Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Side 51
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991.
63
Sviðsljós
ElísabetTaylor gekk í hjónaband síðastliðinn laugardag:
Ástin blómstrar
hjá stórstjömunni
Fáir eiga jafnviðburðaríka ævi að baki og stórstjarnan Elísabet Taylor
sem verður sextug i febrúar.
Hún er sú síðasta af stóru stjömun-
um og er énn, tæpum fimmtíu
árum eftir að hún byijaði að leika,
súperstjama. Það er auðvitað eng-
in önnur en Elísabet Taylor sem
um er rætt. Það var áriö 1943 sem
Elísabet lék í sinni fyrstu mynd um
hundinn Lassie. Það var einnig árið
1943 sem blöð byrjuðu að fjalla um
þessa sérstæðu stjörnu allra tíma.
Fyrsta fréttin var um fótbrot henn-
ar við upptöku. Ári seinna var hún
aftur í sviðsljósinu er hún datt af
baki í upptökum á myndinni Natio-
nal Velvet. Hún skaðaði hrygginn
og hefur aldrei náð sér eftir það
fall. Elísabet Taylor er lunkin við
að halda sér í sviðsljósinu og um-
talið um hana er ekki alltaf upp á
það besta. Hún hefur fengið ýmsa
sjúkdóma, flensur, vírusa og fleira
í þeim dúr og um allt það hefur
verið fjallað samviksusamlega í
heimspressunni.
Drykkju- og
offituvandamál
Drykkju og pilluvandamál Elísa-
betar vita allir um og einnig að hún
er gjörn á að fitna úr hófi á stuttum
tíma en verða aftur grönn og falleg
á álíka stuttum tíma. Lýtalækning-
ar Elísabetar hafa heldur ekki ver-
ið leyndarmál né heldur ástarmál-
in.
Það er byggingameistarinn Larry
Fortensky, 39 ára gamall, sem er
sá heppni. Blöðin hafa komist á
snoðir um að hann hafi setið í fang-
elsi fjórum sinnum. Þrátt fyrir það
segist Elísabet, sem verður sextug
í febrúar nk., vera yfir sig ástfangin
og hún hafi vitað í fjögur ár að með
honum vildi hún eyða restinni af
lífinu. Fyrrverandi eiginkona Fort-
enskys er undrandi á aö þau skuli
hafa getað verið svo lengi saman
því hún segir að hann sé ekki við
eina fjölina felldur í kvennamálum
frekar en öðru. Larry Fortensky
var á Betty-Ford meðferðarstofn-
uninni samtíða Elísabetu en það
var einmitt þar sem þau kynntust.
„Hann virkaði svo sorgmæddur
og hjálparlaus að ég fékk sting í
hjartaö," segir Elísabet um það
þegar hún sá Larry fyrst. „Við sát-
um saman í hópmeðferð og þá sá
ég hvers konar maður hann er,“
segir hún.
Sagt er að stuttu síðar hafi Larry
flutt heim til Elísabetar í milla-
hverfið í Beverly Hills þar sem
næstu nágrannar eru Nancy og
Ronald Reagan. Elísabet klæddi
hann upp og gaf honum nýjan
Pontiac Sunbird og lét hann þar að
auki hafa mánaðarlaun. „Larry er
fyrsti karlmaöurinn sem ég hef hitt
um langan tíma sem umgengst mig
sem KONU,“ útskýrir Elísabet.
Móðirin bjó
til stjömu
Móðir Elísabetar, Sara Taylor,
var allt frá því dóttirin fæddist
ákveðin í að gera hana að sfjömu.
Hún lét hana klæðast fallegum og
dýrum kjólum, setti hana í dans
og söngtíma. Elísabet átti að veröa
stjarna eins og Shirley Temple.
Draumurinn rættist og tólf ára
gömul var Elísabet heimsfræg
stjama. Hún hafði svo mikið að
gera við upptökur á kvikmyndum
að skólagangan fór fyrir bí. Og
móðirin sat alltaf bakvið mynda-
vélina og fylgdist með. Blöðin
fylgdust með ævintýrinu en leist
ekki á. Brátt mátti lesa um litlu
heimsku stelpuna, sem var búið að
eyðileggja með dekri, á forsíðum
blaðanna.
Þaö var móðirin sem ákvað að
Elísabet ætti að gifta sig átján ára
og það varð úr. Það var glaumgos-
inn og hótelerfinginn Nicky Hilton
sem var fyrsti eiginmaður stjöm-
unnar. Ehsabet hélt að hún gæti
breytt honum þegar þau væm gift.
Þau fóra í brúðskaupsferð til Evr-
ópu. Ekki leið langur tími þar til
fréttir bárast um magasár Elísabet-
ar og að brúðguminn héldi sig
meira í spilavítum en hjá helsjúkri
konu sinni. Hjónabandið var gjör-
samlega misheppnað en við skiln-
aöinn fékk Elísabet hvítan minkap-
els, demantshring, Cadillac og
fleira. Samt liðu einungis tuttugu
dagar þar til Elísabet gekk aftur í
hjónaband.
Giftogskilin
Hún hafði kynnst leikaranum,
Michael Wilding, sem var tuttugu
áram eldri, er hún kom til baka til
Bandaríkjanna. Þau eignuðust tvö
böm saman, synina Michael og
Christopher. Báðir vora teknir
með keisaraskurði en Elísabet var
valin móðir ársins í Bandaríkjun-
um.
Þegar Elísabet hins vegar hitti í
fyrsta skipti Michael Todd, sem
stóð á bakvið myndina Umhverfis
jörðina á 80 dögum, leið ekki langur
tími þar til hún bað um skilnað.
Þremur dögum eftir skilnaðinn var
hún gengin í hjónaband með Mike
Todd. Hún varð fljótlega ófrísk
þrátt fyrir að læknar hefðu bannaö
henni þaö vegna hryggjarskaðans.
En Elísabet lét sér ekki segjast og
lá mestan hluta af meðgöngunni.
Dóttirin Liza kom í heiminn með
keisaraskurði og varð mesta gleði
foður síns. Elísabet og Mike vora
hamingjusöm og þar sem þau
höfðu gift sig á laugardegi fékk hún
ávallt gjafir frá honum á þeim dög-
um. Það voru demantsskartgripir,
pelsar jafnvel Rolls Royce. Ári síð-
ar fór Mike til New York til aö taka
á móti verðlaunum sem „maður
ársins" en Elísabet komst ekki meö
vegna flensu. Mike fór með einka-
flugvélinni „Heppna Liz“ sem
hrapaði á leiðinni með þeim afleið-
ingum að allir sem í henni vora
létust. Öll heimsbyggðin fylgdist
síðan með hinni syrgjandi ekkju,
Elísabetu Taylor.
Stakk undan
Debbie Reynolds
Hún fékk þó sína huggun hjá
söngvaran Eddie Fisher sem síðar
varð eiginmaður hennar. Hann og
eiginkona hans, Debbie Reynolds,
höfðu verið vinafólk Elísabetar og
Mike. Reyndar höfðu Eddie og
Debbie verið álitin hamingjusam-
asta par í Hollywood og þess vegna
urðu margir reiðir er hann tók sér
Elísabetu fyrir konu og skildi við
Debbie.
Elísabet fékk marga alvarlega
sjúkdóma á þessum árum og hún
ávann sér á ný samúö heimsins.
Þegar hún komst á fætur á nýjan
leik kom annað hneyksli upp. El-
ísabet fékk hlutverk í kvikmynd-
inni Kleópötru sem er frægust fyrir
aö vera dýrasta mynd sem gerð
hefur verið og þar kynntist hún
næstu ástinni, leikaranum Richard
Burton.
Lifað í lúxus
Flestir muna eftir ástarævintýr-
um Elísabetar og Richards en þau
giftu sig tvisvar sinnum. Það má
segja að hjónabönd þeirra séu þau
frægustu í Hollywoodsögunni. El-
ísabet og Richard þénuðu milljónir
en allir þeirra peningar fóru í
eyðslu á lúxusvarningi. Þau lifðu
hærra en nokkurt kóngafólk og
Richard gaf Elísabetu dýrasta de-
mant í heimi sem frægt varð, Elísa-
bet og Richard vora gift í fyrra
skiptið í tíu ár og þrjá mánuði en
aðeins níu mánuði í það síðara.
Þetta'var þó ekki síöasta hjóna-
band Elísabetar Taylor. Og í millit-
íðinni bárust stöðugt nýjar fréttir
af ástarsamböndum hennar við
hina ýmsu frægu menn. Það var
árið 1976 sem hún gekk í hjónaband
með stjórnmálamanninum John
Warner. Sumir töldu að það hjóna-
band hefði einungis komið til vegna
þess að Elísabet hélt að John Warn-
er yrði forsetaefni Bandaríkjanna
og hún þá komin í Hvíta húsið áður
en langt um liði. Það gekk ekki eft-
ir og árið 1982 skildu þau.
Elísabet hefur á undanfornum
árum helst verið í fréttum vegna
drykkju- og offituvandamála. Sög-
ur um ástarsambönd hafa þó alltaf
skotið upp kolhnum.
‘fceeMMis
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900
EFST Á BAUGI:
Al ÍS -J. f: XSIv RÆ :ði
ORDAISOKIX
Japan
Opinb. heiti: Nippon
Stjómarfar: þingbundin keisarastjgm
Höfuðborg: Tókýó, 8,38 mljó.íb.
Stærð: 377J0I km2
íbúafjöldig9 123 mljó.
íbúadreif^ 325,8 íb./km1
Ævilikur karlar 75,9 ár, konur 82,1 ár
Helstu trúílokkar: flestir Japanir aðhyllast
bæði sintotrú (90%) og búddhatrú (76%)
Tungumál: japanska (opinb.)
Helstu útílv.: vélknúin (lutninga- og farar-
tæki, rafeindatæki, vélar, jám, stál
Helstu viðskiptal.: Bandar., V-Þýskal.,
Suður-Kórea
VÞFáíb. S15 030
Gjaldmiðill: yen= 100 sen
Veður
I dag verður norðan- og norðaustankaldi
í fyrstu austast á landinu en annars breytileg átt eða
suðvestangola. Skúrir eða slydduél verða suðvestan-
og vestanlands en austast á landinu verður rigning
eða súld
en léttir til fyrir noröan og austan.
Hiti verður á bilinu 4-8 verður vægt frost. stig i dag en víða
Veðrið kl. 6.00 i gærmorgun.
Akureyri hálfskýjaö 3
Egilsstaðir rigning 2
Keflavikurflugvöllur hálfskýjað 3
Kirkjubæjarklaustur léttskýjaö 4
Raufarhöfn alskýjað 4
Reykjavík skýjaö 2
Vestmannaeyjar léttskýjað 5
Bergen alskýjað 8
Helsinki þoka 7
Kaupmannahöfn þoka 11
Úsló þoka 8
Þórshöfn hálfskýjað 9
Amsterdam léttskýjað 10
Chicago alskýjað 10
Frankfurt skýjað 15
Glasgow skýjað 11
London skýjað 15
Lúxemborg skýjað 13
Madrid léttskýjað 15
New York alskýjað 23
Nuuk rigning 10
Orlando léttskýjað 24
París þokumóða 17
Róm þokumóða 18
Valencia þokumóða 21
Vin léttskýjað 14
Gengið
Gengisskráning nr. 194. -11. okt. 1991 kl. 9.15
Eining
Kaup Sala Tollgengi
Dollar
Pund
Kan. dollar
Dönsk kr.
Norsk kr.
Sænsk kr.
Fi. mark
Fra. franki
Belg. franki
Sviss. franki
Holl. gyllini
Þýskt mark
It. líra
Aust. sch.
Port. escudo
Spá. peseti
Jap. yen
Irskt pund
SDR
ECU
59,850
102,688
53,019
9,1661
9,0258
9,6954
14,4793
10.3708
1,7151
40.3587
31,3589
35,3306
0,04725
5,0210
0,4107
0,5589
0,46033
94,404
81,5121
72,3437
60,010
102,962
53,160
9,1906
9,0499
9,7214
14,5180
10,3985
1,7197
40,4666
31,4427
35,4250
0,04738
5,0344
0,4118
0,5603
0,46156
94,657
81.7300
72,5371
59,280
103,900
52,361
9,2459
9,1172
9,7749
14,6678
10,4675
1,7312
40,9392
31,6506
35,6732
0,04767
5,0686
0,4121
0,5633
0,44682
95,319
81,0873
72,9766
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
11. október seldust alls 11,444 tonn.
Magn í Verö í krónum
tonnum Meóal Lasgsta Hæsta
Blandað 0,121 65,00 65,00 65,00
Gellur 0,019 315.00 315,00 315,00
Keila 0,357 43,83 35,00 54,00
Langa 1,037 77.37 67,00 79,00
Lúða 0,557 410,70 360,00 500,00
Lýsa 1,182 60,00 60,00 60,00
Skata 0,013 190,00 190,00 1 90,00
Skarkoli 0,024 20,00 20,00 20,00
Steinbítur 0,338 99,21 99,00 100,00
Þorskur, sl. 3,473 98,22 89,00 115,00
Þorskur, ósl. 0,079 96,00 96,00 96,00
Ufsi 0,202 69,00 69,00 69,00
Undirmál. 0,249 75,61 75,00 79,00
Ýsa.sl. 1,421 128,81 79,00 159,00
Ýsa, ósl. 2,398 111,98 100,00 137,00
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
11. október seldust alls 7,464 tonn.
Ýsa.ósl. 4,539 113,42 108,00 117,00
Þorskur, ósl. 0,517 87,48 86,00 95,00
Lýsa, ósl. 1,008 40,00 40,00 40,00
Steinbltur 0.123 60,00 60,00 60,00
Koli 0.026 88,00 88,00 88,00
Ýsa 0.831 123,44 113,00 129,00
Þorskur 0,415 96,77 95,00 97,00
Fiskmarkaðurinn i Þorlákshöfn
11. október seldust alls 14,245 tonn.
Blandað 0,020 50,00 50,00 50,00
Karfi 2,047 51,00 51,00 51,00
Keila 2,326 56,57 20,00 57,00
Langa 1,266 73,49 63,00 77,00
Lúöa 0,084 406,47 40,00 430,00
Skata 0,037 103,57 103,00 109,00
Skötuselur 0,025 387,20 285,00 650,00 '
Steinbitur 0,090 85,00 85,00 85,00
Þorskur, sl. 0,434 96,00 96,00 96,00
Þorskur, ósl. 0,113 96,00 96,00 96,00
Ufsi 0,506 59,00 59,00 59,00
Undirmálsf. 0,028 60,00 60,00 60,00
Ýsa, sl. 7.043 132,42 123,00 135,00
Ýsa, ósl. 0,227 123,00 123,00 123,00
Fiskmarkaður Isafjarðar
11. október seldust alls 2,939 tonn.
Bland. 0,016 18,00 18,00 18,00
Hlýri 0,078 94,00 94,00 94,00
Lúða 0,196 459,72 310.00 595,00
Steinbítur 0,367 104,00 104,00 104,00
Tindaskata 0,047 20,00 20,00 20,00
Þorskur 0,665 96,27 87,00 99,00
Undirmál. 0,182 67,00 67,00 67,00
Ýsa 1,388 111,76 99,00 117,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
11 október seldust alls 89.305 tonn.
Tindaskata
Lýsa
Undirmál
Blandað
Blálanga
Lúða
Langa
Ýsa
Langlúra
Ufsi
Þorskur
Slld
Keila
0,035
1,350
0,150
0,060
0,119
0,020
4,765
21,158
0,075
1,810
16,726
40,000
3,073
10,00
57,53
93,00
43,33
88,00
36,00
66,64
112,06
30,00
53,41
108,12
8.46
48,12
10,00
40,00
93,00
40,00
88.00
36,00
63,00
50,00
30,00
40,00
75,00
8,30
20,00
10,00
79,00
93.00
45,00
88,00
36.00
70,00
124,00
30,00
60,00
134,00
9,00
56,00
'iir