Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991. 3 i>v Fréttir Hvítabókin: Textinn var ekki lagður fyrir þingflokka Þeir Davíö Oddsson forsætisráð- herra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra kynntu í fyrradag á fréttamannafundi hvítu bókina svonefndu. Hún inniheldur stefnu og starfsáætlun ríkisstjómarinnar. Jón Baldvin viðurkenndi á frétta- mannafundinum að endanlegur texti hókarinnar hefði ekki verið kynntur þingflokki Alþýðuflokksins. Hann sagðist aftur á móti hafa haft fullt umboð þingflókksins til að ganga frá textanum. Davíð Oddsson sagði að þingmenn Sjálfstæðisflokks hefðu fylgst með gerð bókarinnar en ekki farið yfir hans eins og hún lægi nú fyrir. Gengið var í að koma bókinni út í miklum flýti. Hún var prentuð að næturlagi því varla þornuð prent- svertan þegar fréttamannafundur- inn var haldinn. í lok þingfundar á miðvikudaginn var spurt um bókina á þingi og svaraði þá Eiður Guðnason umhverfisráðherra þvi til að bókin yrði ekki komin út áður en forsætis- ráðherra flytti stefnuræðu sína en það var í fyrrakvöld. Um kvöldið snerist þeim Davíð og Jóni Baldvin hugur og bókin var sett í prentun um nóttina. í kaflanum um landbúnaðarmál er gengið út frá því að búvörusamning- urinn frá því í mars standi. Sagði Jón Baldvin að það væri álit ríkislög- manns að ekki væri hægt að hrófla við honum. Vitað er að margir þing- menn Alþýðuflokksins eru þessu ekki sammála og vilja láta breyta búvörusamningnum. -S.dór Bjarni Hólm lásasmiður og Júlíus Þorbergsson, eigandi Draumsins, við martröðina - ónýtan lás eftir þjófa. Þeir voru á þriðja tíma að komast inn. DV-mynd S Martröðí Draumnum Þeim varð htið ágengt, þjófunum sem ætluðu að brjótast inn í sölu- turninn Drauminn við Rauðarárstíg. Þeir komust ekki inn og urðu frá að hverfa. Hins vegar skildu þeir svo við sérlega sterkbyggðan lásinn á hurð sölutumsins að eigandinn, Júl- íus Þorbergsson, lenti í verstu mar- tröð þegar hann ætlaði að opna. Hann komst heldur ekki inn. Var Bjami Hólm, lásasmiður með meiru, kallaður til og var hann hátt í þrjá klukkutíma að hamast viö lás- inn. Varö hann á endanum að fara inn um gluggann svo hægt yrði að opna Drauminn. Sagði Bjami þetta eitt erfiðasta verkefni sem hann hefði lent í og hefur hann þó kynnst mörgu. Var hann að enda við að sefja nýjan lás í hurðina á Draumnum. -hlh 3ja ára ábyrgð er á öllum hljómtækjum The Art of Entertainment 21. aldar hljýmtækin hjá okkur eru helmingi fyrírferðarminni en áður Framúrstefnuiegt og fágað útlit sameinar gæði og býður upp á meiri ánægju við hlustun á Mini-stæðunum laugardag frá kl. 10-16 Einnig verður á svæðinu NSSSAN PRIMERA ’91 sem búið er að setja Pioneer hljómtæki í, yfir Sjón og heyrn er sögu ríkari Allir velkomnir VERSLUNIN VISA - EURO - SAMKORT - MUNALÁN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.