Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Síða 46
'58 Afmæli LAUGAEÐAGUR 12. OKT0RER:1991. 33 V Þórarinn Þór Þórarinn Þór, fyrrv. prófastur, nú til heimilis aö Borgarheiði 13, Hverageröi, verður sjötugur á morgun. Starfsferill Þórarinn fæddist á Akureyri og ólst þar upp og í Kelduhverfi. Hann lauk stúdentsprófi frá MA1943 og > embættisprófiíguðfræöifráHÍ 1948. Þórarinn var prestur á Reykhól- um 1948-69, á Patreksfirði 1969-87 og aftur frá apríl og fram í septemb- er 1989. Hann var prófastur í Barða- strandarprófastsdæmi 1960-87. Á förutíu ára prestsskaparárum sín- um þjónaði hann við allar fjórtán kirkjur prófastsdæmisins í lengri eða skemmri tíma, gegndi auka- þjónustu í Flateyjarprestakalli í fjórtán ár, í Brjánslækjarprestakalli í tuttugu ár, í Sauðlauksdalspresta- kalli í átján ár og í Bíldudalspresta- kalli í fimm ár. Þórarinn var kennari á unglinga- stigi í tuttugu ár og skólastjóri Ungh ingaskólans á Reykhólum 1959-69 . ; sem þá var oftast haldinn á heimili prestsins. Hann var kennari við fðn- skólann á Patreksflrði í tólf ár og skólastjóri hans 1969-76. Þá var hann formaður fræðslunefndar Austur-Barðastrandarsýslu 1958-69 og sát í skólanefnd á sama tíma. Hann sat í sáttanefhd í fjörutíu ár, sat í stjórn Eyrasparisjóðs 1970-87 og var kosinn stjórnarformaður hans 1987. Fjölskylda Þórarinn kvæntist 16.3.1946 Ingi- björgu Jónsdóttur Þór, f. 21.1.1927, d. 29.10.1978, hárgreiðslumeistara. Hún var dóttir Jóns Gíslasonar, múrara í Reykjavík, af Jötuætt, og Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður, frá Hafþórsstöðum í Norðurárdal. Börn Þórarins og Ingibjargar eru Vilhelmína Þór, f. 6.8.1946, ritari í Reykjavík, var gift Magnúsi Sig- urðssyni rafvirkja sem lést 10.7.1973 og eignuðust þau þrjú börn en seinni maður Vilhelmínu er Bjarni Jóns- son, löggiltur endurskoðandi frá Selfossi; Jónas Þór, f. 6.10.1948, raf- virki á Patreksfirði, kvæntur Onnu S. Einarsdóttur og eiga þau tvö börn; MargrétÞór, f. 11.10.1953, verslun- arstjóri á Patreksfirði, var gift Reyni Finnbogasyni, útvegsmanni á-Pat- reksfirði, og eignuðust þau tvær dætur en Margrét er nú gift Sigurði Pálssyni, kennara á Patreksfirði, og eigaþautvo syni. Albróðir Þórarins var Arnaldur Þór, f. 23.2.1918, d. 22.10.1988, garð- yrkjubóndi á Blómvangi í Mosfells- sveit, var kvæntur Kristínu Jens- dóttur og eignuðust þau þrjú börn. Alsystur Þórarins; Guðrún Ólöf Þór, f. 19.4.1919, var gift Herði Þór- hallssyni, viðskiptafræðingi í Reykjavík, sem lést 1959 og eignuð- ust þau fimm börn; Guðlaug Kristín Þór, f. 19.9.1924, hjúkrunarfræðing- ur í Reykjavík, og á hún eina dóttur. Hálfbróðir Þórarins, samfeðra: Jónas Þórir Björnsson, f. 4.12.1909, lengi vélmeistari á Gefjun, nú í Hveragerði, kvæntur Huldu Stef- ánsdóttur frá Akureyri og eiga þau fjóra syni. Foreldrar Þórarins voru Jónas Þór, f. 8.9.1881, d. 6.11.1951, verksmiðjustjóri á Gefjun á Akur- eyri, og Helga Kristinsdóttir Þór, f. 29.6.1889, d. 18.1.1928, húsmóðir. Ætt Jónas var sonur Þórarins Jónasar, b. að Brekku í Svarfaðardal, Jónas- sonar, kenndur við Sigluvík, Jóns- sonar, b. á Tjörn, Þórarinssonar, prests á Tjörn, Sigfússonar, prests á Felli í Sléttuhlíð, Sigurðssonar, prests á Barði í Fljótum, Einarsson- ar, prófasts og skálds í Heydölum, Sigurössonar. Móðir Þórarins í Brekku var Margrét Þórarinsdóttir frá Vígastöðum. Móðir Jónasar Þór var Ólöf Margrét Þorsteinsdóttir Thorlacius, hreppstjóra á Öxnafelli, bróður Hallgríms, langafa Davíðs ólafsson- ar, fyrrv. seðlabankastjóra. Þor- steinn var einnig bróöir Jóns, afa Kristjáns, fyrrv. formanns BSRB, og Birgis, fyrrv. ráðuneytisstjóra, Thorlacius. Þorsteinn var sonur Einars Thorlacius, prests að Saurbæ í Eyjafirði, og Elínar Háll- grímsdóttur Thorlacius, sýslu- manns í Suður-Múlaþingi, Jónsson- ar, sýslumanns í Berufirði, bróður Þórðar, biskups í Skálholti. Jón var sonur Þorláks, biskups á Hólum, ættfööur Thorlaciusættarinnar, Þórarinn Þór. Skúlasonar. Móðir Þorláks var Steinunn Guðbrandsdóttir, biskups á Hólum, Þorlákssonar. Móðir Ein- ars, prests í Saurbæ, var Ólöf, systir Þorsteins, afa Jónasar Hallgríms- sonar skálds og Snjólaugar, ömmu Jóhanns Sigurjónssonar skálds. Móðir Þorsteins var Margrét, systir Álfheiðar, móður Helga Hálfdánar- sonar lektors, föður Jóns biskups. Helga var dóttir Kristins, b. á Krónustöðum, Jósefssonar, b. þar Sigurðssonar, b. í Suður-Tjarnar- koti, Flóventssonar. Móðir Helgu var Guðlaug Stefanía Benjamíns- dóttir frá Stekkjarflötum. Þórarinn tekur á móti gestum á heimili dóttur sinnar í Dalseh 7, Seljahverfi, á afmæhsdaginn kl. 17.00. Ríkharöur Jónsson Ríkharður Jónsson fiskmatsihaður, Ólafsbraut 38, Ólafsvík, verður sex- tugurámorgun. Starfsferill Ríkharður fæddist í Færeyjum og ólst þar upp. Hann lauk almennu barna- og unglinganámi í Færeyj- um, lærði síðan skipstjórnarfræði hér á landi og er með skipstjórnar- réttindi á þrjátíu tonna báta. Þá stundaði hann nám við Fiskvinnslu skólann og er með réttindi í skreið- ar-, saltfisks- og ferskfisksmati, auk þess sem hann er með meirapróf bifreiða. Ríkharöur stundaði sjómennsku í Færeyjum 1946-54. Hann flutti til íslands 1954 og hefur búið í Ólafsvík síðan. Hann stundaði sjómennsku hér til 1956 en stundaði síðan ýmis störf í landi til 1966. Þá fór hann aftur th sjós og var jafnframt um skeið útgerðarmaður en kom aftur í land 1978 og hefur síðan stundaö ýmis störf í landi. Hin síöari ár hef- ur hann einkum stundað fiskmat í Ólafsvík og viðar á Snæfellsnesinu. Ríkharður hefur setið i Sjómanna- dagsráði Ólafsvíkur í mörg ár, hefur starfað mikiö í Framsóknarfélagi Ólafsvíkur og sótt fundi og ráðstefn- ur á vegum flokksins. Hann er fé- lagi í Fiskmatsmannafélagi íslands og varamaður í deild Verkstjórnar- félagsins á Snæfellsnesi. Þá situr hann í Umferðarnefnd Ólafsvíkur- kaupstaðar. Fjölskylda Ríkharður kvæntist 1962 Ingveldi Magnúsdóttur, f. 21.12.1930, hús- móður. Hún er dóttir Magnúsar Kristjánssonar, trésmiðs í Ólafsvík, og Katrínar Eyjólfsdóttur húsmóð- ur. Dóttir Ríkharðs og Ingveldar er Katrín Ríkharðsdóttir, f. 17.1.1956, húsmóðir í Ólafsvík, gift Stefáni R. Egilssyni, f. 3.10.1954, vélstjóra, og er dóttir þeirra Hafdís Stefánsdóttir, f. 10.7.1977. Systkini Ríkharðs hafa öll veriö búsett í Færeyjum. Þau eru Hugo, Ríkharður Jónsson. f. 1928, nú látinn; Albin, f. 1933; Jó- hannes, f. 1935; María Margurita, f. 1937. Foreldrar Ríkharðs voru Jón Jó- hannesson, f. 1898, d. 1973, sjómaöur í Sakum í Færeyjum, og Samulína Poulsen, d. 1965, húsmóðir. Símon Maggi Ágústsson. Símon Maggi Ágústsson Símon Maggi Ágústsson vélfræö- ingur, Bakkatúni 16, Akranesi, verður sjötugur á morgun. Símon Maggi fæddist í Reykjavík og ólst upp á Akranesi. Hann lærði vélvirkjun, stundaði nám við Iðn- skólann á Akranesi og við Vélskól- ann í Reykjavík. Símon Maggi var til sjós á ungl- ingsárunum. Hann starfaði síðan við Hvalstöðina í Hvalfirði í tuttugu ár og í tuttugu og fimm ár við Sem- entsverksmiðju ríkisihs. Símon Maggi kvæntist 11.10.1947 Anneyju Bylgju Þorfinnsdóttur, f. 27.3.1927, húsmóður og starfsstúlku við Sjúkrahús Akraness. Hún er dóttir Þorfinns Hanssonar og Svan- hildar Kristjánsdóttur. Símon er sonur Ágústs Einarsson- ar, verslunarmanns í Reykjavík, og konu hans, Margrétar Ólafsdóttur frá Deild. 151! SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Óskað er eftir skrifstofuhúsnæði í miðbæ Reykjavíkur eða næsta nágrenni til leigu eða kaups. Stærð 1000- 3000 m2. Tilboð berist.skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir föstudaginn 18.10.91. ll\ll\IKAUPASTOFI\IUI\l RIKISIIMS BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK FIMMTI GÍR í ÞÉTTBÝLI! UUMFERÐAR RÁÐ Til hamingju með afmælið 12. október 75 ára Þverási 16, Reykjavík. Friðfínnur Kristj ánsson, Hvammi, Húsavík. Lauritz Karlsson, Steinhojtsvegi 5, Eskifirði. Pálmi Ólafsson, Holti 1, Torfalækjarhreppi. Guðný Pálsdóttir, Skjaldbreið 1, Hofshreppi. 40 ára Guðmundur R. Sighvatsson, Kópavogsbraut 47, Kópavogi, Snæbjörn Reynisson, Austurgötull, Hofshreppi. Margrét S. Traustadóttir, Borgarheiði 6h, Hveragerðis- hreppi. Gísli Viðar Steindórsson, Tungusíðu 18, Akureyri. 70ára Klara Olsen Árnadóttir, Faxabraut 6, Keflavik. Þórdís Kristinsdóttir, Granaskjóli 28, Reykjavík. Sigrún Þórarinsdóttir, 60 ára Hliðarvegi 44, Kópavogi. Loftur Sigvaldason, Kóngsbakka9, Reykjavík. Karin M. Sveinbjörnsdóttir, Melasíðu 8m, Akureyri. Stanko Jerman, Frakkastíg 12a, Reykjavík, Sævar Þór Finnbogason, Löngumýri21, Garðabæ. Ingunn Guðmundsdóttir, Jórutúni 8, Selfossi. Edda Hjörleifsdóttir, Sólvöllum 1, Stokkseyrí. Einar Sæberg Helgason, Hvammi, Hólshreppi. Kristín Elísdóttir, Ástúni2,Kópavogi. Stefanía Stefánsdóttir, Digranesvegi 89, Kópavogi. 50ára ÞóraBjörnsson, Tunguvegi 17, Reykjavík. Gísli Þorvaldsson, Kambaseli 39, Reykjavík. Elin Sigurðardóttir, Safamýri 33, Reykjavík. Til hamingju með afmælið 13. október 90 ára 50 ára Anna Guðmundsdóttir, Borgarbraut 25a, Borgameshreppi. Guðríður Jónsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavik. Ingólfur Hjaltalín, Þrándarseli 2, Reykjavík. Jóhanna Þorkelsdóttir, Lækjarseli 9, Reykjavík. Edda Imsland, 85 ára Bröndukvísl 6, Reykjavík. Baldur Matthíasson, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Lambhaga 2, Selfossi. Vallargötu23, Sandgerði. Baldur tekur á móti gestum í Slysa- varnahúsinu í Sandgerði á milli kl. 75 ára 18 og 21 á afmælisdaginn. 40 ára Helga Magnúsdóttir, Hjaltabakka 26, Reykjavik. Fritz M. Bjarnason, 70 ára Mýrarseli 2, Reykjavik. Helgi Eiríksson, Bæjargili 11, Garðabæ. ViIbergKarlsson, Noröurgaröi 10, Keflavík. Ellert Stcindórsson, Granaskjóli 56, Reykjavík. Sigurður Þorvarða rson, Bakka, Kjalarneshreppi. Bragi Þorsteinsson, Freyjugötu 30, Reykjavík. 60 ára Geithömrum 3, Reykjavík. Gunnar Hannesson, Tröð, Grímseyjarhreppi. Björg Sigríður Kristjánsdóttir, Breiövangi 22, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.