Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1991, Qupperneq 16
16
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1991,-
íþróttir
Stúfar
frá
Englandi
Gurmar Sveinbjömsson, DV, Englandi:
• Nokkra athygli
vakti að skoski lands-
liðsmaöurinn Ally
McCoist var ekki í
leikmannahópi Rangers fyrir
hinn sögulega bikarleik gegn
Celtic. Ástæðan mun vera sú að
McCoist stalst á veðreiðar í Chelt-
enham þegar Sounness hafði
skipað honum að vera heima og
hvílast. Sá síðarnefndi komst að
öllu saman og setti McCoist út í
kuldann en sleppti honum þó við
fjársekt.
Lee stjóri Leicester
• Gordon Lee hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Leicester City
út þetta keppnistímabil. Lee hef-
ur stýrt liðinu allt frá því að
David Pleat var látinn taka poka
sinn fyrir sjö vikum en á þeim
tima hefur nánast annar hver
maður í Englandi verið orðaður
við stöðuna. Undir stjórn Lee
hefur Leicester spilað átta leiki,
unnið þrjá en tapaö fimm.
Líkt við Dalglish
• Billy Bonds, stjóri West Ham
United, er nú á höttunum eftir
Alan Mahood, ungum miðvallar-
spilara hjá Morton í Skotlandi.
Mahood er aðeins 17 ára en engu
aö síður eru menn farnir að líkja
honum viö Kenny Dalglish. Til-
boð West Ham hljóðar upp á 300
þúsund pund en forráðamenn
Morton hafa ekki svarað þvi en
viðurkenna að erfitt verði aö
halda í Mahood mikið lengur.
Seaiey valtur í sessi
• Les Sealey, markvörður Manc-
hester United, verður varla mikið
lengur á Old Trafford en út þetta
keppnistímabil. Sealey kom frá
Luton á frjálsri. sölu og sömu skil-
málar verða viðhafðir þegar
hann yfirgefur félagið. United
þarf ekki að leita langt yfir
skammt að eftirmanni því Gary
Walsh hefur náð sér eftir slæm
meiðsli og hefur sýnt .góða
frammistöðu með varaliðinu að
undanförnu.
Samning verður að virða
• Sænski landsliðsþjálfarinn
Tommy Svenson og George Gra-
ham eru engir perluvinir eftir að
Anders Limpar fór á heimaslóðir
fyrr í vetur til að spila með lands-
liðinu gegn Þjóöverjum. Svíar
eiga miklilvægan leik gegn
Grikkjum í næsta mánuði og
Svenson segist ákveðinn í að nota
Limpar í þeim leik og bendir á
aö samkvæmt samningi leik-
mannsins hafi hann rétt til að
spila a.m.k. 9 landsleiki á ári og
þaö verði Arsenal að gjöra svo
vel aö virða.
Lineker von á erfingja
• Þrátt fyrir misjafnt gengi Tott-
enham á þessu keppnistímabih
hefur Gary Lineker gengið vel í
hjónasænginni og kappinn á nú
von á barni með eiginkonu sinni.
Þetta er fyrsta barn þeirra hjóna
og Lineker er þegar búinn að út-
vega Tottenham-búninginn í
minnstu stærðinni en segir jafn-
framt aö engu máli skipti hvort
erfinginn feti í fótspor hans eða
snúi sér að annarri atvinnugrein.
Ferguson hækkar í launum
• Alex Ferguson, stjóri Manc-
hester United, á von á 50 þúsund
punda launahækkun. Forráða-
menn United viöurkenna að
Ferguson hafi dregist aftur úr í
kjarabaráttunni miðað viö stjór-
ana hjá Arsenal og Liverpool og
úr því verði bæta.
Sænskur handbolti:
Leikur
Ystad
til úrslita?
- vann Irsta 1 undanúrslitum
Gunnar Gunnarsson og félagar í
Ystad eiga mikla möguleika á að
leika til úrslita um sænska meistara-
titilinn í handknattleik eftir sigur á
útivelli, 27-28, í tvíframlengdum leik
gegn Yrsta í undanúrslitunum í
fyrrakvöld.
Leikurinn fór frafn í Vasterás í
Norður-Svíþjóð, á heimavelli Irsta,
og heimamenn jöfnuðu úr vítakasti
• Gunnar Gunnarsson.
Brynjar
markahæstur
Brynjar Harðarson úr Val tók á ný
forystuna í markakóngsslag úrslita-
keppninnar á íslandsmótinu í hand- >.
knattleik þegar hann skoraði 10
mörk gegn Víkingi í fýrrakvöld.
Hann komst marki uppfyrir Birgi
Sigurðsson úr Víkingi, sem gerði
„aðeins“ 8 mörk í sama leik.
Þessir eru nú 10 markahæstu leik-
menn úrslitakeppninnar:
Brynjar Harðarson, Val.......41/13
Birgir Sigurðsson, Víkingi...40/2
Petr Baumruk, Haukum.........38/7
Gylfi Birgisson, ÍBV.........37/9
Bjarki Sigurðsson, Víkingi...31/0
Óskar Ármannsson, FH.........29/7
Stefán Kristjánsson, FH......29/10
Valdimar Grímsson, Val.......27/6
Jón Kristjánsson, Val........26/0
Patrekur Jóhanness, Stjörnu..24/0
Magnús Sigurðsson, Stjörnu...22/9
Alexej Trufan, Víkingi.......20/7
Sigurður Gunnarsson, ÍBV.....19/1
Siguröur Bjarnason, Stjörnu..18/0
-VS/JKS
á lokasekúndum í venjulegum leik-
tíma, 19-19. Irsta jafnaði aftur, 23-23,
í lok fyrri framlengingar en í þeirri
síðari komst Ystad tveimur mörkum
yfir undir lokin en Irsta minnkaöi
muninn.
Gunnar komst vel frá leiknum og
var annar markahæsti leikmaður
liðsins með 5 mörk. Hann krækti
einnig í þrjú vítaköst og átti tvær
línusendingar í lok leiksins sem gáfu
mörk. Landsliðsmaðurinn Per Car-
lén lék ekki með Ystad vegna veik-
inda.
Liðin mætast aftur í Ystad á sunnu-
daginn og takist Gunnari og félögum
að sigra leika þeir til úrslita, en sigri
Irsta mætast liðin í þriðja sinn og þá
í Vásterás. Drott vann Lugi, 19-21, í
Lundi í fyrrakvöld og hefur tvo
heimaleiki til að knýja fram einn sig-
ur í hinu einvígi undanúrslitanna.
„Það hefur allt smollið sáman hjá
okkur í úrslitakeppninni, varnar-
leikurinn hefur verið frábær og
sömuleiðis markvarslan," sagöi
Gunnar í samtali við DV í gær. Ystad
var lengi vel í vetur í 7.-8. sæti úr-
valsdeildarinnar en gengi liðsins hef-
ur fariö batnandi eftir því sem liðið
hefur á tímabilið. -VS
• Brynjar Harðarson úr Val hefur
verið iðinn við kolann, er marka-
hæstur með 41 mark.
SeKossvann ÍR
Selfyssingar unnu góðan sigur á
ÍR-ingum, 20-22, i Seljaskóla í gær-
kvöldi en leikurinn var liður i úr-
shtakeppni neðri hlutans í hand-
knattleik. Selfyssingar sýndu mum
meiri baráttuanda og unnu sann-
gjaman sigur. í hálfleik var staðan
9-13 fyrir Selfoss. Með sigrinum
em Selfyssingar komnir í þriðja
sætið en keppnin er nú hálfnuö.
• Mörk ÍR: Ólafur Orrason 5,
Róbert Rafnsson 5, Jóhann Ás-
geirsson 3, Magnús Ólafsson 2,
Matthías Matthíasson 2, Guð-
mundur Þórðarson 1, Frosti Guð-
laugsson 1, Njörður Árnason 1.
• Mörk Selfoss: Einar Guð-
mundsson 9, Gústaf Bjarnason 7/1,
Einar Sigurðsson 4, Sigurður Þórð-
arson 1, Sigurjón Bjarnason l.
Palace og Everton á Wembley
Crystal Palace og Everton leika til úrslita í ZDS-keppninni á Wembley
7. apríl nk. Everton tryggöi sér sæti í úrslitum með því að vinna Leeds,
3-1, á Goodison Park í gærkvöldi í síðari leik liðanna. Tony Cottee skor-
aði tvívegis og Ebbrell eitt. Mel Sterland skoraði fyrir Leeds. Everton
vann samanlagt, 6-4. -JKS/G.SV
• Bandaríkjamaðurinn i liði Njarðvíkinga, Ronday Robinson, hefur betur í frákasti'
i leiknum í gærkvöldi. Robinson átti mjög góðan leik og hirti 23 varnar- og sókn<
Úrslitakeppni úrvalsdeildar í kö
Njarðvíki
í miklu s
- sigruðu Grindvíkinga í fyrri leik liðanr
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Njarðvíkingar unnu ótrúlega. léttan
sigur á nágrönnum sínum í Grindavík í
fyrri leik liðanna í úrslitakeppninni um
íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik
í Njarðvíkum í gærkvöldi. Njarðvík sigr-
aðimeð 86 stigum gegn 69 eftir aö staðan
í hálfleik var 48-31 fyrir Njarðvíkinga.
Eins og lokatölur leiksins gefa til kynr.a
sýndu Njarövíkingar mikla yfirburði og
þurfa Grindvíkingar heldur betur að
taka sig saman í andlitinu fyrir síðari
leikinn í Grindavík á laugardaginn kem-
ur til að knýja fram þriðju viðureignina.
Það var aðeins í byrjun sem jafnræði
var með liðunum. Grindvíkingar kom-
ust í 3-7 og var það í eina skiptið sem
þeir höfðu yfirhöndina. Njarövíkingar
sneru dæminu alveg við og skoruðu
íjórtán stig í röð og upp frá því áttu
Grindvíkingar ekki viðreisnar von. Að
vísu minnkuðu þeir muninn í tvö stig,
29-27, en síöan ekki söguna meir.
Njarðvíkingar sýndu
á kafla stórleik
Njarðvíkingar sýndu stórleik á þessum
leikkafla, beittu pressuvörn allan völl-
inn og sú varnaraöferö setti Grindvík-
inga alveg út af laginu. Liðsheildin var
sterk og allt gekk upp hjá heimamönn-
um. Síðari hálfleikur var jafn en hann
endaði 38-38. Njarðvík dró úr kraftinum
enda öruggur sigur kominn í höfn.
Teitur Örlygsson og Ronday Robinson
voru bestir í annars jöfnu liði Njarðvík-
inga. Robinson tók 23 varnar- og sókn-
arfráköst. Allt liðið á mikið hrós fyrir
frammistöðuna.
Lykilmenn hjá Grindavík brugðust í
þessum leik. Guðmundur Bragason
skoraði ekki eitt einasta stig í fyrri hálf-
leik og það hefur líklega ekki gerst áð-
ur. Dan Krebbs var góður í fyrri hálfleik
og skoraði þá 18 stig en haföi hægt um
sig í síðari hálfleik. Hjálmar Hallgríms-
son átti ágæta spretti.
Gunnar Þorvarðarson:
„Betra liðið vann þennan leik. Við töp-
uðum leiknum undir lok fyrri hálfleiks
en síðari hálfleikur var í jafnvægi. Það
sem fór úrskeiðis var nánast allt og ég
lofa að leikurinn á laugardaginn verður
ekki eins auðveldur fyrir þá því við ætl-
um okkur að knýja fram þriðja leik-
inn,“ sagði Gunnar Þorvarðarson, þjálf-
ari Grindvíkinga, eftir leikinn gegn
Njarövíkingum í gærkvöldi.