Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1991, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR. 18. JÚNÍ 1991.
5
Fréttir
Héraðssýning Skagfírðinga á kynbótahrossum:
Tveir þriðju
komust í ættbók
í Skagaf irði
Skagfirðingar virðast nokkuð
ánægðir með héraðssýningu Skag-
flrðinga á kynbótahrossum sem var
haldin á Vindheimamelum um og
fyrir helgina 8. og 9. júní síðastliðinn.
Að vísu komu færri hross í dóm
en undanfarin vor og greinilegt að
óánægja manna með dóma á síðasta
vori hefur dregið dilk á eftir sér.
Útkoma úr dómunum var sú að
tveir þriðju náðu þeirri einkunn sem
þarf til að komast í ættbók, 7,50 eða
meira. Nokkur hross voru dæmd til
1. verðlauna.
Melrós frá Miðsitju var ein um
þann heiður af fimm vetra hryssún-
um, hlaut 8,30 í aðaleinkunn.
Af sex vetra hryssum voru fjórar
dæmdar til 1. verðlauna. Perla frá
Kríthóli var með hæstu einkunnina,
8,17, Katla frá Miðsitju dæmdist með
8,11, Ösp frá Syðstu-Grund var með
8,03 og Hugrún frá Höskuldsstöðum
í Austur-Húnavatnssýslu var með 8,
00
Einn fimm vetra stóðhestur dæmd-
ist fyrstu verðlaunahross, Aðall frá
Aðalbóli í Þingeyjasýslu með 8,03.
Af byggingadæmdum ungfolum
hlaut Glitnir frá Ögmundarstöðum
einkunnina 8,05
Þórhallur Ásmundsson/EJ
Hafórninn hf á Akranesi:
Almenningshlutafélag
~—7—r—: —— hafa gerbreytt rekstrinum. Mun áður. Hráefnisskortur hefði verið
gur emsson, , ea. meiri aíli kæmi nú til vinnslu en helsta vandamál fyrirtækisins.
Perla frá Krithóli hlaut hæstu einkunn hryssnanna, 8,17. Knapi er Ingimar
Ingimarsson. DV-mynd Þórhallur
Framleiðsluverðmæti Hafarnarins
hf. á Akranesi nam 150 milljónum
króna fyrstu fimm mánuði ársins.
Þetta er 40% meira en á sama tíma
í fyrra er verðmætið nam 90 milljón-
um króna. Þrettán milljón króna
hagnaður varð af rekstri fyrirtækis-
ins á síðasta ári eftir afskriftir og
skatta. Árið 1989'varð 6,5 milljón
króna tap á rekstrinum.
Á aðalfundi fyrirtækisins fyrir
skömmu var samþykkt samhljóða að
afnema allar hömlur á sölu hlutafjár
og gera fyrirtækið þannig aö opnu
almenningshlutafélagi. Stjórn fyrir-
tækisins hafði áður fengið heimild til
þess að auka hlutafé í allt að 200
milljónir króna. Enn á eftir að selja
hluti fyrir um 20 milljónir króna en
búist er við að það gerist á haustmán-
uðum.
Guðmundur Pálmason, fram-
kvæmdastjóri Hafarnarins hf., sagði
í samtali við DV að afkoman fyrstu
fimm mánuði ársins gæfi tilefni til
nokkurrar bjartsýni. Hann sagði til-
komu togarans Sæfara fyrr á árinu
Samvinna
um f lutning
á pappir í
endurvinnsiu
Þórhailur Ásmundsson, DV, Sauðárkr:
Bæjarstjórn Sauðárkróks hefur
ákveðið að leita eftir samvinnu
við önnúr sveitarfélög svipaðrar
stærðar um könnun á hag-
kvæmni flutnings notaðs pappírs
til endurvinnslu syðra.
Samkvæmt könnunum er
pappír talinn vera um 20% af
heimilissorpi. Flokkun sorps er á
frumstigi hér á landi en talið er
að slíkt muni aukast á næstu
árum. í Reykjavík hefur verið
tekið við símaskránni í endur-
vinnslu en á landsbyggðinni er
ekki sú þjónusta veitt að fólk geti
lagt inn gömlu símaskrána um
leið og það fær þá nýju. Þetta
gæti breyst ef sveitafélög byrja
að flytja pappír til endurvinnslu
í Reykjavík.
CAT 438 Sería n — Ný og betri traktorsgrafa
Nú þegar CATERPILLAR hefur framleitt yfir 25.000 traktorsgröfur kynna þeir nýja og enn betri
traktorsgröfu undir heitinu Seríall
Reynslan af fyrri vélunum hefur verið sérstaklega góð en lengi má gott bæta og Sería n
uppfyllir enn frekar þær kröfur sem gerðar eru til allra CAT véla.
Á þeim árum sem CAT traktorsgröfur hafa verið fáanlegar hafa þær sýnt og sannað að fáar
vélar státa af meira rekstraröryggi.
Eigum fyrirliggfandi vélar til afgreiðslu strax
27% stærri eldsneytistankur, 106 I.
Stærri rafgeymakassi, sem jafnframt er geymsluhólf fyrir verkfæri.
Minni snúningsradíus, framhjól hafa25% meiri snúningsgetu.
Auðveldari aðgangur að smurkoppum, allir slitfletir smurðir.
Aukinn lokunarhraði á afturskóflu.
Aukin hljóðeinangrun, hávaðamörk aðeins 83 dBA.
Nákvæmari stjórnstangir.
Aukið vélarafl.
□
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI 695500
Helstu breytingar:
PRISi