Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Qupperneq 22
22
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991.
Sérstæð sakamál
Hvaö geröi hana
að fjöldamorðingja?
„Karlmenn eru vondir og þaö á aö
senda þá þangað sem þeir eiga aö
vera.“ Það sem Aileen Wuornos
átti í raun við var aö þeir ættu að
deyja. Og nokkrum dögum eftir aö
hún gaf þessa yfirlýsingu viður-
kenndi hún að hafa myrt sjö menn.
Lögreglan telur hins vegar að þeir
séu aö minnsta kosti tíu. Æska
Aileen var hörmuleg. Ýmsir af
þeim sem rannsakað hafa málið og
feril hennar telja að þar kunni að
vera aö leita orsakanna fyrir morð-
unum.
13 mánaða leit
Þegar fram kom hvernig æskuár
Aileen höfðu verið tóku sálfræð-
ingar að beina augum sínum að
uppvaxtarárum hennar í leitinni
að ástæðunni til fjöldamorðanna.
Og sumir þeirra telja lítinn vafa á
því leika að þegar hún var ung
hafi hún tekið að leggja hatur á
karlmenn og þá ekki síst fóður sinn
enda kunni hún í raun að hafa ver-
ið að hefna sín á honum í hvert
sinn sem hún framdi morð.
Aileen Wuomos er alræmdasti
fjöldamorðingi í rööum kvenna í
sögu Bandaríkjanna. Og nú situr
hún í fangelsi á Flórída þar sem
hún framdi morðin. Fáir þekktu
hana og nánast enginn vel nema
fyrrverandi ástkona hennar, Tyria
Moore, tuttugu og átta ára, sem
tókst að gera sér nokkuð heillega
mynd af ævi þessarar þijátíu og
fjögurra ára gömlu konu.
Aileen var handtekin þrettán
mánuðum eftir að fyrsta morðið
var framið en þá hafði leitin að
fjöldamorðingjanum staðið um allt
Flórídaríki. Það hjálpaði rann-
sóknarlögreglumönnunum við
þessa erfiðu og löngu leit að Aileen
fór alltaf eins að. í flestum tilvikum
leiddi hún fómardýr sín í gildru
úti á vegum þar sem hún reyndi
að fá sér far „á puttanum“ eða þá
að hún stóð við hliðina á bíl með
opið vélarhús og þóttist þurfa á
aðstoð að halda.
Fórnardýrin
tekin aflífi
Allir mennirnir sem Aileen myrti
voru hvítir og miðaldra. Þegar hún
fékk gott færi á þeim tók hún fram
skammbyssu og skaut þá mörgum
skotum. Stundum skaut hún allt
að niu skotum í þá. Þegar aftakan
hafði farið fram dró hún líkin inn
í bíla mannanna og ók á einhvem
fáfarinn stað þar sem hún kastaði
líkunum. Síðan hélt hún áfram og
oftar en ekki eyöilagði hún síðan
bílana með því að aka þeim á eitt-
hvað.
Játning Aileen Wuomos vakti
óhug í Bandaríkjunum. í ljós kom
aö hún og vinkona hennar, Tyria
Moore, höfðu um lengri tíma leigt
mótelherbergi fyrir utan Daytona.
Þar gengu þær undir nöfnunum
Lee og Ty og komu oft á krár í
nágrenninu.
Stúlka, sem nefnir sig Carole, var
ein fastagestanna á mótelinu og ein
fárra sem kynntust Tyriu og Ai-
leen.
Djúpstætthatur
„Einhvem tíma á ævinni hlýtur
einhver karlmaöur að hafa fariö
afar illa með Aileen," segir Carole.
„Ég get að minnsta kosti ekki fund-
ið neina aðra skýringu á því hve
mikið hatur hún lagöi á karlmenn.
Oft notaöi hún orðið „sjálfur sat-
an“ um þá.“
Eigandi mótelsins, Renny Miles,
fiöratíu og eins árs, segir: „Mér
fannst strax í upphafi að þaö væri
eitthvað aö. Framkoma hennar var
Charles Humphreys, Charles
Carskaddon, Peter Siems og Dou-
glas Giddens
þannig að maður var á verði. Ég
ræddi nokkrum sinnum við hana
af því hún var með svo mikla há-
reysti en slíkar aðfinnslur þoldi
hún alls ekki.“
„í yfirheyrslum var Aileen op-
inská um lesbískt samband sitt við
Tyriu Moore en það stóð í sex ár,“
segir einn lögreglumannanna. „En
það er hins vegar ekkert sem bend-
ir til að Tyria hafi haft neina hug-
mynd um morðin."
Erfíð æska
Það sem sumir telja að hafi gert
Aileen að fiöldamorðingja festi
hugsanlega rætur þegar hún var
að alast upp. Sex ára vaf hún látin
Aileen Wuornos.
víkja af heimili foreldra sinna og
send til fóðurömmu sinnar og afa.
Skömmu síðar framdi faðir hennar
sjálfsvig. Þá hafði hann verið stað-
inn að kynferðislegu ofbeldi gegn
sjö ára gömlu bami og lá undir
grun um að hafa myrt annað bam.
Þegar Aileen var þrettán ára varð
hún ólétt. Hún fæddi bamið en það
var síðan tekið frá henni því hún
var þá, þrátt fyrir hve ung hún
var, starfandi vændiskona. Fjórtán
ára reyndi hún að fremja sjálfsvig
eftir að henni hafði verið misþyrmt
og nauðgað aö minnsta kosti sex
sinnum.
Tveimur árum eftir að faðir
hennar framdi sjálfsvígið drakk
amma hennar sig til dauða. Þar
með kom það í hlut afa hennar að
sjá um hana. Hann framdi svo
sjálfsvíg árið 1976.
Ég hata hann
„Ég hata afa minn djúpt og mik-
ið,“ sagði hún eitt sinn við eina
skólasystur sína. Þá kom einnig
fram að bæði Aileen og systir henn-
ar, Keith, urðu mjög skapmiklar í
uppvextinum. Systirin dó svo árið
1976 af krabbameini, en það var
sama árið og afinn framdi sjálfsvíg-
ið.
„Þegar Aileen leitaði fómardýra
sinna var hún í raun aö leita að
föður sínum," segir opinber tals-
maður á Flórída. „Allir þeir sem
hún myrti vora á svipuðum aldri
og hann hafði veriö."
Cheryl Downs, sem starfar í
dómsmálaráðuneytinu, komst
þannig að orði: „Að hafa verið send
að heiman í fóstur hjá öðrum sex
ára gömul hlýtur að hafa komið
illa við hana. Þegar það bættist svo
við að faðirinn var fangelsaður fyr-
ir að hafa kynferðislega misþyrmt
bami og lá undir grun um að hafa
myrt annað getur það hafa orðið
of mikið fyrir hana. Hvaða sex ára
gömul stúlka getur þolað slíkt án
þess að bera þess merki það sem
eftir er ævinnar? Og síðan varð hún
að lifa jafn ömurlegu lífi og hún
hefur gert.“
Fyrsta fómardýrið
Ákæruvaldið hefur einnig komist
að þeiri niðurstöðu að hatur á karl-
mönnum sé eina ástæðan til morð-
anna því engan mannanna, sem
hún skaut til bana, þekkti hún fyr-
ir. Skömmu eftir handtökuna við-
urkenndi hún að hafa myrt sjö
menn en lögreglan telur að hún
hafi alls tíu mannslíf á samvisk-
unni. Tvö líkanna era enn ófundin.
Formlega hefur Aileen enn að-
*■' _ y_
• K;
eins verið ákærð fyrir eitt morð,
mannsins sem hún réð fyrst bana.
Sá hét Richard Mallory og var
fimmtíu og eins árs rafvirki. Lík
hans fannst skammt norðan við
Daytona Beach 13. desember 1989.
En unnið er að því að ákæra hana
fyrir sex önnur morð.
Aileen lýsti því við yfirheyrslu
hvemig hún hefði drepið Richard
Mallory.
„Ég fékk far með honum og lét
hann skilja á mér aö ég væri svöng.
Hann var afar vingjamlegur og
bauð mér á veitingahús. Síðan
tókst mér að fá hann til að aka mér
út í sveit en þegar þangað kom tók
ég fram skammbyssuna og skaut
fióram kúlum í hann. Þegar ég
haíði svo tekið allt sem einhvers
var virði og kastað líkinu út í skóg
ók ég heim til vinkonu minnar,
Tyriu Moore.“
Líkt og á færibandi
Fjórum mánuðum síðar fannst
líkið af Douglas Giddens, fiöratíu
og sex ára, en Aileen hefur ekki
viðurkennt að hafa myrt hann. Síð-
an fannst hvert líkið á fætur öðra.
Af David Spears fiörutíu og þriggja
ára, Charles Carskaddon fiörutíu
og fimm ára, Troy Burgess fimm-
tugum, Charles Humphreys fimm-
tíu og sex ára, og Gino Antonio,
sextugum. t
Aileen hefur einnig játað aö hafa
myrt Peter Siems, sextíu og fimm
ára, en lík hans hefur enn ekki
fundist. Þar að auki telur lögreglan
hana seka um morðið á Curtis Read
en hún neitar að bera ábyrgð á
dauöa hans.
Fær líklega
dauðarefsingu
Þegar málið kemur fyrir rétt
verður Tyria Moore eitt aðalvitna
ákæravaldsins.
„Mig var farið að grana að hún
væri með eitthvað óhreint í poka-
horninu," sagði hún við yfir-
heyrslu. „Þess vegna batt ég enda
á samband okkar sem staðið hafði
í sex ár og fluttist langt í burtu.“
Saksóknarinn hefur þegar lýst
yfir því að hann muni fara fram á
dauðarefsingu en veijandinn segist
aftur á móti ætla að bera við geð-
veiki.
Ein gamalla vinkvenna Aileen
fékk bréf frá henni eftir að hún
hafði játað á sig morðin og þar seg-
ir: „Ég vona að Guð fyrirgefi mér.“
Þessi vinkona, Grody, segir:
„Aileen var sérfræðingur í aö eign-
ast óvini. Það fór líka svo að allir
(f j
Richard Mallory, Gino Antonio,
Troy Burgess og David Spears.
lögðu hatur á hana. í rauninni varð
ég ekki svo hissa á að heyra aö hún
var handtekinn, grunuð um fiölda-
moröin á Flórída."
„Ég hafði bara áhuga á því að fá
greitt fyrir kynmök við menn,“ seg-
ir Aileen sjálf. „Það var bara þegar
viðskiptamennirnir fóra að gerast
erfiðir að allt fór úr böndunum."
Það var sú venja Aileen að stela
verðmætum af líkum fómardýr-
anna sem átti mikinn þátt að loks
tókst að leysa gátuna. Munirnir og
teikning, sem gerð var eftir lýsingu
vitna sem talið var að hefðu séö
morðingjann, urðu til þess að Ai-
leen gekk í net lögreglunnar.