Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Síða 27
MÁNUDAGUR 25. MARS 1991.
39
Fréttir
Hljómsveit Ingimars
Eydal senn þrítug
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hljómsveit Ingimars Eydal á Akur-
eyri er að öllum líkindum lífseigasta
híjómsveit landsins en hljómsveitin
verður 30 ára á þessu ári.
Það eru engin ellimörk sjáanleg á
hljómsveitinni þrátt fyrir þennan
langa starfstíma og að undanfomu
hefur Ingimar verið á faraldsfæti
meö fólkið sitt. Hljómsveitin fór í
vetur í Danmerkurferð þar sem hún
lék á þorrablóti íslendingafélagsins í
Kaupmannahöfn og í fyrsta skipti í
för tíl Bandaríkjanna og skemmti á
fagnaði íslendingafélagsins í Was-
hington.
Ákveðið er að á árinu komi út hjá
Steinari hf. geisladiskar með hljóm-
sveitínni. Á þeim verður að finna
upptökur með hljómsveitínni allt frá
7. áratugnum og fram á tíunda ára-
tuginn. I dag skipa hljómsveitina auk
höfuðpaursins sjálfs Ingimars Eydal,
þau Þorleifur Jóhannsson, Grímur
Sigurðsson, Snorri Guðvarðarson,
Brynleifur Hallsson og söngkonan
Inga Eydal.
Hljómsveit Ingimars Eydal.
Norðurland vestra:
Framkvæmda-
m
ráðinn
Öm Þórarmsson, DV, fljótum:
Þórir Jón Ásmundsson, véltækni-
fræðingur frá Austara-Hóli í Fljót-
um, var ráðinn framkvæmdastjóri
Átaks hf. á Saúðárkróki. Alls bárust
22 umsóknir um stöðuna; flestir
umsækjenda mjög hæfir og því tals-
vert erfitt að gera upp á milli þeirra
að sögn Árna Ragnarssonar, stjórn-
armanns í Átaki hf.
Jón hefur um árabil starfað hjá
Slippstöðinni á Akureyri. Hann mun
væntanlega byrja í þessu nýja starfi
um mánaðamótín apríl-maí. Ráðn-
ingartími hans er tvö ár.
Átak er félagsskapur sem fyrirtæki
á Sauðárkróki hafa stofnað. Þegar
hafa 42 fyrirtæki gerst hluthafar og
fleiri hafa sýnt áhuga á aðild. Átaki
er ætíað að vinna að ýmsum nýjung-
um í atvinnulífinu og einnig aö
styrkja þá atvinnustarfsemi sem fyr-
ir er. Árni lét þess getið í samtah við
fréttaritara aö þótt hluthafar Átaks
væru eingöngu á Sauðárkróki væri
ekkert því til fyrirstöðu að sú at-
vinnustarfsemi, sem komið yrði á
fót, gætí nýst sveitunum í kring að
einhverju leyti.
Sauðárkrókur:
Félagsheimilið
í kröggum
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Tæpar fjórar miUjónir króna vant-
ar tíl að félagsheimilið Bifröst á
Sauðárkróki geti staðið við skuld-
bindingar sínar, sem að mestu urðu
tíl við endurbætur hússins og hús-
búnaðar fyrir 2-3 árum. Fram-
kvæmdastjórn Bifrastar hefur óskað
þess að eignaraðilar, Sauðárkróks-
bær og sex félög í bænum, losi félags-
heimilið undan þessum skuldum.
Bæjarsjóður á 54,6% eignarhlut í
Bifröst og hvert félaganna 7,4%. Þau
eru kvenfélagið, iðnaðarmannafélag-
ið, leikfélagið, ungmennafélagið,
verkamannafélagiö og verkakvenna-
félagið. Það yrðu því 2 milljónir sem
kæmu í hlut bæjarsjóðs að greiða en
um 270 þúsund hjá hverju félaganna.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Frambodslistinn
á Suðurlandi
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins
á Suðurlandi hefur samþykkt fram-
boðstista flokksins vegna alþingis-
kosninganna. Efstu sætí listans
skipa:
1. Þorsteinn Pálsson, 2. Ámi Jo-
hnsen, 3. Eggert Haukdal, 4. Drífa
Hjartardóttir, 5. Arndís Jónsdóttir
og 6. Arnar Sigurmundsson.
-hlh
DavfðOddsson
áAkureyri
Davíð Oddssort, formaður Sjálfstæðisflokksins,
efnir á næstunni til almennra stjórnmálafunda
í öllum kjördæmum landsins.
Fyrsti fundurinn verður á Akureyri þriðjudaginn
26. apríl kl. 21:00. Fundarstaður er 1929
(áður Nýja bíó) við Ráðhústorg.
Húsið opnar kl. 20:30.
Auk Davíðs Oddssonar flytja Halldór 8löndal
og Tómas Ingi Olrich stutt ávörp.
Fundarstjóri: Sigurður J. Sigurðsson
Allir velkomnir.
Halldór
FRELSI OG
MANNÚÐ