Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Page 25
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ1991.
25
Turtles - skjaldbökur sem borða pitsu, vopnaðar sverðum og berjast við óvininn. Þær eiga heima í holræsakerfi
New York borgar. Nýjasta æðið i heimi barnanna sem islenskir foreldrar kannast áreiðanlega vel við. Öll íslensk
börn vita hvað enska orðið turtles þýðir og það er orðið sem þau nota yfir þessu nýju leikföng.
Nýjasta æði bamanna:
Skjaldbökufaraldur
berst um heiminn
- en þær eiga eftir að falla fyrir Hróa hetti
Nýjasta æðið í heimi barnanna er
fjórar grænar skjaldbökur, svokall-
aðar „Turtles", og engin takmörk
virðast vera á hvaða hluti skjaldbök-
urnar skreyta.
Skjaldbökurnar koma úr holræsi
New Yorkborgar og þær hafa ætt um
heiminn eins og eldur í sinu. Stórar
grænar skjaldbökur „Turtles" sem
uröu fyrir geislun þannig að þær
stækkuðu og urðu mannhæðarháar.
Skjaldbökurnar borða pitsu, beita
fyrir sig japanskri bardagalist og eiga
stöðugt í stríði við óvininn. Það eru
sem sagt þessar stóru skjaldbökur
sem börnin falla fyrir unnvörpum.
Tindátarnir og aðrir bardagamenn,
sem foreldrarnir léku sér með, eru
löngu úreltir. Jafnvel Batman og
strumparnir eru gleymdir. Hvað
verður á morgun? Spyr sá sem ekki
veit en margir renna þó grun í að
það sé Hrói höttur, sá gamli góði.
Það er allt til'í Turtles: turtles-
bíómynd, turtles-myndbönd, turt-
les-tannburstar og tölvuleikir, turt-
les-kökur og að sjálfsögðu límmiðar,
svo aðeins brot sé nefnt. Þessar fjórar
amerísku skjaldbökur skjóta upp
kollinum alls staðar, meira að segja
þar sem maöur á ekki von á að finna
þær. Pitsastaðir auglýsa „turtles-
pitsur" og börnin heimta turtles-mat.
Fullorðið fólk, sem ekki umgengst
börn í daglega lífinu, kemst ekki hjá
að sjá þetta nýja æði hvarvetna. Og
það þýðir væntanlega: Það eru lík-
lega skjaldbökur sem eru í tísku
þessa stundina.
Urðu til í eldhúsinu
Sagan um skjaldbökurnar varð til
í eldhúsi auglýsingateiknarans Pet-
ers Laird í Northampton árið 1985.
Peter og textagerðarmaöurinn Kevin
Estman fengu hugmynd sem ekki
fékk mjög góðan hljómgrunn í fyrstu.
Sagan var um íjórar skjaldbökur sem
sleppt var í holræsi New Yorkborg-
ar. Þær urðu fyrir geislun þannig að
þær stækkuðu í mannhæð, ving-
uðust við rottu með sama heimilis-
fangi og með hafnaboltakylfur og
sverð koma þær upp á götur borgar-
innar til að berjast. Upphaflegt nafn
var Teenage Mutant Ninja Turtles
sem þótti ekki nógu gott. Sjónvarps-
þættir voru gerðir um skjaldbökurn-
ar og þeir sýndir í flestöllum sjón-
varpsstöðvum í Bandaríkjunum.
Brunalið og lögregla í New York
fengu allt í einu nýtt verkefni: Að
sækja böm sem farið höfðu ofan í
holræsið til að finna vini sína, þá
Rafael, Michelangelo, Donnatella og
Leonardo, en það em nöfnin á skjald-
bökunum.
Nú er eitt ár síðan skjaldbökuæðið
ruddist inn í Evrópu og kennarar í
barnaskólum víðs vegar um heiminn
spyrja sig bvernig fjórar skjaldbökur
geti orðiö að átrúnaðargoðum smá-
barna. Enginn hefur fundið svarið
ennþá enda eru margar spurningar
í henni veröld sem aldrei fást svör
við. Ekki einu sinni höfundarnir hafa
hugmynd um hvernig stendur á
þessum miklu vinsældum.
Tennurnar
burstaðar með turtles
Ekki er langt síðan dönsk börn fóru
að biðja um skjaldbökurnar. Jóla-
sveinninn varð háifgrænn er börnin
báðu um turtles fyrir síðustu jól. Nú
bursta börnin tennurnar með turt-
lesog borða morgunverðinn á disk-
um merktum skjalbökunum. Þau
skipta á turtles-límmiðum og horfa á
turtles á tveimur sjónvarpsstöðvum.
Sérfræðingar segja að þannig sé
framtíðin. Börnin gleypa í sig þær
vörur sem eru markaðssettar á rétt-
an hátt. Markaðssetningin er skipu-
lögð með bíómynd, myndbandsspól-
um, bókum, leikfóngum, fatnáði og
mörgu fleiru. Að síðustu kemur
framhald bíómyndarinnar. Það ér
mjög mikilvægt að sjónvarpsstöðv-
arnar sýni efnið, þar eru áhrifin hvað
mest. Leikfangaframleiðendur eru
ekki barnanna bestir í þessum efnum
og leggja oft hart að framleiðendum
að koma ákveðnum fígúrum á fram-
færi. í Evrópu er lítið framleitt af
barnaefni og því eiga amerísku
myndirnir greiðan aðgang. Raun-
veruleg þörf fyrir öðruvísi barna-
myndir er mjög mikil en peninga-
mennirnir sjá sæng sína uppreidda
með framleiðslu á turtles, strump-
um, Batman og svo framvegis, og
foreldrar hafa ekki hugmynd um
hvað kemur nýtt á næsta ári.
Ekki banna
skjaldbökurnar
Danskur uppeldisfræðingur að
nafni Erik Sigsgaard segir að foreldr-
ar ættu ekki að æsa sig yfir turtles-
æðinu eða öðru slíku sem upp kem-
ur. „Þó manni fmnist amerísku
skjaldbökurnar ómerkilegt rusl þá
er mjög mikilvægt að taka áhugamál
barnsins alvarlega. Þaö er nauðsyn-
legt að taka tillit til þeirra óska. Þeg-
ar börn hengja plakatmyndir eða
límmiöa upp á vegg er það nákvæm-
lega sama og þegar fullorðið fólk
hengir málverkin sín upp,“ segir
hann. „Leyfíð því börnunum aö leika
með skjaldbökurnar meðan ábuginn
varir annars er hætta á að upp komi
óvild í garð foreldranna. Skjaldbök-
urnar eru jú að berjast á móti því
vonda og það er sá góði sem vinnur."
Danski uppeldisfræðingurinn er á
þvi að börn verði að fá að þroska
með sér leikina og turtleser ekki
verra en margt annað. Ef foreldrar
vilja hins vegar losna við turtleser
eina ráðið að vera með börnunum.
„Öll börn vilja fara í veiðiferð með
foreldrunum. Slík ferð hefur meira
aðdráttarafl en öll heimsins leik-
fóng.“
Alls staðar eru börn að skiptast á
límmiðum og fótboltinn er gleymdur
á meðan. Einn nýr Leonardo í stað-
inn fyrir tvo Donnatella. Krökkun-
um finnast skjaldbökurnar góðar og
ekkert athugavert við að leika sér
meö þær. Jafnvel bakararnir eru
farnir að finna áhugann og í mörgum
bakaríum er hægt að kaupa turtles
kökur. En hvað verður það næsta?
Hrói höttur næstur
Flest bendir til að það verði Hrói
höttur. Stutt er í að mynd um Hróa
hött með leikaranum Kevin Costner
verði frumsýnd. í Notthingham á
Englandi hefur fyrsta Hróa hattar
hátíðin litið dagsins ljós. Stór hópur
fólks var þar samankominn með
græna hatta, boga og örvar. Allt hef-
ur verið gert til að líkja eftir Skíri-
skógi, ekki síst til að laða að ferða-
menn. Skiltum hefur verið komið
fyrir með að minnsta kosti sex
tungumálum svo allir skilji. Að sjálf-
sögðu hefur Skíriskógur einnig verið
gerður úr Lego-kubbum og Hrói hött-
ur er þar í öllu sínu veldi.
Hrói er með grænan hatt og hefur
því sama Utinn og turtles, hann berst
við óvininn og fer með sigur af hólmi.
Hann er eins og skapaður fyrir bíó-,
sjónvarps-, myndbands- og leik-
fangaheiminn. Ef aUt gengur að ósk-
um veröa skjaldbökurnar fjórar að
flýja ofan í holræsin í New York
undan pílum Hróa hattar og félaga
áður en langt um Uöur. Það verður
sennUega um næstu jól sem átökin
hefjast og því geta foreldrar farið að
undirbúa hervæðinguna.
Laus er til umsóknar staða skólameistara við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti frá og með 1. ágúst nk.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 1. júlí nk.
Menntamálaráðuneytið,
7. júní 1991
ÁSKRIFTARSÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
-6270
- talandi dæmi um þjónustu
BOÐSMÓT
TAFLFÉLAGS REYKJAVÍKUR1991
hefst að Faxafeni 12 miðvikudaginn 12. júní nk. kl.
20. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi
þannig:
1. umferð miðvikudag 12. júní kl. 20.
2. umferð föstudag 14. júní kl. 20.
3. umferð miðvikudag 19. júní kl. 20.
4. umferð föstudag 21. júní kl. 20.
5. umferð mánudag 24. júní kl. 20.
6. umferð miðvikudag 26. júní kl. 20.
7. umferð föstudag 28. júní kl. 20.
Öllum er heimil þátttaka í boðsmótinu.
Umhugsunartími er 1 Vi klst. á fyrstu 36 leikina en
síðan 'A klst. til viðbótar til að Ijúka skákinni.
Engar biðskákir.
Skráning þátttakenda fer fram í sima Taflfélagsins á
kvöldin kl. 20-22. Lokaskráning verður þriðjudag
11. júní kl. 19-22.
Taflfélag Reykjavíkur
Faxafeni 12, R.
Símar: 81-35-40 og 68-16-90
Hudson
Sérstaklega áferðarfallegar, mýkri og þynnri.
Sérstök aðhaldsteygja fellur vel að og heldur fótum
þínum óþreyttum frá morgni til kvölds.
Hudson
. Fyrir konur sem gera kröfur