Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991
23
Sviðsljós
Jack Lemmon.
Elisabet Taylor.
Clint Eastwood.
Stjömur
í lífshættu
Það er ekki bara á hvíta tjaldinu
sem kvikmyndastjörnur lenda í
lífshættu. Margar þeirra hafa einn-
ig komist í hann krappan í raun-
veruleikanum.
Ehsabet Taylor hefur mörgum
sinnum verið nær dauða en hfi. í
einu tilvikanna var hún í Júgóslav-
íu ásamt þáverandi eiginmanni
sínum, Richard Burton. Er Elísabet
var á leið niður stiga að sundlaug
hótelsins, sem þau dvöldust á,
hrasaði hún. Slagæð, vöðvar og
taugar í handlegg Elísabetar fóru í
sundur við fallið og segir hún það
kraftaverk að henni skyldi ekki
hafa blætt út.
Er Jack Lemmon var fátækur
ungur maður í New York var hann
vanur að sofa ásamt öðrum ungum
leikurum í hrörlegum húsum sem
ekki var búið í lengur. Einn morg-
uninn vöknuðu félagarnir við það
að farið var að rífa húsið sem þeir
héldu til í með vinnuvélum. Málm-
kúlu á krana var slengt í vegginn
á herberginu sem leikararnir sváfu
í og glerbrotum rigndi yfir þá.
Minnstu munaði að hæöimar sex
fyrir ofan þá lentu ofan á þeim.
„Svefnherbergi" félaganna var á
jarðhæð og voru þeir ekki lengi að
taka til fótanna.
Allt virtist ganga á afturfótunum
hjá Rod Stewart er hann fór til
Argentínu 1978 til þess að horfa á
heimsmeistarakeppnina í fótbolta.
Skotland tapaði og sjálfur varð
hann næstum fyrir skoti glæpa-
manna. Tveir vopnaðir náungar
komu inn á veitingastað þar sem
Rod sat að snæðingi. Skömmu síðar
komu tveir lögregluþjónar og skot-
Rod Stewart.
hríð hófst. Rod segist hafa leitað
skjóls undir borði. Allt í einu hafi
hann heyrt undarlegt hljóð og svo
hafi eitthvað strokist við hár hans.
í ljós kom að þetta var byssukúla.
Þegar Clint Eastwood var 21 árs
og gegndi herskyldu lenti hann í
ótrúlegu slysi. Hann hafði verið
heima í Seattle í leyfi og sníkti sér
far með flugvél til herstöðvarinnar.
Clint segir að í raun hafi ekki
verið pláss fyrir hann í véhnni en
flugmaðurinn sagði honum að gæti
troðið sér aftast í vélina. Clint leið
ekkert of vel, meðal annars vegna
þess að illa gekk að loka dyrunum.
Það tókst þó meö snæri. Þegar flug-
véhn var komin í loftið bað flug-
maðurinn hann um að setja upp
súrefnisgrímu. Hún var hins vegar
biluð en flugmaðurinn heyrði ekki
er Clint kallaði til hans. Súrefnis-
gríma flugmannsins var einnig bil-
uð og neyddist hann þá til að lækka
flugið.
Ekki var nú öllum vandræðum
lokið því flugmaðurinn uppgötvaði
nú að eldsneytið var á þrotum og
sagði hann þá þurfa að nauðlenda.
„Þegar vélin snerti vatnið reyndi
ég að opna dyrnar sem ég haíði
verið í vandræðum með að loka.
Snærið sem mér hafði tekist að
loka með hafði aftur á móti fest og
taldi ég þá að mín síðasta stund
væri runnin upp. Loksins tókst
mér samt að opna dyrnar.“
CUnt synti síðan í land með flug-
manninn.
HÖFUM OPNAÐ
VERSLUN
'm
húsinu
Hesthálsi 2-4
Sími 672110
Úrval af
Kertastjökum
Borðum
Blómasúlum
Kertum o.m.fl.
Opið í dag frá kl. 10-16
Sjón er sögu ríkari
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN
^ FYRIR LANDSBYGGÐINA:
£ 99-6272
^ —— QRÆNI _
/ ^ SlMINN ^
-talandi dæmi um þjónustu!
TA
Verð frá 3350.- kr.
^ÖVER SL(j
HAMRABORG 3 SIMI4175^
^ÓPavOgS
Póstsendum
■
Nú gefst þér tækifæri til að eignast góða ritvél fyrir skólann.
Walther ritvélin er létt og meðfærileg en umfram allt ódýr.
Þeir sem verða snöggir til, gera betri kaup, því að með
fyrstu 100 vélunum fylgir ^ ^ ^
fullkomin skólareiknivél
Síðumúla 23- 108 Reykjavík - Sími: 91-679494