Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991.
43
Trimm
Sólbaðsstofa Reykjavíkur í GYM 80:
Meirihluti stílar upp á
grenningu og vöðvaþjálfun
rafmagnsnudd einn kosturinn í líkamsræktinni
„Tækin eru afskaplega einíold og
straumurinn gerir það sem nuddari
gerir annars með fingrunum, það er
mergur málsins. Málið er að tengja
tækiö á rétta staði og hafa tilfinningu
fyrir þvi og hvaða kraft á að gefa og
annað. Nuddari þarf auðvitað að
kunna aö beita fingrunum og
straumurinn í rauninni leysir það
af hólmi varðandi vöðvabólguna.
Straumurinn fer sem sagt inn í vöðv-
ana og máhð er að kunna að raða
því upp. Það eru til staðlaðar myndir
fyrir stöðluð prógrömm og menn
þurfa náttúrlega að læra það. Þ.e. aö
vita hvað straumurinn gerir en þegar
menn eru búnir að vinna við þetta
er hægt aö spila eftir eyranu," sagði
Garðar Vilhjálmsson í samtaU við
DV.
í GYM 80 við Suðurlandsbraut 6
er Garðar VUhjálmsson með aðstöðu
fyrir svokallað Trimform eða raf-
magnsnudd en það er tæki sem er
hægt aö nota til grenningar og vöðva-
þjálfunar auk annarra möguleika.
Garðar, sem er reyndar eigandi Sól-
baðsstofu Reykjavíkur sem leigir
Straumurinn sem slíkur getur ekki
skaðað því hann er það lítill, segir
Garðar.
DV-myndir Brynjar Gauti
aðstöðu hjá GYM 80 undir starfsem-
ina, er með tvær vélar í takinu og
fyrirhugað er að bæta við enda er
eftirspurnin mikil. Stakur tími kost-
ar 1000 kr. en 10 tíma kort fæst á kr.
6500. Hver tími tekur hálftíma auk
þess sem einhverjar mínútur fara í
aö setja blöðkurnar á og taka þær af.
Líkamsræktartæki stjórnað
með straumi
„Kúnnar okkar eru flestir í vöðva-
þjálfun og grenningu og tækið er í
rauninni eins og hvert annað æfinga-
tæki. Þetta er eins og líkamsræktar-
tæki sem er þá stjórnað með straumi.
Þú sendir straum inn í vöðvana sem
skipar þeim að kreppa sem er nokk-
uð sem taugakerfið gerir þegar þú
ert að æfa en þannig byggirðu upp
vöðvana," segir Garðar þegar hann
útlistar fyrir blaðamanni út á hvað
þetta gangi. Sá sem mætir í tíma fær
settar á sig 24 blöðkur en straumur-
inn sem er geflnn er þó ekki eins og
úr innstungu, ef einhver skyldi hafa
staðið í þeirri meiningu.
„Þú færð straum og þetta er svona
hægt vaxandi. Ef fólk fmnur eitthvað
annaö en þennan þrýsting frá tækinu
þarf auðvitað að láta vita og það
brýnum við fyrir fólki enda verður
að hlýða líkamanum. Straumurinn
sem slíkur getur ekki skaðað því
hann er það lítill. Þetta er t.d. ekki
hættulegra en að fara út að hlaupa.“
Ábekk með blöðkur
í rafmagnsnuddinu gerir viðkom-
andi hlutina oftar heldur en t.d. í
tækjasal þvi hann þarf ekki að hafa
fyrir því að gera æfinguna en á móti
þjálfast ekki hjarta eða lungu.
Tíminn sem sagt felst í því að liggja
á bekk með blöðkurnar á sér og tæk-
ið sér síðan um að senda strauminn
sem á að gera allan þennan gæfu-
mun. Garðar sagði einnig að hver
tími hjá honum væri á við 6-8 stunda
þrekþjálfun og því augljóst að hér er
eitthvað á ferð fyrir annasama ís-
lendinga sem vilja halda sér í formi.
Garðar við rafmagnsnuddtækið og með blöðkurnar í hendinni. 24 slikar eru settar á þann sem mætir í timann en
eftir 10 slika á viðkomandi að geta notað 1-2 númerum minna i fatastærð.
Þetta hljómar þægilega en vekur
jafnframt upp þá spumingu hvort
harðsperrur séu út úr myndinni.
„Það tekur mánuð að koma vöðvun-
um í start og þó fólk fái harðsperrur
í tækinu fer það af í næsta tíma og á
síðan að heyra sögunni til. Það má
hka benda á það að við erum með
fullt af fólki sem kann ekki við að
fara í þolfími eða líkamsrækt,
kannski vegna feimni eða af öðrum
orsökum. T.d. þeir sem hafa fengið
hjartaáfall en tækið reynir ekkert á
það líffæri."
Púls ákveður straumboðin
Garðar telur upp fleiri hópa og
bendir á að þolfimin henti ekki öllum
til aö grennast og þjálfa vöðvana og
það er greinilegt á öllu að hann er
ekki hrifmn af öllum kennurum á
þeim bæjum. „Það eru margir sem
geta ekki haldið í við aðra í þessum
tímum enda vill brenna við aö
kennslu sé ábótavant fyrir byrjendur
í þolfimisölum borgarinnar." Hann
lætur sér þetta nægja um þolfimina
enda búið að varpa fram spumingu
um upphitunina.
„Allt sem heitir hreyfmg og teygjur
er æskilegt og það er auðvitað gott
aö hita upp. A tækinu hjá okkur er
púls sem ákveður hversu ört straum-
boðin fara í þig. Það getur verið frá
0,5-2 sek. en upphitunin er í rauninni
inni í tækinu. Þessi vöðvaþjálfun er
þannig að viðkomandi stífnar ekki
upp í tækinu en þaö er að sjálfsögðu
sniðugt að teygja vel á eftir því þetta
eru töluverð vöðvaátök."
Aðsóknin sannar árangurinn
Meirihluti þeirra sem nýta sér raf-
magnsnuddið er að stíla upp á grenn-
ingu og vöðvaþjálfun og í húsakynn-
unum er auglýsing þar sem segir að
árangur mælist m.a. í því að viðkom-
andi minnki um 1-2 fatanúmer á 10
tímum. Sjálfsagt þykir einhveijum
það hæpiö en Garðar fullyrðir að svo
sé og bendir á að aðsóknin sé besta
dæmið um það að rafmagnsnuddið
skili árangri. Aörir hópar leita einnig
1 þetta. T.d. þeir sem eru meö vöðva-
bólgu og eins þeir sem hafa lent í
óhöppum. íþróttamennirnir hafa
ennfremur nýtt sér þetta og má nefna
Einar Vilhjálmsson og Bjarna Frið-
riksson í því sambandi.
„Það er alls konar fólk sem kemur
hingað. Frá aldrinum 14-15 og sú
elsta er held ég 83 ára. Konurnar eru
reyndar í meirihluta en körlunum
virðist alltaf líða vel, alveg sama
hvemig þeir líta út,“ segir Garðar
aðspurður um þann hóp sem nýtn^
sér þessi tæki og bætir við að heil-
brigðisyfirvöld hafl ekkert við þau
að athuga og til marks um það eru
sjúkraþjálfarar og aðrir famir að
nota þetta töluvert.
-GRS
Trimmsíðan fylgist með rafmagnsnuddinu:
Ekki sárten
svolítið óþægilegt
- segir Nanna Dröfn Sigurdórsdóttir
í næstu viku verður sagt frá útkomunni eftir þessa 10 tíma sem Nanna
kemur til með að fara í. DV-mynd Hanna
„Stúlka sem ég þekki hefur farið í
þetta og hún fór aö tala um hvað
þetta heföi borið góöan árangur. Hún
sagðist hafa fundið mikinn mun á sér
og þá langaði mig til að prófa þetta,"
sagði Nanna Dröfn Sigurdórsdóttir í
samtali við DV en hún er nú í „með-
ferð“ hjá Garðari Vilhjálmssyni í
rafmagnsnuddinu og hefur' gefið
Trimmsíðunni góðfúslegt leyfi til aö
fylgjast með útkomunni.
„Þegar ég kom í fyrsta tímann byij-
aöi Garðar á því að mæla mig og síð-
an var ákveðið hvar ætti að taka af
og styrkja mig til að fá betri vööva.
Síðan voru settar á mig breiðar teygj-
ur þar sem blöðkurnar komu og þá
lagðist ég á bekk og straumurinn var
settur á.“
Nanna leggur áherslu á lærin og
mjaðmirnar líkt og flestar konur en
hvernig tilfinning er þaö þegar
straumurinn er settur á?
„Það var voða skrítin tilfmning.
Það var eins og mig kitlaði, nokkurs
konar seiðingur. Eg hélt að þetta
væri bara svona þægilegt en þá setti
Garðar meiri straum á þangað til
hann var ánægður með þetta.“
Þegar talað er um rafmagn og
straum dettur væntanleg einhveij-
um sársauki í hug en hvað fannst
Nönnu?
„Þetta er ekki sárt en svolítið
óþægilegt en þetta venst. Þetta er
skrítið því ég sá vöðvana vinna und-
ir blöðkunum. Þetta er ekki stans-
laus straumur en þegar þetta fer af
stað sér maður vöðvana vinna. Fæt-
urnir voru uppi á púöa og þeir kippt-
ust aðeins til og eftir þennan fyrsta
tíma fékk ég dúndrandi harðsperrur
enda var hreyft við vöðvum sem hafa
kannski verið óhreyfðir nokkuð
lengi."
Svo mörg voru þau orð um þennan
fyrsta tíma sem Nanna fór í. Þegar
þetta blað kemur út verður hún rúm-
lega hálfnuð í þessari 10 tima „með-
ferð“ en á næstu Trimmsíðu eftir
viku heyrum viö hljóðið í henni að
afloknu prógramminu. Þá kemur
væntanlega í ljós hvort þetta hefur
skilað Nönnu tijætluðum árangri eða
ekki.
-GRS