Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Page 21
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991.
21
Bridge
HM í Yokohama:
Bermudaskálin til íslands
Eins og kunnugt er af fréttum vann
íslenska bridgelandsliðið það stór-
kostlega afrek að sigra í heims-
meistarakeppninni í bridge sem stað-
ið hefir yfir í Yokohama í Japan und-
anfamar tvær vikur.
Hinir nýju heimsmeistarar eru
Aðalsteinn Jörgensen, Jón Baldurs-
son, Guðmundur Páll Arnarson, Þor-
lákur Jónsson, Guðlaugur R. Jó-
hannsson, Örn Arnþórsson og ekki
síst fyrirliðinn, Björn Eysteinsson.
Undanfari þessa var hin frækilega
frammistaða landsliðsins á Evrópu-
mótinu í Killarney á írlandi, þegar
sveitin tryggði sér fjórða sætið og þar
með þátttökurétt í heimsmeistara-
mótinu ásamt 15 öðrum þjóðum. Á
heimsmeistaramótinu sjálfu kom
strax í ljós að íslenska landsliðið
ætlaði sér stóran hlut. Sveitin vann
sinn riðil með yfirburðum og sam-
kvæmt reglum mótsins þýddi það að
sveitin fékk léttari andstæðing í
fjóröungsúrslitum en hinar, ef hægt
er að komast svo að orði um landslið
Bandaríkjamanna. Enda fór svo að
sveitin sigraði Bandaríkjamennina
létt og var þár með komin í undanúr-
slit. Heldur þyngdist róðurinn og nú
voru andstæðingarnir Svíar sem eiga
á að skipa einu besta bridgelandsliði
heimsins. Þessi leikur var jafn og
harður og úrslitin réðust ekki fyrr
en í -síðustu spilunum þegar þeir
sænsku reyndu slemmu sem tapaðist
en íslendingarnir létu sér nægja
geimið.
Meðan þetta var að gerast hafði
pólska landshðiö náð að leggja Evr-
ópumeistara Englendinga að velli í
Þessi mynd er tekin er íslendingar sigruðu Svia i undanúrslitum. Þorlákur
Jóhannsson er til hægri á myndinni en meðspilari hans er Guömundur
Arnarson sem situr hinum megin við „múrinn". Símamynd Reuter.
forystu og héldu henni óslitið til
leiksloka. Höfðu reyndar 80 impa for-
ystu þegar 32 spil voru eftir og heims-
meistaratitillinn var þá nokkuð ör-
uggur þótt Pólverjar næðu að
minnka muninn í síðustu lotunni
með örvæntingarfullri spilamensku.
Lokastaðan var 415-374.
Það er ljóst að fram undan er gós-
entíð íslenskra bridgedálkahöfunda,
því að íslenska sveitin spilaði um 500
spil í heimsmeistarakeppninni og
voru mörg hvert öðru betra. Sér-
fræðingar vilja halda því fram að
sagntækni íslendinganna hafi öðru
fremur átt þátt í velgengninni og þá
bæði sóknar- og varnarsagnir. Við
skulum skoða gott dæmi um hve
truflandi góðar varnarsagnir geta
reynst.
N/0
* 107654
¥ Á6
♦ ÁKG94
+ G
♦ Á93
¥ 104
♦ 852
+ K10963
♦ G8
¥ K98732
♦ D106
+ 75
Bridge
Stefán Guðjohnsen
fjórðungsúrslitum og síðan heims-
meistara Brasilíu í undanúrslitum.
Með þeim glæsilega árangri tryggðu
Pólverjarnir sér sæti í úrslitum um
heimsmeistaratitilinn og andstæð-
ingarnir virtust ekki ósigrandi þar
sem litla ísland var. En þeir áttu eft-
ir að verða fyrir vonbrigðum!
En eins og alþjóð veit einokuðu ís-
lendingar úrslitaleikinn, tóku strax
♦ KD2
¥ DG5
♦ 73
+ ÁD842
í lokaða salnum sátu n-s Jón og
Aðalsteinn en Pólverjarnir í a-v.
Sagnirnar voru ósköp blátt áfram:
Norður Austur Suður Vestur
lspaði pass 21auf pass
2tíglar pass 4spaðar pass
pass pass
Austur spilaði út laufafimmi og Jón
fékk auðveldlega 10 slagi. Eins og
spilið liggur er raunar hægt að fá 11
slagi en sú leið er engan vegin auð-
veld.
Við hitt borðið sátu Pólverjarnir
með passkerfið n-s en Þorlákur og
Guðmundur Páll a-v. Sagnirnar
koma hinum almenna bridgespilara
sjálfsagt spánskt fyrir sjónir:
Norður Austur Suður Vestur
pass! 2 tíglar!! dobl 2hjörtu
2spaðar pass 3lauf pass
3tíglar pass 3hjörtu pass
3 grönd pass 4 spaðar pass
5tíglar pass 5hjörtu pass
5 spaöar pass pass pass
Það kom sama útspil og spila-
skýrslurnar sýna að Pólverjinn fékk
aðeins 10 slagi og tapaði 50. Það er
ávallt áfah þegar spilarar reyna við
slemmu og fara upp í fimm og verða
einn niður. Líklegt er að Pólverjinn
hafi svínað fyrir tíguldrottningu og
þannig tapað spilinu en glöggir les-
endur sjá að með því að taka tvo
hæstu í tígli og trompa þann þriðja,
þá er hægt að fá 11 slagi.
Meira um hinn glæsta sigur íslands
næst.
Stefán Guðjohnsen
AMERICA FOR YOU!
Þú getur líka orðið íbúi í Bandaríkjunum.
Á hverju ári gerast 700.000 erlendir ríkisborgarar Bandaríkjamenn og fyrir-
tæki okkar býður alhliða þjónustu fyrir innflytjendur, þ.á m. „Green Card
Immigration Program". Þú gætir orðið meðal þeirra 40.000 manna sem ge-
rast Bandaríkjamenn samkvæmt „Immigration Act" (innflytjendalöggjöfinni)
101-649 frá árinu 1990.
Vegabréfsáritanir fyrir jnnflytjendur, án tímatakmarkana, verða veittar árlega
þeim sem til þess veljast, í fyrsta skipti 14. október og svo næstu þrjú ár.
Borgarar í 33 löndum koma til greina við þessa úthlutun (sjá lista).
Til að auka líkur þínar á að koma til greina, þá fylltu út umsókn, skrifaðu
undir samkomulagið og sendu það með símbréfi(faxi) á símanúmer sem
gefið er upp hér á eftir. Þú getur greitt með American Express-korti, ávísun,
ferðatékka eða Visa og Master Card (kreditkortum og látið kortnúmer og
gildistíma fylgja með) á bankareikning okkar:
American Universal Unlimited, Inc.
Barnett Bank of South West Florida.
Transfer Nr. ABA-063109058 ACCT Nr. 1622145131
240 So. Pineapple Avenue,
Sarasota, Florida 34236 USA.
Við gefum bráðlega út bók sem verður bráðnauðsynleg fyrir þá sem vilja
frekari upplýsingar um það að gerast innflytjendur til Bandaríkjanna. Flún
heitir „America For You" (Bandaríkin fyrir þig) og hún hefur að geyma fjöl-
margar upplýsingar frá þeim sem reynslu hafa í þessum efnum.
Tilboð
Flokkur verið í $ umsóknarblöð (fjöldi)
1 50 2
2 100 10
3 500 A AAA 50
4 1 UUU lOU
5 2000 1000
6 4000 3000
Beri umsóknir ekki árangur fyrsta árið, gildir greiðsla þín ... $ fyrir önnur
3000 umsóknarblöð á ári, sem send verða næstu tvö árin án frekari kostnað-
ar. Fáir þú jákvætt svar gerum við þér atvinnutilboð, til þess að þú getir feng-
ið innflytjendaleyfi.
íbúar eftirtaldra landa geta sótt um:
Alslr, Argentinu, Austurrikis, Belgiu, Bermúdaeyja, Bretlands og N.irl., Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Frakk-
lands, Gfbraltar, Gvadalupa, Hollands, Indonesíu, irlands, íslands, italiu, Japans, Lettlands, Lichensteins, Litháen,
Luxemborgar, Monakos, Noregs, Nýju Kaledoniu, Póllands, Sanmarions, Sviss, Sviþjóöar, Tékkóslóvakiu, Túnis,
Ungverjalands, Þýskalands.
P.S. Dótturfyrirtæki okkar, „American Auto and Yachts," óskar eftir samstarfsfólki og
dreifingaraðilum með innflutning og útflutning i huga. Vinsamlega hafið samband við
okkur til að afla nánari upplýsinga.
Fax (813) 379-9791 Simi (813) 378-0992 Sími/Fax (813) 378-3183
Landsnúmer:
Flokkur:
Umsókn
(vinsaml. vélritið)
Föðurnafn (ættarnafn) _______________________
Skírnarnafn _____!_____________________:_____
Fæðingardagur________________Fæðingarstaður.
Utanáskrift í USA: American Universal Unlimited Inc.
4509 Bee Ridge Rd. Suite E
Sarasota, Florida 34233 USA
Utanáskrift þín og símanúmer ___________________________
Utanáskrift næsta sendiráðs Bandaríkjanna
Flokkur
Þáttökugjald (í $)
sendu staðfestingu greiðslu í símabréfi
(faxi) ásamt umsókn en greiðsluna með
flugpósti.
Samkomulag:
Ég undirritaður fel „American Universal Unlimited, Inc." að koma á
framfæri umsóknum mínum við „US Immigration Department (Inn-
flytjendaskrifstofu Bandaríkjanna), skrá og útbúa umsókn mína sam-
kvæmt Immigration Act I (Innflytjendalögum) frá 1990. Ég sam-
þykki einnig að greiða óafturkræft framlag samkvæmt meðfylgjandi
gjaldskrá.
Undirskrift
S.M. Marchone.
varaframkvæmdastjóri
„American Universal Unlimited, Inc."