Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Síða 46
58
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991.
Afmæli
Bjami Stefánsson
Bjarni Stefánssonforstjóri, Galta-
felli, Laufásvegi 46, Reykjavík, verð-
ur fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Bjami fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp við Sólvallagötuna. Hann
lauk prófi frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1962 og sveinsprófi í raf-
eindavirkjun sama ár en meistar-
araprófi í greininni lauk hann 1965.
Þá var Bjarni við verslunarnám á
Englandi 1957-58.
Bjarni náði viðskiptasambandi við
Pioneer frá Japan 1963, stofnaði
verslun með hljómflutningstæki
sama ár, stofnaði umboðs- og heild-
verslun B. Stefánsson hf. 1970 og hóf
innflutning á Sharp tölvum og ljós-
ritunarvélum 1973. Hann hefur
starfrækt Hljómbæ síðan 1980.
Bjarni keypti heildsölufyrirtækið
íslensk erlenda 1989 og hefur verið
stjórnarformaður þess síðan. Hann
sat í framkvæmdastjórn Nýja-Bíós
hf. og sat í stjórn Félags rafeinda-
virkja 1982-88 og er endurskoðandi
félagsins síðan.
Fjölskylda
Bjarni kvæntist 4.6.1960 Bimu
Björgvinsdóttur, f. 6.7.1941, en for-
eldrar hennar em Björgvin Freder-
riksen, vélvirkjameistari og fyrrv.
bæjarfulltrúi í Reykjavík, ogHall-
fríður Björnsdóttir húsmóðir.
Börn Bjarna og Birnu eru Þórey,
f. 26.9.1960, framkvæmdastjóri ís-
lensk erlenda, gift Árna Hauki
Björnssyni, lögfræðingi hjá fógeta í
Keflavík, en dætur þeirra eru
Ástríður Birna, f. 22.6.1984, og Reg-
ína María, f. 29.10.1986; Hallfríður,
f. 30.8.1967, nemi í markaðsfræðum
í London; Stefanía Kristín, f. 18.5.
1978; Stefán Bjarni, f. 6.8.1982.
Bjarni á einn bróður, Þórð Stef-
ánsson, f. 4.9.1945, forstjóra og eig-
anda Gistihússins við Bláa lónið, en
hann er kvæntur Jakobínu Eygló
Friðriksdóttur frá Lyngholti í Olafs-
firöi og eiga þau þrjár dætur, Reg-
ínu, f. 26.8.1984, Maríu Kristínu, f.
27.4.1989, og Katrínu Stefaniu, f. 3.6.
1990, auk þess sem Þórður á tvö
börn frá fyrra hjónabandi, Þóreyju
Sigríði, f. 17.9.1967, en hún er gift
Ómari Eyjólfssyni, og Sturlu, f.
19.10.1972.
Foreldrar Bjarna: Stefán Helgi
Bjarnason, f. 21.3.1908, d. 18.10.1952,
stofnandi og forstjóri Kauphallar-
innar í Reykjavík sem var fyrsta
íslenska verðbréfafyrirtækið, og
Þórey Sigríður Þórðardóttir, f. 26.11.
1912, nú gift Sigurði Dementz,
óperusöngvara og kennara í Reykja-
vík.
Ætt
Meðal hálfsystkina Stefáns, sam-
feðra, vom Hörður, húsameistari
ríkisins. Stefán var sonur Bjarna,
forstjóra og eiganda Nýja-Bíós,
bróður Einars myndhöggvara,
Guðnýjar, ömmu Sveins Björnsson-
ar sendiherra og Valgerðar sem var
amma Nínu Tryggvadóttur og lang-
amma Magnúsar Jóhannessonar
siglingamálastjóra. Bjarni var son-
ur Jóns, b. í Galtafelli, bróður Helga,
langafa Alfreðs Flóka. Jón var son-
ur Bjama, b. á Bolafæti, Jónssonar,
og Helgu Halldórsdóttur. Móöir
Helgu var Guðrún Snorradóttir,
systir Guðlaugar, langömmu Ás-
gríms Jónssonar listmálara. Guð-
rún var einnig systir Magnúsar, lan-
gafa Guömundar, íöður Ásmundar
biskups.
Móðir Stefáns var Stefanía Stef-
ánsdóttir, b. á Ásólfsstöðum, bróður
Ólafs söðlasmiðs, langafa Beinteins,
fóður Sigríðar söngkonu. Stefán var
sonur Eiríks, b. í Hrosshaga, Ingi-
mundarsonar, b. í Miklholti, Tómas-
sonar. Móðir Stefaníu var Helga
Jónsdóttir, prests á Stóra-Núpi, Ei-
ríkssonar, dbrm. í Ási í Holtum,
bróður Benedikts, langafa Einars
Benediktssonar skálds. Eiríkur var
sonur Sveins, prófasts í Hraungerði,
Halldórssonar og Önnu Eiríksdótt-
ur, systur Jóns konferensráðs.
Meðal systkina Þóreyjar Sigríðar
er Regína leikkona og Sigurður
bankamaður, faðir Þórðar, for-
stöðumanns Reiknistofnunar bank-
anna, ogPéturs Friðriks hstmálara.
Þórey er dóttir Þóröar, kaupmanns
í Reykjavík, bróður Ragnheiðar,
móður Jóns Leifs tónskálds. Þórður
var einnig bróðir Böðvars, föður
Bjarni Stefánsson.
Ágústs, fyrrv. forstöðumanns Land-
mæhnga íslands, og Bjarna hljóm-
sveitarstjóra, föður Ragnars söngv-
ara. Þórður var sonur Bjarna, b. á
Reykhólum, Þórðarsonar, bróður
Gísla, langafa Klemensar Jónsson-
ar, leikara og leikstjóra. Móðir Þórð-
ar kaupmanns var Þórey Pálsdóttir,
b. á Reykhólum, Guðmundssonar,
bróður Þorbjargar, langömmu Ólafs
Thors forsætisráðherra. Móðir Þór-
eyjar var Jóhanna Þórðardóttir,
systir Jóns Thoroddsen, skálds og
sýslumanns. Móðir Þóreyjar Sigríð-
ar var Hansina Linnet, systir Krist-
jáns, fógeta í Vestmannaeyjum.
Hansína var dóttir Hans Linnet,
bókara í Hafnarfirði, Hanssonar,
kaupmanns í Hafnarfiröi.
Ragna Kristín
Ámadóttir
Ragna Kristín Árnadóttir frá
Hafnarhólmi er sextug á morgun.
Starfsferill
Ragna fæddist í Kolbeinsvík í Ár-
neshreppi í Strandasýslu. Hún ólst
þar upp til 12 ára aldurs en flutti
þá að Hafnarhólmi.
Árið 1946 hóf hún búskap á Hafn-
arhólmi ásamt eiginmanni sínum,
IngimundiLoftssyni, en þau bjuggu
þar til 1968 er þau fluttu á Grundar-
götu 6 á Drangsnesi. Ragna býr þar
enn.
Fjölskylda
Ragna gittist Ingimundi Loftssyni,
f. 22.7.1921, d. 15.8.1983. Foreldrar
hans voru Loftur Torfason, bóndi í
Vík, og Hildur Gestsdóttir.
Börn Rögnu og Ingimundar: Guð-
rún, f. 19.4.1947, húsmóðir í Reykja-
vík, gift Þórarni Guðjónssyni og eiga
þau tvö börn, Kristin Inga og Unni
Dröfn; Hermann, f. 9.6.1948, sjómað-
ur á Drangsnesi, og á hann fjögur
börn, Hilmar Vigni, Kristínu
Björgu, Sæunni og Heiðrúnu; Árni,
f. 2.3.1950, pípulagningamaður í
Keflavík, kvæntur Kristbjörgu Jón-
ínu Magnúsdóttur, og eiga þau tvær
dætur, Rögnu Kristínu og Agnesi
Rut; Guðbrandur, f. 14.5.1951, múr-
ari í Hafnarfirði, kvæntur Pálínu
Kristínu Árnadóttur, og eiga þau
þrjú börn, Helga Kristin, Jóhann
Indriða og Helgu; Svanur Hólm, f.
27.12.1952, bóndi á Hafnarhólmi;
Loftur, f. 12.6.1954, d. 17.12.1977, var
kvæntur Stefaníu Jónsdóttur, og
eignuðust þau tvö börn, Áslaugu
Báru og Ingimund; Hanna, f. 8.11.
1955, trésmiður í Keflavík, gift Jóni
Halldóri Björnssyni og eiga þau tvö
börn, Jón Halldór og Sigríði Hörpu;
Hafdís Hrönn, f. 17.4.1958, sölumað-
ur í Reykjavík; Erling Brim, f. 15.9.
1960, sjómaður á Drangsnesi; Gunn-
ar Ingi, f. 21.1.1969, verkamaður í
Sandgerði, kvæntur Lindu Gústafs-
dóttur og eiga þau eitt bam, Söru
Maríu. Sonur Ingimundar var Sig-
urður Jón, f. 3.2.1944, d. 11.5.1978.
Systkini Rögnu: Þórhallur, f. 14.6.
1921; Júlíus Guðmundur, f. 16.7.
1922, d. 24.3.1985; Ólöf Jóhanna, f.
17.11.1925, d. 11.5.1973; Guðrún
Brynhildur, f. 8.3.1928, d. 1.12.1967;
Ragna Kristín Árnadóttir.
Sigurður, f. 8.3.1929; Jóhann Bald-
ur, f. 7.5.1930. Stjúpsystir Rögnu er
Jóhanna Thorarensen, f. 8.11.1910.
Foreldrar Rögnu voru Árni Ólafur
Guðmonsson, f. 20.9.1895, d. 1948, b.
í Kolbeinsvík, og Halla Júlíusdóttir,
f.4.5.1897, d. 1980.
Ragna Kristín tekur á móti gestum
á afmælisdaginn frá kl. 15 að Hring-
braut 63 í Keflavík, neðri hæð.
95 ára
Þóra Guðlaugsdóttir,
Kleppsvegi 64, Reykjavik.
Þórður Ólafsson,
Lindarbæ, Ásahreppi.
85 ára
Pétur Kristjánsson,
Hringbraut 50, Reykjavík.
75 ára
Valgerður Emilsdóttir,
Fjarðarbakkað, Seyðisfirði.
70 ára
Helgi Guðnason,
Þorkelsgerði, Þorlákshöfn.
Þórður Guðjónsson,
Hreðavatni, NorðurárdalshreppL
Sigriður Björnsdóttir,
Vitateigi 7, Akranesi.
Þórólfur Freyr Guðjónsson,
Langholtsvegi 132, Reykjavík.
Guðrún Karitas SöJvadóttir,
Hlíðargerði 25, Reykjavík.
Fj óla Lúthersdóttir,
Grenimel 20, Reykiavik.
60 ára
Þórdis Sigurðardóttir,
Merki, Borgarfjarðarhreppi.
Kristján Sigtryggsson,
Álfhólsvegi 147, Kópavogi.
Verður ekki heima á afmælisdag-
inn.
50 ára
Magnea Jónsdóttir,
Gautlandi 17, Reykjavík.
Ólafur Einarsson,
Bjamastöðum, Grímsneshreppi.
Haraldur Ámason,
Bjamastaðavör 3, Bessastaða-
hreppi.
Stefán Sigurðsson,
Laugarmýri, Lýtingsstaðahreppi.
40ára
ÓlafurÁrnason,
Vatnagörðum 14, Kópavogi.
Pétur Ólafsson,
Hólum 18, Patrekshreppi.
Steingrímur Jóhannesson,
Kvistabergi 5, Hafnarfirði.
RHEINLAND-PFALZ - Ferðaævintýri í eigin bíl
Njótið fegurðar Rínarlanda, þar sem hið
heimsfræga Rínarvín er ræktað. Sjáið og siglið
á fljótunum Rin-Mosel-Ahr og Lahn með
fallega kastala og hallir á árbökkunum. Skoðið
miðaldabæi með markaðstorgum og uppruna-
legum miðaldahúsum. Rínarhéruð eru frábær
staður til að skoða sig um, en jafnframt að
njóta hvíldar.
Flugáætlun Flugleiða er kjörin til þess að koma þér og þínum í þægilegt og skemmtilegt frí í Þýskalandi.
Luxemborg 10 sinnum í viku
Frankfurt 5 sinnum í viku
Hamborg 2 sinnum í viku
Amsterdam 5 sinnum í viku
BÍLALEIGUR: Flugleiðir sjá um pöntun á
bílaleigubílum á hagstæðum kjörum.
SUMARHÚS/ÍBÚðlR: Sérstaklega
hagstæðir samningar í Hunsrúck í miðju
Rínarhéraðí. í Hunsrúck er skemmtilegt að
dvelja og njóta lífsins í fallegu umhverfi eða
fara í spennandi ferðir um nágrennið.
HÓTEL: Flugleiðir hafa samninga við úrval
hótela á góðu verði í Þýskalandi.
Upplýsingar og bókanir:
FLUGLEIÐIR
símí 690300
opið 7 daga í viku eða
ferðaskrifstofur og umboðsmenn.