Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991.
13
Heimurinn og ég
Verum
ölvuð
Trúlega er þetta ekki fyrirsögn fyr- Verum ölvuð; lifi bindindi, vín, og
ir alvöru bindindismenn. Trúlega Baudelaire, og lífið. Lífið.
ekki.
Verum ölvuð.
Bindindismenn eru þrátt fyrir allt
ekki versta tegund, öðrunær; þeir
eru alveg í lagi. Hugsjónir eru þegar
allt kemur til alls, fjarskalega fátíðar
nú um stundir. Og ef bindindismenn
hafa það markmið í jarðneska lífmu
Umsjón
Þorsteinn J.
Vilhjálmsson
að fúlsa við víni, þá er það í stakasta
lagi mín vegna.
Ölvuð
Bindindi er ekki ölvun að mínu
skapi.
Ég vitna í vorþing umdæmisstúku
templara á Suðurlandi:
„Þingið telur það fullreynt að ekki
vinnst umtalsverður sigur í vímu-
efnamálum fyrr en stefnt er að meiri
bindindissemi og unnið að því að
fækka þeim tækifærum og tilefnum
að verið sé með áfengi, en íjölgað
þeim heimilum og öðrum stofnunum
sem hafna allri vímuefnaneyslu."
Þetta eru ölvaðar hugsjónir í lagi.
Ég vitna í Baudelaire:
„Við eigum sífeUt að vera ölvuð.
Allt er undir þvi komið: þaö eitt
skiptir máh. Ef þið vUjið ekki frnna
ógnarhramm tímans leggjast á herð-
ar ykkar og sliga ykkur í duftið, þá
verðið þið að ölva ykkur viðstöðu-
laust. En með hverju? Víni, skáld-
skap eða dyggðum, eftir geðþótta
ykkar. En ölvið ykkur.“
Ölvuð
Ég gæti ekki oröað þetta betur.
cvi
HAMMERITE er ryöbindandi lakk, sem
bindur fast og þurrt ryð og stöðvar
ryðmyndun. Það er sjálfgrunnandi
og fljótþornandi háglanslakk, borið á
án undanfarandi grunnmálunar.
HAMMERITE hefur mjög háan
yfirborðsstyrk, þ.e. höggþol, skrapþol,
hitaþol og veðrunarþol. Ýtarlegri upp-
lýsingar fást hjá söluaðilum og í bækl-
ingnum „Beint á rydid“og einblöðungnum
„Nú má lakka yfir ryðið“sem eru fáanlegir
hjá þeim.
HAMMERITE FÆST í MÁLNINGAR-
OG BYGGINGAVÖRUVERSLUNUM
HAMMERITE lakkið fæst
I fjölda lita. Skoðaðu litakort
hjá söluaðila.