Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Síða 20
20
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991.
Kvikmyndir
Kvikmyndaframleiðendur í Rússlandi:
Vonast eftir ásókn írá Vesturlöndum
í stóru kvikmyndaverin í Moskvu
- Back in theU.S.S.Rfyrsta vestræna kvikmyndin sem gerð er að öllu leyti í Moskvu
Eftir að tók að losna um stjómar-
taumana í Sovétríkjunum hefur
kvikmyndagerð þar lifnað við og
frá Rússlandi streyma nú kvik-
myndir sem eru mjög í anda þess
frelsis sem kvikmyndagerðarmenn
þar búa við nú eftir áratuga eftirlit
með öllum kvikmyndum þeirra.
Þessi frjálslyndisstefna er eink-
um til staðar í Moskvu en kvik-
myndagerðarmennn þar á bæ líta
vonaraugum til Vesturlanda í von
um samstarf og liðveislu. Þegar
hefur komist á samstarf við gerð
nokkurra kvikmynda og svo hafa
vestrænir kvikmyndagerðarmenn
haldið til Moskvu til að kvikmynda
atburði sem eiga að gerast þar.
Fyrsta bandaríska kvikmyndin,
sem tekin var í Moskvu í langan
tíma, var The Russian House með
þeim Sean Connery og Michele
Pfeiffer í aðalhlutverkum. Fleiri
hafa fylgt í kjölfarið, meðal annars
kvikmynd sem bráðlega verður
frumsýnd og' heitir Back in the
U.S.S.R.
Margt hefur komið Vestur-
landabúum spánskt fyrir sjónir í
kvikmyndaverum í Moskvu, enda
virðast þau uppfull af gömlum og
úr sér gengnum búnaði og vinnu-
brögðin eru einnig ekki alveg í
anda þess hraða sem viðgengst í
Hollywoood. Þetta hefur framleið-
andi Back in the U.S.S.R., Lou
Stroller, fengið að kynnast og lýsir
hann því að gera kvikmynd í
Moskvu á þann veg að það sé
blanda af óvæntum atburðum og
miklum taugatitringi.
„Breytingar á fyrirfram ákveðn-
um verkum er daglegt brauð. Menn
vakna upp við aö verð á öllum hlut-
um hefur breyst og sofna á kvöldin
með það efst í huga hvað muni
breytast á morgun. Ekkert er auð-
velt í Moskvu," segir Stroller en
vill þó taka það fram að áætlun um
Back in the U.S.S.R er fyrsta vestræna kvikmyndin sem gerð er að öllu leyti í Moskvu. Leikstjórinn, Deran
Sarafian, er hér til hægri að ræða við kvikmyndatökumann sinn.
kostnað hafi að mestu staðist.
Back in the U.S.S.R. fjallar um
bandarískan ferðamann sem óvilj-
andi flækist í smygl á dýrmætum
helgigrip úr landi. Frank Walley
leikur ferðamanninn sem lendir í
hremmingum í Moskvu. Natalya
Negoda, sem gat sér frægö í Veru
litlu, leikur stúlku sem hann kynn;
ist og sjálfur Roman Polanski leik-
ur rússneskan smyglara. Leikstjóri
er Deran Sarafian og segir hann
að margt hafi gerst sem skemmti-
lega kom á óvart. „Eitt skiptið þeg-
ar við voru að kvikmynda tilbúin
mótmæh gegn vöruskorti fyrir
framan Pizza Hut í Moskvu vissum
við ekki fyrr en fólk, sem var á
gangi, kom og tók sér stöðu í mann-
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
fjöldanum eins og um raunveruleg
mótmæli væri að ræða og Sarafian
heldur áfram: „Þetta er skrítið land
og ég vona að mér hafi tekist að
koma til skila á filmu þessari und-
arlegu tilfinningu sem ég hafði fyr-
ir landinu."
Back in the U.S.S.R er að öllu leyti
gerö í Moskvu en í The Russian
House voru það aðeins útiatriðin
sem voru kvikmynduð þar. Er
Back in the U.S.S.R. fyrsta myndin
í fjögurra ára áætlun um að óháðir
bandarískir kvikmyndaframleið-
endur nýti sér hin stóru kvik-
myndaver sem eru í Moskvu. Rúss-
ar eru ákafir í að leigja út þessi
kvikmyndaver sem eru geysistór
og er ætlunin að leigan komi til
með að auðvelda Rússum sjálfum
gerð kvikmynda sinna.
Bandarískt fyrirtæki
sér um samninga
Sömu menn hafa einnig lagt
áherslu á að rússneskar kvik-
myndir verði gerðar með stuðningi
frá Vesturlöndum og er einmitt ein
slík kvikmynd, Taxablús, sýnd á
kvikmyndahátíð í Reykjavik um
þessar mundir. Sú kvikmynd, sem
gerð er í samvinnu við Frakka,
sýnir vel hversu breytingar eru
örar í sovéskri kvikmyndagerð um
leið og hún sýnir hlið á Moskvu
sem ekki hefur komið fyrir augu
Vesturlandabúa fyrr. Hefur
Taxablús vakið mikla athygli hér
sem annars staöar á Vesturlönd-
um.
Á síðustu tólf mánuðum hefur
Mosfilm gert fjörutíu og fjórar
kvikmyndir og eru níu þeirra gerð-
ar í samvinnu við aðila í Japan,
Frakklandi, Englandi, Bandaríkj-
unum og á Ítalíu. Tvær þessar
kvikmynda, Aftaka keisarans og
Anna Karamazova, hafa þegar ver-
ið sýndar á kvikmyndahátíðum á
Vesturlöndum.
Þrátt fyrir þennan árangur Mos-
film að fá aðrar þjóðir til samstarfs
hafa forráðamenn fyrirtækisins
orðið fyrir vonbrigðum með við-
tökurnar í Hollywoood. Stóru fyrir-
tækin þar hafa öll sýnt áhuga en
ekkert gert í málinu enn sem kom-
ið er og kemur þar til ótryggt
ástand í landsmálum og hversu
kvikmyndaverin í Moskvu eru orð-
in úrelt.
Mosfilm hefur þó ekki gefist upp
og hefur ráðið í sína þágu stórt
bandarískt fyrirtæki á sviði al-
mannatengsla til að koma hlutun-
um í lag svo að það sé samkeppnis-
fært við önnur kvikmyndver vest-
an hafs og til að sjá um að hagstæð-
ir samningar séu gerðir. Einn
frammámaður hjá Mosfilm segir
að það sé kannski rétt að kvik-
myndaver fyrirtækisins séu ekki
jafnfullkomin og þau sem eru í
Bandaríkjunum en á móti komi að
þeir bjóði ódýrustu leiguna og
ódýrasta vinnukraftinn og í landi
eins og Bandaríkjunum, þar sem
allt snýst um peninga, hljóti það
að vega þungt. -HK
Væntanleg kvikmynd: -The Doctor
Læknir verður sjúklingur
Einhvern tíma veröur læknir
einnig sjúkhngur og það er einmitt
þemað í nýjustu kvikmynd Randa
Haines, The Doctor. Það er virtur
og fær skurðlæknir, Jack MacKee
(William Hurt), sem skyndilega
verður að horfast í augu við sjúk-
dóm sem gerir það að verkum að
hann verður aðeins venjulegur
sjúklingur á spítalanum þar sem
hann vinnur. í fyrsta skipti verður
læknirinn að reiöa sig á aðra lækna
og ganga í gegnum allt sem sjúkl-
ingar hans hafa þurft aö ganga í
gegnum og hann ekki leitt hugann
að, meðal annars endalausar rann-
sóknir og yfirfull biðherbergi.
Áður en MacKee varð veikur
hafði hann haft litlar áhyggjur af
sjúklingum sínum, unnið vélrænt
með allan hugann við veraldleg
gæði. í veikindum sínum gerir
hann sér grein fyrir þessari stað-
reynd og hugrekki ungrar stúlku,
sem hann kynnist, gefur honum
kraft til að standast eigin áföll og
taka veikindum sínum af karl-
mennsku um leið og hann gerir sér
William Hurt leikur lækni sem snögglega þarf aö standa í sömu sporum
og sjúklingar sínir.
grein fyrir að læknirinn þarf fyrst
að vita hvemig hjartað slær áður
en það er skorið.
The Doctor hefur fengið mjög
góða dóma vestan hafs og hefur
einnig verið vel sótt. Hún er ein af
„litlu“ myndunum sem ekkert fer
fyrir meðan verið er að gera þær
en slá svo rækilega í gegn og verða
mun vinsælli en margfalt dýrari
myndir.
Randa Haines
Leikstjóri The Doctor er Randa
Haines og er þetta önnur kvik-
myndin sem hún leikstýrir. Fyrri
mynd hennar var hin rómaða Chil-
dren of a Lesser God og lék William
Hurt einnig aöalhlutverkið í þeirri
mynd ásamt Marlee Matlin. Sú
mynd fékk fimm tilnefningar til
óskarsverðlauna, meðal annars
sem besta kvikmyndin.
Randa Haines ólst upp í New
York og nam leiklist hjá Lee Strass-
berg. Eftir að hafa leikið í nokkrum
leikritum tók hún til við nám í The
School of Visual Arts og fékk fljótt
meiri áhuga á að vinna á bak við
myndavélina en fyrir framan hana.
Henni gekk þó ifla að koma sér á
framfæri og vann sem umsjónar-
maður handrita í tíu ár.
Fyrstu reynslu sína í leikstjóm
fékk hún þegar hún gekk til liðs
við Directing Workshop For Wo-
man í Amerísku kvikmyndastofn-
uninni. Þar leikstýrði hún mynd
sem hét August/September. Haines
skrifaði sjálf handritið sem hún
byggði að hluta til á skáldsögu eftir
Doris Lessing. Skömmu síðar fékk
hún starf sem handritshöfundur
við sjónvarpþættina Family. Hún
leikstýrði tveimur heimildarkvik-
myndum áður en hún fór að vinna
við hina vinsælu sjónvarpsþætti,
Hill Street Blues, þar sem hún
skrifaði handrit og leikstýrði
nokkrum þáttum.
Eins og áður segir vakti hún
mikla athygli með sinni fyrstu
kvikmynd, Children of a Lesser
God, sem gerð var 1986. Haines var
ekkert að flýta sér að fylgja eftir
velgengninni en hreifst loks af
handriti leikritahöfundarins Ro-
berts Caswell sem hann skrifaði
eftir sjálfsævisögu læknisins Ed
Rosembaum. Caswell er ástralskur
og eina kvikmyndahandritið, sem
hann hefur áður skrifað, var A Cry
in the Dark þar sem Meryl Streep
fór á kostum sem móðir sem ákærð
er fyrir aö hafa drepið barn sitt.
Annar virtur Ástrali var í lykil-
stöðu við gerð myndarinnar, kvik-
myndatökumaðurinn snjalli, John
Seale, en meðal afreka hans eru
Randa Haines, leikstjóri The Doct-
or.
Dead Poets Society, Mosquito Co-
ast, Witness, Gorillas in the Mist,
Children of a Lesser God og Rain
Man.
Það höfðu ekki margir trú á The
Doctor fyrirfram en annað hefur
sýnt sig og þegar síðast fréttist var
hún búin að hala inn ijörutíu millj-
ónir -dollara vestan hafs fyrir
Touchstone-fyrirtækið og um leið
skipar Randa Haines sér í hóp
bestu kvenleikstjóra í Hollywood
en aðeins Penny Marshall hefur
gengið svo vel. The Doctor verður
bráölega sýnd í Bíóborginni.
-HK