Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 21. SEJfXEM BER, J991.
49
Trimm
í heimsókn hjá Veggsporti:
„Mikil útrás fyrir
stressaða f slendinga"
„Þaö er alls konar fólk sem stund-
ar þetta. Bæði konur og karlar á
öllum aldri. Keppnisfólk úr öörum
íþróttagreinum kemur hingað líka
mikið og má t.d. nefna handbolta-
mennina í því sambandi enda er
þetta mjög góð íþrótt fyrir þá. En
þetta er þó fyrst og ffemst fólk úr
öllum áttum eins og ég sagði áðan.
Sá elsti sem hefur spilað þetta er
sennilega nálægt sjötugu. Eins
kemur töluvert af skrifstofufólki
enda er þetta góð íþrótt til að losna
við spennu og jafnvel uppsafnaða
reiði enda fær viðkomandi mikla
útrás í veggtennis," sagði Hilmar
H. Gunnarsson, íþróttakennari og
annar eiganda Veggsports, í sam-
tali við DV.
Á Seljavegi í Reykjavík rekur
Hilmar ásamt félaga sínum, Haf-
steihi Daníelssyni, Veggsport sem
er nokkurs konar veggtennis- og
íþróttamiðstöð. Félagarnir hafa yf-
ir aö ráða 1000 fermetra húsnæði
sem í eina tið hafði að geyma járn-
smiðju en þar eru nú innandyra
einir 7 salir til að spila veggtennis.
Að auki er salur sem er ætlaður til
upphitunar þeim sem koma til að
spila jafnframt því sem hægt er að
kenna þar aðrar greinar eins og
t.d. eróbikk og dans.
Sömu megin
yið netið
Líkt og á mörgum öðrum stöðum
þar sem íþróttagreinar eru í boði,
gefst iðkendum kostur á að fara í
ljós og gufubaö eftir púlið og Hilm-
ar segir gufubað þeirra félaga
jafngott ef ekki betra en það sem
fyrirfinnst á Laugarvatni. Enn-
fremur er aöstaða þar sem hægt
er að lyfta lóðum fyrir þá sem það
kjósa og fyrir þá sem eru að hug-
leiða aö skella sér í veggtennis er
rétt að hafa í huga að i því felst
samheiti fyrir tvær greinar. Ann-
arsvegar nokkuð sem kallast
skvass og hins vegar grein sem
heitir racquet-ball og hér með er
beðið um heppilegt íslenskt orð yfir
það síðarnefnda. En út á hvað
ganga þessar íþróttagreinar?
„Þetta gengur út á það að slá bolt-
ann í vegg til skiptis eftir kúnstar-
innar reglum og maður reynir að
gera það þannig að andstæðingur-
inn nái ekki aö slá boltann aftur í
framvegginn. Að boltinn lendi
tvisvar áður en andstæðingurinn
nær til hans. Að því leytinu eru
þetta svipað og tennis og badmin-
ton nema í þessari grein eru and-
stæðingarnir „sömu megin við net-
ið“. í skvassinu, sem er breskur
leikur, gilda mjög strangar siða-
reglur en um tvenns konar hindr-
anir eru að ræða. Þá gildir sú regla
að uppgjöfin er endurtekin eða að
sá sem var hindraður vinnur uppg-
jöfina eða stigið."
Sjón er sögu ríkari
Likt og með aðrar íþróttagreinar
er sjón sögu ríkari en ágætis aö-
staða er fyrir áhorfendur til að
fylgjast með iðkendum. 2 salir eru
löglegir sem keppnisvellir og hægt
er að horfa á „uppi og niðri“.
Skvassiö skipar greinilega hærri
sess hjá íþróttakennaranum enda
segir hann það vinsælla hjá þeim
sem koma og því kannski aðeins
meiri áhersla lögð á það. Racquet-
ball ku vera upprunninn í Banda-
ríkjunum en notaðir eru mismun-
segir Hilmar H. Gunnarsson íþróttakennari
Fólk á öllum aldri stundar veggtennis enda er þetta fín íþrótt hvort heldur þarf að losna við stress eður ei. Þetta unga par mundaði spaðana í
racquet-ball þegar DV var í heimsókn og það er ekki hægt að segja annað en að stillinn sé glæsilegur. DV-myndir GVA
Veggistennis gefur manni styrk,
snerpu og geysilegt úthald, segir
Hilmar.
Boðið er upp á leiðbeiningar fyrir byrjendur og hér
er Hilmar að útlista fyrir tveimur iðkendum hvernig
best sé að bera sig að.
í Veggsporti eru tveir löglegir keppnisvellir. Hér sést
annar þeirra og glögglega má sjá að aðstaða fyrir
áhorfendur er ágæt.
andi spaðar og boltar í þessum
greinum en ágætt er að byrjar í
racquet-ball eins og Hilmar segir.
„Boltinn í racquet-ballinu skopp-
ar meira og þess vegna er betra að
byija í þeirri íþrótt. Það er kannski
erfitt að segja hvor íþróttin sé létt-
ari en viðkomandi nær fyrr tökum
á henni. Mepn byrja gjarnan í
racquet-ball og færa sig síðan yfir
í skvassið. Sumir segja reyndar við
okkur að þeir hefðu strax átt að fá
skvass-spaðann en þetta er auðvit-
að einstaklingsbundið." Mót eru
haldin í báðum þessum greinum
og íslandsmótið í skvassi er nú við-
urkennt af ÍSÍ. Þátttakendur á ís-
landsmótinu voru 32 í karlaflokki
og 16 í kvennaflokki en áður var
búið að sigta út. Það er því greiiii-
legt að nokkuð stór hópur manna
og kvenna stundar veggtennis þó
engar ákveðnar tölur hggi fyrir.
Ekki alltaf
vinsæll heima fyrir
„Veggtennis gefur manni styrk,
snerpu og geysilegt úthald. Þegar
maður byrjar gerist þetta auðvitað
ekki 1,2 og 3 en það má segja að
getan, þ.e. tæknin og úthaldið,
haldist í hendur. Hafa ber einnig í
huga að nauðsynlegt er að hita vel
upp áður tekiö er á og við reynum
að brýna það fyrir fólki. Því miður
eru alltof margir sem gieyma þessu
en meiðsli í veggtennis eru samt
fátíð og í rauninni ótrúlega sjaid-
gæf miðað við öll átökin." í Vegg-
sporti er hægt að fá lánuð eða keypt
sérstök gleraugu til að koma í veg
fyrir augnmeiðsli enda er htð gam-
an að fá boltann í augað en þrátt
fyrir það er fólk ekki duglegt við
að setja upp þennan búnaö og á
meðan heimsókn DV stóð sást eng-
inn með öryggisgleraugu.
Hilmar og Hafteinn, félagi hans,
eru báðir íþróttakennarar við Iðn-
skólann í Reykjavík ásamt því að
reka Veggsport. Þeir vinna því báð-
ir langan vinnudag og Hhmar við-
urkennir fúslega að hann sé ekki
alltaf vinsæh heima fyrir af þeim
sökum. Enda segir hann að lítið
þýði að reka fyrirtæki með þeim
hætti að labba bara um með stres-
stökuna. Sjálfir eru þeir meira og
minna við reksturinn og félagarnir
virðast ekki hafa mikinn tíma th
að spha sjálfir.
Óháð veðri
og vindum
„Við Hafsteinn náum aldrei aö
spila saman enda erum við ahtaf
að vinna til skiptis. Þaö er hrein-
lega ekki tími. Reyndar vhdi svo
skemmtilega th að við drógumst
saman í íslandsmótinu en við skul-
um láta úrslitin liggja á mhh
hluta." Umrædd íslandsmót virðist
sýna fram á að íþróttin er að öðlast
vdrðingu enda kannski tími th
kominn myndi einhver segja þvi
upphaf hennar hér má rekja a.m.k.
áratug aftur í tímann. Reginn
Grímsson byijaði meö aðstöðu í
Þrekmiðstöðinni í Hafnarfirði á
sínum tíma og í dag er hægt að
spha veggtennis á nokkrum stöð-
um í Reykjavík. Landsbyggðar-
menn hafa einnig tekið vdð sér og
vdtað er um fólk á ísafirði, Akur-
eyri, Selfossi og í Vestmannaeyjum
sem stundar þetta. Framtíðin vdrð-
ist því ágætlega björt.
„Veggtennis á tvímælalaust
framtíðina fyrir sér. Vegna þess að
þetta er inniíþrótt og er því algjör-
lega óháð veðri og vdndum. Eins
er þetta mikil útrás fyrir stressaða
íslendinga og því alveg upplagt og
varla hægt að hugsa sér betra sport
þannig lagað," sagði Hilmar.
Kostnaðurinn vdð veggtennis er
500 krónur á manninn hver tími
og ef á að leigja spaða bætast við
100 krónur. Séu keypt afsláttarkort
kostar auðvitað mun minna að
stunda þessa íþrótt en ýmsir mögu-
leikar eru í boði. Þar má nefna
helgarnámskeið og eins er ódýrara
að spha fyrir kl. 17 á daginn. Boðið
er upp á leiðbeiningar fyrir byij-
endur og áætlað er að vera meö
kennara öll kvöld vdkunnar. Því er
svo vdð að bæta að hver tími stend-
ur í 45 mínútur en ef enginn mætir
í tímann sem á eftir fylgir getur
vdðkomandi spilað lengur fyrir
ekkineitt. -GRS