Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 25. MARS 1991. Grænt númer! 996699-sparilán Nú er rétti tíminn til aö taka skynsamlega ákvörðun! Áskrift aö spariskírteinum ríkissjóðs! Ríkis- sjóður íslands! Snepill með þessum upphrópanavaðli barst inn um bréfalúgu mína nú nýveriö. Á þess- um blekkingavef aldrei að linna? Hvað eru verðbréfasjóðir og bankar að gera, með ríkissjóð í broddi fylkingar, þegar þeir þykj- ast bjóða miklu meiri „ávöxtun" íjármagns en annars staðar er hægt að fá. Ef svo er, hvað erum við þá að berjast við að halda fram- leiðslugreinum til lands og sjávar gangandi, sem ekki geta boðið neitt þessu líkt og margur segir að séu baggi á landslýð? - Hvers vegna lif- um við ekki bara góöu lífi á við- skiptum við þessa góðu arðsemis- sjóði? Aukaatriði? Mín skoðun hefur ávallt veriö sú, að ávöxtun fari öll fram úti í at- vinnulífmu, og þó einkum í fram- leiðslugreinunum, þar sem verð- mætaöflun og verðmætasköpun fer fram. Aldrei láta aðstandendur sjóða og banka neitt uppi um það, hvernig þeir fara að því að ná hinu mikla fjármagni, sem þeir bjóðast tU að greiða handhöfun pening- anna, sem verið er að falast eftir. Það er eins og það sé algjört auka- atriöi. Sprettur þetta bara fram úr ermum þeirra? Ekki hef ég nú trú á því, jafnvel þótt þeir væru mikhr galdramenn, sem mér sýnist þeir telja sig vera. En þessum aðilum var af lagasmiðum Alþingis rétt upp í hendur vítisvél, sem í snún- Kjallariim Guðni Daníelsson húsasmiður ingi sínum hakkar og malar, sýgur blóð og merg úr efnahags- og at- vinnulifi þjóðarinnar. - Galdra- tækið vinnur sem sagt neikvætt, rífur niður í stað þess að byggja upp. Hvers konar Alþingi? Ég nefndi Alþingi. Hvers konar Alþingi er það sem-beitir svona brögðum? Þjóðþing hefði aldrei hagað sér á þennan máta. Hagur þjóðar hefði hlotið að sitja í fyrir- rúmi. Þetta svokallaða Alþingi virðist aðallega setið fulltrúum peningavalds, sem fær óáreitt og lögverndað að stunda eitt hroðaleg- asta arðrán sem yfir þessa þjóð hefur gengið. Tilfærslan á hinu svonefnda fjármagni hefur verið svo hrikaleg síðustu tólf árin, frá framleiðslugreinunum, ýmist beint í eða í gegnum launþega, að nemur örugglega hundruðum ef ekki þús- undum milljarða króna. Þetta eru verk hins svonefnda Alþingis með arðránslögunum 1979, sem ég kalla svo og þar með var hrunadansinn hafmn. Framleiðslufyrirtækin tóku þeg- ar að hrynja og hvað hraðast í iðn- aðinum, enda er hann nánast í rúst. Landbúnaði og sjávarútvegi haldið í úlfakreppu og á brauðfótum, greinar, sem gætu bjargast á eigin spýtur, án nokkurs sjóðafargans, ef þær fengju að halda sínu. Gætu samt, að mínu mati, greitt góð laun og ríflegar upphæöir til samfélags- þarfa. Hér ætti enginn að þurfa að vera í fjárhagserfiðleikum hvar í þjóö- félaginu, sem hann er settur. Hér ætti hver fjölskylda að geta átt sína íbúð skuldlausa. Þjóðfélagið gæti átt miklar fjárfúlgur í staö þess að skulda hrikalega. Við gætum átt einn sterkasta gjaldmiðil í heimi ef rétt hefði veriö á málum haldið. Hér gæti athafna- og atvinnulíf ver- ið í miklum blóma um allt lanð og enginn flótti þeirra hluta vegna. Innstæður í erlendum bönkum Hér er smá saga úr fortíðinni. Á sjötta áratugnum, sem kallaöur hefur verið skömmtunaráratugur- inn, þegar búið var að sólunda öll- um stríðsgróðanum og taka að auki hrikaleg lán til að endurnýja tog- araflotann, að sagt var, á einu bretti, varð mönnum alltíðrætt um skuldir og efnahagsmál. Einhvern tíma á þessum árum hafði verið hér á ferð þýskur bankamaður og fór þessi umræða ekki fram hjá honum, en honum varð þá að orði að íslendingar þyrftu ekkert að kvarta, þeir ættu nógar innstæður í erlendum bönk- um til að borga upp allar sínar skuldir. Hins vegar vildi svo til að ís- lenska ríkið átti ekkert nema skuldasúpuna. Hvaða íslendingar áttu þá innstæðurnar? Dettur nokkrum í hug að hlutur innstæðu- hafanna sé eitthvað lakari í dag? Það skyldi nú ekki vera, að nóg væri til í erlendum bönkum fyrir skuldum okkar nú. Ekki kæmi mér það á óvart og meira að segja margfalt það. En við þessu má nátt- úrlega ekki hrófla á nokkurn hátt. Gæti verið að alþingismenn hefðu eitthvað af þessum auði á sínum nöfnum? Ef þessir eru jafn-ábyrgðarmiklir og þeir vilja vera láta, hvers vegna seilast þeir þá ekki eftir auðmagn- inu til að forða þjóðinni frá efna- hagslegu hruni? Það er nú reyndar ekki að sjá, að það sé þeim áhyggju- efni. Maður gæti frekar ímyndað sér, að þeir væru í óðaönn að láta spádóma Nostradamusar rætast, að glutra niður sjálfstæði okkar og yrði þá án efa innganga í EB bana- höggið. Guðni Daníelsson „Aldrei láta aðstandendur sjóða og banka neitt uppi um það, hvernig þeir fara að því að ná hinu mikla fjár- magni, sem þeir bjóðast til að greiða handhöfum peninganna.“ Framtíð, átaksverkef ni Mýrdælinga í atvinnumálum Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur tekið ákvörðun um að fara út í átaksverkefni í atvinnumálum í hreppnum í þeirri von að það sé vænlegur kostur til þess að efla atvinnulífið. íbúum hreppsins fækkaði um 15 á síðasta ári, og er það nokkuö mikiö í 600 manna samfélagi, meðal annars vegna þess að fólk missti atvinnuna eða vegna ótryggs ástands. Þetta fólk flytur burt frá óseldum húseignum til þess að leita að einhverju sem er hugsanlega betra. Ætti að skila árangri Það var að tillögu atvinnumála- nefndar Mýrdalshrepps sem þessi ákvörðun var tekin, en ný atvinnu- málanefnd var skipuð eftir síðustu sveitarstjómarkosningar. Nefndin hóf störf í júlí á síðasta ári og var þá aöallega rætt um atvinnu- ástandið í hreppnum og hvað myndi gerast ef ekkert væri að gert. Nefndarmönnum var ljóst að þaö þyrfti að grípa til ráðstafana til þess að tryggja öllum örugga at- vinnu sem vilja búa á staðnum. Þaö var einnig ljóst að við sem búum í Mýrdalnum þyrftum sjálf aö gera víðtækt átak í atvinnumál- um í hreppnum. Nokkur tími fór í það að kynna sér ýmsar leiðir sem famar hafa verið í eflingu atvinnu- lífs í samfélögum á landsbyggðinni sem hafa átt við svipuð vandamál að etja. Að lokinni þessari athugun var KjaUarinn Páll Pétursson starfar við Fjarvinnslu í Vík ákveðið að svokallað átaksverkefni í atvinnuþróun væri líklegt til að henta Mýrdælingum vel og ætti það áð geta skilaö einhverjum ár- angri. Verkefni sem þetta byggir að mjög miklu leyti á þátttöku íbú- anna þvi að þeir þekkja þróun und- anfarinna ára, hvað hefur veriö reynt að gera og hvernig það hefur heppnast. Einnig ættu heimamenn að vita best hvað hægt er að nýta af auðlindum í náttúrunni, hvaða þekkingu er að fá á staðnum o.s.frv. íbúarnir sameinast Átaksverkefni er í fáum orðum það að íbúarnir sameinast um að leita leiða og vinna skipulega að því að þróa og styrkja atvinnulífið og auðga þar með mannlífið um leið. Verkefniö hófst formlega með svokallaðri leitarráðstefnu sem haldin var í maí 1991. Á ráðstefn- unni kom saman hópur manna, 67 talsins, sem fjallaði í nokkrum smærri hópum um ákveðna þætti atvinnustarfseminnar á staönum, söguna, nútíðina, æskilega þróun og hvað geröist ef ekkert verði að gert. Þeir sem á leitarráðstefnuna komu er fólk sem hefur áhuga á að taka þátt í að móta þróun at- vinnulífs ög mannlífs í byggöarlag- inu. Verkefnið stendur formlega í 18 mánuði og hljóðar kostnaöaráætl- un upp á 6 milljónir króna. Þeir sem fjármcgna verkefnið eru eftir- taldir: Atvinnuþróunarsjóöpr Suð- urlands, Búnaöarbankinn í Vík, Byggöastofnun, Kaupfélag Árnes- inga, Mýrdalshreppur, Samvinnu- bankinn í Vík og Verkalýðsfélagið Víkingur í Vík. Verkefnisstjórn er skipuö fólki frá fjármögnunaraðil- um. Stjórnin hefur auglýst eftir verkefnisstjóra og hlutverk hans verður að vinna með hópum á leit- arráðstefnunni og eftir hana, og meö starfandi fyrirtækjum að áframhaldanadi þróun hugmynda og verkefna og aðstoða við að út- vega sérfræðiráðgjöf þar sem hennar er þörf. Þá verður væntan- lega hægt að fá aðstoð við að leita fjármögnunarleiða fyrir góðar hug- myndir til þess að hægt sé aö hrinda þeim í framkvæmd. Atvinnumálanefndin leggur á þaö mikla áherslu að þetta verkefni er ekki einungis hugsað til þess að koma á fót nýjum fyrirtækjum, heldur ekki síður til þess að hlúa að þeim sem fyrir eru með þvi að útvíkka og þróa framleiðslu og þjónustu þeirra. Aðeins upphafið Ætlunin er aö þessir 18 mánuðir séu aðeins upphafið að stöðugri framþróun í samfélaginu. Það táknar ekki það aö eftir 18 mánuöi geti menn sest niður og sagt, „Jæja, nú er þetta búið, eigum viö þá ekki að slaka á og athuga hvort þetta getur ekki komið af sjálfu sér núna!“ Nei, það verður að vinna áfram á sama hátt, viðhalda já- kvæöu hugarfari og bjartsýni því að það er mjög eríitt að láta nokk- urn hlut virka vel nema það sé hvort tveggja til staðar. Fyrstu dagana í febrúar fór fram kynning á verkefninu í Mýrdaln- um þannig að atvinnumálanefnd- armenn skiptu á milli sín verkum og mættu á vinnustaðafundi og á fundi hjá hinum fjölmörgu félögum sem starfa í hreppnum. Á þessum fundum hefur verið lögð áhersla á það aö koma af stað jákvæðri um- ræðu um samfélagið og aö ýta und- ir bjartsýni á framhaldið. Um leið var leitað eftir sjálfboðaliðum til þess að taka þátt í leitarráðstefn- unni og hefur það gefið góöa raun. Það verður hins vegar að benda á það að átaksverkefni er ekki nein kraftaverkalausn í málefnum landsbyggðarinnar. Átaksverkefni kallar á mikla vinnu íbúa og fyrir- tækja þess svæðis sem ræðst í slíkt verkefni og byggist mikið á því að allir taki þátt. Það er mikill árang- ur ef hugarfarið verður jákvætt og aö fólk verður aftur bjartsýnt á framhaldið, því að með hvort tveggja í farteskinu má gera ótrú- legustu hluti. Páll Pétursson „Verkefni sem þetta byggir að mjög miklu leyti á þátttöku íbúanna því að þeir þekkja þróun undanfarinna ára, hvað hefur verið reynt að gera og hvernig það hefur heppnast.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.