Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Qupperneq 25
MÁNUDAQUR 25..MA5jtS.l^ $ Menning Vegferðin langa Mikið hefur verið ritað og rætt um endur- byggingu Þjóðleikhússins og sýnist sitt hverjum. Nýinnréttaður áhorfendasalurinn var vígður með pomp og prakt að viðstöddu stórmenni síðastliðinn fimmtudag (þó að margt sé ófrágengið enn) og á laugardaginn fengu síðan tryggir áhorfendur og staðfastir vinir Þjóðleikhússins í gegnum tíðina að berja dýrðina augum. Vonandi gengur jafn vel og greiðlega að ljúka seinni áfanga verksins þ.e.a.s. þeim nauðsynlegu viðgerðum og endurbótum á húsinu, sem urðu tilefni alls rasksins, en því miður er þar mikið verk óunniö. En það bar fleira og um margt áhugarverð- ara en andlitslyftingu á salnum fyrir augu í Þjóðleikhúsinu því að þar gafst færi á að sjá nýja leikgerð Péturs Gauts, sem þau Þór- hildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Sigurjón Jóhannsson leikmyndahöfundur hafa unnið eftir margfrægu leikriti Henriks Ibsen. Það hendir sjálfsagt seint að allir verði á eitt sáttir um túlkun og vinnslu á Pétri Gaut, svo margslungið og margrætt sem verkið er. En hver kynslóð hefur sínar forsendur og sinn skilning á inntaki og eðli verksins og það er fagnaöarefni að áhöfn Þjóðleikhússins skuh nú, að loknu löngu hléi, leggja til atlögu við stórvirki á borð við Pétur Gaut í skín- andi þýðingu Einars Benediktssonar. Ljóðmál hans lciftrar og sindrar en það er ékki á allra færi að segja þann texta fram svo að vel fari. Yfirleitt var framsögnin skýr en ljóðformið var stundum óþarflega útflatt og viðleitin við að færa textann til venjulegs talmáls einungis til þess fallin að veikja þaul- hugsaða byggingu textans. Já, víst er verkefnið stórt og ögrandi og ekkert til sparað svo að útkoman verði sem glæsilegust fyrir augu og eyru. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður á æfingatímanum í hálf- byggðu húsi er vel til sýningarinnar vandað í hvívetna og hún blandast vel. Þórhildur Þorleifsdóttir er eins og fyrr sagði jafnframt leikstjóri og fylgir forsendum leikgerðarinnar markvisst eftir í vinnslunni. Hany Hadaya semur dansa sem falla vel að framvindu verksins og Páll Ragnarsson annast lýsingu sem skiptir mjög miklu máli í sýningunni. Sá Pétur, sem birtist í upphafi sýningar, er öldungur, vegmóður víðfórh, sem snýr heim á leið. Þegar hann horfist í aúgu við endalokin renna upp, myndir og minningar. Endurminningar eða órar? Þar á milli eru vísast engin skýr skil, þegar Pétur á í hlut. Hugmyndina að leikritinu um Pétur Gaut fékk Henrik Ibsen úr þjóösögum sem segja frá þeim hraðlygna skálki, Peer Gynt. Hann á sér frændur í sambærilegum sögnum víða um lönd og þetta einfalda og alþekkta þjóð- sagnaminni verður höfundi kveikja að ótrú- lega margræðu og mögnuðu skáldverki. Það fjallar um leit mannsins að sjálfum sér, langa vegferð hans um refilstigu og haf- villur í ólgusjó lífsins. En það íjallar líka um Arnar Jónsson i hlutverki Péturs Gauts. Með honum á myndinni eru Örn Árnason, Jón Símon Gunnarsson og Jóhann Siguróarson. mannleg samskipti, verðmætamat, tilgang lífsins og sjálfan kjarna tilverunnar. Og túlk- unarmöguleikar eru óendanlegir. Við vinnslu leikgerðarinnar hafa þau Þór- Leiklist Auður Eydal hildur og Sigurjón sniðið efnið að þeim grunnhugmyndum sem þau ganga út frá. Að sjálfsögðu þarf þar bæði að velja og hafna og vinsa úr þeim efnivið, sem fyrir liggur, en eigi að síður stendur eftir um fjögurra klukkustunda löng sýning. Eins og fyrr segir verða menn sjálfsagt ekki á eitt sáttir um úrvinnsluna en burtséð frá því hvað er tekið með og hverju sleppt stendur eftir mynd manns sem lítur yfir far- inn veg og reynir að finna tilgang lífs síns - og kjarnann í sjálfum sér. Til þess að skerpa þessa mynd kljúfa þau aðalpersónuna í tvennt, þegar kemur að „endurminningaatriðunum" og skapa þann- ig nýja vídd í vterkið. Þessi aðferð er vel þekkt og hér gekk hún mæta vel upp. Stafkarlinn Pétur Gautur stendur aðgerðalaus álengdar í þessum atriðum og fyrir hugskotssjónir hans renna atvik og minningar. En þetta form er líka brotið upp og til að létta það og tengja gamla manninn hinum unga renna hugsnir og endurminningar stundum saman og sögusvið blandast. Leikgerð þeirra Þórhildar og Sigurjóns er „klassísk“ í þeim skilningi að ekki er reynt að þröngva upp á áhorfendur nútímasýn eða einhæfum lausnum. Sjálf sagan fær að njóta sín. Stíllega séð fannst mér hins vegar of skörp skil í sýningunni á milli upphafsatriðanna í þessari leikgerð þar sem segir frá veraldar- volki Péturs og endurminningaatriðanna sem á eftir koma. Þar hjálpast allt að, jafnt leikmynd og leikstíll sem efnistök. Þessi skil ollu því að verkið klofnaði í tvo hluta sem ekki tókst nógu vel aö bræða sam- an. Gneistandi kraftur og lífsorka seinni hlutans bar fyrstu atriðin ofurliði og kæfði þau, þannig að við samanburðinn virtist fyrsti hlutinn sterill og lífvana, stundum lítið meira en stílæfmgar, þrátt fyrir margar at- hyglisverðar sviðslausnir. í þessum fyrstu atriðum eru bylgjandi slæður dregnar þvert fyrir sviðið og mynda þær öldur og eyðimerkursand eftir atvikum, eða þá bakgrunn, þar sem það á við. Þetta var víða ansi „flott" t.d. í atriðinu „Á rúmsjó", þar sem þetta kom sérlega vel út. En ekki tókst nógu vel að stjórna slæðunum í öllum tilfellum og lá við að þær yrðu leikur- um að fótakeíli í bókstaflegri merkingu. Þá truflaði það líka að aðstoðarmenn á sviðs- vængjum sáust greinilega (af 8. bekk) þar sem þeir tvíhentu stengur við stjórn slæð- anna. Sviðsmynd í seinni atriðum er í senn ein- föld og margræð og nýtist framvindu verks- ins á fyrirhafnarlausan hátt. Þar fer Sigurjón Jóhannsson höfundur allt aðra leiö en í fyrsta hlutanum. Báðar eru lausnirnar feiknagóöar, en mjög ólíkar og skerpa enn frekar þau skil sem eru í leikgerðinni. Hljómlist Hjálmars Ragnarssonar þótti mér falla Ijúft að verkinu og ekki saknaði ég Griegs að marki nema þá helst í höll Dofr- ans. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir flutti falleg- an söng Sólveigar af stökum yndisþokka og öll túlkun hennar í hlutverkinu var bæði heillandi og sterk. Hún er hin barnslega sak- lausa stúlka sem þroskast og verður ást- fangin og seinna sú goðumlíka vera sem ein getur veitt vegmóðum hvíld. Steinunn tekst hér á við margrætt og viðkvæmt hlutverk og veldur því með prýði. Kristbjörg Kjeld leikuf- Ásu og skapar heila og sanna mynd af af þessari léttklikkuðu móður, sem hverfur á vit ævintýranna, þeg- ar raunveruleikinn gerist of þungbær. Krist- björg hefur sjaldan eða aldrei leikið betur. Hún kemur eins og ferskur gustur inn á svið- ið og spilar allan skalann léttUega, allt frá hrifningu til dýpstu örvæntingar. Þeir Arnar Jónsson og Ingvar E. Sigurðs- son leika Pétur Gaut eldri og yngri. Arnar leikur einn í fyrsta hlutanum þar sem Pétur hinn ungi kemur ekki við sögu. Hann túlkar heimsmanninn, svallarann og lygalaupinn léttilega og á svo ekki síður líka sterkan leik í hlutverki öldungsins í seinni atriðum verksins þar sem miklu meiri innri átök eiga sér stað. Hann stendur álengdar, stafkarlinn, og er löngum þögull áheyrandi á meðan minningabrot flögra fyrir, og Pétur Gautur hinn ungi ölast líf á sviðinu. Ingvar E. Sigurðsson er allt að því demon- ískur í sprettharðri túlkun á þessum ótamda villingi sem angrar og heillar í senn. Ingvar sannar hér enn að hann býr yfir ótrúlega miklum krafti og mikilli breidd sem leikari enda veitir ekki af öllu því sem til er í þetta margræða hlutverk. Þessi tvíhliða túlkun á Pétri Gaut skapar eins og fyrr sagði nýja vídd og opnar túlkun- armöguleika sem nýtast vel í sýningunni. Margir leikarar taka þátt í sýningunni og nokkrar smámyndir sérstaklega eftirminni- legar. Bríet Héðinsdóttir í hlutverki farþega, Edda Arnljótsdóttir, sem Ingunn, Edda Björgvinsdóttir, Sá magri, Sigurður Sigur- jónsson sem Dofrinn og Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir í hlutverki þeirrar grænklæddu. Og Jóhann Sigurðarson lék afsprengið í hreint ótrúlega afstyrmilegu gervi. Það er auðvelt að lesa sígild mannleg sann- indi út úr persónulýsingu Péturs og hann á sér margar hliðstæður í dag sem fyrrum. Enn hendir það margan manninn í kapphlaupi um lífsins gæði að týna því sem dýrmætast er í lífinu og uppgötva það svo ekki fyrr en allt er um seinan. Á sviði Þjóðleikhússins er nú fram reitt eitt af stórverkum heimsbókmenntanna. Það gerir kröfur til áhorfenda og nú er þaö þeirra að láta ekki sitt eftir liggja. Þjóðleikhúsið sýnir á Stóra sviði: PÉTUR GAUTUR Höfundur: Henrik Ibsen Þýðlng: Einar Benediktsson Leikgerð: Þórhildur Þorleifsdóttlr og Sigurjón Jó- hannsson Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson Dansar: Hany Hadaya Lýsing: Páll Ragnarsson Leikmynd og búningár: Sigurjón Jóhannsson Leikstjórn: Þórhildur Þorleifsdóttir -AE Baldr Sinfóníuhljómsveit æskunnar hélt tónleika í Háskólabíói á laugardag undir stjórn Pauls Zukofsky. Flutt var verkið Baldr op. 34, músíkdrama án orða, eftir Jón Leifs og var það frumflutningur. Söngsveitin Fílharmón- ía tók þátt í flutningnum en kórstjóri hennar er Úlrik Ólason. Ólafur Kjartan Sigurðsson söng hlutverk Óðins og Jóhann Sigurðarson leikari var í hlutverki skáldsins. Þessi flutningur á Baldri var eins konar konsertuppfærsla á verkinu. Frá hendi höf- undar er þetta sviðsverk meö leiktjöldum, leikurum og dönsurum. Nú þegar erlendur maður hefur gengist fyrir frumflutningi tón- listarinnar og fræðimenn í útlöndum kepp- ast við að hefja hana til skýjanna fer ef til vill að verða von til þess að leikhús borgar- innar sjái sér fært að setja verkið upp í full- kominni mynd. Baldr er mikið verk að öllu leyti. Efnis- ríkt, langt og mannfrekt. Það er líka misgott verk og fyrir koma kaflar sem virðast lang- dregnir. Hitt er þó miklu fyrirferðarmeira sem gott er og fagurt. Sumir kaflarnir eru svo listilegir og svo auðugir af hugmyndum og djúpum tilfmningum að vart verður lengra komist. Má nefna þar til dæmis upp- haf verksins og kaflann um dauða Baldrs. Hér fer saman fegurð og frumleiki með hætti sem mjög sjaldgæfur er og gerir verkið að ómetanlegum dýrgrip fyrir menningu ís- lendinga. Það er fróðlegt rannsóknarefni að Tónlist Finnur Torfi Stefánsson kryfja stíl Jóns Leifs. Hann var þýskmennt- aður og þess sér merki. Wagner er áreiðan- lega meðal þeirra sem Jón hefur orðið fyrir áhrifum af. Hitt er þó mun meir áberandi hve frumleg og sjálfstæð tónlistin er og og tekur það til allra þátta hljómfræði, hryns, forms og ekki hvað síst til útsetningarinnar, sem oft er sérkennilega fögur. Sinfóníuhljómsveit æskunnar og Paul Zy- Paul Zukofsky sést hér stjórna Sinfóníuhljómsveit æskunnar þegar var veriö að æfa Baldr. DV-mynd GVA kofsky hafa vanist því að takast á við stór- virki. Hér var stórvirki frumflutt og fylgja því enn meiri kröfur en venjulega. Veröur ekki annað sagt en að vel hafi til tekist og verkið hafi í meginatriðum komist prýðileg til skila. Zukofsky stjórnaði af nákvæmni og innlifun eins og hann er vanur. Þá mátti heyra ágæt tilþrif hjá ýmsum af hinu ungu tónlistarmönnum sem of langt yrði upp að telja. Ber að þakka öllum hlutaðeigandi framtakið. Háskólabíó var þéttsetið og var tónlistarfólkinu fagnað vel og innilega í lok- in.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.