
ið til starfa.
í upphafi mun hafa verið stefnt að
því að safna hlutafé fyrir um 70 milij-
ónir króna. Hlutafjársöfnunin hefur
hins vegar gengið mun betur en
reiknað var með og hefur þegar ver-
ið staðfest hlutafé fyrir yíir 80 millj-
ónir króna.
DV tókst hvorki að ná í Sigurð
Helgason né dóttur hans, Eddu
Helgason, í gær. Edda hefur rekið
fjármálafyrirtækið Sleipni í London
undanfarin ár.
Helstu starfsmenn hins nýja fyrir-
tækis, auk Eddu, eru tveir af helstu
starfsmönnum Fjárfestingarfélags-
ins undanfarin ár, þeir Stefán Jó-
hannsson og Pálmi Sigmarsson. Báð-
ir eru þaulkunnugir á verðbréfa-
markaðnum.
Þess má geta að það hefur vakið
athygli að á meðal hluthafa í hinu
Norðurleið og Landleiðir sameinast:
Líkur á að hætt verði
við Hafnarf iarðarakstur
Fyrirtækin Norðurleiö og Land-
leiðir voru sameinuð daginn fyrir
gamlársdag, 30'. desember. Fyrirtæk-
in hafa haft nána samvinnu um ára-
raðir og verið til húsa á sama stað.
Bæði fyrirtækin hafa að stórum
hluta verið í eigu sömu eigenda.
Þorvarður Guðjónsson, forstjóri
Norðurleiða og yfirmaður hins sam-
einaða fyrirtækis, segir að líkur séu
á að hætt verði við aksturinn til
Hafnarfiarðar með vorinu.
„Það hefur verið mikið tap á leið-
inni til Hafnarfiarðar og við munum
skoða það mjög vandlega hvort halda
eigi áfram akstri á þessari sérleið.
Það getur þess vegna komið til að við
hættum akstrinum til Hafnarfiarðar
með vorinu," segir Þorvarður.
Bílafloti hins nýja fyrirtækis er á
milli 20 og 30 rútur og strætisvagnar.
Helsta eign Landleiða, auk strætis-
vagnanna, var gott hús við Skógar-
hlíðina. -JGH
Mikligaröur:
Nokkrir yf irmenn
fengu reisupassann
yfirmaður þessarar deildar.
Þá má geta þess að nokkru fyrir
áramót hætti Þröstur Ólafsson sem
forstjóri Miklagarðs þegar það lá fyr-
ir að Ólafur Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri verslunardeildarinn-
ar, tæki við forstjórastöðu hins sam-
einaða fyrirtækis.
Þá hætti Gísli Blöndal sem mark-
aðsstjóri Miklagarðs í byrjun des-
ember.
-JGH
Vegna hagræðingar var um fimmt-
án manns hjá Miklagarði hf. og versl-
unardeild Sambandsins, þar af
nokkrum yfirmönnum, sagt upp um
áramótin þegar fyrirtækin voru
formlega sameinuð í eitt fyrirtæki,
Miklagarð hf. Hjá Miklagarði starfa
um 580 manns.
„Starfsfólki hjá báðum fyrirtækj-
um var sagt upp í hagræðingar-
skyni. Raunar hættu nokkrir sjálfir.
Þetta var nokkuð sem alltaf lá fyrir
og er eðlilegt þegar fyrirtæki samein-
ast,“ segir Ólafur Friðriksson, for-
stjóri Miklagarðs hf.
Ólafur segir að uppsagnirnar hafi
komið í kjölfar þess að deildir beggja
fyrirtækja, sem voru með sams kon-
ar starfsemi, hafi verið sameinaðar
í eina deild.
Þetta voru heimilisvörudeild, fata-
deild og Rafbúð Sambandsins af
hálfu verslunardeildar Sambandsins
og sérvörudeildin í Miklagarði. Guð-
mundur Gíslason, sem áður var yfir-
maður Rafbúðar Sambandsins, er nú
Vilhjálmur ráðinn til
Fjárfestingarfélagsins
Vilhjálmur Bjarnason.
Vilhjálmur Bjamason, viðskipta-
fræðingur og fyrrum útibússtjóri
Útvegsbankans í Vestmannaeyjum,
hefur verið ráöinn forstöðumaður
verðbréfadeildar Fjárfestingafélags-
ins.
Vilhjálmur er 38 ára. Hann varð
viðskiptafræðingur frá Háskóla Is-
lands árið 1977. Hann var um sjö ár
útibússtjóri hjá Útvegsbankanum í
Vestmannaeyjum. Vilhjálmur er
kvæntur Sigríði Ástu Hallgrímsdótt-
ur.
-JGH
nýja verðbréfafyrirtæki er Lífeyris-
sjóður Austurlands. Þá munu þeir
Sveinn og Ágúst Valfells vera á með-
al hluthafa.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 2-3 lb
Sparireikningar
3jamán.uppsögn 2,5-3 Allirnema Bb
6mán. uppsögn 3,5-4 Ib.Sb
12mán. uppsögn 4-5 lb
18mán. uppsögn 10 Ib
Tékkareikningar.alm. 0.5-1 Bb
Sértékkareikningar 2-3 Ib
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsógn 2.5-3.0 Allir nema Ib
Innlán meðsérkjörum 3-3.25 ib
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6.5-7 ib.Lb
Sterlingspund 12 12,5 Sb
Vestur-þýskmörk 7 7.6 Sp
Danskar krónur 8,5-9 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv-) 12,25-13,75 lb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupaengi
Almenn skuldabréf 12.5 14.25 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16-17.5 Allir nema Ib
Útlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,75-8,75 Lb.Sb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 12,25-13.75 Lb.Sb
SDR 10,5-11.0 Ib.Bb
Bandarikjadalir 9,5-10 Allir nema Sb
Sterlingspund 15-15,25 Sb
Vestur-þýsk mork 10-10.7 Sp
Húsnæðislán 4.0
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. des. 90 13,2
Verðtr. des. 90 8.2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalajan. 2969 stig
Lánskjaravísitala des. 2952 stig
Byggingavisitala jan. 565 stig
Byggingavísitala jan. 176,5 stig
Framfærsluvísitala des. 148,6 stig
Húsaleiguvísitala óbreytt l.okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5.269
Einingabréf 2 2.853
Einíngabréf 3 3.464
Skammtímabréf 1.769
Kjarabréf 5.186
Markbréf 2.573
Tekjubréf 2,016
Skyndibréf 1,540
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,528
Sjóðsbréf 2 1,795
Sjóðsbréf 3 1,757
Sjóðsbréf 4 1,510
Sjóðsbréf 5 1,059
Vaxtarbréf 1,7799
Valbréf 1,6685
Islandsbréf 1,094
Fjórðungsbréf 1,048
Þingbréf 1,093
Öndvegisbréf 1,084
Sýslubréf 1,101
Reiðubréf 1,075
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun n.v. 100
nafnv.:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,55 6,88
Eimskip 5,57 5.85
Flugleiðir 2,42 2,53
Hampiðjan 1.72 1,80
Hlutabréfasjóðurinn 1.76 1,83
Eignfél. lönaðarb. 1,89 1,98
Eignfél. Alþýðub. 1,38 1,45
Skagstrendingur hf. 4,00 4.20
Islandsbanki hf. 1,36 1,43
Eignfél. Verslb. 1,36 1,43
Oliufélagið hf. 6,00 6,30
Grandi hf. 2,20 2,30
Tollvörugeymslan hf. 1.07 1.12
Skeljungur hf. 6,40 6,70
Ármannsfell hf. 2,35 2,45
Fjárfestingarfélagið 1,28 .1,35
Útgerðarfélag Ak. 3,43 3,60
Olis 2,00 2,10
Hlutabréfasjóður VlB 0,95 1,00
Almenni hlutabréfasj. 1.01 1,05
Auðlindarbréf 0,95 1,00
islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn,
lb = lslandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.