Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Page 18
18
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991.
Veiðivon
Maðkurinn fraus
hjá veiðimanninum
Þaö verður ekki á allt kosið í veið-
inni þessa dagana þó svo hún hafl
verið góð í mörgum veiðiám núna
undir lokin.
Veiðimaður einn var fyrir fáum
dögum vestur í Dölum og var þar við
veiðar.
Hvað var hann annað að gera þar?
Veiðin hafi gengið ágætlega og nokk-
ir laxár fengist og hellingur af sil-
ungi, vel vænum, þann daginn.
Um kvöldið þegar var komið heim
í veiðihús, gleymdist að setja maðk-
inn inn fyrir og þess vegna fraus
hann allur um nóttina. Þetta var
fyrsta frostnóttin á þessu hausti.
Veiðimaðurinn stóð því uppi maðk-
laus næsta dag og veiddi þá bara á
fluguna. Og viti menn, hann veiddi
fyrsta flugulaxinn á sumrinu. Þetta
var kannski lán í óláni eftir allt sam-
an. Maðkarnir voru sem betur fer
fáir í maðkafótunni hjá veiðimannin-
um.
Með gleraugunum
sást alltaflax
Ungu veiðimennirnir, sem renna
víða í vötn og ár þessa lands, koma
oft með skemmtilegt innlegg í veið-
ina.
Fyrir skömmu voru tveir ungir
vinir við veiöar í Andakílsá í Borgar-
firði. Yngri veiðimaðurinn var rétt 9
ára og hafði fengið lánuð veiðigler-
augun sem maður sá víst allt með.
Veiddi hann vígalegur í einum hyln-
um og með þessi forlátar gleraugu á
nefinu.
Líður nú og bíður en allt í einu
segir ungi veiðimaðurinn: „ég sé
stóran lax þarna í straumnum.“
„Jæja,“ segir sá eldri og rýnir í hyl-
inn og bætir við: „ég sé bara alls
ekki neitt.“ „Nei það er ekki von,“
segir ungi veiðimaðurinn, „þú ert
ekki meö nein gleraugu, maður sér
allaf lax með þeim, ég skal bara lána
þér gleraugun."
Þrátt fyrir að eldri veiðimaðurinn
væri kominn með gleraugun sást
ekki neitt enda var það ekki aðalmál-
ið.
Góðir kokkar
í veióihúsunum
Veiðimenn eru sammála um það
að mjög góðir kokkar hafi verið í
veiðihúsunum þetta sumarið. Mætti
þar nefna til margar veiðiár en við
sleppum því í bili.
Einn veiðimaður sem við ræddum
við fyrir skömmu sagði að fæðið í
veiðhúsinu heíði bjargað öllu. Því
ekki var veiöin mikil, en maturinn
var frábær og hann var alveg sáttur
við það. Samt var konan hans ekki
hress með að hann kom fisklaus
heim og „aðeins" þyngri en hann fór
af staö.
Þjóðar-
spaug DV
Hún hafði
nú...
Prestur einn í Reykjavík var
einu sinni sem oftar að flytja L£k-
ræðu. Sú sem jarðsungin var í
það sinn var kona sem dáið hafði
háöldruð, ógift og bamlaus.
í lok ræðu sinnar flutti prestur
hinni látnu kveðjur frá börnum,
tengdabörnum og barnabörnum
og hrukku þá margir kirkjugesta
við. Eftir jarðaríorina kom einn
af ættíngjum hinnar látnu að
máli við prestinn og sagði:
„M fluttir hér kveðjur frá af-
komendum en gamla konan var
bæði ógift og barnlaus.“
„Líkræðurnar hljóta að hafa
ruglast á skrifborðinu hjá mér,“
svaraði klerkur en bætti síðan
við: „En hún hafði nú svo sem
aldurinn til þess að eignast böm,
blessunin."
Frekar í helvíti
Kona á vegum Hjálpræðishers-
ins hélt eitt sinn þrumandi reiði-
lestur yfir fjölda áheyrenda og
taldi öll tormerki á því að þeir
kæmust með henni í himnaríki.
Einn áheyrendanna rétti predik-
ai-anum í ræðulok bréf með neö-
angreindrí vísu:
í félagi við flær og lýs
feginn heldur ég lifa kýs
í Helvítí viö Mta og ís,
en að hokra með þér í Paradís.
Gömlu íbúamir
Úr eldgamalli mannkynssögu-
ritgerð menntskælings:
„íbúar Mns forna Egyptalands
voru kallaðir múmíur.“
Séra Hallgrímur
Stúdentsefni við Menntaskól-
ann á Akureyri máttu einhverju
srnni velja um íjögur ritgeröar-
efm á prófi. Efnrn sem boðið var
upp á vom: Líkamsrækt, Hall-
grimur Pétursson, Fiskurinn og
Gróðurmold. Nemendurmr áttu
aðeins að velja eitt af áðurnefnd-
um ritgerðarefnum en þó af-
greiddi einn nemandi málið á eft-
irfarandi hátt:
„Líkamsrækt Hallgríms Pét-
urssonar var aldrei upp á marga
fiska enda er hann löngu orðinn
að gróðurmold."
-G.Bender
Laxar og bieikjur komin á land í Hörðudalsá fyrir skömmu. Það er betra að passa maðkana sína vel þegar fer að frysta.
Finnur þú fimm breytingar? 121
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
2. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
Bækurnar sem er í verðlaun
heita: Á elleftu stundu, Flugan
á veggnum, í helgreipum hat-
urs, Lygi þagnarinnar og
Leikreglur. Bækurnar eru
gefnar út af Frjálsri fjölmiðl-
un.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytirigar? 121
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
og tuttugustu getraun reynd-
ust vera:
1. Harpa Björk Birgisdóttir
Akurgerði 5 C 600 Akureyri
2. Steinunn Jónsdóttir
Blómsturvöllum 42 740 Nes-
kaupstað
VinmngarMr verða sendir
heim.