Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 31
ikÚÓÁfeÖÁG'ÚR Sl/SEPTÉMBER 'lW. ’47 Pétur Ormslev hefur leikiö frábærlega meö Fram i sumar og var útnefndur leikmaður ársins hjá DV og Samskip- um. Pétur hefur gefið kost á sér í landsliðiö á ný fyrir leikinn við Spánverja á miðvikudaginn. DV-mynd Brynjar Gauti DV og Samskip velja þá bestu í knattspymunni: Petur, Logi og Óli útnefndir - leikmaður, þjálfari og dómari ársins 1991 Petur Ormslev, fyrirliði Fram, var útnefndur besti leikmaður 1. deildar keppninnar í knattspymu 1991, Sam- skipadeildarinnar, af DV og Sam- skipum. Logi Ólafsson, þjálfari Vík- inga, var valinn þjálfari ársins og Óli P. Ólsen var útnefndur besti dóm- arinn í deildinni. Þeir voru verðlaun- aðir sérstaklega með gjöfum, blóm- um og viðurkenningarskjölum í fyrradag. Pétur Ormslev er mjög vel að þess- ari viðurkenningu kominn, enda hef- ur hann átt frábært tímabil með Fram. Snemma sumars, þegar Fram hafði gengið illa í fyrstu leikjum ís- landsmótsins, brá Ásgeir Ehasson, þjálfari Fram, á það ráð að færa Pét- ur af miðjunni, þar sem hann hefur jafnan leikið, og í stöðu aftasta vam- armanns. Breyting sem skipti sköpum Sú breyting skipti sköpum fyrir lið Fram. Pétur spilaöi þessa stöðu mjög skemmtilega, skilaði góðu varnar- hlutverki, og var jafnframt potturinn og pannan í að byggja upp sóknir hðsins. Það er óhætt aö þakka Pétri það aö miklu leyti hve vel Frömumm gekk, þeir töpuðu aðeins einum af siðustu 15 leikjum sínum í deildinni og misstu af íslandsmeistaratitlinum á óhagstæðri markatölu. Logi og Víkingar komu mest á óvart Logi Ólafsson leiddi Víkinga til ís- landsmeistaratitils og það var nokk- uð sem enginn reiknaði með í vor. Hann tók við hðinu fyrir síðasta tímabil og þá höfnuðu Víkingar í 7. sæti 1. deildar. Þeir vom lengi vel um miðja deild í sumar, en með frá- bæram endaspretti tryggðu þeir sér titihnn í fyrsta skipti í níu ár. Logi hafði ekki þjálfað í 1. dehd karla áður en hann tók við Víkingum og því kemur árangur hans enn frek- ar á óvart. Hann þjálfaði kvennahð Vals áður en hann var ráðinn til Vík- inga. Óli dæmdi vel á síðasta ári sínu Óh P. Ólsen hefur verið í fremstu röð íslenskra knattspyrnudómara um langt árabil og reyndar líka verið í eldhnunni sem handknattleiksdóm- ari. Hann dæmdi vel í sumar og end- aði með því feril sinn, því Óh hefur nú ákveðið að leggja flautuna á hhl- una, að minnsta kosti sem 1. deildar dómari. Framtak til eftirbreytni „Við hjá dómaranefndinni erum mjög ánægðir með þetta framtak DV og Samskipa, það er mikilvægt að einhverjir muni eftir dómurunum sem eru mikhvægur hlekkur í knatt- spyrnufjölskyldunni. Því miður gleymast þeir við flest tækifæri, nema þegar þeir gera mistök," sagði Guðmundur Haraldsson, formaöur dómaranefndar KSÍ. „Dómarar eru svipaðir vamar- mönnum að því leyti að ef þeir halda sínu allan leikinn era þeir góðir, en ef þeim verða á ein mistök eru þeir ómögulegir. Það er mikhvægt að dómarar njóti sannmæhs og því er ánægjulegt að einhverjir skuh veita þeim viðurkenningar," sagði Guð- mundur. FjórirVíkingar í liði ársins DV/Samskipahð-hð ársins var út- nefnt við sama tækifæri og sést það Iþróttir DV/Samskipaliðið DV/Samskipaliðið 1991, ásamt framkvæmdastjóra sínum, Ragnari Pálssyni frá Samskipum. Aftastur er Guðmundur Hreiðarsson, markvörður úr Vík- ingi. Fyrir framan hann eru varnarmennirnir Einar Páll Tómasson, Val, Pétur Ormslev, Fram, og Þormóður Egilsson, KR. Þá koma miðjumennirn- ir, Hlynur Stefánsson, ÍBV, Arnar Grétarsson, Breiðabliki, Atli Helgason, Víkingi, og Þorvaldur Örlygsson, Fram. Fremstir eru svo sóknarmennirnir, Hörður Magnússon, FH, Guðmundur Steinsson, Víkingi, og Atli Einarsson, Víkingi. DV-mynd Brynjar Gauti Verðlaunahafamir Verðlaunahafar DV og Samskipa 1991. Frá vinstri: Logi Ólafsson, Vikingi, þjálfari ársins, Anna María Georgsdóttir, eiginkona Óla P. Ólsen sem var á leið heim frá störfum í Svíþjóð þegar afhendingin fór fram, Pétur Ormslev, Fram, lelkmaður ársins, og Ragnar Pálsson frá Samskipum. DV-mynd Brynjar Gauti Logi Ólafsson, Víkingi, bíður hér þess að fá staðfestingu á þvi að Vikingar séu orðnir íslandsmeistarar. Hann náði mjög óvæntum árangri með Vikinga. DV-mynd Ægir Már Óli P. Ólsen var heiðraður sérstaklega á dögunum eftir síðasta 1. deildar leik sinn, en hann dæmdi viðureign Fram og ÍBV í lokaumferð deildarinnar. DV-mynd EJ á myndinni hér á síðunni. í því era fjórir Víkingar, tveir Framarar, KR- ingur, Eyjamaður, FH-ingur, Vals- maður og Breiðabliksmaður. Þessir ellefu leikmenn fengu viðurkenning- arskjöl og blóm frá DV og Samskip- um. ' -GH/SK/JKS/VS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.