Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991. Fréttir_________________________________________________________________________dv Erfitt en árangursríkt heimsmeistaramót á enda: Kflóin hrundu af ís- lensku keppendunum - þreyttir og glaðir spilarar hlakka til heimkomunnar á sunnudagskvöld „Þegar heimsmeistararnir gengu í salinn brutust út ótrúleg fagnaðar- læti allra þjóða manna svo augljós- lega héldu alhr með okkar mönnum. Björn Eysteinsson fyrirliði hefur verið mjög strangur með að leyfa engum að koma nærri spilurunum meðan á spennunni stóð og þeir höfðu ekki hugmynd um fyrr en eftir á hversu mikið fjölmiðlar heima höfðu fjallað um mótið. Það kom þeim mjög á óvart,“ sagði ísak Sig- urðsson, blaðamaður DV og fyrrver- andi framkvæmdastj óri Bridgesam- bandsins, í símaviðtali frá Yoko- hama. „Sérstaklega ánægjulegt var að 45 manns í heimsreisu, meö Ingólf Guð- brandsspn í hroddi fylkingar, breyttu ferðinni þar sem þeir voru staddir p Filippseyjum til að fylgjast með loka- slagnum. Þeir komu inn í hús um sama leyti og versti kaflinn var yfir- staðinn og menn orðnir bjartsýnir um sigur á nýjan leik.“ Ljúffengur málsverður „Þrjú hundruð gestir voru við- staddir verðlaunaafhendinguna sem var mjög glæsileg. Veitingar voru ákaflega ljúffengar en meðal þess sem mönnum var boöiö upp á var japanskir sjávarréttir í forrétt, jap- önsk kjúkhngasúpa í millirétt en í aðalrétt var kálfakjöt, framreitt að frönskum hætti. í lokin var fram borinn sérlagaður japanskur ís. Eftir frábæra máltið fór verðlauna- afhendingin fram. Fyrst voru veitt verðlaun í kvennaflokki en sigurveg- arar þar voru frá Bandaríkjunum. í karlaflokki fengu Svíar þriðju verð- laun, Pólveijar fengu önnur og loks heimsmeistaramir íslendingar þau fyrstu. Salurinn ætlaði vitlaus að verða þegar íslensku meistararnir gengu á svið. Það var greinilegt aö óvæntur sigur íslands féll öhum keppendum vel í geð. Fyrirhði kvennasveitarinnar, Kathie Wei, kom til Helga Jóhanns- sonar fyrir verðlaunaafhendinguna og sagði: Þið eruð sigurvegarar móts- ins. Þið spiluðuð stórkostlegan bridge ahan tímann - en við aöeins þegar við þurftum þess með. Ekki fór framhjá nokkrum manni ánægjusvipurinn á íslensku kepp- endunum en þreytan var engu að síður augljós eftir þessa hnnulausu fjórtán daga spilamennsku. Keppnin tók mjög á þá og má geta þess að ahir hafa lést um nokkur kíló, allt frá þremur upp í fimm.“ Björn Eysteinsson, fyrirliði íslenska landsliösins, tekur hér við sigurlaununum - Bermúdabikarnum. Við hlið hans eru f.v.: Guðmundur Páll Arnarson, Jón Baldursson, Örn Arnþórsson, Guðlaugur R. Jóhannsson, Aðalsteinn Jörgensen og Þorlákur Jónsson. DV-símamynd ísak Síminn stoppaði ekki „Keppendur sátu í sérstöku her- bergi á þriðju hæð hússins þar sem keppnin fór fram en áhorfendur sátu á fimmtu hæð í nokkurs konar bíósal þar sem þeir fylgdust með keppend- unum á stórum sjónvarpsskjá. Menn nöguðu neglurnar um tíma en hið rafmagnaða andrúmsloft, sem hafði myndast, varð að léttleika og fegin- leikinn braust út með miklum látum þegar sigiuinn var í hófn. Síminn gekk látlaust frá fjölmiðlum á íslandi á meðan þetta stóð yfir. Við hringd- um meira en allir aðrir til samans og Bjami Fel var stanslaust í síman- um. Þetta myndaði auðvitaö mikla spennu en svakaleg læti þegar þetta var búið. Heimsreisufarþegamir sögöu aö þetta væri toppurinn á ferð- inni hjá þeim. Salurinn var orðinn yfirfuhur af fólki undir lokin og ég held að allir hafi verið famir að halda með okkar mönnum enda öskraðu ahra þjóða menn með okkur. Pólveijarnir voru hálfleiðinlegir og frekir við borðið, sem vel kom fram á skjánum, en ís- lensku keppendurnir gerðu í að brosa framan í myndavélamar. Það var mjög skemmtilegt að fylgjast með því.“ Pólverjar óvinsæiir „Ég á nokkra kunningja í sænska landsliðshópnum sem komu til mín og báðu um að ég tæki mynd af þeim á verðlaunapalh og einnig íslending- unum. „Við höfum engan áhuga á Pólverjunum," sögðu þeir og það er dæmi um óvinsældir þeirra. Venju- lega hafa þeir áhuga á að mynda alla vinningshafana." - Hvað hafa fjölmiðlar annarra landa sýnt þessu mikinn áhuga? „Ég held að hann sé ekki mikill. Kohegar mínir urðu æfir þegar þeir sáu DV-blööin sem ég kom með hing- að út. Þeir trúðu ekki að íslenskur fjölmiðih legði svona mikiö pláss undir brigde enda hafa þeir alltaf verið aö reyna að vekja athygli á sín- um fréttum og koma þeim inn, með misjöfnum árangri. Ég fékk ekki vinnufriö á tímabih því ég varð að sýna öllum erlendu blaðamönnun- um DV.“ Jón fékk japanskt nudd „Verölaunaafhendingin hófst klukkan átján og síðan var dansleik- ur á eftir þar sem allir íslendingar lyftu glösum og skemmtu sér. Þar á meðal var heimsreisufólkið og var mjög góð stemning. Það væri kannski gaman að nefna að tveir keppendanna ætluðu sér að dvelja hér áfram og skoða sig um en þeir era svo uppgefnir eftir mótið að þeir hættu við og hlakka bara til að fara heim og hvílast. Jón Baldursson var th dæmis mjög slæmur í öxlum í miðju móti og fékk þá fuUorðna japanska konu tíl að nudda sig. Hann varð aUur annar maöur og sagði aö menn mættu aUs ekki fara tíl Japans án þess að fara f nudd.“ - Era menn ánægðir með fram- kvæmd þessa móts? „Ég hef heyrt að framkvæmd Evr- ópumótsins á írlandi í sumar hafi verið mun betri og þá sérstaklega varðandi tölvutækni. Þó furðulegt megi virðast í landi tölvunnar þá hafa komið upp nokkrar bUanir í kerfinu á mótinu. Það er sjaldgæft að shk mistök komi upp á móti sem þessu. En þess má geta að á írlandi urðu Bretar í efsta sæti, Svíar í öðra, Pól- veijar í þriðja og íslendingar í fjórða. Það tryggöi þeim þátttöku í þessu móti hér. Upphaflega kepptu hundr- að þjóðir í margvísle^um undanriðl- um og það er til marks um hversu víðtækur áhugi manna er á bridge." Hlakka til að koma heim - Era menn farnir aö tala um vænt- anlega heimkomu? „Já, aðahega hlakka þeir til að lesa blöðin heima og sjá hvað áhuginn hefur verið mikUl á mótinu. Ég held aö þeir séu spenntir að koma heim enda er þetta glæsUegasti árangur í nokkurri hópíþrótt á íslandi." Þess má geta að hópurinn kemur heim annað kvöld. En dagurinn í dag er frídagur og ætluðu menn að nota tækifærið og skoða sig lítihega um í Yokohama. -ELA Bridgemeistaranna beðið með eftirvæntingu: Vinn pabba í ólsen - segir sonur Jóns Baldurssonar „Pabbi kemur með alveg rosa- lega stóran bikar, jafnstóran þess- um,“ sagði Jón Bjami Jónsson spenntur og benti á myndarlegan verölaunabikar uppi á hillu í fé- lagsheimih Bridgesambands ís- lands í gær. Jón Bjami, 6 ára, er sonur Jóns Baldurssonar, eins heimsmeistar- anna sem íslendingar eignuöust í bridge í gærmorgun. Jón Bragi og bróðir hans, Magni Rafn, 4 ára, vora í félagsheimih Bridgesam- bandsins í gær ásamt móður sinni, EUnu Bjamadóttur sem er fram- kvæmdastjóri Bridgesambandsins. Þeir bræður vora mjög kátir og ánægöir með árangur pabba síns enda kröfuharðir. Þannig munu þeir krefjast þess af fóður sínum að hann komi heim með verðlaun í hvert skipti sem hann keppir í bridge. Hann hefur sjaldnast bragðist þeim og víst að slíkt kom ekki til greina á heimsmeistara- mótinu í Japan. Blaðamaður spurði þá bræður hvort þeir kynnu aö spila bridge. Þeir svöraðu því neitandi en sögðu þeim mun ákveðnar að þeir kynnu ólsen-ólsen. „Ég spila oft ólsen-ólsen við pabba og ég hef unnið hann,“ sagði Jón Bjami með ákafa og Magni Rafn tók undir. Skóladagurinn í gær hður sjálf- sagt seint úr minni Jóns Bjama. Hann sagöi að allir heíðu verið að óska sér til hamingju með pabba ólsen sinn. Þó að Magni Rafn sé tveimur árum yngri virtist hann alveg vera með á nótunum. Þegar hann var vakinn í gærmorgun sagði hálf- systir hans honum að pabbi hans væri orðinn heimsmeistari. „Ég veit það,“ sagði sá stutti og lét sér fátt um finnast, „mig dreymdi það í nótt“. -hlh Gosan hf.: Engin ákvörðun um f lutninga Gyifi Kxistjánsson, DV, Akureyri: „Það liggur engin ákvörðun fyrir en sennilega styttist í að hún verði tekin, meira er ekki um máhð að segja á þessu stigi,“ segir Magnús Þorsteinson, framkvæmdastjóri Vik- ing Bragg um sameiningu fram- leiðslu Gosans hf. á einn stað. Gosdrykkjaframleiðsla fyrirtækis- ins er í Reykjavík en bjórframleiðsla undir merki Viking Bragg á Akur- eyri. Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa lát- ið máhð til sín taka og boðið Gosan hf. fyrirgreiðslu með niðurfellingu gjalda verði framleiöslan öh á Akur- eyri í framtíðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.