Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 25. MARS 1991.
Útlönd
DV
Skar undán sér við altarið
Tuttugu og tveggja ára gamall Pólverji gelti sjálfan sig á altarinu í dóm-
kirkjunni í Szczecin í heimalandi sínu til að mótmæla nýjum lögum um
fóstureyðingar.
Talsmaöur lögreglunnar í bænum sagði að skúringakona hefði fundið
manninn á fóstudagsmorguninn. Þá lá hann meðvitundarlaus á altarinu
og við hlið hans lágu kynfærin og eldhúshnifur. Manninum blæddi mik-
ið og var hann fluttur á sjúkrahús. Hann var þó ekki í bráðri lífshættu.
Lögreglan segir að maðurinn hafi viljað mótmæla strangari lögum um
fóstureyðingar en tók fram að hann hafi átt við verulega andlega erf-
iðleika að stríða og því lítið vit í skoðunum hans og geröum.
Saka Grænlendinga um of veiði
Grænfriöungar leggja nú höfuðáherslu á að stöðva hvalveiöar Græn-
lendinga. Þeir segja að Grænlendingar veiði fleiri hvali en gert var ráð
fyrir þegar heimilað var að veiða hvali við Grænland á síðasta ári og
vilja að Danir skerist i leikinn. Á árunum 1990 og 1991 fengu Grænlending-
ar heimild til að veiða 42 hvali en grænfriðungar segja að Grænlendingar
hafi veitt helmingi meira en þeir máttu.
Mál þetta hefur komist í hámæli nú þegar ársfundur Alþjóöa hvalveiðí-
ráðsins sendur fyrir dyrum i Reykjavík nú í maí. Grænfriðungar gera
sér vonir um að koma megi með öllu í veg fyrir hvalveiðar takist þeim að
fá Graenlendinga til aö hætta veiðum. í Grænlandi er áhugi á að halda
veiðunum áfram og segir Kaj Egede sjávarútvegsráðherra að stjórn hans
íhugi að segja sig úr hvalveiðiráðinu ef íslendingar og Norðmenn gera það.
Mannfall í óeirðum á Malí
Olíugróði
íraks í vasa
Saddams
í Bandaríkjunum er því haldið
fram að Saddam Hussein Iraksforseti
hafi á ferli sínum tekið um 10 millj-
arða Bandaríkjadala af tekjum fyrir
selda olíu til eigin þarfa. Þetta eru
um 600 milljarðar íslenskra króna.
Eftir því sem sjónvarpsstöðin CBS
segir hefur Saddam notað þessa pen-
inga til að kaupa fasteignir víða um
lönd.
Mál þetta hefur komist í hámæli
eftir að stjórn Kúvæts réð fjármála-
sérfræðing til að hafa uppi á fjárfest-
ingum Saddams og ættmenna hans.
Stjórnmálasérfræðingar segja að
þess sé nú vart lengi að bíða að Sadd-
am hrökklist frá völdum en upp-
reisnarmenn hafa stóra hluta lands-
ins á sínu valdi. Umsátursástand rík-
ir i Bagdad og í norðurhéruðum hafa
Kúrdar öll völd. Því er búist við að
Saddam leggi á flótta áður en langt
um líður og reyni að kaupa citthvert
ríki þriðja heimsins til að veita sér
hæli gegn álitlegri greiöslu.
Reuter
Núer upplýst á Nýja-Sjálandi að Mark Phillips, eiginmaður Önnu Breta-
prinsessu, bar fé á Heather Tonkin til að koma í veg fyrir að hún höfð-
aði mál gegn honum og krefðist þess að fá bamsmeðlög greidd. Blöð á
Nýja-Sjálandi segja að um verulegar fjárhæðir sé aö ræða. Milligöngumað-
ur var James nokkur Erskine í Ástralíu.
Samband Phillips og Tonkin komst í hámæli í síðustu viku þegar hún
ákvað að höfða mál gegn Phillips og krefja hann um meðlag og aö hann
viðurkenndi að vera faðir fimm ára gamallar dóttur hennar. Phillips
hefur ekkert viljað láta hafa eftir sér um máhö sem stöðugt verður um-
fangsmeira.
í skrifum blaða á Nýja-Sjálandi hefur komið fram að síminn hjá Tonk-
in var hleraður síðasta Sumar. Þá ræddi hún við Erskine og vildi fá sem
svaraði til 60 milljóna íslenskra króna frá Phillips til að segja ekki frá
því opinberlega að hún hefði aliö honum dóttur.
Kaupmenn hamstra kaffi
Verð á kaffibaunum hefur margfaldast í verði eftir að stjóm Brasilíu
ákvað að stöðva allan útflutning um óákveðinn tíma. Ráðherrar í stjórn-
inni segja þó aö vart þurfi að yænta hækkunar á verði til neytenda í
bráö því nóg sé til af birgðum. Áður en útflutningsbanniö tók gildi kost-
aði pundið af kaffibaunum um fimm sent en nú er það selt fyrir einn
Bandaríkjadal. Brasiliumenn reyna að koma á alþjóðlegum kvótum í
versiun með kaffi en flestir aðrir framleiðendur vilja að verslunin verði
fijáls og verö ráðist af framboöi og eftirspum. Reuter og Ritzau
Nú er viðurkennt að i það minnsta 150 menn hafa fallið á Mali eftir
miklar óeirðir þar um helgina. Stjómarandstæðingar boöuðu til alls-
heijarverkfalls í dag til að mótmæla haröstjóm Moussa Traore. Ríkis-
stjórnin hefur heimilað hermönnum og lögreglu að beita skotvopnum
gegn mótmælendum. Vestrænir sendimenn í landinum segja aö í það
-minhsta þúsund menn hafi særst og 150 fallið.
manna hefur komiö á sjúkrahus á Malí til að fá gert að sárum
sfnum eftir bardaga við her og lögreglu. Símamynd Reuter
Phillips bar fé á barnsmódursína
Heather Tonkin fer huidu höfði á Nýja-Sjátandi meðan hun reynir að fá
máii sínu gegn eiginmanni önnu Bretaprinsessu framgengt fyrir dóm-
Stólum. Simamynd Reuter
Kúvætar telja peninga fyrir utan banka á meðan þeir bíða eftir að geta skipt þeim fyrir nýja sem nú taka gildi.
Breytingin er gerð til að ógilda þá alla þá seðla sem írakar stálu. símamynd Reuter
Saddam eflir
varnir í Bagdad
- sagður óttást valdarán hersins
Samtök stjórnarandstæðinga í ír-
ak sökuðu í gær stjómarhermenn
um aö sprauta sým úr þyrlum yfir
uppreisnarmenn i Amara og Mosul
í norðurhluta landsins. Þetta er í
annað sinn á fimm dögum sem tals-
maður uppreisnarmanna kemur
með slíkar ásakanir.
Það hefur ekki fengist staðfest af
óháðum aðilum að stjórnarherinn
beiti fyrrnefndri aðferö en tyrk-
neskir fréttamenn, sem verið hafa á
ferð í norðurhluta íraks, segjast hafa
séð fólk á sjúkrahúsi í bænum Zakho
sem hafi orðið fyrir napalmsprengj-
um.
í yfirlýsingu stjórnarandstæðinga
sagði að sérsveitir Lýðveldisvarðar-
ins væru nú við öllu viðbúnar í
Bagdad, þar á meðal valdaráni hers-
ins. Varnir umhverfis bústað Sadd-
ams Hussein Iraksforseta hefðu ver-
ið efldar til muna. Engum vestræn-
um fréttamönnum er leyft að starfa
í Bagdad.
Saddam stokkaði upp í stjórn sinni
á laugardaginn. Útvarpið i Bagdad
tilkynnti þá að aðstoðarforsætisráð-
herra landsins, Saadoun Hammadi,
yrði forsætisráðherra en þeirri stöðu
hefur Saddam sjálfur gegnt. Hann
verður þó áfram í embætti forseta.
Útvarpið greindi einnig frá því aö
fleiri breytingar hefðu verið gerðar.
SANA, hin opinbera fréttastofa
Sýrlands, greindi frá því að upp-
reisnarmenn hefðu tekið til fanga
heila herdeild eftir bardaga í norður-
hluta íraks á laugardaginn. Heil her-
deild samanstendur af tólf þúsund
mönnum.
írakar og bandamenn skiptust á
stríðsfóngum í gær. Talsmaður Al-
þjóða Rauða krosssins í Riyadh sagði
að þúsund íraskir stríðsfangar hefðu
verið afhentir íröskum yfirvöldum.
Ellefu hundruð og fimmtíu stríðs-
föngum var ekið frá írak til saudi-
arabískrar landamæraborgar og
flogið þaðan til Kúvæts.
Hundruð Kúvæta stóðu í biðröðum
í gær fyrir utan banka til að skipta
á gömlum peningum og nýjum sem
nú hafa verið settir í umferð. Bankar
voru opnaðir í gær í fyrsta sinn frá
því að stríðinu lauk. Seðlarnir, sem
nú hafa verið settir í umferð, koma
í stað þeirra sem voru í gildi fyrir
innrás íraka. Erþað gert til að ógilda
allt það fé sem Irakar stálu frá Kú-
væt.
Reuter