Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 8
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu skiptaréttar Reykjavíkur fer fram opinbert uppboð, miðvikudaginn
23, október nk. kl. 11.00.
Seldar verða eftirfarandi trésmíðavélar sem staðsettar eru að Mjölnisholti 12.
Afréttari model 1986, stór plötusög model 1979, band-slipivél, gömul sam-
byggð vél fjölnota, talið eign þb. Fyri hf.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík
Hafnarfjarðarbær
Lóð fyrir háhýsi
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir tilboðum í byggingar-
rétt á lóð fyrir fjölbýlishús við Háholt.
Húsið verður tólf hæðir með 92 íbúðum ásamt bíl-
geymslum og verslunar- og þjónusturými.
Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 22. október
1991.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6.
Bæjarverkfræðingur
DÓMHÚS í REYKJAVÍK
FORVAL
Fjármálaráðuneytið mun á næstunni láta bjóða út
endurnýjun innanhúss í „Útvegsbankahúsinu við
Lækjartorg". í forvali verða valdir 6 verktakar til að
taka þátt í lokuðu útboði.
Um er að ræða fullnaðarfrágang á ca 1600 m2
svæði, aðallega á 1. og 2. hæð, auk endurbóta á
lagnakerfum í öðrum hlutum hússins.
Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu Innkaupastofn-
unar ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík, og skal skila
umbeðnum upplýsingum á sama stað eigi síðar en
kl. 15.00 miðvikudaginn 23. október 1991.
INNKAUPASTOFIMUIM RIKISIIMS
BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK
>J
Styrkir til háskólanáms
Noregi og Þýskalandi.
1. Norsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslenskum
stúdent eða kandídat til háskólanáms í Noregi
námsárið 1992-93. Styrktímabilið er níu mánuðir
frá 1. september 1992. Til greina kemur að skipta
styrknum ef henta þykir. Styrkurinn nemur um
5.300 n.kr. á mánuði. Umsækjendur skulu vera
yngri en 35 ára og hafa stundað háskólanám í
a.m.k. 2 ár.
2. Þýska sendiráðið í Reykjavík hefurtilkynnt íslensk-
um stjórnvöldum að boðnir væru fram eftirtaldir
styrkir handa íslendingum til náms og rannsóknar-
starfa í Þýskalandi á námsárinu 1992-93.
a) Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur
skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
b) Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sum-
arið 1992. Umsækjendur skulu vera komnir
nokkuð áleiðis í háskólanámi og leggja stund
á nám í öðrum greinum en þýsku. Einnig þurfa
þeir að hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri
tungu.
c) Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar
og rannsóknarstarfa um allt að sex mánaða
skeið.
Nánari upplýsingar um styrkina, svo og umsóknar-
eyðublöð, fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhóls-
götu 4, 150 Reykjavík.
Umsóknum skal skilað í ráðuneytið fyrir 15. nóvemb-
er nk. um þýsku styrkina, en 1. desember nk. um
norska styrkinn.
Menntamálaráðuneytið
11. október 1991.
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991.
Matgæðingur vikuimar
Karrílifur
að indverskum hætti
„Ég llef iöulega lifur í matinn, að
minnsta kosti einu sinni í mánuði
enda er hún bæði holl og ódýr,“
segir Kristján Hreinsson stórskáld,
sagnfræðingur, leikhúsfræðingur
og matgæðingur vikunnar. Kristj-
án segist hafa fengist við elda-
mennsku frá því hann muni eftir
sér og eitt sinn var hann meira að
segja kokkur til sjós. „Ég elda oft-
ast fisk því það er hægt að prófa
sig áfram með hann án þess að rétt-
urinn mistakist. Auðvitað vildi ég
helst hafa mataruppskriftirnar í
bundnu máli en læt þetta duga
svona,“ segir Kristján sem er að
gefa út ljóðabók fyrir jólin auk þess
sem hann á texta á fjórum plötum
þessa árs. Meðal annars gerði hann
texta á jólaplötu sem út kemur fyr-
ir jólin og heitir Bamajól en þar
syngur Edda Heiðrún Backman
leikkona jólalög. En lifraruppskrift
Kristjáns virðist heillandi og rétt
að prófa hana nú á þeim tíma sem
lambalifrin er best. Uppskriftin
hljóðar svo en hún er miðuð við
Qóra:
Karrílifur
800 g lifur
250 g beikon
1 stór laukur eða
150-200 g blaðlaukur
4-6 hvítlauksrif
1 tsk. karrí
Sósan
1 biti lifur
1 tsk. Hot Madras karrí
1 tsk. karrímauk (Vindaloo Curry
paste - er í krukku)
1 epli
1 msk. olía
Kristján Hreinsson.
1 msk. smjörvi
rjómi eftir smekk
5 msk. kókosmjöl
2 msk. sætur kókoshnetumassi
(Cream of Coconut Flavour Base)
Köld hvítlaukssósa
2-4 hvítlauksrif
2 tómatar
14 agúrka
hálf dós sýrður rjómi
Aðferðin
Lifrin er hreinsuð og skorin í
þrettán jafna bita. Tólf bitar settir
á disk, karríi stráð yfir og 4-6 hvít-
lauksrif pressuð og látið jafnt yfir
bitana. Gott er einnig að strá pipar
yfir. Þá er bitunum rúllað inní bei-
konið en tvær til þijár sneiðar þarf
yfir hvern bita. (Tannstönglum má
stinga í gegn). Þá er lifrin steikt í
olíunni og smjörvanum á mjög
heitri pönnu í allt að sjö mínútur
eða þangað til beikonið er orðið vel
stökkt. Þá er lifrarbitunum raöað
á disk og pannan þvegin vel áður
en sósan er gerð.
Aftur er smjörva og olíu blandað
saman á pönnunni. Karríið er sett
út í og einnig Vindaloo karríið. Þá
er lauknum blandað saman við og
steiktur (svitaður). Fimm mat-
skeiðum af kókosmjöli er bætt á
pönnuna. Á meðan þetta kraumar
er einn biti af lifur soðin í 4-5 boll-
um af vatni og froðan hreinsuð
burt jafnóðum. Þegar lifrin er soðin
er hún hökkuð í mixer og síðan
sett ásamt soðinu (vatninu) á pönn-
una með lauknum og kókósmjöl-
inu. Piprið aðeins yfir og bætið
kókosmassanum útí. Eplið er skor-
ið í um tuttugu bita og bætt út í
sósuna og látið krauma smástund.
Aö síðustu er rjóminn settur í sós-
una.
Allt sem á að fara í hvítlaukssós-
una er mixað saman og borið fram
með réttinum en aö sögn Kristjáns
er sú sósa ómissandi með indversk-
um mat. Nú er rétturinn tilbúinn
og með honum er gott að bera fram
hrísgrjón eða kartöflur og hrásalat.
Kristján segir að þessi réttur
svíki engan og þar að auki sé hann
ekki dýr. „Stóri kostnaðurinn við
hann er blessað beikonið," segir
hann.
Kristján Hreinsson ætlar að
skora á Magnús Þór Sigmundsson
tónlistarmann að vera matgæðing-
ur næstu viku. „Ég þykist vita að
Magnús Þór lumi á einhverri stór-
kostlegri uppskrift. Honum ætti
ekki að vera skotaskuld úr því
hrista eina slfka fram úr erminni,“
sagði matgæðingur þessarar viku
ogviðbíðum. -ELA
Hinhliöin
Sauma og prjóna
á alla fjölskylduna
Unnur Steinsson, fyrrum fegurð-
ardrottning, hefur verið valin No
Name-stúlka vetrarins. No Name
er snyrtivörutegund og hefur verið
tekin auglýsingamynd af Unni mál-
aðri með vetrarlitum þessarar teg-
undar.
Unnur hefur verið við alls kyns
fyrirsætustörf frá því að hún var
kjörin fulltrúi ungu kynslóðarinn-
ar 1980. Sem sigurvegari hér tók
hún þátt i keppni á Filippseyjum
þar sem hún lenti í þriðja sæti.
Árið 1983 var Unnur kjörin fegurð-
ardrottning íslands og fór í Miss
World keppnina þar sem hún lenti
í fjórða sæti.
Núna starfar Unnur sem flug-
freyja og fyrir bókaklúbb Vöku-
Helgafells.
Fullt nafn: Unnur Steinsson.
Fæðingardagur og ár: 27. apríl 1963.
Maki: Vilhjálmur Skúlason.
Börn: Unnur Birna, 7 ára, og Stein-
ar Torfi, 5 ára.
Bifreið: Ford Explorer árgerð ’91.
Starf: Ég er flugfreyja en auk þess
vel ég efni í tímaritiö Nýtt af nál-
inni fyrir Vöku-Helgafell.
Laun: Um það bil 150 þúsund.
Áhugamál: Mér þykir gaman aö
fara á skíði á vetuma og ferðast
innanlands á sumrin. Ég hef einnig
áhuga á laxveiði og svo sauma ég
og prjóna á alla fjölskylduna. Upp-
eldi tíkurinnar Flugu, sem er af
tegundinni irish setter, er líka eitt
af áhugamálunum.
Unnur Steinsson.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég hef aldrei spilað.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að vera með fjölskyldunni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Ég man ekki eftir neinu sér-
stöku.
Uppáhaldsmatur: Svínasteik og
villibráð.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Ég fylgist
lítið með nöfnum á íþróttamönnum
en mér finnst gaman hvað spjót-
kastaramir standa .sig vel.
Uppáhaldstímarit: Heimsmynd og
Nýttlíf.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Enginn.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Hlynnt.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Enga sérstaka.
Uppáhaldsleikari: Anthony Hopk-
ins.
Uppáhaldsleikkona: Kirstie Alley.
Uppáhaldssöngvari: Björgvin Hall-
dórsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Frið-
rik Sophusson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Engin.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Á tali hjá
Hemma Gunn.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Eg er frekar
hlutlaus.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Gunn-
laugur Helgason og Jón Axel Ólafs-
son.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Eng-
inn sérstakur.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer
sjaldan út að skemmta mér en Casa
Blanca og Amma Lú em ágætir.
Uppáhaldsfélag í iþróttum? Grótta.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að halda áfram á
sömu braut og ég er á. Ég held að
hún sé alveg ágæt.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
tók ekki sumarfrí fyrr en í sept-
ember svo það má kalla það
haustfrí. Ég dyttaði þá að húsinu
og garðinum. I sumar fór í styttri
frí og fór þá í laxveiði og útfiegu.
-IBS