Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991. ★★ irkV.i ★★ Myndbönd 1 (2) The Bonefire of the Vanities. 2 (1)' Pacific Heights 3 (-) Awakenings 4 (-) In Bed With Madonna 5 (4) Postcards from the Edge 6 (3) Look Who’s Taiking too 7 (5) The Rookie 8 (7) Repossessed 9 (8) Magnús 10 (6) Bittu mig, elskaðu mig 11 (10) Pump up the Volume 12 (9) Going under 13 (•) Fast Getaway 14 (12) Eve of Destruction 15 (-) Exorcist III Hættuleg kona DEADLY SURVEILANCE Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Paul Ziller. Aðalhlutverk: Michael Ironside, Christ- opher Bondy og Susan Almgren. Útgefandi: ClC-myndbönd. Bandarisk, 1990-sýningartimi 95 mín. Bönnuö börnum innan 16 ára. Michael Ironside leikur í Deadly Surveilance haröan lögreglumann sem kemst óvænt á spor eiturlyfja- smyglara þegar hann er að rann- saka þjófnað hjá fagurri stúlku. Hann lætur hlera íbúð stúlkunnar en þar voru eiturlyfm. Undrun hans verður mikil þegar hann kemst að því að samstarfsmaður hans innan lögreglunar er unnusti stúlkunnar. Yfirmaður þeirra felur þeim báöum rannsóknina þótt það sé þeim óljúft. Það er gaman aö sjá Ironside leika eitthvað annað en óþokka. Hann fer vel með hlutverk sitt og er það leikur hans og vel heppnuð hasaratriði sem gera Deadly Sur- veilance að ágætri afþreyingu. DV-myndbandalistiim ★★*/2 Mpdin kom upp ummorðingjann FATAL EXPOSURE Útgetandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Alan Metzger. Aöalhlutverk: Mare Winningham, Christopher McDonald og Nick Manc- uso. Bandarisk, 1991 - sýningartími 91 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. Jamie Hurd (Mare Winningham) verður hissa dag einn þegar hún er að sækja myndir í framköllun. Hún fær allt aðrar myndir úr fram- köUun en voru á filmunni hennar. Á myndunum er maður í ýmsum stellingum. Sama kvöldið er skipt um myndir á heimili hennar og hún gleymir atvikinu þar til hún sér í blaði að maðurinn á myndun- um hefur verið myrtur. Hefst nú röð óvæntra atburða í lífi Jamie og áður en hún veit af er hún kom- in á lista hjá hættulegum fjölda- morðingja. Fatal Exposure er hin sæmileg- asta afþreying. Myndin er hröð og aö mörgu leyti ágætlega gerð en maður hefur það þó á tilfinning- unni að allt hafi þetta verið áöur fest á filmu. Awakenings fer stráx í þriðja sæti á myndbandalistanum. Á mynd- inni eru aðalleikaranir Robert De Niro og Robin Williams en þeir fara á kostum i hlutverkum sjúklings og tæknis. ★★★ SEIZE THE DAY Útgefandi: Skifan. Leikstjóri Fielder Cook. ^ Aðalhlutverk: Robin Williams, Joseph Wiseman og Jerry Stiller. Bandarisk, 1986 - sýningartími 94 min. Leyfð öllum aldurshópum. Robin Williams hefur hvað eftir annað sannað sig sem afburðaleik- ari, hvort sem er í gamanmynd (Good Morning, Vietnam) eða drama (Awakenings) og í Seize the Day sem gerð var 1986 fer hann sérlega vel með erfitt hlutverk hins misheppnaða Tommy sem segir upp starfi sínu í reiðikasti. Tommy er kominn yfir fertugt og eru ekki margir möguleikar fyrir hann í litlum bæ sem hann býr í. Hann heldur því til New York á náðir fóöur síns sem er efnaður læknir. Faðir hans hefur aldrei fyr- irgefið að sonurinn fór ekki í læknanám og er alls ekki á því að hjálpa honum. Tommy lendir þvi í klónum á fiármálasvikara sem rýr hann inn aö skyrtunni. Tommy er ekki beint persóna sem maður auöveldlega finnur til með því um leið og hann er eina persónan í myndinni sem á skilið samúð áhorfandans er hann ekki sterkur á svellinu þegar kemur að mannlegum samskiptum. Seize the Day er vel leikin og átakanleg mynd um mannlegar tilfmningar, slæmar og góðar. -HK 1 Avalon er saga Sam Krichinski, allt frá því hann kemur til Banda- ríkjanna á þjóðhátíðardaginn 1914 þar til við skiljum við hann fiör- gamlan á elliheimili saddan lífdaga. Sögusviðið er Baltimore og hinn snjalli leikstjóri Barry Levinson sem uppalin er í Bcdtimore á ekki í vandræðum með að sýna áhorf- andanum glögglega tímaskeiðin sem renna saman í eina heild. Oft notar hann sjónvarpið til að sýna tíðarandann eða þá að bílar og tíska gefa til kynna á hvaða tímaskeiði við erum. Sam er og verður alltaf af gamla skólanum og því skilur hann ekki alltaf viðhorf afkomenda sinna, en mest fylgjumst við með tveimur sona hans sem reyna ýmislegt fyrir sér. Þeir eru Ameríkanar og band- rískir í allri hugsun og sárast þykir Sam þegar þeir fórna ættarnafn- inu. Fjölskyldan er stór og við fylgj- umst með fleiri meðlimum en sam- staðan, sem er sterk í fyrstu, verö- ur ekki eins sterk eftir því sem Sagan endurtekur sig Lífið í rúst Fjölskylda AVALON Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Barry Levinson. Aðalhlutverk: Armin Muller-Stahl, Eliza- beth Perkins, Joan Plowright og Aidan Quinn. Bandarisk, 1990-sýningartimi 122 min. Leyfð öllum aldurshópum. blíðu og stríðu Elizabeth Perkins og Aidan Quinn leika ung hjón í Avalon. árin líða og „smámál" verður til þess aö fiölskylduböndin bresta að fullu. Mörg eftirmninnileg atriði eru í Avalon sem fer frekar hægt af stað en grípur áhorfandann sterkum tökum eftir því sem líður á. Barry Levinson hefur áður gert kvikmyndir í Baltimore, meðal þeirra fyrstu kvikmynd sína, Din- er. Þekktastur er þó Levinson fyrir hina rómuðu Rain Man og er ekki laust viö að maður miði Avalon við þá mynd. Avalon er samt ööruvísi en það leynir sér ekki faglegt hand- bragð þess sem þykir vænt um það sem hann meðhöndlar. Avalon er uppfull af mannlegri hlýju sem komið er til skila á einstaklega eft- irminnilegan máta og er öllum sem að henni standa, leikurum og tæknimönnum, til sóma. -HK undrar hann mest er að morðin eru framin á sama hátt og fiöldamorð fyrir fimmtán árum, en enginn nema lögreglan á að vita hvernig þau morö voru framin. Leit hans að morðingjanum leiðir hann að geðsjúkrahúsi þar sem ekki er allt eins og á að vera og þar kemst Scott á slóðir morðingjans sem hefur hreiðrað um sig í líkama manns sem er í einangrun. Erfitt er að fá botn í sum atriðin og handritið í heild er ekki nógu gott en þaö má aftur á móti auð- veldlega líta fram hjá göllum í handriti og hafa gaman af. Djöfull- inn er enn á sveimi jafn hættulegur og fyrr og úrvalsleikarar eru í flest- um hlutverkum, og leikur þeirra gerir þaö að verkum að Exorcist III er hin besta afþreying fyrir unn- endur hryllingsmynda þótt ekki sé hún neitt í líkingu við fyrstu mynd- ina. -HK THE EXORCIST III Útgefandi: Kvikmynd Leikstjóri: William Peter Blatty. Aðalhlutverk: George C. Scott, Ed Flanders, Jason Miller, Scott Wilson, Nicol Williamson og Brad Douril. Bandarisk, 1990-sýningartimi 105 min. Bönnnuð börnum innan 16 ára. Exorcist er sjálfsagt einhver frægasta hryllingsmynd sem gerð hefur veriö og nýlega valdi valinn hópur leikstjóra og handritshöf- unda, sem þekktir eru af hryllings- myndagerð, hana eina af tíu bestu hryllingsmyndum sem gerðar hafa verið. I kjölfarið fylgdi Exorcist D* sem þótti slæm framhaldsmynd svo ekki sé meira sagt. Höfundur bókarinnar William Peter Blatty leikstýrir og skrifar handritið að Exorcist III og hefur hann kosið að láta sem númer II sé ekki til og kemur því Exorcist m í beinu framhaldi af þeirri fyrstu en látin gerast fimmtán árum síðar. George C. Scott leikur lögreglu- foringja sem falin er rannsókn óhugnanlegra morða sem engin veraldleg skýring fæst á. Það sem

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.