Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Síða 11
L»RÍ®ÁGUm 1J0í Þjóðverji með sýningu í Perlunni: ísland gefur mér alltaf eitthvað nýtt - segir þýski myndlistarmaðurinn Tylle sem málar íslenskt landslag Anna Hildur Hildibrandsd., DV, Þýskaland: „Ég ferðast talsvert til að flnna mótív fyrir landslagsmyndir mínar. Ég fékk þá hugdettu að fara til ís- lands þar sem ég taldi mig geta sótt þangað efni. Ég náði mér í bæklinga og bækur yfir landið og sumarið 1985 hélt ég í mína fyrstu ferð og féll fyrir því,“ segir Tylle, þýskur listamaður, sem um næstu helgi heldur mál- verkasýningu í Perlunni í Reykjavík að tilstuðlan Goethe-stofnunarinnar og þýska sendiráðsins á íslandi. Myndir hans sem allar eru lands- lagsmyndir úr íslensku umhverfi eru nú á leið til landsins. „Þessi htla hugdetta þróaðist sem sagt íljótt í ást og hið hrikalega lands- lag, á mörkum hins byggjanlega, ögr- ar mér stöðugt. Ég fór í mína þriðju ferð til íslands í sumar og dvaldi þá í fimm vikur. Ætli ég hafi ekki málað fimmtíu smámyndir," segir Tylle. „ísland færir mér alltaf eitthvað nýtt og verður aldrei leiðigjamt. Maður sér alltaf eitthvað nýtt. Birtan virðist breytast, jafnvel litir eftir því hvernig veðrið er.“ - Hvað kom til að þú opnar sýningu í Perlunni? „í tilefni af nýjum þjóðhátíðardegi okkar, 3. október, bjóða þýska sendi- ráðið og Goethe-stofnunin á íslandi upp á menningardagskrá. Þessir að- ilar buðu mér að borga flutnings- kostnað myndanna og skipuleggja sýningu. í rauninni kom þetta upp núna í sumar en myndirnar áttu að vera á leið til Hamborgar á sölusýn- ingu. Því var frestað fram yfir sýn- inguna á íslandi þegar þetta kom upp. Ég hlakka til að sjá viðbrögð íslendinganna við myndunum mín- um. Myndirnar eru frá mörgum stöð- um á íslandi. Bæði era þetta myndir sem ég gerði í sumar en eixmig um fimmtán eldri myndir. Einnig mun ég sýna sex iðnaðarmyndir sem ég hef málað í stálveram og námum hérlendis. Ég hef mikið fengist við Þýski listamaðurinn Tylle mun halda sýningu á verkum sínum i Perlunni eftir rúma viku þar sem hann sýnir íslenskt landslag og stóriðjumyndir. að mála þess konar myndir og mun nota tímann á íslandi í þetta skipti til að mála í íslenskum fyrirtækjum. \ Ég hef þegar fengið leyfi frá sam- landa mínum í Álverinu til að vinna þar og vænti þess ennfremur að geta heimsótt frystihús. Síðan vonast ég til að geta haft aðra sýningu á ís- landi að ári liðnu," segir Tylle. Sýning hans verður opnuð í Perl- unni sunnudaginn 29. september og mun standa fram til 6. október. 7 Hvemig hagar þú vinnu þinni á íslandi? „Ég fer til íslands með jeppann minn með tjald í farteskinu, ek um og stoppa þar sem ég sé heiUandi viðfangsefni, strengi striga á trönuna mína og byrja að mála. Ég mála ein- göngu stúdíur þegar ég er úti í nátt- úrunni, stúdían krefst þess að maður nái að festa augnablikið í mynd og til þess þarf maður að vera fljótur að vinna. Ég pakka síðan saman og held áfram eða tjalda á staðnum eftir því sem við á. Auk þess hef ég fyrir vinnureglu að fara ótroðnar slóðir. Ég sækist alls ekki bara eftir að mála fræga staði heldur leita að stöðum sem passa mér. Ætli ég festi ekki þau augnablik, sem heilla mig hverju sinni, í mynd,“ segir þessi þýski lista- maður. SKÓLA OSTUR ÍKÍLÓPAKKNINGUM MEÐ 15% AF5LÆTTI 0(5 FU 5PARAR VAR: 757.- KKJKG VERÐUR: 667.- KR./KG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.