Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Qupperneq 8
e
8
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í smíði og fullnaðarfrágang viðbygg-
ingar póst- og símahúss í Hafnarfirði.
Stærð hússins er 432 m2 og 1500 m3. Byggingartími
verðurfrá 15.10. 1991 til 15.09. 1992.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu Umsýslusviðs,
Landssímahúsinu í Reykjavík, gegn skilatryggingu,
kr. 20.000,-
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8.
október nk. kl. 11 árdegis.
Póst- og símamálastofnunin
FULLTRÚASTAÐA
í UTANRÍKIS-
ÞJÓNUSTUNNI
Staða háskólamenntaðs fulltrúa í utanríkisþjón-
ustunni er laus til umsóknar.
Gert er ráð fyrir að starf hefjist í utanríkisráðuneytinu
en starfinu fylgir flutningsskylda sem gerir ráð fyrir
langdvölum við störf í sendiráðum og fastanefndum
Islands erlendis.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist utanríkisráðuneytinu, Hverfisgötu 115,
150 Reykjavík, fyrir 15. október nk.
Utanríkisráðuneytið
Tae kwon do
Nú er að hefjast námskeið í
Breiðholti, Fellahelli, og í Hafn-
arfirði.
Tae kwon do er sjálfsvarnaríþrótt
Eykur sjálfstraust og sjálfsvirðingu
Fyrir bæði kynin á öilum aldri
Keppnisíþrótt
Kynning fyrir heimspeki Dzen-búddisma
Kcnnt veröur i Feliahelli þriðjud. ki. 19.00-21.00, fimmtud. kl. 19.00-21.00 og
sunnud. kl. 14.00-16.00, i Hafnarfirði þriðjud. kl. 19.00-21.00 i Lækjarskila,
miðvikud. og föstud. kl. 19.00-21.00 i íþróttahúsinu við Strandgötu og laugard.
9.00-11.00 í Lækjarskóla.
Kennarar eru: Steven Leó Hall, 3. dan
Ægir E. Sverrisson, 2. dan
Innritun og upplýsingar í sima
610016 eftir kl. 18.00 daglega.
Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem hafa skemmst i um-
ferðaróhöppum:
Nissan Primera, 2,0, GLX 1990
Nissan Sunny 1989
Mazda 626, 2000 GLX 1988
SuzukiSwiftGTi 1988
MMCColt 1988
Mazda 323 1500 1987
Rover 213 S 1987
Ford Orion 1600 1987
Lada 1500, st. 1987
Lada 1 500, st. 1986
Toyota Corolla 1600 1985
Ford Thunderbird 1984
Subaru pickup4x4 1983
M.Benz230E 1983
Peugeot 505 1982
Lada Samara 1987
Lada 1500, st. 1987
Toyota Corolla 1987
VWJetta 1985
Bifreiðarnar verða til sýnis mánudaginn 23. september 1991 í
Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 9-15. Tilboðum óskast skilað fyrir
kl. 16 sama dag til bifreiðadeildar Tryggingar hf., Laugavegi 178,
Reykjavík, sími 621110.
Einnig á Akureyri við Sunnuhlíð 12 frá kl. 10-16.
MMC Pajerodísil, lengri 1988
Tilboðum óskast skilaö á skrifstofu Tryggingar hf., Sunnuhlíð 12,
fyrir kl. 17 sama dag.
VERNDGE6NVA
TRYGGING HF
LAUGAVEG1178 SIMI 621110
Matgæðingur vikunnar
Tandoori-ýsa og
kartöflusalat
„Ég hef mjög gaman af að elda
fisk og er eiginlega hrifnastur af
léttum réttum, fiski og grænmeti.
Þess vegna vel ég mér þetta hráefni
í eldhúsinu," segir matgæðingur
vikunnar, Tryggvi Húbner, tón-
menntakennari í Garðaskóla í
Garðabæ. Jón Ólafsson bassaleik-
ari skoraði á Tryggva enda sagðist
hann hafa fengið mjög gott að
borða hjá honum. Tryggvi tók
áskoruninni vel og ætlar að gefa
þjóðinni uppskrift að uppáhalds-
ýsuréttinum sínum. Reyndar segist
hann hafa notað bæði karfa og aðr-
ar tegundir í þennan rétt en ýsan
bragðaðist alltaf best.
Uppskriftin er þannig og er mið-
uð við fjóra:
Um 500 g af ýsuflaki
sítrónusafi úr hálfri sítrónu
salt eftir smekk
1 egg
tandoori masala krydd
paxo-raspur
fersk steinselja
Ýsan er roðflett og skorin í hæfi-
lega bita. Sítrónusafi er kreistur
yfir og saltað eftir smekk. Ein mat-
skeið af tandoori kryddi er sett
saman við eitt hrært egg. Ýsubitun-
um er síðan velt upp úr egginu og
síöan raspinum. Látið bíða í fimm
mínútur áður en steikt er því þá
verður raspurinn betri. Síðan er
ýsan steikt í stuttan tíma, u.þ.b.
tvær til þrjár mínútur á hvorri hlið.
Fiskurinn er skreyttur með ferskri
steinselju.
Með þessu hef ég einungis kart-
öflusalat en auðvitað getur hver
ráðiö því hvað hann vill hafa mikið
með.
Tryggvi Hiibner, tónmenntakennari og matgæðingur vikunnar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Uppskriftin að kartöflusalatinu
hijóðar svo:
Tólf kaldar kartöflur, í litlum bit-
um
hálft epli og einn laukur, einnig
skorið smátt.
2 msk. majónes
hálf dós melónujógúrt
1 tsk. venjulegt sinnep
nokkrir sítrónudropar
Allt hrært saman og skreytt með
graslauk.
Tryggvi segir þetta vinsælan rétt
og sinn eftirlætismat. „Þetta hefur
aldrei klikkað,“ segir hann.
„Mig langar að skora á Erik Mog-
ensen tónskáld að vera matgæðing-
ur næstu viku. Hann hefur boðið
mér í mat sem er sérlega góöur.
Erik er sérfræðingur í austur-
lenskum réttum og má segja að
maður hafi fengið sérstaka upplif-
un í þeim efnum hjá honum. Hann
er hreint frábær kokkur og ég
myndi skora á hann að gefa upp-
skrift að einhverjum indverskum
rétti,“ sagði Tryggvi Húbner og
áskoruninni er hér með komið á
framfæri. -ELA
Hinhliðin
Skemmtilegast að
þjálfa krakkana
- segir bjargvættur Vikings
Björn Bjartmarz, hjargvættur
Vikings, eins og hann var kallaður
eftir að hafa tryggt liði sínu ís-
landsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu um síðustu helgi, sýnir á
sér 'hina hiiðina að þessu sinni.
Björn segir sumarið hafa verið
erfitt, verkefnin hafi verið mörg og
því hafi hann ekki getað einbeitt
sér sem skyldi. Æfingar með liðinu
voru fimm sinnum í viku. Björn
þjálfaði einnig 5., 6. og 7. flokk Vík-
ings í knattspyrnu í sumar og
mætti hver flokkur þrisvar í viku
á æfingar.
Þetta var sannkallað fótbolta-
sumar hjá Bimi og uppskeran í
lokin var góð.
Fullt nafn: Bjöm Bjartmarz.
Fæðingardagur og ár: 23. apríl 1962.
Maki: Ragna Lóa Stefánsdóttir.
Börn: Ég tel að ég eigi pínulítið í
Stefáni Kára, syni Rögnu.
Bifreið: BMW ’81.
Starf: Ég er nýráðinn fram-
kvæmdastjóri Víkings.
Laun: Agæt.
Áhugamál: Ég hef gaman af öllum
íþróttum en þó sérstaklega knatt-
spyrnu. Ég vil einnig geta varið
sem mestum tíma í faðmi fjölskyld-
unnar.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur i lottóinu? Þijár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að þjálfa krakkana í Víkingi.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
Björn Bjartmarz.
gera? Að vaska upp.
Uppáhaldsmatur: Steiktur fiskur
með lauk, að hætti móður minnar.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Sigurður
Einarsson spjótkastari.
Uppáhaldstimarit: íþróttablaðiö.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Kim Basinger.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Bernskuvin minn, Jón
Bjama Guðmundsson, sem er við
nám í Bandaríkjunum.
Uppáhaldsleikari: Jack Nicholson.
Uppáhaldsleikkona: Kathieen
Tumer.
Uppáhaldssöngvari: Ólafur Árna-
son í Víkingsliöinu. Hann syngur
mikið fyrir okkur.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð Oddsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Homer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Sigurður
Pétur Harðarson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég horfi jafnmikið á
stöðvamar.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ómar
Ragnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: L.A.
Café.
Uppáhaldsfélag í iþróttum? Víking-
ur.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að vera sáttur við
sjálfan mig.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fékk ekkert sumarfrí.
-IBS