Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Side 20
2<r
MÁNUJDAtíUR 26. MARS J991-
Fréttir
Fiskmarkaöurinn leigir stórt og mikiö hus af Meitlinum í Þorlákshöfn. Þar voru margir bílar fyrsta markaðsdaginn.
DV-myndir Einar
Þorlákshöfn:
Fiskmarkaður
tekinn til starfa
Einar Gíslason, DV, Þorlákshöfn:
Andri Matthías Guðmundsson,
framkvæmdastjóri fiskmarkaðarins.
Fyrsta uppboðið á nýstofnuðum
fiskmarkaði hér í Þorlákshöfn var
haldið fóstudaginn 15. mars. Andri
Matthías Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri markaðarins, stjórn-
aði uppboðinu. Boðinn var fiskur
bæði af línu- og netabátum og var
heildarmagniö 16,7 tonn. Netaþorsk-
ur var sleginn á 105 kr., línuþorskur
á 96 kr., ýsa á 100 kr„ ufsi á 42 kr.
og steinbítur einnig á 42 kr.
Markaðurinn er almenningshluta-
félag í eigu ijölmargra einstaklinga
og fyrirtækja víðs vegar aö. Að sögn
Andra Matthíasar verður markaður-
inn rekinn í samvinnu við Faxa-
markað í Reykjavík þannig aö upp-
boðin verða samtengd með fjarskipt-
um svo viðskiptavinir geti boðið í
fiskinn á hvorum staðnum sem er.
Uppboðstímar eru fyrirhugaöir
fyrst um sinn kl. 17.30 á virkum dög-
um en kl. 13.00 á laugardögum.
Ólafsfjörður:
Góð afkoma bæjarsjóðs
Helgi Jónsson, DV, ÓJafefirði:
Fjárhagsáætlun Ólafsíjarðarkaup-
staðar og stofnana hans var nýlega
lögð fram fyrir bæjarstjórn. Áætlun-
in gerir ráð fyrir góðri afkomu bæj-
arsjóðs en áætlað er að til ráðstöfun-
ar verði 61 milljón króna.
Heildartekjur bæjarsjóös eru áætl-
aðar 170,5 milljónir en þar mun
rekstrarafgangur verða um 20 millj-
ónir. Stærsti tekjuliöurinn er útsvör,
84 milljónir. Aðstöðugjöld munu gefa
20 milljónir og fasteignaskattur um
17 milljónir króna.
Helstu útgjaldaliðir eru fræðslu-
mál 19 milljónir, yfirstjórn bæjarins
13 milljónir, almannatryggingar 12,5
milljónir, götur og holræsi 9 milljón-
ir, æskulýðs- og íþróttamál 9 milljón-
ir. Heildargjöld eru um 150 milljónir.
AUKABLAÐ
TÆKMI
DV-Tækni er sérstakt aukablað sem er fyrirhugað að fylgi DV miðviku-
daginn 10. apríl nk.
í blaðinu verður fjallað um tækni og vísindi á breiðum grundvelli,
sérstaklega nýjustu tækni dagsins i dag í atvinnurekstri, i daglegum
störfum og leik, á heimilum o.fl.
Sérstöku Ijósi mun verða beint að almennum einkatölvunotendum.
Leitast verður við að upplýsa um tölvur, jaðartæki, hugbúnað og
annan búnað sem fólk, sem notar tölvur, þarf á að halda.
Eins og í DV-Tækni í fyrra mun áhersla verða lögð á stuttar, hnitmið-
aðar greinar á mæltu máli sem notendur skilja eins vel og tækni-
menn.
Auk tölva, prentara, hugbúnaðar og þess sem fylgir er ætlunin að
fjalla um Ijósritunarvélar, fax- og símatækni alls konar, þjófavarna-
kerfi og annan búnað sem tengist tölvunotkun og skrifstofuhaldi.
Auglýsingum í DV-Tækni þarf að skila í síðasta lagi fimmtudaginn
4. april.
Ath.! Simafaxnúmer okkar er 91-27079 og sími auglýsingardeildar
91-27022 ^____________________
Auglýsingar. Þverholti 11 - simi 27022.
- DV
Ferðamannaþjónustan á íslandi:
Hátt matarverð hér
erf iðasta hindrunin
Ingibjörg Hinriksdóttir, DV, Stykkishólini:
Ýmsir aðilar, sem tengjast ferða-
málum á Snæfellsnesi, í Dölum og
Reykhólahreppi, hittust í Stykkis-
hólmi laugardaginn 9. mars sl. Meðal
gesta á kynningarmótinu voru Páll
Helgason, ferðamálafrömuður árs-
ins, og Sigmar B. Hauksson.
Mótið hófst með því að hist var á
Hótel Stykkishólmi og þaðan var far-
ið í siglingu með Breiðafjarðarferj-
unni Baldri. Farið var í stutta sigl-
ingu um Suðureyjar, m.a. sigldi feij-
an um Klakkeyjasund. Ekki var laust
við að farþegar fólnuðu örlítið meðan
siglt var þar en skipstjórinn, Jón
Dalbú Ágústsson, sigldi skipi sínu
örugglega gegnum þröngt sundið.
Frá Baldri fóru mótsgestir í Bjarn-
arhöfn þar sem Hildibrandur
Bjamason kynnti hákarlsverkun.
Um kvöldið var var snæddur kvöld-
veröur í Hótel Stykkishólmi og var
Sigmar B. veislustjóri. í máh hans
og Páls Helgasonar kom fram að
hátt matarverð væri það sem stæði
helst ferðamannaþjónustu á íslandi
fyrir þrifum. Nú þegar magn matar,
sem erlendir feröamenn mega hafa
með sér hingað, hefur verið stór-
minnkað verður enn nauðsynlegra
að lækka verð á matvöru.
1 i ■ n |
- f 1 Hl*.?; r : /ú
1 v ■
%
Frá ferðamálaráðstefnunni í Stykkishólmi. Þeir Sigmar B. og Páll í öðru
og þriðja sæti frá vinstri. DV-mynd Ingibjörg
Vík í Mýrdal:
Námskeið í nútíma
skrifstofutækni
Páll Pétursson, DV, Vík í Mýrdal:
Þessa dagana er í gangi námskeið
í skrifstofutækni hér í Vík í Mýrdal
á vegum Tölvuskóla Reykjavíkur.
Markmið námsins er að mennta fólk
til starfa á nútíma skrifstofu.
Aðaláherslan er annars vegar lögð
á kennslu í notkun algengustu not-
endaforrita á PC og Macintosh tölvur
og hins vegar kennslu í viðskipta-
greinum, bókfærslu, verlsunar-
reikningi og fleira.
Kennt er þrisvar í viku, mánudags-
og miðvikudagskvöld og laugardaga.
Þátttakendur eru 12 talsins og kenn-
arar eru heimamenn í Vík.
Akranes:
Lögsaga sýslu-
manns stækkuð?
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Bæjarstjórn Akraness hefur í bréfi
til dómsmálaráðuneytisins lýst
þeirri skoðun sinni, að eðlilegt sé að
mörk lögsögu sýslumanns á Akra-
nesi miðist við svæðiö sunnan
Skarösheiðar. Auk Akraness er um
að ræða eftirfarandi hreppa: Hval-
fjarðastrandar-, Leirár-og Mela-,
Skilmanna- og Innri- Akranes-
hreppa.
Til þessa hefur embætti sýslu-
manns aðeins miðast við Akranes en
nærhggjandi sveitarfélög heyrt und-
ir sýslumannsembættið í Borgarnesi.
Yrði lögsögumörkum breytt myndi
það auka umsvif bæjarfógetaemb-
ættisins á Akranesi en að sama skapi
missti sýslumannsembættið í Borg-
arnesi spón úr aski sínum.
í bréfinu segir m.a. í röksemda-
færslu bæjarstjórnar fyrir breyting-
unni:
„Um árabil hefur verið náin sam-
vinna með framangreindum sveitar-
félögum enda eru þau þannig stað-
sett að samvinna þeirrá hefur verið
sjálfsögð. Sveitarfélögin hafa með sér
samstarf um rekstur og byggingu
dvalarheimhis fyrir aldraða, heil-
brigðis-og heilsugæsluumdæmið
nær yfir þessi sveitarfélög, sveitarfé-
lögin reka saman bókasöfn, öll sveit-
arfélögin nema Hvalfjarðarstrandar-
hreppur standa saman aö rekstri
slökkviliðs og einnig reka sveitarfé-
lögin öll sorphauga saman. Fleira
mætti nefna en veigamestu rökin eru
þó hvað öryggismálin varðar, þ.e.
heilsugæslu, brunavarnir og al-
mannavarnir auk þess sem vega-
lengdir hljóta að skipta mjög miklu
máh.“
Stóraukin kjötsala á Selfossi
Regina Thorarensen, DV, Selfossi:
Góö sala var á landbúnaðarvörum
hér á Selfossi á síðasta ári. Hjá kjöt-
vinnslu Kaupfélags Árnesinga jókst
kjötsalan um liðlega 40% - úr 65
milljónum í 91 milljón króna.
Ingólfur Bárðarson, yfirmaður
kjötvinnslunnar, þakkar þessa sölu-
áukningu stöðugu verðlagi og að
starfsfólk kjötvinnslunnar leggur
áherslu á að hægt sé að treysta fram-
leiðslu fyrirtækisins. Þess má geta í
lokin að 12 manns vinna þarna og
Ingólfur hefur unniö þarna í 38 ár.
Lærði þar og hefur verið yfirmaður
síðustu áratugina.