Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 29
28 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991: DV í sjúkraflugsæfingu með þyrlunni SIF: Á neyðarvakt í háloftunum - Alma D. Möller og Helga Magnúsdóttir þyrlulæknar segja frá reynslu sinni Arni Jónasson stýrimaður og Alma Möller fylgjast með varðskipinu Tý fyrir neðan en Árni var að mæla út rétt- an stað til að fleygja út línu til skipverjanna. Björgunarkarfan látin síga niður í varðskip til læknis- ins, Ölmu, sem er komin niður heilu og höldnu. Máli skiptir að skipverjar hafi allt á hreinu eins og áhöfn þyrlunnar. Það var ekki nóg með að Alma þyrfti að æfa sig í að síga í skip - næst var það fjallshlíðin - og hér kemur hún sígandi niður „eins og engill af himnum", eins og einn skipverji orðaði það. „Við erum báðar vanar að annast mikið slasaða sjúklinga á sjúkrahús- unum. Þetta starf er ekki ólíkt að því leyti og þess vegna hefur ekkert kom- ið okkur mjög á óvart,“ segja lækn- arnir Alma D. Möller, 30 ára, og Helga Magnúsdóttir, 34 ára, sem báð- ar eru starfandi læknar á björgunar- þyrlunni SIF. Sex læknar starfa á þyrlunni og skipta með sér vöktum og það hefur vakið athygli að tveir þeirra eru kvenmenn. Þær láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna og eru ekki síður fimar í sigi úr þyrlunni en karllæknarxúr. Helgarblað DV fór í æfingaflug með SIF í vikunni og fékk að sjá hvemig áhöfn þyrlunnar og læknir starfa saman við björgun, t.d. á sjó eða í fjallshlíö. í þessari ferð voru Benóný Asgrímsson flugstjóri, Pétur Stein- þórsson flugmaður, Arni Jónasson stýrimaður (spilmaður) og Alma D. Möller læknir. Samspil áhafnarinnar er afar mikilvægt í björgunarferð og það er ekki síst það sem áhöfnin fer yfir í æfingaferð sem þessari. Flogið var að varðskipinu Tý sem lá rétt utan við Reykjanes. Alma lét sig síga um borð til aö ná í ímyndað- an sjúkling og áhöfn skipsins fékk æfingu ekki síður en þyrluáhöfnin. Allt gekk eins og í sögu þrátt fyrir talsverðan vind. Þá var flogið að Helgafelli á Reykjanesi þar sem æft var i fjallshlíð. Alma fór aftur niður og mjög áhugavert var að fylgjast með stjórn stýrimanns er hann leiö- beindi flugmönnum um leiö og hann hafði augun við það sem var að ger- ast hjá lækninum. Ný þyrla nauðsynleg Talsverö umræða heíur verið und- anfarið um nauðsynleg kaup á nýrri og kraftmeiri björgunarþyrlu. SIF er nær sex ára gömul og þarfnast tals- verðs viðhalds en auk þess eru að- stæður allar í henni afar erfiðar. Þegar nauösynlegum búnaði læknis og björgunarkörfu hefur verið komið fyrir er ekki mikið pláss eftir til að athafna sig. Vegna þrengsla á læknir því erfitt með að vinna læknisverk um borð. Þó á þyrlan aö geta flutt fjóra sjúkhnga í einu á landi en tvo frá sjó og eru þá tvennar sjúkrabörur hengdar upp. í þessu fjögurra fer- metra plássi er erfitt að ímynda sér aðstæður þannig. „Það er einlæg ósk okkar allra sem starfa að björgunarmálum á þyrl- unni að efnt verði loforð um kaup á nýrri þyrlu. Við teljum nauðsynlegt að hafa tvö björgunartæki vegna þess hversu SIF er oröín gömul. Ef hún bilar eða nauðsynlegt viðhald fer fram er ekkert sambærilegt björgunartæki til,“ segir Alma. „Einnig er verið að tala um stærri og kraftmeiri vél sem hefði meira rými innanborðs. Ef skip er sökkv- andi og bjarga þarf heilU skipshöfn þá tekur þessi þyrla ekki nema þrjá til fimm í einu. Það hefur komiö fyr- ir að hún hafi farið þijár ferðir til að sækja átta sjómenn. Helga, sem var læknir í þeirri ferð, var sett'upp á bjarg með allt sitt læknadót til að létta á vélinni," segir Alma. Lesend- um til glöggvunar má geta þess aó læknir, sem fer með þyrlunni, þarf að taka með sér nauðsynlegan búnað sem vegur meira en sextíu kíló. Þolir ekki ísingu Alma segir að mikilvægt sé að þyrl- an, sem keypt verði, sé aflmeiri en SIF. „Stundum er á mörkunum að þyrlan valdi því sem við erum að gera. Stærri og aílmeiri þyrla myndi þola betur verri veður. SIF þolir ekki ísingu og það háir okkur mjög oft. Ég get nefnt dæmi þegar við þurftum að fara til björgunarstarfa í Húna- flóa. Við uröum að fljúga meðfram allri ströndinni og fyrir Vestfjarða- kjálkann, sem tók okkur rúma tvo tíma, vegna ísingarhættu yfir land- inu. Ef við hefðum getað flogið beint hefðum við náð á slysstað á innan viö klukkutíma," segir Alma. „Það er mikið baráttumál okkar að ný þyrla verði keypt vegna alls þessa og einnig vegna vinnuaðstöðunnar. Mér finnast það sjálfsögð mannrétt- indi fyrir þjóð sem býr við jafnslæm Björgunin séð frá öðru sjónarhorni. Ljósmyndari DV lét sig ekki muna um að siga niður í varðskip til að ná mynd þegar Alma var hifð upp í þyrluna að nýju. Og þarna má sjá hana mitt á milli skips og þyrlu. landfræðileg, atvinnuleg og veður- farsleg skilyrði og hér að hafa góö björgunartæki. Það er auk þess að mínu áliti hneisa fyrir sjálfstæða þjóð að þurfa að vera upp á útlendan her komin með neyðarþjónustu. Þar fyrir utan þekkja hermennirnir ekki staðhætti og tala ekki málið. Það eru ýmis atriði, sem skipta máli, og sjó- mennirnir okkar gera sér grein fyrir þvi en þyrlukaupin hafa ekki síst verið áhugamál þeirra," segir Alma ennfremur. Ávaktinni meó slösuðum Alma D. Möller hefur starfað á þyrlunni í sextán mánuði og Helga -Magnúsdóttir í átta. Alma segir að þaö hafi verið hrein tilviljun að hún hóf stöf á þvrlunni. Áður haföi hún alllengi starfað með neyðarbílnum í Reykjavík, eða á meðan hún gegndi störfum á lyflækningadeild Borgar- spítalans. Neyðarbillinn og lyflækn- ingadeildin hafa með sér samstarf. Nú er Alma starfandi á svæfinga- og gjörgæsludeild en þar hafa þeir læknar unniö sem starfa með þyrl- unni. Helga er hins vegar starfandi á skurðdeild Landspítalans en var áður á sömu deild og Alma. „Ég var að vinna á svæfingadeild- inni með þeim læknum sem voru í þyrlusveitinni og þeir fóru að ámálga við mig hvort ég vildi ekki ráða mig á þyrluna. Þá hafði engin kona starf- að þar og ég þurfti alllangan um- hugsunartíma. Ég hélt að þetta væri miklu erfiðara en það reyndist vera,“ segir Alma. „í rauninni er það þann- ig að maður þarf aö bjóða sig fram til starfsins því ekki er auglýst eftir læknum. Síðan fer umsóknin fyrir fund þar sem ákvörðun er' tekin,“ heldur Alma áfram. „Þyrlan er algjör aukavinna hjá okkur sem störfum við hana.“ Hundrað og tvö útköll Helga segir svipað hafa verið hjá sér í upphafi og ekki hafi spillt fyrir áhugi hennar á flugi. Þegar Alma hóf störf í maí árið 1990 var verið að senda fólk til Skotlands í sérstakar æfingabúðir. Hún segist hafa verið heppin að lenda með því þar hafi hún lært mikið. „Það var ekki veriö að kenna okkur að bjarga sjúklingum heldur okkur sjálfum ef þyrlan myndi farast. Við vorum sett inn í þyrlulíkan sem átti að vera að sökkva og okkur kennt að bjarga okkur," segir Alma sem segist hafa haft mjög gott af þeim skóla. Hér heima var síðan farið í mikið æfinga- prógramm. „Byrjað var á að fara í allar öryggisreglur. Síðan sigum við tvisvar í skip og tvisvar i fiallshlíð. Þar fyrir utan er ætlast til að við mætum í æfingar af og til. Farið er í æfingaflug á hverjum mánudegi og þá er sigið bæöi á landi og á sjó,“ segja þær. Venjulega er aðeins einn læknir með í björgunarferð en þær Helga og Alma segja að ef stórslys yrði ein- hvers staðar væri alltaf möguleiki á aö fleiri en einn færi með. Útköll þyrlunnar í sjiikra- eða björgunar- flug eru að meðaltali tvisvar sinnum í viku. Útköllin voru um eitt hundrað á síðasta ári. Hröð og örugg vinna Þó að þær Helga og Alma séu van- ar aö vinna á gjörgæslu segjast þær alltaf fyllast kvíða þegar pípið kem- ur. „Kvíði er auðvitað fyrstu við- brögð en maður róast strax aftur og sérstaklega þegar við erum búnar aö hringja og fá nánari upplýsingar um hvað sé að. Við fáum píp á kalltæki og leggjum þá strax af stað út á flug- völl. Á leiöinni reynum við að fá frek- ari upplýsingar og erum þá venju- lega búnar að ákveða hvað þurfi að hafa meðferðis í flugið sjálft. Vinnan er mjög hröð og enginn tími til að velta fyrir sér kvíða," segja þær Alma og Helga. Hver maöur í áhöfninni gerir sig kláran fyrir feröina og þaö líða ekki nema um tuttugu til þrjátíu mínútur frá því kalltækið pípir þar til þyrlan fer í loftið. Á leiðinni á slysstað fund- ar áhöfnin um hvernig staðið skuli að björgun. Fundir þessi eru haldnir áður þegar um æfingar er að ræða. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991. 45 Hvert atriði ferðarinnar er þá skipu- lagt áður en haldið er af stað. - En þarf ekki talsvert hugrekki til að láta sig síga niður úr þyrlunni, kannski í myrkri og vondu veðri langt úti á rúmsjó? „Þetta er nú ekki eins og maöur hangi í lausu lofti,“ svarar Alma. „Við erum í nokkurs konar burðar- poka eða buxum og síðan sér stýri- maðurinn nokkurn veginn um okk- ur. Samspil flugmanna og stýri- manns er mikið atriði og þessir menn eru mjög færir í starfi sínu og ekki síður öruggir. Maður treystir algjör- lega á þá. Skipveijarnir taka við línu úr þyrlunni og það skiptir ekki minnstu máli að þeir kunni til verka. Við sígum einungis niður úr þyrl- unni og lendum beint á þilfari skips- ins. Slysavarnaskóli sjómanna hefur haft í sinni kennslu leiðbeiningar til sjómanna hvernig þeir eigi að taka við línunni. Maður er vissulega ör- uggari þegar maður veit að á skipinu eru menn sem einnig kunna til verka. Þegar við æfum með varð- skipinu fær áhöfnin þar æfingu í að taka á móti línu,“ segir Alma enn- fremur. Treyst á flugmennina „í fyrsta skipti, sem ég þurfti að síga niður til sjúklings, var mjög slæmt veður og hánótt. Ég sá bát í öldunum þarna langt fyrir neðan. Þá var ég spurð hvort ég treysti mér að síga. Þar sem ég kunni ekki að meta aðstæður þarna í fyrsta skipti spurði ég áhöfnina hvort það væri ekki í lagi og þegar svarið var já lét ég vaöa án þess að hugsa frekar um það. Við læknarnir höfum í raun ekki mikið vit á veðurskilyrðum og treystum algjörlega á flugmennina í þeim efn- um,“ segir Alma. Helga hefur lent i að síga niður á jökul þar sem hún þurfti að klifra til að nálgast sjúklinginn. í þyrlunni voru engin tæki til þeirra hluta, svo sem ísaxir og fleira, og hefði hún tæpast komist upp brattann ef einn björgunarsveitarmaður hefði ekki fært henni öxi. „Viö vorum ekki með útbúnað fyrir ferð sem þessa, enda hann ekki til. Þar sem það var björg- unarsveitarmaður, sem var slasað- ur, voru félagar hans mjög áhuga- samir um bættan búnað og Hjálpar- sveit skáta í Kópavogi færði þyrlunni slik tæki hálfum mánuöi eftir að þetta slys átti sér staö,“ segir Helga. Þær Helga og Alma eru báðar al- mennir læknar og eiga báðar fyrir höndum erfitt sérfræðinám. Allir læknar þyrlunnar, utan einn, eru almennir læknar. Alma hefur ekki enn gert upp við sig hvaða sérnám hún fer í en býst við rð það veröi í svipuðu og hún starfar við nú. Helga er hins vegar ákveðin í að veröa sér- fræðingur í svæfingum. Þær eru báð- ar að ná sér í reynslu áður en haldið verður í lengra nám. Engill af himnum Fullur dagur á sjúkrahúsi og gjör- gæsluvakt í háloftunum er mikil vinna fyrir ungar konur. Þær segjast þó fá heilmikla tilbreytingu út úr þyrlufluginu þar sem þær kynnast öðru sjónarhorni en venjulegri spít- alavinnu. „Þetta er spennandi að því leyti að við fáum að kynnast nýju fólki. Viö ferðumst nokkuö um land- ið og það er sem betur fer ekki alltaf í sambandi við alvarleg slys. Einnig erum við í tengslum við Slysavarna- skóla sjómanna og það er því heil- margt sem gerir starfið skemmtilegt. Áhafnir þyrlunnar eru mjög góður hópur og skemmtilegur félagsskap- ur. Það er alltaf gaman að kynnast öðrum starfsstéttum,“ segja þær. - En eru sjúklingar, sem bíða eftir lækni í skipi langt úti í hafi í vondu veðri, ekki hissa þegar ung kona kemur sígandi niður úr þyrlunni? „Þeir láta ekki mikið bera á því við okkur en viö höfum oft fengið að heyra það eftir á. Að minnsta kosti hef ég aldrei séð skelfingarsvip á sjúklingi vegna þess,“ segir Helga. „Þeir létu mig aðeins heyra það í fyrsta skipti, sem ég fór, og það er áreiðanlega tekið eftir því,“ bætir Alma við og rifiar upp orð eins skip- verjans er hann sá hver kominn var: „Nú, það er bara engill af himnum ofan.“ Alma D. Möller og Helga Magnúsdóttir þyrlulæknar láta sig ekki muna um að síga niður i skip úr þyrlunni, hvort sem er að degi eða nóttu. DV-myndir Gunnar V. Andrésson r , M WEBþz, j1 l Erfið ákvörðunartaka - Hvað er erfiðast við starfið? „Ætli það sé ekki ákvörðunin um hvort á sjúkrafluginu er þörf. Skip- stjóri hringir kannski í okkur og seg- ir að um borð sé maður með verk fyrir brjósti. Þá þurfum við að fá sem bestar upplýsingar til að meta hvort ástæða sé að fara í loftið og sækja manninn. Hins vegar metur flug- stjórinn algjörlega sjálfstætt og tekur ákvarðanir varðandi skilyrði fyrir flugið. Stundum kemur upp sú staða að á mörkunum sé að fara vegna veðurs. Ef spurningin er um að bjarga mannslífi þá tökum við frekar áhættuna að fara, annars sleppum við því. Við verðum hins vegar að meta í gegnum síma hvort ástæða sé til fararinnar eftir upplýsingum frá skipstjóra. Ef um er að ræða slys á landi og læknir ef til vill kominn á staðinn þá kallar hann í okkur beint. Útköllin eru auðvitað mjög misjöfn.“ Læknar þyrlunnar eru aldrei látnir síga til manna sem eru í sjónum. Þá eru sérstakir sigmenn með í ferð- inni. Læknar síga einungis niður til sjúklinga sem eru um borð í skipum eða á landi. Þar sem erfitt er fyrir lækna að athafna sig í þyrlunni vegna þrengsla er hlúð að sjúklingi áður en hann er hífður upp. Þær eru báðar sammála um að tilfinningin eftir að vera búnar að koma sjúkl- ingi á sjúkrahús sé afar góð. „Það er alltaf þægileg tilfinning sem kemur yfir mann að aflokinni erfiðri ferð. Fyrst þarf þó að fylla upp birgðir fyrir næstu ferð og það getur tekið tíma,“ segja þær. Samheldni fjölskyldnanna Það þarf vissulega samheldna fiöl- skyldu til að umbera alla þá vinnu sem þær Helga og Alma inna af hönd- um. Alma á eiginmann sem einnig er læknir og segir hún hann skilja mjög vel störf hennar. Helga á eigin- mann, tvö börn og eitt barnabam, þó ekki sé hún eldri, og segir hún skilning fiölskyldunnar einmitt mjög mikilvægan þátt í starfinu. „Maður getur ekki unnið fulla vinnu og tekið aukavinnu á þyrluna nema vera með mjög skilningsríka einstaklinga heima," segir Helga. Alma bætir við að móðir hennar og bróðir hafi ekki verið mjög hrifin þegar hún réð sig á þyrluna. Eiginmaðurinn er óhræddari eða lætur aö minnsta kosti ekki á miklu bera. Helga segist vera nokkrum árum á eftir í læknanáminu þar sem hún hafi fyrst farið í meinatæknanám áður en hún ákvað að fara út í lækna- námið. „Ég var einstæð móðir og ákvað að fara í praktískt og stutt nám, sem meinatæknanámið var þá, og tiltölulega vel borgað á þeim tíma. Þegar því var lokið langaði mig að halda áfram og fara í frekara nám. Það varð úr að ég fór í læknisfræði og stefni á sérnám í svæfingum í Svíþjóð á næsta ári,“ segir hún. Kallið getur alltaf komið - En eruð þið ekki bundnar heima þegar þið eruð á þyrluvaktinni og bíðið eftir kallinu? „Nei, við erum með píptæki og get- um verið hvar sem er, farið í leik- fimi, bíó og svo framvegis, þannig að það er allt í lagi. Hins vegar þurfum við að vera vel upplagðar því maður veit aldrei hvenær kallið kemur og þá er oft unnið við erfiðar aöstæð- ur,“ segir Alma. Helga bætir við að hún geti reyndar ekki verið ein að passa börnin þegar hún sé á vakt- inni.“ Alma á þyrluvaktina um þessa helgi og þarf að vera viö öllu búin þótt vitaskuld vonist allir eftir aö engin þörf verði á þyrlunni. Það er eins og Benóný flugstjóri útskýrði á leiðinni er rætt var um nauðsyn þess að fá nýja þyrlu og notkun hennar: „Þaö eru margir björgunarhringir við bryggjuna í Reykjavík en sem betur fer þarf sjaldan til þeirra að grípa." - En er ekki gott fyrir ykkur stelp- urnar að fá reynsluna á þyrlunni áður en þið haldið í sérnám ykkar? „Jú, mjög gott og sérstaklega vegna þess að við höfum á engan að treysta í þessu nema okkur sjálfar," segja þær Alma og Helga. „Við gefum líka ráð. Ef einhverjir sjómenn eru í vafa hvort kalla þurfi á þyrlu geta þeir alltaf hringt í okkur og spurt ráða. í raun erum við heimilislæknar sjó- manna," segja þessar vösku konur sem einhverjir myndu kalla kven- hetjur. -ELA tr Í i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.