Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Síða 4
.J8GJ aaaöTxo ,§i fluaAGWAöíJAÉl LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991. S 4 Fréttir Jón Baldvin fór á ráðherrafund með þotu Flugmálastjómar: Tók vertinn með sér til Danmerkur Þotan sem Flugmálastjórn hefur á ieigu og vertinn í ráðstefnusölum rikis- ins og fleiri hafa fengið að sitja með í til útlanda ókeypis. DV-mynd Brynjar Gauti Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra flaug á fund utanríkisráð- herra Norðurlanda snemma morg- uns þann 20. ágúst síðastliðinn með sex farþega einkaþotu sem Flug- málastjórn hefur á leigu um þessar mundir. Á síðustu stundu var tekinn með í förina veitingamaður sem hafði þjónað ráðherranum í mat og drykk um nóttina í ráðherrabústaðn- um. Langur ríkisstjómarfundur var haldinn í Ráðherrabústaðnum 19. ágúst síðastliðinn. Stóð hann frá morgni mánudagsins 19. ágúst og fram á nótt. Jón Baldvin þurfti að fara utan á utanríkisráðherrafund- inn um morguninn og þá með um- ræddri þotu. Elías Einarsson, sem er veitingamaður í funda- og ráð- stefnusölum ríkisins, annaðist 'veit- ingar á þessum fundi. Svo fór undir morgun að hann var tekinn með í flugferðina til Danmerkur sér að kostnaðarlausu. „Það varö úr að ég fékk að sitja í til Álaborgar. Við fengum mat á Loft- leiðahótelinu en ég kannast ekki við aö hafa séð annan kost. Svoleiðis veitingar eru um borð i þessari vél sem er vel’búin,“ sagði veitingamað- urinn í samtali við DV. Þrátt fyrir þessa fullyrðingu hefur blaðið heimildir fyrir því að veitingar frá ráðstefnusölum ríkisins hafi ver- ið teknar með í ferðina enda sé vana- lega hvorki vott né þurrt geymt um borð í þessari vél. Flugmenn vélarinnar sögðust bundnir þagnarskyldu varðandi ein- stakar ferðir þotunnar en upplýstu blaðamann um að engar veitingar væru um borð. Við komuna til Álaborgar biðu bíl- ar farþeganna frá íslandi, en með í för voru einnig Sveinn Björnsson og Gunnar Gunnarsson úr utanríkis- ráðuneytinu. Var öllum hópnum ek- ið til Skagen, þar sem ráðherrafund- urinn var haldinn. Elías sagði DV að hann hefði greitt allan kostnað af ferðinni eftir að komið var til Dan- merkur úr eigin vasa og hefði greiðslukortamiða og nótur til að sýna það. Eina ráðherraferðin Hjá Flugmálastjóm fengust þær upplýsingar að þotuna hefði stofnun- in á leigu meðan prófanir á nýju rat- sjárstöövunum á Bolaíjalli og Gunn- ólfsvíkurfjalli fara fram. Þotan verð- ur á leigu þar til í júní á næsta ári. Á meðan verður ráðuneytum og rík- isstofnunum boðin þotan til afnota á kostnaðarverði sem er um eitt þús- und Bandaríkjadalir á flugtímann, 60 þúsund íslenskar krónur. Haukur Hauksson varaflugmála- stjóri sagði að þotan stæði mestan tímann milli prófana en inn á milli væri henni flogið til að halda flug- mönnunum og véhnni sjálfri við. Hingað til hefði verið farið í tvær ferðir eins og þá sem Jón Baldvin fór í en í hinni ferðinni „flutu“ farþegar frá Flugmálastjóm með. Ekki fékkst uppgefið hvert ferðinni var þá heitið. -hlh Ráðherrarall í fullum gangi: Margir ráðherrar erlendis Ráðherrar ríkisstjómar Davíðs Oddssonar em 10. Á föstudag voru 5 þeirra erlendis, en þá vom 2 aðrir alveg nýkomnir heim. Þeir sem vom erlendis á föstudag- inn: Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra, í Þýskalandi frá 11. til 16. október. Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, í Bandaríkjunum frá 6. til 20. október. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra, í Bangkok í Tælandi frá 9. til 26. október. Halldór Blöndal í Sviss frá 8. októb- er en hann kom heim þennan dag. Ólafur G. Einarsson menntamála- ráðherra, á Kýpur, í Austurríki og Frakklandi frá 6. til 20. október. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra kom heim síðastliðinn þriöjudag frá írlandi og Skotlandi og hafði þá veriö erlendis frá 2. október. Davíö Oddsson forsætisráðherra kom heim 27. september eftir 17 daga ferðalag um Evrópu og Bandaríkin. Ráðherrar fá allan ferðakostnað greiddan, flugferðir og hótel. Að auki fá þeir 13.760 krónur á dag dveljist þeir í Evrópu en 14.760 krónur á dag dveljist þeir í Bandaríkjunum. Ofan á þessar upphæðir bætast síðan 20 prósent. Eiginkonur ráðherra fá helming þessara upphæða í dagpen- inga þegar þær fylgja eiginmönnum sínum. Helmingur dagpeninga ráð- herra er skattfijáls. í vetur er leið urðu miklar umræð- ur á Alþingi um dagpeninga ráð- herra. Þá sagði Steingrímur Her- mannsson, þáverandi forsætisráð- herra, í samtali við DV þegar hann var spurður hvort hann teldi.þennan kostnað eðlilegan og þá sérstaklega hinar háu dagpeningagreiðslur fyrir ráðherra og maka þeirra - hvort kerfið væri ekki hreinlega ferða- hvetjandi til tekjuöflunar fyrir ráö- herra? „Ef ráðherra sparar mikið og borð- ar á kafilteríu má eflaust segja að ferðalögin séu launahvetjandi. Ég held að ráðherrar hafi alltaf ein- hvern afgang af dagpeningum eftir utanlandsferðir ef þeir lifa sparlega." -S.dór Góðar vonir um d valarstað Unnið er að því að þvi að finna um DV standa góðar vonir til að yfir- lausn á vistun fyrir manninn sem völdum takist um helgina að finna réðst á stúlku í Þverholti fyrir rúm- viðunandi dvalarstað fyrir manninn um tíu árum. Hann hefur dvalið í sem hefur verið sviptur sjálfræði. fangelsinu aö Litla Hrauni síðastlið- „Við erum að vinna að því að finna in tíu ár, en lýkur afplánun á mánu- manninum samastað, þar sem hann dáginn Rémur. Samkvæmt héimild- " faer aðháld óglíjálþ í smúm' véildhd- um,“ sagði Ólafur Ólafsson land- ir. Um leið og Sogn verður tekiö í læknir við DV. „En þetta mál er erf- notkun er fyrir hendi mannsæmandi itt viðureignar vegna þess hve mjög aðstaða fyrir sjúklinga af þessu tagi. hefur dregist að ganga frá Sogni. Þó Vonandi sér fyrir endann á þessu hefurrofaðverulega tilíþessumefn- ástandi sem er, eins og þú sagðir um því það hefur verið unnið vel í áðan, smánarblettur á íslenskri heil- þéiih þrátt fýrir ófýfirsjáá'nlégáf taf-' brigðisþjónustu.“ -JSS Baldvin Tryggvason: „Við erum kannski bjartsýnni en aðrir um lága verðbólgu. Engu aö siður skil ég ekki hvers vegna bankarnir lækka ekki nafnvext- ina meira,“ segir Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og ná- grennis. Sparisjóðirnir eru leiðandi í vaxtalækkun banka og spari- sjóöa. Vextir af almennum skuldabréfalánum og forvextir víxla eru þar lægstir þrátt fyrir að allír bankar hafi lækkað nafn- vextina í gær. Þrátt fyrir nafnvaxtalækkun sparisjóða og banka eru raun- vextir á óverðtryggðum útlánum enn mjög háir og á bilinu 12 til 16prósent. -JGH Meitillinn: Möguleikar Möguleikar KEA á að kaupa Meitilinn virðast harla litlir. Byggðasjóður, en Hlutíjársjóð- ur fellur undir hann, hélt stjórn- arfund síðastliðinn þriðjudag þar ,sem fjallað var um málefni Meit- ilsins. Engin ákvörðun var tekin og verður Meitillinn aftur á dag- skrá á stjórnarfundi næstkom- andi þriðjudag. Hlutaíjársjóður á 48,5 prósent í Meitlinum. Að sögn Guðmundar Malmqu- ist, forstjóra Byggðastofnunar, eru núverandi eigendur að ræða saman um framtíð fyrirtækisins fremur en að fá utanaðkomandi aðila inn í það. Samvinnuhreyíingin, sem er stór eigandi í Meitlinum, fundar í dag um fyrirtækið. Þá verður hluthafafundur í Meithnum hald- inn seinni parthm á þriðjudag eftir að fundi stjórnar Byggða- stofnunarlýkur. -JGH Lán til Tælandsfara: viðunandi Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri: „Það er óhætt aö fullyrða að það var aldrei tekin nein fjárhagsleg áhætta við þessa afgreiðslu vegna þess að þær tryggingar sem að- standendur mannsins lögðu fram voru fullkomlega viðunandi. Þetta er það svar sem ég gef og ef það eru einhveijar aörar hliðar á málinu getur fólk velt þeim fyr- ir sér eins og það kýs að gera,“ segjr Sigrún Sveinbjörnsdóttír, formaður Félagsmálaráðs á Ak- ureyri, vegna þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið á ráðið fyrir að greiða fyrir því að koma einum „Tælandsfaranna“ aftur lil landsins. Svar Sigrúnar er ekki hægt að skilja ööruvísi en að Félagsmála- ráð hafi lagt fram fé svo maður- inn kæmist heim, gegn trygging- um aðstandenda hans. „Hitt er svo annað mál að menn hafa skiptar skoðanir á þessari afgreiöslu, en hún er í samræmi við mínar skoöanir og ég tek að sjálfsögðu ábyrgö á henni. Ég er ekki að tala fyrir hönd alls Fé- lagsmálaráðs eða bæjarstjórnar enda eru skiptar skoöanir um þetta mál.“ - Mun þessi afgreiðsla hafi för- dæmisgildi? „Nei, það tel ég ekki, hvert mál þarf alltaf að skoða sérstaklega."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.