Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1991, Page 32
FRÉT
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1991.
Kristján Ragnarsson:
Betra en á
horfðist
-- „Það litla sem maður hefur heyrt
af þéssum samningi er til bóta. Þetta
er mun betra en á horfðist fyrir helgi.
Ég treysti mér ekki til að segja neitt
frekar um þennan samning fyrr en
ég hef kynnt mér hann betur,“ segir
Kristján Ragnarsson, formaður LIÚ,
um EES samninginn.
Kristján segir menn vart hafa búist
við að markaðsaðgangur næðist fyrir
95 prósent af íslenskum útílutningi.
Margt sé þó enn óljóst varðandi þetta
enda myndi tollfrelsið taka gildi í
áfóngum. Þá segir hann það sigur að
tollfrelsi hafi fengist fyrir söltuð síld-
arflök enda hafi saltsíldarmarkaðir
í austri lokast að undanförnu. -kaa
' ** Fiskvinnslustöðvarnar:
Þokkalega sáttur
„Eins og þetta lítur út núna sýnist
mér að við getum verið þokkalega
sáttir við þá niðurstöðu sem þarna
er komin,“ sagði Arnar Sigurmunds-
son, formaöur Samtaka fiskvinnslu-
stöðvanna, um nýja EES-samning-
inn.
„í gær leit þetta mun verr út með
síldina," sagði Arnar enn fremur.
^Nú eru saltsílarflökin þó komin inn
og það skiptir töluverðu máli. Ég
hefði að vísu viljaö sjá síldina meira
inni í þessum samningi, en þetta er
verulegur áfangi sem hefur náðst."
-JSS
ESS samningurinn:
Mesturábati
í saltfiski
Ljóst er að ábati okkar íslendinga
vegna samninga um evrópskt efna-
hagssvæði liggur í saltfiski og söltuð-
um flökum og saltsíldarflökum.
Tollur af saltfiski hefur verið 13
/jjsrósent en fer niður í 7,8 prósent
áriö 1993. Ákveðinn kvóti með lægri
tolli hefur þó alltaf veriö en hann
hefur farið minnkandi ár frá ári og
tollurinn verið mishár. Tollur af sölt-
uðum flökum hefur verið 20 prósent
en fer niður í 8 prósent. Tollur á síld-
arflökum hefur verið 10 til 12 prósent
en fer niöur í 4 til 5,2 prósent. Þetta
er mjög þýðingarmikið atriði vegna
þess að menn eru í æ ríkari mæli að
fara út í framleiðslu á saltsíldarflök-
um i stað heilsaltaðrar síldar.
Tollur á ferskum fiski hefur verið
2 til 3,7 prósent og 3,7 prósent á heil-
frystum fiski. Fryst flök hafa veriö
tollfrjáls sem og rækja, lýsi og lag-
meti.
-yÞannig snertir þessi samningur
fyrst og fremst saltfiskvinnsluna sem
ogsaltsíldarflakavinnslu. -S.dór
LOKI
Það hafa allirsigrað
í Lúxemborg!
Virðist skarra
en búist var við
- segir Eyjólfur Konráð - efasemdir hjá stjómarandstöðu
„Það er erfitt að meta árangurinn réttindi til að stunda hér vinnu og ist ekki geta tjáð sig um samning-
afþessum viðræðum þar sem utan- fjárfesta. Það er mikiii misskilning- ana snemma í morgun, hann ætti
ríkismálanefnd Alþingis var haidið ur að halda það aö við fáum alit eftir að kynna sér efni þeirra.
algerlega utan við þessa samninga. og þeir ekkertsagði Ólafur Ragn- „Ég er ekkert sátt við þennan
Það voru haidnir tveir fundir í ar Grímsson við DV í morgun. samning. Þeir hafa náð því út úr
nefndinni í gær. Þar fullvissaði Eyjólfur Konráð Jónsson, for- honum sem við höiðum að mörgu
formaður nefndarinnar okkur um maður utanríkismálanefndar, leyti vonast eftir en það breytir alls
að hann heföi fengið margítrekaðar sgðist ekki geta tjáð sig efnislega ekki eðii samningsins og þeim fjöl-
yfirlýsingar frá utanríkisráðherra um samninginn en sagði þó: „Við mörgu þáttum sem í honum eru
um að ekki yrðu gerðir neinir fyrstu sýn virðist þetta skárra en fyrir utan fiskinn. Þar má nefna
samningar nema þeir yrðu bornir við höfum búist við.“ Fundur í ut- að við þurfum að lögtaka 1400 laga-
undir utanríkismáianefnd. Það anríkismálanefnd var boðaður gjörningaEvrópubandaiagsinsauk
hefur ekki verið staðiö við þá yfir- klukkan tíu í morgun. Átti að fá hins mikla vaidaframsais sem í
lýsingu og þvi höfum við ekki getaö upplýsingar um samningana og samningunum felst,“ sagði Ingi-
fylgst með málinu nánar en a'- bera þá undir nefndina. Fyrr heföi björg Sólrún Gísladóttir og tók
menningur. Miðað við fréttir fa ís- það ekki verið hægt þar sem engir . fram að hún þekkti ekki nákvæm-
lendingar ákveðin réttindi í sjávar- úrslitakostir hefðu verið á borðinu lega innihald samningsins.
útvegi en útlendingar fá stórkost- fyrr en nú. -hlh
leg réttindi í íslensku efnahagslífi, Steingrímur Hermannsson sagð-
Mikið tjón var unnið þegar 28 rúður voru brotnar í Hjallaskóla í Kópavogi á sunnudagskvöld. Þrír
drengir, um tíu ára gamlir, hafa orðið uppvísir að skemmdarverkunum. Myndin var tekin í morgun
þegar nemendur virtu fyrir sér skemmdirnar. DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Bjart
áAustur-
landi
Á morgun verður suðvestanátt,
víðast gola eða kaldi en stinning-
skaldi vestast á landinu. Súld eða
þokuloft á Suðvestur- og Vestur-
landi en bjart um landið austan-
vert. Hiti verður 8-16 stig.
Framkvæmdastjóri SH:
Fryst síld
ekki inni
„Það vekur athygli að fryst síld er
ekki inni í þessum samningum,"
sagði Gylfi Þór Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, um nýgerðan EES-
samning. „Þetta atriði er alvarlegt
mál fyrir frystinguna," sagði Gylfi
Þór, sem kvaðst ekki reiðubúinn til
að tjá sig frekar um samninginn enn
sem komið væri. -JSS
Léttoglaggott
ekki í myndinni
Jón G. Hauksson, DV, Lúxemborg:
Innflutningur á Léttu og laggóðu
er ekki inni í myndinni í samningum
um evrópskt efnahagssvæði, EES,
sem tókust í nótt. Sama gildir um
ávaxtaís og aðrar landbúnaðar-/iðn-
aðarafurðir. Þá eru evrópsk ökuskír-
teini ekki inni í samningunum.
-JGH/hlh
Magnús Gunnarsson:
Mjögjákvætt
„Eftir því sem ég fæ best séð er
■ þessi samningur mjög jákvæður fyr-
ir íslenskan sjávarútveg og styrkir
hann,“ segir Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri SÍF, um EES-
samninginn. -kaa
Erugóðarfréttir
„Ég held að þetta séu góðar fréttir.
Varðandi freðfisk skipta samning-
arnir ekki eins miklu máli og menn
gætu haldið. Bókun 6 hefur verið í
gangi og þess vegna hafa öll frosin
flök og rækja, sem eru meginútflutn-
ingsafurðir, verið tollfrjáls hjá Evr-
ópubandalaginu, Nú bætast fersk
flök og fleira við,“ segir Benedikt
Sveinsson, framkvæmdastjóri ís-
lenskra sjávarafurða, við DV vegna
EES-samninganna. -hlh
Hannes Jónsson:
Fullveldisafsal
„Þessi samningsdrög þarf að skoða
mjög rækilega, ekki bara hvað varð-
ar sjávarútveginn. Þar er að finna
mörg vafasöm atriði, til dæmis hvað
varðar EB-réttinn. Með samþykkt
þess ákvæðis værum við að sam-
þykkja takmarkað fullveldisafsal.
sem gæti reynst okkur sem þjóð efna-
hagslega og stjómarfarslega hættu-
legt í framtíðinni," segir Hannes
Jónsson, einn af stofnendum sam-
takagegnEES-samningunum. -kaa
ÖRU6GIR-ALVÖRU
PENIN6ASKAPAR
VARI - ÖRYGGISVÖRUR
VARI
0 91-29399
Allan sólarhringinn
OryggisþjónLista
síðan 1.9Ó9
TVÖFALDUR1. vinningur