Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Side 32
48
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991.
Bridge
Bridgeheilræðakeppni BOLS:
Ekki hlýða köllum
makkers blindandi
Einn af andstæðingum íslend-
inga á Evrópumótinu í írlandi var
hinn ungi og efnilegi bridgemeist-
ari Hollendinga, Berry Westra.
Reyndar spilaði hann hinn sögu-
lega leik þegar ísland gersigraði
Holland og komst þar með i heims-
meistarakeppnina í Japan.
Hollenska stórfyrirtækiö BOLS
hefir fengið Westra til þess að gefa
heilræði og eftirfarandi er framlag
hans:
„Staðsetning: Bridgekeppni ein-
hvers staðar í heiminum! Hvenær:
Stuttu eftir að geim hefur unnist
vegna varnarmistaka. Hugsanlegt
samtal: „Það er tilgangslaust að
kalla með makker eins og þig! Ég
kalla í hjarta og þú spilar laufi.
Hver er tilgangurinn." Eða: „Mak-
ker, af hverju spilaöir þú ekki
laufi?" „En þú kallaðir í hjarta."
Það þýðir ekki að þú verðir að spila
hjarta! Af hverju hugsar þú ekki
sjálfur við og við?“
Hvort samtalið er líklegra? Tíu á
móti einum segja að fyrra samtalið
sé líklegra. Ef makker hlýðir kall-
inu og það mistekst, þá hefir þú
samúð með honum. Þú tekur jafn-
vel þátt í sökinni. Ef makker hins
vegar hlýðir ekki kallinu og þú
hafðir á réttu að standa, þá má
hann biðja fyrir sér!
Það er þvi skiljanlegt að margir
spilarar skoða köll makkers sem
skipun (hver vill láta skamma sig?)
frekar en tiUögu. Þannig á ekki að
nota köllin. Köllin eru þýðingar-
mikil til þess aö leysa ýmis vanda-
mál sem koma upp fyrir varnar-
spilarana. Þau eiga hins vegar að
vera hjálpartæki fyrir vamarspil-
arana, en ekkert meira.
Skoðum dæmi um þetta sem sýn-
ir að kall makkers getur aldrei ver-
ið algilt fyrir vörnina. Einfaldlega
vegna þess að stundum veist þú
meira um spilið en makker þinn.
S/Allir
Bridgeheilræði BOLS kemur í þetta sinn frá Hollendingnum Berry Westra.
drottning er drepin með ás og í
þetta sinn kastar austur tígultvisti,
sem er frávísun. Áður en vestur
tekur spaðaslaginn, þá staldrar
hann við til þess að fara yfir stöð-
una. Suður hefur sýnt átta punkta,
spaðakóng og laufahjón. Þar eð
hann sagði pass við tveimur grönd-
um er hann líklega með 15 púnkta
og ekkert meira. Þaö gæti verið
hjartakóngur og kóngur-gosi í tígli,
eða hjartaás og tígulkóngur. í fyrra
tilfellinu er vörnin með sex bein-
* D2
¥ DG62
♦ Á7
+ 87642
Suöur Vestur Norður Austur
lgrand pass 21auf pass
2 tíglar pass 2 grönd pass
pass pass
♦
♦
N
V A
S
♦
♦
* 10864
V 1054
♦ D103
+ ÁG3
Vestur spilar út spaðafjarka,
drottning, ás og fimma. Austur
spilar spaðaþristi, nía og tía. Suður
drepur þriðja spaðann með kóng,
meðan makker lætur gosann og
blindur hjarta. Sagnhafi spilar síð-
an laufakóng, sem heldur slagnum
og austur lætur fimmuna. Laufa-
harða slagi og þvi skoðar vest'ur
seinna tilfellið.
Það virðist sem sagnhafi eigi allt-
af átta slagi í seinna tilfelhnu (þrjá
laufslagi, tvo hjartaslagi, tvo tígul-
slagi og einn spaðaslag). En hlut-
irnir eru ekki alltaf eins og þeir
sýnast!
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Suður á K D 10 9 í laufi og litur-
inn er því stíflaður. Geti vörnin náð
tígulásnum úr blindum, áður en
sagnhafi afstíflar lauflitinn, þá
kemur hún í veg fyrir að sagnhafi
fái átta slagi. Þess vegna spilar
vestur tígh þrátt fyrir frávísun
makkers. Vestur sér ennfremur að
hann má ekki taka spaðaslaginn
því að sagnhafi getur þá losað um
stífluna með því að kasta laufi.
Allt sphið var þannig :
♦ D2
V DG62
♦ Á7
+ 87642
* 10864
V 1054
♦ D103
+ ÁG3
♦ K95
V Á73
♦ K96
+ KD109
■!■
V K98
♦ G8542
Vestur spilar því tígh í sjötta slag
og aftur tígli, þegar hann kemst inn
á laufgosann. Og austur hnykkti á
þessari góðu vörn með því að leggja
ekki hjartakónginn á drottning-
una. Einn niður og hrós frá mak-
ker.
Bridgeheilræði mitt er því: Hættu
ekki að hugsa þótt makker kalli.
Farðu yfir stöðuna og hagaðu vörn-
inni í samræmi við það með kall
makkers í huga.“
Sviðsljós____________________________
Reynir að fá ræningja
sonar síns látinn lausan
ítalskur kaupsýslumaður er nú
að reyna að fá lausan úr fangelsi
manninn sem rændi tíu ára göml-
um syni hans í fyrra. Kaupsýslu-
maðurinn, Dino De Megni, veitir
einnig fjölskyldu mannræningjans
fjárhagslegan stuðning.
Sonur De Megnis, Augusto, sem
haldið var í helli í íjóra mánuði,
tjáði fóður sínum að mannræning-
inn, Antonio Staffa, hefði reynst
honum afskaplega vel. Stuttu áður
en lögreglan náði Staffa lofaði Aug-
usto honum að hann myndi biðja
fóður sinn um að veita honum og
fjölskyldu hans aöstoð. Faðir Aug-
ustos ætlar nú að verða viö beiðni
sonar síns.
Hann hefur farið fram á það við
dómstóla að Staffa fái fri úr fangels-
inu á daginn og ætlar De Megni að
útvega honum vinnu í einni af
verksmiðjum sínum. De Megni hef-
ur einnig gefið eiginkonu Staffa
peninga sem verja á til menntunar
sonar þeirra hjóna.
Það var í október í fyrrá sem
Augusto litla var rænt. Mannræn-
ingjarnir fóru fram á sem svarar
180 milljónum íslenskra króna í
lausnargjald. Þaö var aðallega
Staffa sem gætti Augustos. Staffa
sagöi honum frá syni sínum og hvað
hann saknaði hans mikið. Vegna
afbrota hafði Staffa oft þurft að fara
huldu höfði og vera langar stundir
fjarri syni sínum. Augusto sagði
fóður sínum að þegar kalt hefði ver-
iö á nóttunni hefði Staffa látið hann
fá sitt teppi. Einn daginn hefði hann
tekið mikla áhættu er hann fór aö
kaupa súkkulaði handa Augusto
eftir að hann fékk að vita að það
væri uppáhaldssælgæti drengsins.
De Megni segir aö fyrst hafi
hefndarhugur verið allsráðandi hjá
sér en að nú hafi hann fyrirgefið
Staffa.
Mannræninginn Staffa.
Augusto i faðmi föður síns. Mannræningjar héldu Augusto i helli í fjóra
mánuði.