Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 26
LAÍJGÁRDÁGURr21. íSEFEEMBER' 1991.
Helgarskák
Farandriddar-
ar í Reykj aví k
- heimsbikarmót Flugleiða hefst á mánudag
Hátíð íslenskra skákunnenda
gengur í garð eftir helgina og stend-
ur til 13. október. Þessa daga munu
margir mestu skáksnillingar heims
etja kappi á Hótel Loftleiðum á
heimsbikarmóti Flugleiða - fyrsta
mótinu í hrinu fimm, sem haldin
verða víðs vegar um heim á næstu
tveimur árum.
í heimsbikarkeppninni taka 26
stórmeistarar þátt og teflir hver
þeirra í þremur 16 manna mótum.
Fyrsta mótið er sem fyrr segir að
hefjast á Hótel Loftleiðum en síðan
verður teflt í Brussel í júlí á næsta
ári og Wellington á Nýja-Sjálandi í
nóvember. Fjórða mótið verður
haldið í Barcelona á Spáni í apríl
1993 og loks verður aftur teflt í
Brussel í júlí sama ár.
Þetta er í annað sinn sem heims-
bikarmót í skák er haldið hér á
landi. Mörgum er enn í fersku
minni heimsbikarmót Stöðvar 2
1988, er haldið var í Borgarleikhús-
inu. Erlendu keppendurnir luku
upp einum rómi um að það mót
hefði staðið upp úr hvað glæsileik
snerti. Þeir launuðu fyrir sig með
bráðskemmtilegri taflmennsku.
Sjálfur heimsmeistarinn, Garrí
Kasparov, sem sigraði á mótinu og
varð fyrsti heimsbikarmeistarinn,
var eftirlæti áhorfenda - að
Skák
Jón L. Árnason
ógleymdum Mikhail Tal, sem töfr-
aði fram nokkrar af sínum frægu
leikfléttum. Þá átti Jóhann Hjart-
arson margar flóknar og fjörugar
skákir og magnaði upp spennu
meðal áhorfenda sem jafnan voru
fjölmargir.
Skáksambandi íslands er vandi á
höndum að endurtaka glæsilegt
mótshald Stöðyar 2 manna fyrir
þremur árum. Áætlaður kostnaður
þess er um flmm milljónir króna,
þrátt fyrir að SWIFT fyrirtækiö í
Brussel greiði verðlaun óg að Flug-
leiðir sjái um ferðir og uppihald
erlendu keppendanna. Fjárhagur
Skáksambandsins er þröngur en
vonandi tekst þó að búa svo um
hnúta að keppendur og áhorfendur
fái notið þess besta.
Gamlir kunningjar
Sjö erlendu keppendanna á mót-
inu á Hótel Loftleiðum eru gamhr
kunningjar úr Borgarleikhúsinu
fyrir þremur árum. Þar er fyrst að
nefna íslandsvininn Jan Timman-
sem nýverið bar sigurorð af
Kortsnoj í áskorendaeinvígi þeirra
í Brussel og mætir Júsupov í næstu
lotu. Ulf Andersson,hinn sænski,
mætir til leiks með sinn fágaða
endataflsstíl; sovéski stórmeistar-
inn Alexander Beljavsky, sem kom
nálægt sigri 1988 en varð að bíta í
það súra epli að tapa í síðustu
umferð fyrir Spassky, teflir nú aft-
ur á íslenskri grund. Einnig Eist-
lendingurinn Jaan Ehlvest, ný-
frelsaður undan oki Sovétmanna;
enski stórmeistarinn Jonathan
Speelman, sem á það til að lenda í
árekstri við pálmatré og lætur sím-
senda til sín krossgátuna úr „The
Times"; ungverski vinnuhesturinn
og söngvarinnLajos Portisch og
Jóhann Hjartarson ber'st einn fyrir föðurlandið
gegn erlendum „ofurstórmeisturum" á heims-
bikarmóti Flugleiða á Hótel Loftleiðum.
Anatoly Karpov er sigurstranglegur á heims-
bikarmótinu. Hann teflir nú í fyrsta sinn á ís-
landi.
„Krónprinsinn" Vassily Ivantsjúk er fallinn úr
áskorendaeinvígjunum en gæti hæglega orðið
heimsbikarmeistari í staðinn.
Júgóslavinn Predrag Nikohc, sem
vonandi getur einbeitt sér að tafl-
inu þrátt fyrir ástandið á heima-
slóðum.
Karpov á íslandi
Aðrir keppendur eru góðkunn-
ingjar íslendinga úr Reykjavíkur-
skákmótunum eða öðrum skyldum
skákviðburðum. Má þar nefna
bandaríska stórmeistarann Yasser
Seirawan, Englendinginn Murray
Chandler, Júgóslavann sókndjarfa
Ljubomir Ljubojevic, sem galt hér
mikið afhroð á IBM-mótinu 1987 og
hugsar eflaust til hefnda; sjáhan
„krónprinsinn” Vassily Ivantsjúk
og Valery Salov.
Einungis tveir stórmeistaranna
hafa ekki teflt hér á landi fyrr. Sov-
éski stórmeistarinn Alexander
Khalifmann, sem búsettur er í
Þýskalandi og síöast en ekki síst
sjálfur Anatoly Karpov, fyrrver-
andi heimsmeistari og einn mesti
mótaskákmaður ailra tíma.
Karpov er að sjálfsögðu sigur-
stranglegastur en fær áreiðanlega
harða keppni. Ég tel Ivantsjúk og
Salov, sem ásamt Short varð ný-
verið fyrir ofan Karpov og Kasp-
arov á móti í Amsterdam, líkleg-
asta til að blanda sér í baráttuna
um sigurlaunin.
Nokkurn skugga setur á móts-
haldiö að aðeins einn íslendingur
fær að spreyta sig gegn erlendu
stórmeisturunum. Heimavarnar-
liðið var þó skipað tveimur mönn-
um í Borgarleikhúsinu og þótti
ekki mikið. Þá fannst mörgum of
miklu til kostað að standa að stór-
móti án þess að fleiri af fremstu
skákmönnum þjóðarinnar fengju
tækifæri th að sýna hvað í þeim
býr. Reyndar kom á daginn að
heimsókn „farandriddaranna" eins
og keppendur heimsbikarmótsins
voru stundum nefndir, skUdi eftir
sig sár sem greru seint og eru
kannski enn ekki að fullu gróin.
Það var eins og íslendingum fynd-
ist önnur mót ekki nógu „fín“ eftir
þetta - aðsókn að skákmótum
snarminnkaði.
Lokaæfing Jóhanns
Það kemur í hlut Jóhanns Hjart-
arsonar að verjast ásókn farand-
riddara en hann teflir sem gestur
á mótinu. Jóhann er alvanur að
fást við þessa erlendu kappa og
virðist nú í góðu formi þótt ekki
hefði hann sloppið við „slys“ á ís-
landsmótinu í Garöabæ á dögun-
um.
Lokaæfmg Jóhanns fyrir mótið
var um síöustu helgi er hann tefldi
með þýska félaginu Bayem
Munchen við Porz í Köln, í Evrópu-
keppni félagsliða. Jóhann tefldi þar
á þriðja borði og mætti sovéska
stórmeistaranum Vaganjan í
tveimur skákum.
Er skemmst frá að segja að illa
leit út fyrir Bæjurum eftir fyrri
umferð. Hubner tapaði á fyrsta
borði fyrir Christiansen og Jóhann
tapaði fyrir Vaganjan - staðan 4-2
í „hálfleik" Porz í vil.
En seinni daginn snerist dæmið
við. Húbner vann Christiansen og
Jóhann náði einnig að leggja Vag-
anjan. Jóhann og félagar unnu
4,5-1,5 og komust því áfram í þriðju
umferð keppninnar.
Seinni skák Jóhanns og Vaganj-
ans var býsna skemmtileg. Jóhann
komst í þrot með góða áætlun en í
stað þess að leggjast í vöm, tók
hann fremur þann kostinn að fóma
riddara fyrir óljósar báetur. Þetta
kom Vaganjan í opna skjöldu, sem
tefldi vörnina veikt og Jóhann náði
vinningsstöðu með „skemmtilega
rólegum" leik.
Vonandi er þetta forsmekkurinn
að því sem koma skal á heimsbik-
armóti Flugleiða.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Rafael Vaganjan
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 b6
5. Dg4 Bf8 6. Bg5 Dd7 7. (MM) Re7!?
8. Bxe7 h5!
Hvorki gengur 8. - Dxe7? 9. Rxd5!,
né 8. - Bxe7 9. Dxg7 en með þessum
millileik tekst Vaganjan að verjast
áfollum. Sjöundi leikur hans er lík-
lega nýr af nálinni og virðist gefa
svörtum vel teflandi stöðu.
9. Dh3 Bxe7 10. f4 Bb7 11. Rf3 Rc6
12. Rg5
Hér kemur 12. g4!? sterklega til
greina.
12. - g6 13. Be2 Ra5 14. Kbl a6 15.
g4 h4 16. Hhfl
Er hugsanlegt að þessi eðliiegi
leikur sé undirrótin að erfiðleikum
hvíts? Mögulegt er 16. De3!? b5 17.
Bd3 Rc4 18. Dcl og nú er f4—f5 á
næstu grösum.
16. - b5 17. Bd3 Rc4 18. Re2
Dráp á c4 ásamt De3 er hér hugs-
anlegt.
18. - Dc6! 19. Kal a5
Ljóst er að svartur er að undirbúa
stórsókn á drottningarvæng en á
hinn bóginn er erfltt aö koma auga
á skynsamlega áætlun fyrir hvítan.
Vitaskuld stefnir hann að því að
bijótast fram á kóngsvæng með
f4-f5 en nú er hægara sagt en gert
að koma því í kring.
í staö þess að leggjast í vöm og
vona hið besta, tekur Jóhann djarf-
mannlega ákvörðim.
8 I # 1
7 ii i- 1 •
s m k i
s i i i A
4 % & SAi
3 3l W
2 & & & Z) &
/fe g S
abcdefgh
20. Rxf7?!!
Þegar Tal lét menn sína vaða í
opinn dauðann á sínum yngri ámm
var gjaman sagt (eftir á!) að fómim-
ar stæðust ekki. Riddarafóm Jó-
hanns stenst heldur ekki ströngustu
kröfur en með henni slær hann
Vaganjan rækilega út af laginu.
20. - Kxf7 21. f5 gxf5?
Eftir 21. - g5! tekur svartur mikil-
vægan reit af riddaranum og þó svo
hvítur hafi ákveðin færi eftir 22.
fxe6 + Ke8 23. Hf7 er allsendis óvíst
aö þau séu nægjanleg.
22. gxf5 Hag8 23. Rf4 Hh6?
Yfirsést fimasterkt svar hvíts.
Betra er 23. - exf5 með tvíeggjaðri
stöðu.
24. Hgl! Hgh8
Jafngildir uppgjöf. Ef hins vegar
24. - Hxgl 25. Hxgl eru hótanir
hvíts, s.s. tvöföldun á g-línu, f5-f6
og f5xe6 of margar.
25. f6 BxfB 26. exfB HxfB 27. Rg6! Hg8
28. Dxh4
í þessari stöðu gafst Vaganjan upp
enda fátt um fína drætti. Hann vildi
t.d. ekki fá að sjá 28. - H8xg6 29.
Hxg6! Hxg6 30. Bxg6+ Kxg6 31.
Hgl+ og mát í fáum leikjum, eða
28. - Hg7 29. DxfB+! KxfB 30. Hfl mát!