Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1991, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1991.
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1991.
17
fþróttir
-höfum rétt við!
Hverjir fá
fæstu H
spjöldin ?
— eftir 8. umferð —
Guðmundur Haraldsson, formaður knattspymudómarafélagsins:
Meira stress hjá
öllum en áður
- dómarar hafa ákveðið að halda ró sinni og grípa ekki beint 1 spjöldin
Umræðan um gulu og rauðu spjöld-
in hefur sjaldan verið meiri en í ár
þar sem fylgst hefur verið sérstak-
lega með því hversu mörg spjöld
hafa verið á lofti. Þaö hefur vakið
athygh að gulu og rauðu spjöldunum
fækkaði stórlega í 8. umferð 1. deild-
ar ísiandsmótsins. DV ræddi við
Guðmund Haraldsson, formann
Knattspyrnudómarafélagsins, um
hvort áherslubreytingar hefðu átt
sér stað í dómgæslunni.
• Egill Már Markússon og félagar
hans i dómarastéttinni hafa verið
mikið i umræöunni vegna spjalda-
gleði. Nú ætla þeir aö halda ró sinni
og vilja fá leikmennina með.
Héldum fund með
félögunum
„Það voru vissar áherslubreytingar
fyrir heimsmeistarakeppnina í fyrra.
Línan var lögð þannig að dómarar
ættu að vera nógu harðir og taka
fast á brotum, annars yrðu þeir bara
sendir heim. Það varð úr að reynd-
ustu menn misstu tökin á leikjum
og fóru að gefa spjöld í tíma og ótíma.
Dómarar voru undir mikilli pressu
og þaö sama virðist hafa gerst t.d. í
Englandi í fyrravetur. Það kom ensk-
ur dómari og hélt hér fund í vor.
Hann sagði við okkur að við mynd-
um án efa lenda í því sama og ensku
dómararnir. Það var komið í óefni
hjá þeim og þeir héldu fund um þetta
og þeim tókst að laga hlutina. Við
hjá KDSÍ boðuðum þjálfara, leik-
menn og forráöamenn félaganna til
fundar fyrir nokkru og ræddum
máhn fram og tii baka. Þetta var líf-
legur og skemmtilegur fundur þar
sem leikménn og þjálfarar fengu aö
tala um ýmislegt sem þeim fannst
að á velhnum og við dómararnir fór-
um sameiginlega yfir þetta sl. laugar-
dag. Ýmsir góöir punktar komu fram
og ákveðið var aö dómarar Héldu
betur ró sinni og gripu ekki beint í
spjaldið.
Meira stress hjá
öllumen áður
„Þróunin virðist vera svipuð hjá
okkur og t.d. Englendingunum í
kjölfar HM-breytinganna. Þegar ný
fyrirmynd kemur þá er viss spenna
sem ríkir. Það eru ekki bara dómarar
sem hafa verið undir pressu heldur
líka leikmenn og þjálfarar og jafnvel
áhorfendur. Þetta hangir allt saman
og ef ójafnvægis gætir þá kemur það
niður á öhu. Það kom fram hjá sum-
um dómurunum að það sé meira
stress á varamannabekkjunum en
áður. Það er mikið í húfi hjá höunum
og peningar í spUunum. Gott dæmi
er atvik í Hafnarfirði á dögunum
þegar FH-ingar mótmæltu marki og
vildu fá dæmda rangstöðu. Forráöa-
menn FH-liðsins létu skammir bitna
á dómara og hnuvörðum og kenndu
þeim um að hafa eyðilagt mikla
vinnu og sumarið væri eyðilagt. Það
er skUjanlegt að menn taki hlutunum
alvarlega en það má ekki gleyma
sér. Það eru rosalegir peningar í spil-
inu og metnaðurinn sennilega meiri
en áður. Þetta spilar allt inn í og
áhorfendur líka. Þeir vilja fá að sjá
spjöld og það er eins og það bjargi
öUu ef gult spjald sést á lofti.“
Meiri barátta og harkan
hefur aukist
„Það er ljóst að harkan hefur aukist
í boltanum. Á síðustu árum hefur
þróunin verið sú að meiri barátta er
í leikjunum og þar með kemur upp
meiri harka. Það er engin ein skýring
á því en þarna kemur aftur að metn-
aðinum. Allt er lagt undir til að sigra
og boltinn þar af leiðandi fastari. Við
höfum tekið saman skýrslur um
spjöld og fyrir hvaða brot þau eru
gefin. Ég setti niður í dálka eftir eðli
brota og hvort vissir dómarar gæfu
alltaf fyrir sömu eða svipuð brot. Þar
kemur fram svart á hvítu að grófum
brotum hefur fjölgað mikið. Eftir 5
umferðir var búið að gefa 90 spjöld
og þar af voru 60 fyrir grófan leik.
Það ánægjulegasta í þessu er að
spjöldum vegna kjaftbrúks hefur
fækkað stórlega og í fyrstu 5 umferð-
unum voru aðeins 6 spjöld gefin
vegna kjafts við dómara. Þróunin
hefur breyst því aö fyrir nokkrum
árum var stór hluti spjaldanna fyrir
kjaftbrúk.
Ég er nokkuð bjartsýnn á fram-
haldiö og sérstaklega eftir síðustu
umferð þar sem bæöi dómarar virö-
ast hafa haldið ró sinni og leikirnir
líka verið prúðmannlega leiknir,"
sagði Guömundur Haraldsson. -RR
Iþróttir
Peletil
íslands
- kemur hingað 1 tilefni af átaki KSÍ og Visa
Pele, brasilíski snillingurinn
sem af mörgum er talinn besti
knattspyrnumaður sem uppi hef-
ur verið, kemur til íslands 12.
ágúst og dvelur hér í þrjá daga.
Koma Pele hefur legið í loftinu
í nokkurn tíma en Knattspyrnu-
samband íslands fékk í gærmorg-
un staðfestingu á að hann kæmi
frá Alþjóða knattspyrnusam-
bandinu. Hann kemur hingað í
tilefni af átaki KSÍ og Visa um
háttvísi og prúðan leik.
Pele er fimmtugur á þessu ári
og sló eftirminnilega í gegn í
heimsmeistarakeppninni í Sví-
þjóð árið 1958, þá aðeins 17 ára
gamall, en þá lék hann stórt hlut-
verk í sigri Brasilíu. Hann varð
einnig heimsmeistari með Brasil-
íu árin 1962 og 1970 og skoraði á
annað þúsund mörk á ferli sínum
en lengst af lék hann með brasil-
íska félaginu Santos. Ferlinum
lauk hann hins vegar með New
York Cosmos í Bandaríkjunum á
áttunda áratugnum.
-VS
Bjarni sá prúðasti í 1. deildinni
• Bjami Sigurðsson, markvörður Vals og landsliðsins, var i gær útnefndur prúðasti leikmaður 1. deildar karla í knattspyrnu í júnímánuði. Guðni Kjartansson, KR,
var útnefndur prúðasti þjálfarinn og KR prúðasta liðið. í 1. deild kvenna var KR einnig útnefnt prúðasta liðið. í 2. deild karla var Karl Þórðarson, IA, kjörinn prúð-
asti leikmaðurinn, Bjarni Jóhannsson, Grindavík prúðasti þjálfarinn og ÍA prúðasta liðið. KSÍ og Visa standa að þessari verðlaunaveitingu sem er tengd átakinu
sem kallað er „háttvísi, höfum rétt við.“ Á myndinni eru verðlaunahafarnir frá vinstri: Eggert Magnússon, formaður KSÍ, fulltrúi Grindvíkinga, Pétur Pétursson,
Karl Þórðarson, Guðjón Þórðarson, Kristrún Heimisdóttir, Bjarni Sigurðsson, Guðni Kjartansson og lengst til hægri er Einar Einarsson, forstjóri VISA.
DV-mynd S
• Unglingarnir, sem tóku þátt í ferðinni til Svíþjóðar og Danmerkur, ásamt fararstjór-
um. Efri röð frá vinstri: Stefán Þór Stefánsson þjálfari, Hjalti Sigurjónsson, Bragi Við-
arsson, Þorsteinn Geir Jónsson, Óskar Finnbjörnsson, Jóhannes Már Marteinsson,
Anton Sigurðsson og Jónas Jónasson. Neðri röð frá vinstri: Sonia Weerasinghe farar-
stjóri, Hrund Finnbogadóttir, Hildur Ingvarsdóttir, Ásdis María Rúnarsdóttir, Kristín
Ásta Alfreðsdóttir, Þorbjörg Jensdóttir og Friðrik Þór Friðriksson fararstjóri.
Góður árangur
hjá ÍR-unglingum
- í frjálsum íþróttum 1 Svíþjóö
Handboltamót unglinga á Italíu:
2. f lokkur Valsmanna
hefurslegiðígegn
Láð 2. flokks Vals 1 handknattleik karia hefur verið að slá rækllega 1 gegn
undanfama daga á Ítalíu. Þar tekur liðið þátt í mjög sterku alþjóðlegu móti
þar sem 390 liö, hvaðanæva að úr heiminum, keppa. Leikið er ó 36 völlum
samtímis en um er að ræða stærsta unglingamótið í heiminum ár hvert.
Valsmenn hafa leikið fjóra leiki ó mótinu og unnið þá alla með fádæma
yfirburðum. i fyrsta leiknum sigraöi Valur félagsliö frá Danmörku, 23-2!
Þá var leíkið gegn úrvali frá Ungverjalandi og lauk leíknum með sigri Vals,
20-4. í þriðja leiknum mætti 2. flokkur Vals úrvalsliði frá Austurríkí og enn
sigraði Valur glæsilega, 17-6. í fjórða leiknum lék Vaiur gegn ítölsku félags-
liði og sigraði, 17-3. Markatalan úr ieikjunum fjórum er vægast sagt óvenju-
lega glæsileg eða 77-15 og er Valur kominn í undanúrslit á mótinu.
-SK
16 liða úrslit Mj ólkurbikar sins 1 kvöld:
Bikarmeistarar
ValsmætaÍK
- Fram - Víöir, FH - ÍBV og Leiftur - Þróttur
I kvöld fara fram fjórir leikir af
átta í 16 liða úrslitum Mjólkurbikar-
keppninnar í knattspyrnu en hinir
fjórir eru á dagskrá annað kvöld.
• Bikarmeistarar Vals sækja heim
3. deildar lið ÍK og fer leikurinn fram
á grasvellinum í Smárahvammi í
Kópavogi. Ferill liðanna er ólíkur því
Valsmenn eru handhafar bikarsins
og hafa ekki tapað leik í keppninni í
tvö ár en ÍK er nú í fyrsta skipti kom-
ið í 16 liða úrslit.
• íslandsmeistarar Fram fá Víði
úr Garði í heimsókn á Laugardals-
völlinn. Framarar eru nú á toppi 1.
deildar eftir fimm sigurleiki í röö en
Víðismenn hafa enn ekki unnið leik
Unglingar úr frj álsíþróttadeild ÍR eru
nýkomnir heim úr keppnisferö frá Dan-
mörku og Svíþjóð. DV greindi frá árangri
unglinganna á fyrsta mótinu þeirra í
Herlev í Danmörku en í kjölfarið fylgdu
mót í Österbro og Lundi.
Á mótinu í Österbro urðu helstu úrslit
þau aö Hildur Ingvarsdóttir sigraði í lang-
stökki, stökk 4,68 metra. Þorbjörg Jens-
dóttir varð önnur í 800 metra hlaupi á
2:20,77 mínútum og Óskar Finnbjörnsson
varð annar í langstökki, stökk 6,64 metra.
Unglingarnir tóku síðan þátt í suður-
sænsku ungdómsleikunum í Lundi. í fjór-
um greinum hrepptu ÍR-ingar fjögur gull-
verðlaun. í flokki 16 ára sigraði Hildur
Ingvarsdóttir í 100 metra grindahlaupi á
16,4 sekúndum, í 300 metra grindahlaupi
á 48,84 sekúndum og loks í langstökki,
stökk 5,06 metra. Þorbjörg Jensdóttir sigr-
aði i 3000 metra hlaupi á 10:48,4 mínútum.
-JKS
Enn sigur
hjá Svölu
Faxaílóakeppnin í siglingum fór
fram um síðustu helgi. Keppnin hófst
á föstudag klukkan fjögur og henni
lauk ekki fyrr en klukkan 9 á laugar-
dagskvöld er síðasti bátur kom í
mark, 12 klukkustundum á eftir
fyrsta báti.
Svalan frá siglingafélaginu Ými
sigraði í keppninni en Flóin frá Brok-
ey varð í öðru sæti. Þriðja sætið
hreppti Urta frá Brokey. Flotinn fékk
léttan vind aöfaranótt laugardags en
að öðru leyti gekk keppnin vel fyrir
sig.
• Keppnin um Ólafsvíkurbikarinn
féll því miður niður að þessu sinni.
Um var að kenna skorti á vindi og
skyggni var fremur lítið.
-SK
Sterkt lið sem mætir Tyrkju - í vináttulandsleik í knattspyrnu í næstu viku
Flest bendir til þess að Bo Johans- Guðna Bergsson, Slgurð Grétarsson, eftír bikarleikina nú í viki mni. En ég
son, landsliðsþjálfari íslands í knatt- Eyjólf Sverrisson og Ólaf Þórðarson. hef mikinn áhuga á Ríkhan 5i Daðasyni
spyrnu, geti stillt upp sterku liði gegn Hins vegar hefur Gunnar Gíslason úr Fram og jafnvel Steinar i Guögeirs-
Tyrkjum í næstu viku en miðvikudag- boðaö forföU,“ sagði Johansson í sam- syni, félaga hans, Uka. Þá ei m reyndari
inn 17. júlí mætast þjóöimar í vináttu- landsleik á Laugardalsvelhnum. „Ég á von á því að fá fimm leikmenn erlendis frá, þá Amór Guðjohnsen, tali við DV í gær. menn líka inni í myndinr „Ég hef lika hug á því að prófa yngri Ragnar Margeirsson sem leikmennoghefekkigertupp hugminn að ná sér á strik á ný eftir alveg um hverjir það verða. Það skýrist vor,“ sagði Bo Johansson. á, svo sem íefur veriö meiðslin í -VS
KR vann „Pollamótið“
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
KR, með ýmsar gamlar kempur
innanborðs, sigraði í „Pollamóti"
Þórs og Sjallans en mótið var hald-
ið í 3. skipti á Akureyri um helgina.
Þar mættu 27 lið frá 24 félögum
til leiks og þeir sem þau skipuðu
fóru á kostum í bliðviðri. KR-ing-
arnir, sem mættu með gamlar
landsliðskempur og höfðu Ellert
Schram fyrrum landsliðsfyrirliða
sem „brimbrjót" í vörninni, reynd-
ust ofjarlar andstæðinga sinna og
þeir unnu KA, 2-0, í úrslitaleik með
mörkum Elíasar Guðmundssonar
og Jósteins Einarssonar.
ÍR og Þór, Akureyri, léku um 3.
sætið og hrósuðu ÍR-ingar sigri eft-
ir mikinn „darraðardans" sem end-
aði í vítaspyrnukeppni. ÍR-ingarnir
voru öryggið uppmálað þegar að
henni kom en athygli vakti spyrna
Benedikts Guðmundssonar Þórs-
ara. Eftir spyrnu hans hafnaði bolt-
inn um 3 km norðan vallarins, fest-
ist á toppgrind bifreiðar sem var
ekiö þar um og héldu menn aö
„Baddi“ væri að fara til Belgíu þeg-
ar hann mátti tölta á eftir boltan-
um.
Mótið var stórkostleg skemmtun
fyrir alla sem þar komu nærri en
því lauk með „gleðskap" í Sjallan-
um á laugardagskvöld. Þar var
Davíð Kristjánsson, ÍA, útnefndur
besti markvörðurinn, Haraldur
Haraldsson, KR, besti varnarmað-
urinn og Elías Guömundsson, KR,
besti sóknarmaðurinn.
Markakóngarnir uröu hins vegar
tveir, Páll Rafnsson, ÍR, og Þor-
steinn Sigurðsson, Val, með 8 mörk
hvor. Til að skera úr um það hvor-
um bæri titillinn voru þeir settir í
keppni um að „hald’onum á lofti“
og Páli tókst það þrívegis!!!
• Liðsmenn BVV (Bjartar Vonir Vakna) úr Mývatnssveit settu skemmtilegan svip á mótið að vanda. Nú hit-
uöu þeir upp með þvi að syngja ættjarðarljóð undir hljóðfæraslætti og afhentu mótherjum sínum reyktan
Mývatnssilung fyrir leikil DV-mynd gk
og eru langneðstir í 1. deild.
• FH og IBV mætast á Kaplakrika-
velli í Hafnarfirði og það gæti oröið
mesti spennuleikurinn. Fimm stig
skilja liðin að í 1. deild og þau skildu
jöfn á sama stað í deildinni fyrir fáum
vikum.
• Loks eigast við 3. deildar liðin
Leiftur og Þróttur frá Neskaupstað á
Ólafsfirði. Leiftur er á toppi 3. deildar
en Þróttarar hins vegar næstneðstir.
Þar er mikið í húfi því það er sjald-
gæft að 3. deildar lið fái færi á að
komast í 8 liða úrslit keppninnar.
Allir leikirnir í kvöld hefjast klukk-
an 20.
' -VS
Sport-
stúfar
Chelsea hefur gengið
írá kaupum á enska
B-landsliðsmanninum
Paul Elliott sem leikiö
hefur meö Celtic i Skotlandi. Elli-
ot er annar leikmaðurinn sem
forráðamenn Chelsea leita til
Skotlands en fyrir nokkru keyptu
þeir Tommy Boyd frá Motherw-
ell. Elliot er miðvallarleikmaður
og kaupverðið á honum var 1,4
milijónir punda.
Augenthaler hefur
lagt skóna á hilluna
Þýski knattspymumaðurinn
Klaus Augenthaler hefur lagt
knattspyrnuskóna á hilluna
frægu, 33 ára gamall. Augenthal-
er varö heimsmeistari með Þjóð-
verjum á ítalíu í fyrra og hefur
undanfarin 15 ár leikið með Bay-
em Munchen. Hann átti við þrá-
lát meiðsli að stríða á nýliðnu
keppnistímabih en hann vann
sex meistaratitla með Bæjurum,
meira en nokkur annar þýskur
leikmaður hefiir gert.
Leiörétting
í blaðinu í gær var rangt farið
með föðurnafn eins þátttakand-
ans á aldursflokkasundmótinu i
Hafnarfirði. Hann var sagður
Tómas Guðmundsson en hann er
Sturlaugsson og er hér með beð-
ist velvirðingar á þessu.
ísiandsmet hjá Tryggva
Um nýiiðna helgi tók Tryggvi Sig-
mannsson þátt á alþjóölegu skot-
móti í Finnlandi og keppti i loft-
skammbyssukeppni. Tryggvi sló
nýtt íslandsmet og fékk 575 stig.
Hér er um glæsilegan árangur að
ræða því að Tryggvi náði að bæta
eigið íslandsmet, sem sett var í
janúar á þessu- ári. um 9 stig.
Þetta er einn besti árangur sem
íslenskur skammbyssumaður
hefur náð.
• Við sögðum frá því í gær að
Einar Páll Garðarsson heföi sigr-
að á íslandsmótinu í haglabyssu-
skotfimi og sett þar með nýtt ís-
landsmet í öðru sæti varð Jó-
hannes Jensson og í þriðja sæti
Sigurður Gunnarsson. Liða-
keppni lauk með sigri A-liðs Skot-
félags Reykjavíkur sem hlaut 394
stig en í sveitinni voru Einar Páll
Garðarsson, Jóhannes Jensson
og Björn Halldórsson. A-liö Skot-
félags Suðurlands varö í öðru
sæti með 380 stig og í þriðja sæti
varð B-sveit Skotfélags Reykja-
vikur.
Haraldurog
Marianna unnu
..."T\ Haraidur Már Stefáns-
son sigraði i meistara-
^ flokki karla á meist-
1 aramóti Golklúbbs
Borgamess um nýliðna helgi.
Hann lék á 312 höggum og í öðru
sæti varð Viðar Héðinsson á 322
höggum. í kvennaflokki sigraði
Marianna Sigurðardóttir á 192
höggum, í öðru sæti varð Sigríður
Guðmundsdóttír á 218 höggum
og í þriðja sæti varð Þuríður Jó-
hannsdóttir á 234 höggum.
Helgi í
Víking
Helgi Bragason, hornamaöur
úr bikarmeistarahði ÍBV í hand-
knattleik, mun væntanlega leika
með Víkingum næsta vetur.
Hann stundar nám í Reykjavík í
vetur og sagði í spjalli við DV að
valiö hefði staðiö á milli Stjöm-
unnar og Víkings en nær öruggt
væri að hann færi í Víking.
-VS/GH