Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Page 13
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991. 13 Sviðsljós Óvenjuleg meðganga: Amman gengur með barnabörnin „Bráðum fæðast tvíburar okkar og það er amman sem fæðir,“ segir Christa Uchytil, 22ja ára stúlka sern býr í Suður-Dakota í Bandaríkiun- um, og er yfir sig ánægð með lífið. Þegar Christa fæddist kom í ljós að hún hafði ekkert móðurlíf. Strax fjórtán ára fékk hún að vita að hún gæti aldrei eignast barn. En tæknin getur bjargað ótrúlegustu hlutum og svo var einnig nú. Egg úr Christu var frjóvgað í glasi með sæði úr manni hennar, Ken, og sett í móður Christu, Arlette Schweitzer sem er 42ja ára gömul. Aðgerðin tókst mjög vel og móðirin varð ófrísk í fyrstu tilraun. Ekki bara að einu barni heldur tveimur. „Samtímis að vera leigumóðir og gefa dóttur sinni það sem hún þráir mest af öllu er yndisleg tilfinning. Mér fannst sjálfsagt að hjálpa ungu hjónunum með þetta,“ segir Arlette. Um leið og sérfræðingar höföu at- hugað að aðgerðin væri möguleg var hafist handa. Fjögur egg voru tekin úr Christu og frjóvguð með sæði úr eiginmanni hennar á rannsóknar- deild háskólans í Minnesota. Öll íjög- ur eggin voru sett í Arlette í von um að eitthvert þeirra héldi áfram að þroskast. Nokkrum vikum seinna kom í ljós að Arlette var orðin barns- hafandi og ekki bara eitt barn á leið- inni heldur tvö. Meðgangan hefur gengið mjög vel og í nóvember á Arlette að fæða barnabörn sín. „Það hljómar kannski furðulega en mér finnst eins og ég sé ófrísk líka,“ segir Christa. 10 mismunandi gerðir af LUXOR sjónvarpstækjum Gervihnattamótfökubúnaður þar sem styrkleikinn skiptir máli Dæmi um verð: • 0127-80 festing • 9782-05 diskur 1,2 m kr. 18.960 17.064 stgr. kr. 39.990 35.991 stgr. Ath. Luxor sjónvarpstæki sýna • 5522-50 Inb 1,0 db íslenska stafi í textavarpi. í^' 22.752 stgr. versiunin . Sænsk gæðavara Opid laugardag kl. 1 Arlette er 42ja ára og á von á tvibur- um sem eru barnabörn hennar. I UK - 17 færbu penna og skemmtilega dagbók í skólann. Komdu í klúbbinn! / takt vib nýja tíma!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.