Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 16
16 LAUGAKDAGUR 21. SEPTEMBER 1991. Úrslit ljósmyndakeppninnar Breiðasta brosið Þátttakan í ljósmyndakeppni DV, Tannlæknafélags íslands og Hans Petersen hf. undir nafninu „Breið- asta brosið" var framar öllum vonum því mörg þúsund myndir bárust til okkar. . Dómnefndin, sem skipuð var Gunnari V. Andréssyni, ljósmyndara DV, Berki Thoroddsen frá Tann- læknafélaginu og Halldóri Sighvats- syni frá Hans Petersen hf., átti erfitt um val og var því ákveðið á síðustu stundu að Hans Petersen gæfi þrenn aukaverðlaun í keppnina fyrir utan þau verðlaun sem Tannlæknafélag Islands gefur keppendum. Fyrstu verðlaun, Canon EOS 1000 myndavél, að verðmæti 35 þúsund Dómnefndin að störfum. Frá vinstri: Gunnar V. Andrésson, Ijósmyndari DV, Börkur Thoroddsen frá Tann- , læknafélagi íslands og Halldór Sig- hvatsson frá Hans Petersen hf. DV-mynd Brynjar Gauti krónur, komu í hlut Trausta Sigur- vinssopar, Bollagötu 3 í Reykjavík. Myndin, sem dómnefndin var sam- mála um að væri langbesta ljós- myndin, þótti sýna barnslega ein- lægni og blíðu heilbrigðs barns með fallegt bros og síðast en ekki síst góð- ar tennur. Önnur verðlaun, 15 þúsund króna vöruúttekt í Hans Petersen, komu í hlut Guðbjargar Þórhallsdóttur í Keflavík en myndin, sem hún sendi, er skemmtileg fyrir margra hluta sakir. Hún þótti t.d. dæmigerð fyrir hraust börn með góðar tennur en einnig ber hún með sér mikla gleði og falleg bros. Þriðju verðlaun, 10 þúsund króna vöruúttekt hjá Hans Petersen hf., komu í hlut Sigurlaugar Brynjólfs- dóttur, Suðurhólum 20 í Reykjavík. Dómnefnin var sammála um að þessi mynd væri alveg einstök. Hún sýnir hve bræðurnir eru samstíga í öllu, alveg eins útlits og báðir að taka fullorðinstennur á sama tíma. Auk þessara verðlauna var ákveðið aö veita eigendum þriggja annarra mynda sérstök aukaverðlaun, Kodak kælibox frá Hans Petersen. Við þökkúm öllum þeim sem sendu inn myndir fyrir þátttökuna og verð- launahafarnir eru beðnir að hafa samband við DV til að fá upplýsingar um vinningana. -ingo Þetta er verðlaunamyndin, enda mjög góð Ijósmynd. Myndasmiðurinn er Trausti Sigurvinsson, Bollagötu 3, Reykjavik. Þessi mynd varð í öðru sæti og skýrir sig sjálf. Höfundur hennar er Guð- björg Þórhallsdóttir í Keflavik. Tvíburabræðurnir urðu i þriðja sæti en myndin þótti einstök. Höfundur hennar er Sigurlaug Brynjólfsdóttir, Suðurhólum 20 í Reykjavik. Hver kannast ekki við þessa tilfinningu? Myndin hlaut aukaverðlaun en höfundur hennar er Bjarni Ágústsson, Fjarðarseli 23 i Reykjavík. Berglind Ómarsdóttir, Hiimisgötu 1 í Vestmannaeyjum, sendi þessa mynd og hlaut aukaverðlaun fyrir. Kötturinn makindalegi hlaut ein af þrennum aukaverðlaunum. Höfundur hennar er Gunnar Rafn, Laugavegi 20 í Reykjavík, en hann nefnir hana „í góðum fíling".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.