Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Page 38
Afmæli
Amheiður Sigurðardóttir
Arnheiður Sigurðardóttir, sérfræð-
ingur við Orðabók Háskólans, til
heimilis að Skjólbraut ÍA, Kópa-
vogi, ersjötugídag.
Starfsferill
Amheiður fæddist 25.3.1921 að
Amarvatni í Mývatnssveit og ólst
þar upp í foreldrahúsum. Hún lauk
prófi frá Hérðaðsskólanum á Laug-
arvatni 1942, lauk kennaraprófi frá
KÍ1944, stundaði nám við Kennara-
skóla Danmerkur 1947-48, las síðar
utanskóla til stúdentsprófa og lauk
þeim frá MR1954 og lauk meistara-
prófi í íslenskum fræðum frá HÍ
1%2 en meistaraprófsritgerð henn-
ar, sem fjallaði um híbýlahætti á
miðöldum, var gefin út af Menning-
arsjóði 1966.
Amheiður kenndi 1944-47. Hún
var íslenskukennari við Reykja-
skóla í Hrútafirði 1948-52 og við
Kvennaskólann 1952-53 auk þess
Þ8 sem hún kenndi þar nokkur ár
jafnframt háskólanáminu og fékkst
við þýðingar og prófarkalestur. Að
loknu háskólanámi hóf Amheiður
störf við Hagstofuna en fékkst síðan
við prófarkalestur og ritstörf, eink-
um þýðingar. Hún hóf síðan störf
hjá Orðabók HÍ1974 og hefur starfað
þar síðan.
Arnheiður las fyrst kvenna út-
varpssöguna í ríkisútvarpið: Brotið
úr töfraspeglinum, eftir Sigrid Und-
set en hún las síðar nokkrar aðrar
útvarpssögur, m.a. Vítahring, eftir
S. Hoel. Meðal skáldsagna og ævi-
minninga sem Arnheiður hefur þýtt
má nefna Endurminningar A. J.
Cronins; Kristínu Lafranzdóttur eft-
ir Sigrid Undset (ásamt Helga Hjörv-
ar); Glettni örlaganna og Maddame
Dorothea eftir Sigrid Undset, Síö-
ustu sögur og Vetrarævintýr eftir
Karen Blixen; Kofa Tómasar frænda
eftir Harriet Beecher Stowe; Karl-
ottu Lövenskjold og Önnu Svárd
eftir Selmu Lagerlöv; Klíkuna, eftir
Mary Mc. Carthy; Tuttugu bréf til
vinar, eftir Svetlönu Alliluyevu; í
huliðsblæ og Dætur frá Lian eftir
Pearl S. Buck.
Fjölskylda
Alsystkini Arnheiðar: Þóra, f. 16.2.
1920, húsfreyja að Arnarvatni, gift
Jóni Kristjánssyni og eiga þau sex
börn; Jón, f. 26.9.1923, deildarstjóri
K.Þ. á Húsavík, kvæntur Gerði
Kristjánsdóttur og eiga þau þrjú
börn; Málmfríður, f. 30.3.1927, þing-
kona á Jaðri, ekkja eftir Harald
Jónsson og eru börn þeirra sjö; Ey-
steinn, f. 6.10.1931, b. á Arnarvatni,
kvæntur Halldóru Jónsdóttur og
eigaþautvöbörn.
Hálfsystkini Arnheiöar, samfeðra,
eru Freydís, f.ll. 4.1903, d. 3.3.1990,
húsfreyja í Álftageröi, var gift Geir
Kristjánssyni sem einnig er látinn
og eru börn þeirra þrjú; Jón, f. 10.1.
1905, d. 8.7.1905; Ragna, f. 19.3.1906,
húsmóðir í Kópavogi, ekkja eftir
Hrein Sigtryggsson en þau eignuð-
ust fimm börn og eru þrjú þeirra á
lífi; Heiður, f. 24.12.1909, d. 22.31987,
húsmóðir á Húsavík, var gift Sig-
tryggi Jónassyni sem einnig er lát-
inn en þau eignuðust fjögur börn
og eru þrjú þeirra á lífi; Arnljótur,
f. 23.6.1912, b. á Arnarvatni, kvænt-
ur Vilborgu Friðjónsdóttur og eiga
þau þrjú börn; Huld, f. 20.10.1913,
húsmóðir á Húsavík og ekkja eftir
Pál Kristjánsson en börn þeirra eru
sex; Sverrir, f. 4.2.1916, trésmiður á
Akureyri, kvæntur Ingu Björns-
dóttur og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Amheiðar voru Sigurð-
ur Jónsson, f. 25.8.1878, d. 24.2.1949,
skáld og b. á Arnarvatni, og seinni
kona hans, Hólmfríður Pétursdóttir,
f. 17.12.1889, húsfreyja.
Ætt
Sigurður var sonur Jóns, skálds
ogb. á Helluvaði, Hinrikssonar, b.
á Heiðarbót í Aðaldal, Hinrikssonar,
b. á Tunguhálsi í Skagafirði, Gunn-
laugssonar. Móðir Hinriks á Heiöar-
bót var Katrín Sigurðardóttir. Móð-
ir Katrínar var Þórunn Jónsdóttir,
harðabónda í Mörk í Laxárdal, ætt-
Arnheiður Sigurðardóttir.
foður harðabóndaættarinnar, Jóns-
sonar. Móðir Sigurðar á Arnarvatni
var Sigríður Jónsdóttir, b. á Arnar-
vatni, Jónssonar.
Hólmfríður var dóttir Péturs, al-
þingismanns á Gautlöndum, Jóns-
sonar, alþingismanns þar, Sigurðs-
sonar. Móðir Hólmfríðar var Þóra
Jónsdóttir, b. á Grænavatni í Mý-
vatnssveit, Jónassonar. Móðir Jóns
á Grænavatni var Hólmfríður
Helgadóttir, b. á Skútustöðu og ætt-
fóður Skútustaðaættarinnar, Ás-
mundssonar.
Willys CJ-7 (í sérflokki) ’83, dökkbl.,
6 cyl. (258 m/flækjum) 4 gíra (Borg
Warner T-4) Dana 300, drifhl. 4,56:1,
4 tn spil o.fl., kr. 1370 þús.
Toyota Corolla sed. '88, hvítur, 5
gíra, ek. 50 þús. km. Fallegur bíll.
Kr. 650 þús.
GMC 2500 Step side pickup '82,
disil, breyttur m/miklum aukabún-
aði. Fjalla- og vinnubíll í sérflokki.
Kr. 1400 þús.
Range Rover, 4 dyra ’85, steingrár,
5 gira, ekinn 80 þ. km. Kr. 1480 þús.
Arg km verð
Volvo 240 GL '88 60 990
MMC Lancer GLX '88 31 720
Toyota Double Cap '90 18 1780
M. Benz 260 SE '87 47 Tilboð
Toyota Lite Ace van '90 35 880
Daihatsu Ferosa, jeppi '90 11 1050
Subaru 18004x4 st. '89 42 1180
VW Golf 1600 '87 67 630
Vantar nýlega bila á staðinn
BÍLAMARKAÐURINN
v/REYKJANESBRAUT
__SMIÐJUVEGI46 E, KÓPAV0GI_
^ 67 18 00
Smásýnishorn
af bílum
á staðnum
MMC Lancer GLX '89, brúnsans, 5
gíra, ek. 27 þús., álfelgur o.fl.
aukahl., kr. 865 þús. (skipti á ód.)
Torfi Rafn Matthíasson
Torfi Rafn Matthiasson, verslunar-
stjóri Hagkaups, Skeifunni 15,
Reykjavík, til heimilis að Aðallandi
6, Reykjavík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Torfi fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í foreldrahúsum. Hann
flutti sextán ára með fiölskyldunni
til Sey ðisfi arðar þar sem hann bj ó í
tíu ár. Torfi lærði vélvirkjun á Seyð-
isfirði hjá Vélsmiðju Seyðisfiarðar
og stundaði þar nám við iðnskólann
en sveinsprófi lauk hann 1971. Að
námi loknu stundaði hann vélvirkj-
un á Seyðisfirði þar til hann flutti
til Reykjavíkur 1976.
í Reykjavik stundaði Torfi akstur
hjá þungaflutningafyrirtæki Gunn-
ars Guðmundssonar en flutti síðan
til Akureyrar.
Á Akureyri keyrði Torfi sements-
flutningabíl hjá Sementsverksmiðju
rikisins fyrstu þrjú árin sín þar en
hóf síðan störf hjá Hagkaup á Akur-
eyri og hefur starfað hjá Hagkaup
síðan. Torfi bjó á Akureyri í átta ár
en flutti þá aftur til Reykjavíkur þar
sem hann hefur búið síöan. Hann
er nú verslunarstjóri Hagkaups í
Skeifunni 15.
Fjölskylda
Torfi kvæntist 28.7.1979 Sunnevu
Filippusdóttur, f. 1.4.1954, húsmóö-
ur og kennara en hún er dóttir
Filippusar Sigurðssonar, verslunar-
manns á Seyöisfirði, og Ólínu Jóns-
dóttur húsmóður.
Torfi og Sunneva eiga tvær dætur.
Þær eru Helga, f. 17.2.1977, og
Harpa, f. 3.5.1979.
Torfi á þrjá bræður. Þeir eru Guð-
mundurMatthíasson, f. 15.7.1948,
stýrimaður á frystitogara, búsettur
á Nova Scotchia í Kanada, kvæntur
Önnu Matthíasson fasteignasala;
ÁsgeirMatthíasson, f. 16.2.1954,
verkfræðingur í Reykjavík, kvænt-
ur Önnu Sigurðardóttur fóstru og
eiga þau einn son, Hlyn; Arnar
Matthíasson, f. 19.11.1964, háskóla-
nemi, búsettur í Reykjavík en sam-
býliskona hans er Anna Kristín
Arnarsdóttir, nemi við KHÍ.
Foreldrar Torfa eru Matthías
Guðmundsson, fyrrv. bankastjóri
Útvegsbankans á Akureyri, og kona
hans, Helga Torfadóttir húsmóðir.
Ætt
Systir Matthíasar er Rósa, móðir
Jóns Braga Bjarnasonar, prófessors
og forstöðumanns Raunvísinda-
stofnunnar HÍ. Önnur systir Matthí-
asar er Anna, móöir Þorvaldar
Ragnarssonar lögfræðings. Bróðir
Matthíasar er Gunnar, forstjóri GG
í Reykjavík. Föðurforeldrar Torfa
voru Guðmundur Matthíasson,
verkstjóri í Reykjavík, og Sigurrós
Þorsteinsdóttir, b. á Horni, Þor-
Torfi Rafn Matthíasson.
steinssonar. Systir Þorsteins á
Horni var Katrín, föðuramma Lúð-
víks Jósepssonar, fv. ráðherra.
Móðir Sigurrósar var Halldóra,
systir Stefáns, afa Stefáns Jónsson-
ar, rithöfundar og fv. alþingis-
manns. Guðmundur var sonur
Matthíasar, sjómanns í Reykjavík,
Péturssonar og Guörúnar Sigurðar-
dóttur á Hálegsstöðum.
Helga, móðir Torfa, er dóttir Torfa
Tímotheussonar, skipstjóra á Siglu-
firði.
Til hamingju með afmælið 25. mars
50 ára
Garðar Kjartansson,
Huldubraut 5, Kópavogi.
40 ára
100 ára
Jóhanna Björnsdóttir,
Austurbyggö 17, Akureyri.
80 ára
Magný Bárðardóttir,
Bugðulæk 2, Reykjavlk.
75 ára
Ingibjörg Stefánsdóttir,
Laufási 7, Egilstöðum.
70 ára
Ásta Frímannsdóttir,
Baughóli 11, Husavík.
60 ára
Hildigunnur Sigvaldadóttir,
Skúlaskeíði 22, Hafnarfiröi.
Petra Jónsdóttir,
Einigrund 7, Akranesi.
Guðrún Þorbergsdóttir,
Deildarási 6, Reykjavík.
Lina Hilke Jakob,
Þormóösstv. Suðurhlíð. Reykjavik.
Blínborg Sigurðardóttir,
Aöalstræti 33, ísafiröi.
Svava Pálsdóttir,
Hamrahlíð 14, Vopnafirði.
Erna Guðjónsdóttir,
Strandaseli 5, Reykjavik.
Elin Brynjólfsdóttir,
Kringlunni 47, Reykjavík.
Pétur Ámason,
Stekkjarhvammi 21, Hafnarfiröi.
Jóhanna Jóna Hafsteinsdóttir,
Æsufelli 2, Reykjavík.
STORKOSTLEG
SÍMINN E R 27022
Ertþúmeð?
ValgardW.
Valgard W. Jörgensen málarameist-
ari, til heimilis aö Kleppsvegi 118,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Valgard fæddist við Bergþórugötu
í Reykjavík og ólst þar upp. Hann
læröi málaraiðn og lauk prófi frá
Iðnskólanum í Reykjavík áriö 1952
en meistararéttindi öölaðist hann í
greininni voriö 1955. Valgard hefur
unnið viö málaraiönina í rúm fiöru-
tíu ár og í frístundum sínum hefur
hann fengist viö að mála myndir.
Fjölskylda
Eiginkona Valgards er Lydia Jörg-
ensen fædd Schneider og eiga þau
fimm börn saman og 12 barnabörn.
Auk þess á Valgard son sem fæddur
er 1950 og Lydía dóttur fædda 1958.
Jörgensen
Valgard W. Jörgensen.
Valgard verður að heiman á af-
mælisdaginn.