Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991. Útlönd Júgóslavneskir hermenn munda byssurnar í eftirlitsferð við bæinn Osijek í austurhluta Króatíu. Simamynd Reuter Herinn neitar að f ara frá Króatíu Hollensk stjórnvöld sögðu í gær að munnlegt samkomulag um brott- flutning júgóslavneska sambands- hersins frá Króatíu væri bindandi og að ekki hefði borist bréf frá for- sætisráði Júgóslavíu þar sem sam- komulaginu væri hafnað. Serbar og þrír bandamenn þeirra í forsætisráðinu sögðust hafa borið fram mótmæh við allsherjarbrott- flutning hersins frá Króatíu í bréfi til Hans van den Broek, utanríkis- ráðherra Hollands, eftir fund forsæt- isráðsins meö yfirmönnum hersins. „Við höfum ekki enn fengiö slíkt bréf,“ sagði talsmaður hollenska ut- anríkisráðuneytisins síðdegis í gær. Serbar og bandamenn þeirra ítrek- uðu í gær að herinn yrði að vera áfram í Króatíu til að vernda serb- neska minnihlutann í lýðveldinu þar til pólitísk lausn hefði fundist á deil- unum í landinu og endir bundinn á sextán vikna bardaga. í austurhluta Króatíu gerðu her- sveitir bílalest með hjálpargögn til borgarinnar Vukovar afturreka og grófu þar með enn frekar undan við- leitni Evrópubandalagsins að koma á varanlegu vopnahléi. Vélbyssu- skothríð og sprengingar heyrðust frá Vukovar þegar bílalestin nálgaðist borgina. Einn bílstjóranna í lestinni sagði við Reuters-fréttastofuna að her- menn hefðu þóst hafa fundið sprengju í einum flutningabílanna. „Þeir eru brjálaöir, þetta eru bara eintómir glæpamenn," sagði bílstjór- inn. Fyrr um daginn höfðu króatískar varðsveitir byrjað að aflétta herkví sinni á mikilvægar herstöðvar í Zagreb og fregnir bárust af því að herinn hefði byrjað að aflétta hafn- banni á króatískar borgir við Adría- hafið. Friðarumleitunum verður haldið áfram um helgina þegar Cyrus Vance, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanlegur til JÚgóslavíu til að meta ástandið fyrir aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Þá skýrði Tanjug-fréttastofan frá því að forsetar Króatíu og Serbíu hefðu þegið boð Gorbatsjovs Sovét- forseta um að koma til viðræðna um ágreiningsefni sín í Moskvu ein- hvem næstu daga. Leyniþjónusta Noregs: Yfirmaðurinn segirafsér Svein Urdal, yfirmaður norsku leyniþjónustunnar, sagði af sér í gær vegna harðrar gagnrýni fyrir að leyfa starfsmönnum ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad að yf- irheyra palestínska flóttamenn. „Gagnrýnin hefur verið tekin alvarlega og ég hef líklega gert þaö sem eðlilegt getur talist af manni í forustustööu. Maöur verður að axla þá ábyrgð sem fylgir starfinu," sagði Svein Urd- al í viðtah við norska ríkisútvarp- ið. Palestínumönnunum var ekki sagt að bæði norska og ísraelska leyniþjónustan væru að rann- saka mál þeirra. Kari Gjesteby, dómsmálaráð- herra Noregs, hefur lýst vinnu- laginu sem „óheppilegu", að hluta til vegna þess að norska lögreglan gat ekki fylgst meö samtalinu sem fram fór á arab- ísku. Um eitt hundrað Palestínu- menn hafa leitað hælis í Noregi frá því í lok síðasta árs eftir að þeir hlupust undan merkjum | PLO í kjölfar Persaflóastríösins. i Reuter | Rólegra á vígstöðv- uniim í Norður-írak Ástandið í noröurhluta íraks virð- ist vera orðið rólegra eftir harða bar- daga milli kúrdískra uppreisnar- manna og íraska hersins fyrr í vik- unni. Talsmaður Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Genf sagöi að sjötíu flutningabílar með vistir til að búa flóttamenn undir veturinn heföu farið inn í Norður-írak frá Tyrklandi án nokkurra vandkvæða. „Þetta er merki þess að ró sé farin að færast yfir," sagði talsmaðurinn, Sylvana Foa, á fundi með frétta- mönnum. Fulltrúar Kúrda og íraska hersins höfðu undirritað vopnahlé á þriðju- dag eftir blóðuga bardaga á svæðinu. Foa sagði að flóttamannahjálpin vonaðist til að senda 70-100 flutn- ingabíla með byggingarefni inn í norðurhluta íraks frá Tyrklandi á degi hverjum ef ástandið verður ró- legt áfram. Sameinuðu þjóðirnar hafa heitið því að annast flóttamennina ef það mætti verða til þess að hundruð þús- unda þeirra sneru til síns heima frá Tyrklandi og íran. Reuter Kúrdískir þorpsbúar gera að sárum eins félaga sinna sem hann hlaut í bardögum skæruliða og iraskra her- manna fyrr í vikunni í norðurhluta Iraks. Simamynd Reuter Filippus prins haf nar kynorkulyfi Ehsabet Englandsdrottning brá sér á afrískan markað í hjarta Harare, höfuðborgar Zimbabwe, í gær þar sem töfralæknir bauð Filippusi drottningarmanni kynorkulyf til að styrkja hann. Dansandi og syngjandi fólk stóð meðfram götum Harare og fjöl- mennti á Mbare-markaðinn í elsta hluta borgarinnar á öðrum degi heimsóknar drottningarinnar til Zimbabwe. Við eitt söluborðið spurði Filippus töfralækni nokkurn hvað væri í pakka fullum af hvítu dufti. Töfrcdæknirinn sló í olnboga sér, reisti krepptan hnefa og sagði að púðrið væri gamalgróinn kynorku- bætir. „Þú getur fengið hann til að styrkja þig,“ sagði hann og glotti. Fihppus hélt áfram göngu sinni án þess að taka pakkann. Eftir að heimsókninni lýkur verður Englandsdrottning áfram í Elísabet Englandsdrottning og Filippus, maður hennar, eru í opin- berri heimsókn í Zimbabwe. Símamynd Reuter Zimbabwe til að taka þátt í fundi leið- toga ríkisstjórna breska samveldis- ins sem hefst næstkomandi miðviku- dag. Reuter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst INNLAN överðtryggð Sparisjóðsbækur óbundnar 4-7 Landsbanki Sparireikningar 3ja mánaöa uppsögn 5,5-6,5 Sparisjóðirnir 6 mánaöa uppsögn 6,5-7,5 Sparisjóðirnir Tékkareikningar, almennir 1 Allir Sértékkareikningar 4-7 Landsbanki VlSITÖLUBUNDNIR REIKNINGAR 6 mánaða uppsögn 3-3,75 Sparisjóðirnir 1 5-24 mánaða 7-7,75 Sparisjóöirnir Orlofsreikningar 5.5 Allir Gengisbundnir reikningar í SDR 6,5-8 Landsbanki Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsbanki ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-4 Búnaöarbanki Óverðtryggð kjör, hreyfðir 8-11 Landsbanki SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innan tfmabíls) Vísitölubundnir reikningar 4-8 Landsbanki Gengisbundir reikningar 4-8 Landsbanki BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki Óverðtryggð kjör 15-16 Búnaðarbanki INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir 3,75—4,1 Sparisjóðirnir Sterlingspund 8,25-8,8 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 7,5-7,8 Sparisjóðirnir Danskar krónur 7,75-8 Sparisjóðirnir ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst OTLAN óverðtryggð Almennir víxlar (forvextir) 17,5-21 Sparisjóðirnir Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi Almenn skuldabréf 18-22 Sparisjóðirnir Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdráttur) 21-24 Sparisjóðirnir ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ Skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki afurðalAn Islenskar krónur 17,5-21,25 Sparisjóðirnir SDR 9-9,5 islandsbanki,. Landsbanki Bandaríkjadalir 7,25-8,0 Sparisjóðirnir Sterlingspund 12-12,75 Landsbanki Þýsk mörk 11 Allir HCisnæölslán 4.9 Ufeyrissjóöslan 5 9 Dráttarvextir 30,0 MEÐALVEXTIR Almenn skuldabréf september 21,6 Verðtryggð lán september 10,0 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala október 31 94 stig Lánskjaravísitala september 3185 stig Byggingavísitala október 598 stig Byggingavísitala október 187 stig Framfærsluvísitala september 1 58,1 stig Húsaleiguvísitala 1,9% hækkun 1. október VERÐBRÉFASJÓÐIR HLUTABRÉF Gengi bréfa veröbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun: KAUP SALA Einingabréf 1 5,955 Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,40 Einingabréf 2 3,180 Ármannsfell hf. 2,33 2,45 Einingabréf 3 3,910 Eimskip 5,70 5,95 Skammtímabróf 1,986 Flugleiðir 2,05 2,25 Kjarabréf 5,579 Hampiðjan 1,80 1,90 Markbréf 2,992 Haraldur Böövarsson 2,95 3,10 Tekjubréf 2,116 Hlutabréfasjóður VlB 1,01 1,06 Skyndibréf 1,734 Hlutabréfasjóðurinn 1,64 1,72 Sjóðsbréf 1 2,853 islandsbanki hf. 1,66 1,74 Sjóðsbréf 2 1,932 Eignfél. Albýöub. 1,68 1,76 Sjóðsbréf 3 1,973 Eignfél. Iðnaöarb. 2,45 2,55 Sjóðsbréf 4 1,729 Eignfél. VertJb. 1,75 1,83 Sjóðsbréf 5 1,179 Grandi hf. 2,75 2,85 Vaxtarbréf 2,0106 Olíufélagið hf. 5,10 5,40 Valbréf 1,8849 Olís 2,05 2,15 islandsbréf 1,244 Skeljungur hf. 5,65 5,95 Fjórðungsbréf 1,129 Skagstrendingur hf. 4,80 5,05 Þingbréf 1,241 Sæplast 7,33 7,65 öndvegisbréf 1,223 Tollvörugeymslan hf. 1,04 1,09 Sýslubréf 1,261 Utgerðarfélag Ak. 4,70 4,90 Reiðubréf 1,209 Fjárfestingarfélagið 1,35 1,42 Almenni hlutabréfasj. 1,12 1,17 Auðlindarbréf 1,03 1,08 islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20 Síldarvinnslan, Neskaup. 3,23 3,40 1 Við kaup á viðskiptavixlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi. Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast í DV á fimrntudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.