Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991. Myndbönd Húnsáofmikið SILHOUETTE Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Carl Schenkel. Aöalhlutverk: Faye Dunaway, David Rasche og John Terry. Bandar isk, 1990 - sýningartími 92 min. Bönnuö börnum innan 16 ára. Góðar spennumyndir verða að láta áhorfandanum í té eitthverjar gátur sem hann getur spreytt sig á og vinsælast er að geta upp á hver sé morðinginn. í Silhouette er þessi formúla notuð. Faye Dunaway verður vitni að morði í glugga hin- um megin við götuna þar sem hún er á hóteli í smábæ. Aðeins skugg- inn sést en sterklega gefið í skyn í myndinni hver morðinginn sé. Áhorfandinn veit aö sjálfsögðu að sá er saklaus. Svo gott sem það nær. Gallinn er bara sá að það líða varla tíu mínút- ur áður en sæmilega greindur áhorfandi er búinn að sjá út hver raunverulegi morðinginn er. Við það verður að sjálfsögðu spennu- fall og mörg laglega gerð atriði, sem koma síðar, missa því marks en Faye Dunaway stendur sem fyrr fyrir sínu og sýnir góðan leik en handritið hefði mátt vera betur unniö því hugmyndin, þótt ekki sé ný af nálinni, stendur alltaf fyrir sínu. 8HÖFUNDSH0QÚN"06KÖetÍMðUsI. „ ■ Höfðingjadeilur TAI-PAN Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Daryl Duke. Aðalhlutverk: Bryan Brown, Joan Chen og John Stanton. Bandarísk, 1986-sýningartími 123 mín. Bönnuö börnum inann 16 ára. Það er oft erfitt að gera kvikmynd í venjulegri lengd upp úr langri og mikilh bók. Tai-Pan er mikið verk sem lýsir fyrstu árum nýlendunnar Hong Kong og fjallar um ættföður Struan-ættarinnar en sjónvarpsá- horfendur fengu að fylgjast með afkomendum hans heyja stríð í við- skiptaheiminum í þáttaröðinni Noble House. Það er greinilegt aö handritshöf- undar hafa komist í mikil vandræði og er því Tai-Pan mjög sundurlaus kvikmynd þar sem persónur detta inn og út án þess að mikil skýring sé gefin á tilveru þeirra í mynd- inni. En miklu hefur verið kostað við gerð myndarinnar og bera nokkur atriði það með sér og eru tignarleg. Þess má svo geta að Tai- Pan var tekin upp í Kína. Pabbi kemur í heimsókn ALLT I BESTA LAGI (STANNO TUTTI BENE) Útgefandl: Háskólabíó. Leikstjóri: Giuseppe Tornadore. Aðalhlutverk: Marcello Mastroianni, Michele Morgan og Valeria Cavalli. ítölsk, 1990 - sýningartimi 110 min. Leyfð öllum aldurshópum. Allt í besta lagi er önnur kvik- mynd Giuseppe Tornadore. Hann hlaut heimsfrægð og óskarsverð- laun fyrir Paradísarbíóið sem var hans fyrsta kvikmynd. Saman- burður á þessum tveimur myndum er ekki Állt í besta lagi í haginn, þótt hér sé um að ræða kvikmynd sem er langt yfir meðallagi. Það sem einkennir þessar tvær myndir Tornadore er mannleg hlýja gagn- vart misgóðum persónum. Til dæmis eru börnin hans Mateo Scuro, sem er aðalpersónan í Allt í besta lagi, ekki eins fullkomin og hann heldur og hafa ýmsa mann- lega breyskleika eins og gefur að skUja. En manni verður samt ósjálfrátt hlýtt til þeirra. Þau eru í raun aðeins fulltrúar nútímaþjóð- félagsins Faðir þeirra á aftur á móti bágt með að skilja þarfir nú- tímans. Samantekin ráö systkin- anna um að vemda hann gagnvart sannleikanum er skiljanleg afstaða þó hún hljóti um leið að vera röng. Allt í besta lagi byijar á SikUey, þar sem Mateo gamli hefur píla- grímsför sína. Nú á að heimsækja bömin hvert af öðru þar sem þau hafa ekki haft tíma til að heim- sækja hann. Hrifning hans á börn- um sínum kemur best í ljós þegar hann fer að sýna ferðafélögum sín- um einu fiölskyldumyndina sem hann á. í ferð sinni Uggur leið hans um allar helstu borgir Ítalíu, þar sem NVIM i MWÍ'I.II --n'M' TOKN VKlHi M \111KK OSKAKSVKRDLAIMN IVIilK PARADÍSARilíOltl. Marcello Mastroianni leikur aldraðan föður sem tekur á sig ferðalag til að heimsækja uppkomin börn sín. ________ STANNO TIJTTI BKNE ALLT í BESTA LAGI börn hans búa í mikUli velmegun að því er hann heldur. Mateo vUl koma börnum sínum á óvart en samtrygging þeirra kemur í veg fyrir að honum takist það. Öll eiga þau við vandamál að stríða sem þeim tekst að halda leyndum fyrir gamla manninum þó hann fari að gruna ýmislegt þegar fer að líða á myndina. Ekki er hægt aö segja að sögu- þráðurinn bjóði upp á mikla bjart- sýni aðalpersónunum til handa en DV-myndbandalistmn Look Who’s Talking too eða Pottormarnir, eins og hún netnist á ís- lensku, nálgast toppinn á myndbandalistanum, er í þriðja sæti þessa vikuna. Á myndinni er John Travolta ásamt krökkunum tveimur en leikaramir þekktu, Bruce Wíllis og Roseanne Barr, tala fyrir krakkana. 1 (2) Pacific Heighis 2 (1) The Rookie 3 (5) Look Who’s Taíking too 4 (3) Magnús 5 (4) Pump up the Volume 6 (-) Postcards trom the Edge 7(6) Rocky 5 8 (7) Flight of the Intruder 9 (-) Delta Force 2 10 (9) Reversal of Fortune 11 (10) Almost an Angel 12 (11) Fire Birds 13 (12) Memphis Belle 14 (-) This Gun for Hire 15 (9) Cover up ick'A Hanskamir lagðir til hliðar ROCKYV Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: John G. Avildsen. Aöalhlutverk: Sylvester Stallone, Talia Shire og Burt Young. Bandarisk, 1990 - sýningartimi 100 min. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sylvester Stallone hefur sagt aö Rocky V sé lokakaflinn í sögunni um hnefaleikakappann Rocky Balboa. í fyrstu vildi Stallone að hann dræpist en það fannst fram- leiðendum vera sama og dauða- dómur yfir myndinni. í staðinn er Rocky látinn lenda í ýmsum hörm- ungum, lík&mlegum sem andleg- um, og það verður að segjast eins og er að Rocky V er líklegast mann- legasta myndin af þeim fimm sem gerðar hafa verið um Rocky. í byrjun fylgjumst við með loka- kaflanum í Rocky IV þar sem Rocky lemur rússneskan andstæð- ing sinn í gólfið og endurheimtir heimsmeistaratitilinn. Stuttu síðar er honum tilkynnt að hann hafi orðið fyrir lítils háttar heila- skemmdum sem muni aukast fari hann í hringinn aftur. Rocky sættir sig alveg við að hætta og snúa sér að öðru, þótt aðrir vilji að hann haldi áfram. En það reynist honum erfitt fiárhags- lega þegar í ljós kemur að óprúttn- ir umboðsmenn hans hafa spilað með peninga hans og tapað öllu. Hann verður því að flytja í gamla hverfið sitt. Þar hittir hann fyrir ungan hnefaleikara sem vill ólmur að Rocky þjálfi hann. Rocky lætur til leiðast þegar hann sér að strák- urinn er mikið efni en þegar stráksa finnst ganga of hægt á framabrautinni yfirgefur hann Rocky. Myndin Rocky V er að mörgu leyti öðruvísi en þær fyrri. Hún hefur alvarlegan undirtón og fyrri hlutinn á í raun margt líkt með fyrstu myndinni sem er best þeirra, enda er leikstjóri Rocky V John G. Avildsen en hann leikstýrði fyrstu myndinni en götuslagsmálin í lokin eru einum of mikið af því góða og dregur myndina niður. Sylvester Stallone ofleikur Rocky á sama hátt og ávallt áður og er stundum þreytandi. -HK hinn fíni húmor, sem einkennir myndina, gerir það að verkum að létt er yfir myndinni í heild. Marcello Mastroianni leikur gamla manninn óaðfinnanlega og er það hann sem skapar að nokkru leyti þá góðu tilfinningu sem fylgir því að horfa á myndina. í heild er Allt í besta lagi vel gerð kvikmynd og skemmtileg þótt hún standist ekki samanburð við Paradísarbíó- ið. -HK PHHJP ANGLiM LAURA DEHN AUCS KRiGE EBSC STOLTZ ALEX W8NTEB Skáldaraunir HAUNTED SUMMER Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Ivan Passer. Aðalhlutverk: Philip Anglim, Laura Dern, Alice Krige og Eric Stoltz. Bandarísk, 1988- sýningartimi 108 min. Um skáldin Byron lávarð, Shelley og Mary, eiginkonu Shelleys, hafa verið gerðar tvær ólíkar kvik- myndir. Báðar gerast þær sumarið sem þau öll bjuggu saman. Aðra myndina, Gothic, gerði Ken Russell og eins og honum er líkt var um kraftmikla en óraunhæfa kvik- mynd að ræða. Haunted.Summer er öllu rólegri, þó er eins og í Got- hic verið að gefa í skyn að Mary Shelley hafi þetta sumar fengið hugmyndina að frægustu bók sinni, Frankenstein. Auk þriggja fyrrnefndra persóna koma við sögu Claire, systir Mary,’ sem er ástkona Byrons, og læknir hans, Polituri, sem Byron níðist á í tíma og ótíma en einnig er gefið í skyn að þeir séu elskhugar. Það er í raun ósköp lítið sem skeöur í myndinni þegar búið er að kynna allar þessar sögufrægu persónur. Ástríður þeirra eru heit- ar og leitin að einhverju sem aldrei finnst er þeim ofarlega í huga. Það vantar festu í leikstjómina sem gerir það að verkum að leikarar eru oft utangátta og ná ekki al- mennilega tökum á persónunum. Haunted Summer er forvitnileg kvikmynd sem hefði sjálfsagt getað orðið mun betri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.