Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991. Veiðivon ________________________ 14 punda sjóbirtingur í Grenlæknum: Mikið af gæs - en hún flýgur öðruvísi en áður Baráttan við sjóbirtinginn er hafin og sú glíma getur verið skemmtileg þegar veiðimaðurinn hefur betur. DV-mynd G. Bender „Veiðin er blettótt í Grenlæknum eins og er. Veiðimenn, sem voru þar fyrir skömmu, veiddu 40 fiska og þetta voru sjóbirtingar frá tveimur upp í fjögur pund,“ sagði Þorlákur Stefánsson, bóndi á Amardrangi, er við spurðum um veiði í Grenlækn- um. „Stærsti sjóbirtingurinn, sem kom- ið hefur á land, er 14 pund en þeir gætu veiöst stærri núna í október. Eitthvað hefur veiðst af 8 og 9 punda fískum. Gæsaveiðin gengur frekar illa hérna en það er mikið af fugli. Fuglinn ílýgur víst öðruvísi en hann hefur gert hin síðari árin og tekst því aö plata skotveiðimennina. Tveir skotveiöimenn, sem voru hérna fyrir skömmu, fengu 20 gæsir, það er þaö mesta sem ég hef frétt af. En þetta eru þrír, fjórir fuglar á dag hjá mörg- um og það þykir gott,“ sagöi Þorlákur ennfremur. Hroðalega Iélegar lokatöl- ur úr Mávabótaálunum „Veiðin núna í sjóbirtingnum er ekki betri en oft áður. Einn og einn stór hefur þó veiðst en þeir eru líka margir smáir," sagði Vigfús G. Helgason á Kirkjubæjarklaustri. „Vatnsdalsá í Vatnsfirði, efri og neðri, gaf 163 laxa og 320 bleikjur. Þetta er feiknaleg aukning á lax- veiði," sagði okkar maöur á staðn- um í vikunni. En veiöi lauk í Vatns- dalsá 30. september en fyrr í hinum „í Mávabótaálunum hefur veiðst illa í sumar og þegar veiði lauk voru aðeins komnir á milh 40 og 50 fiskar á land. Þegar best var veiddust yfir ánum. „Suöurfossá á Rauðasandi gaf 25 laxa, Arnarbýla á Barðaströnd gaf 28 laxa og 27 silunga. Móra á Barða- strönd endaði í 45 löxum og 124 sil- ungum. Fjarðarhomsá í Kollafirði 600 fiskar þarna. í Vatnamótunum, þar sem þessi stóri 16 punda veidd- ist, hafa veiðst yfir 50 fiskar meira en 2 punda en 10 fiskar hafa veiðst gaf 45 laxa og 852 silunga. Gufu- dalsá í Gufudal endaði í 1300 bleikj- um og 15 löxum en Skálmardalsáin gaf 900 bleikjur,“ sagði okkar mað- ur ennfremur. Amarbýla á Barðaströnd gaf þyngri en 4 pund. Þetta em ekki stór- ir fiskar og heildarveiðin þarna er eitthvaö um tvö hundruð fiskar," sagðiVigfúsílokin. -G.Bender stærsta laxinn, 18 punda lax, og 9 punda sjóbirting. Margir af þessum löxum, sem veiddust á svæðinu, vom frá 5 pundum upp í 10 pund. -G. Bender Togarinn Jóhannes Kjarval var eitt sinn að mála á veggina i Landsbank- anum. Kemur þá einn af starfs- mönnum bankans til hans og spyr hvaö hann sé eiginlega að mála. „Ég er að mála togara,“ svaraði Kjarval. „Nú, en ég sé engan togara," sagöi maöurinn. „Það er nú kannski ekki nema von,“ stundi Kjarval. „Þú ert sjálfur í lestinni." Varnarræðan Fyrir mörgum ámm hóf mála- flutningsmaður einn í Reykjavík varnarræöu sina fyrir Hæstarétti á þessa leiö: „Þar sem sakbomingurinn hef- ur beðiö mig um að verja sitt mál hér fyrir réttinum leyfi ég mér að beiðast þess að geðlæknar rannsaki hvort hann sé með réttu ráði.“ Passíu- sálmamir Það var verið að kistuleggja húsfreyjuna í Saurakoti og sonur hennar var í mestu vandræðum með að ákveða hvaö syngja ætti við athöfhina. Eftír langar um- ræður segir gömul kona sem þar var einnig stödd: „Æ, syngið bara eitthvað úr Passíusálmunum. Það er allt svo gott sem stendur í þeim.“ Þá var náð í Passíusálmana og sonurinn blaðaði góða stund í þeim en bytjaði síðan að kytja: „Sjá hér hve illan enda, ótryggð og svikin fá...“ Ekkert að gera Páll Kolka læknir skrapp ein- hvetju sinni til Vestmannaeyja en þar hafði hann áður veriö læknir um hríö. Hittí hann þar meðal annarra líkkistusmiðinn og spuröi hvort hann hefði ekki nóg aö gera. „Nóg að gera,“ át líkkistusmið- urinn eftir. „Eg hef ekkert haft að gerasíöan þú fórst, Páll minn.“ Vatnsdalsá í Vatnsfirði: 163 laxar og320 bleikjur Finnur þú fiinm breytingai? 124 Ég ætla að tilkynna óvenju biræfinn þjófnaö. Nafn:......... Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriöum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. 2. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. Bækurnar sem eru í verðlaun heita: Á elleftu stundu, Flugan á veggnum, í helgreipum hat- urs, Lygi þagnarinnar og Leikreglur. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðl- un. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 124 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir hundraö tuttugustu og aöra getraun reyndust vera: LPoulina Höjgárd, Melgerði 11, 200 Kópavogi 2. Friðþjófur Helgi, Oddnýjarbraut 5, 245 Sand- gerði Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.