Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1991.
Fréttir
Fyrrum hluthafi í fyrirtækjum Rækjuness - Björgvins í Stykkishólmi:
Kærir meðeiganda fyrir
tugmilljóna fjárdrátt
- segist hafa veriö „loginn út“ þegar hrein eign var 203 milljónir
Fyrrum hluthafi í fyrirtækinu
Rækjunes - Björgvin hefur kært
meðeiganda sinn til Rannsóknar-
lögreglu ríkisins fyrir umfangs-
mikinn fjárdrátt og brot á hluta-
fjárlögum. Kærandi var hluthafi
að 35-48 prósenta eign í fisk-
vinnslufyrirtækjunum Björgvin,
Rækjunesi og Rækjunes - Björg-
vin. Jafnhliða þessum fyrirtækjum
rak meðeigandi hans fyrirtæki í
eigin nafni.
Þrír stjórnarmenn voru í fyrir-
tækjunum þremur, mennirnir
tveir og eiginkona þess kæröa. Þau
eru sökuð um að hafa fært fjár-
magn upp á tugi milljóna króna frá
hlutafélögunum, m.a. til ýmissa
fjárfestinga, án samþykkis fyrrum
meðeigandans. Þarna er meðal
annars um að ræða ýmsar peninga-
færslur til Sölufélags Hraðfrysti-
húsanna í gegnum sölufyrirtæki í
Bandaríkjunum. Kærandinn telur
að með þeim færslum hafi 40-60
milljónir króna glatast.
Maðurinn telur sig hafa verið
beðinn um aö víkja úr stjórn
Rækjuness - Björgvin og selja
hlutabréf sín árið 1988 á fölskum
forsendum. Segir hann meðeig-
anda sinn hafa komið að máli við
sig og sagt honum að viðskipta-
banki þeirra setti það sem skilyrði
fyrir áframhaldandi rekstri að
meðeigandinn ræki það einn. Hon-
um var tjáð að fyrirtækið væri svo
til gjaldþrota. Vegna þessa seldi
maðurinn hlut sinn gegn því að
skuldir hans yrðu greiddar. Fyrir-
tækið greiddi hins vegar ekki um-
samda skuld í nafni eiginkonu
kærandans sem leiddi til að hún
varð gjaldþrota. Hús þeirra er nú
til uppboðsmeðferðar. Kærandinn
fullyrðir nú að á sama tíma og hann
hefði verið fenginn til að afsala sér
hlut sínum heföi endurskoðandi
fyrirtækisins sýnt fram á að hrein
eign allra hlutafélaganna væri 203
milljónir króna. Af þessu frétti
hann ekki fyrr en eftir aö hann var
farinn. Kærandinn fullyrðir að
eign fyrirtækjanna þriggja hefði
veriö færð yfir á fjölskyldufyrir-
tæki meðeiganda síns án sinnar
vitundar.
Farið er fram á rannsókn á fjár-
festingum meðeigandans í bygg-
ingu iðnaðarhúsnæðis í Reykjavík
sem áttu að skila ávöxtun en gerðu
ekki. Fjöldi annarra fjárfestinga er
nefndur til sögunnar - allt fram-
kvæmt með undirskriftum meðeig-
andans og eiginkonu hans án þess
að leitað væri heimildar stjórnar-
fundar né hluthafa. Þar er m.a. um
að ræða uppbyggingu jarðar þeirra
hjóna þar sem 30-40 milljónum var
varið til að byggja stórt hesthús,
stækka íbúðarhús, kaupa vélar og
hesta og fleiri fjárfestinga.
-ÓTT
Verum vinir! Vináttuhátíðin ’91 verður haldin i Laugardalshöllinni á laugardag en undanfariö hefur staðið yfir
undirbúningur að hátíðinni. Tilgangurinn er að auka tengsl, samskipti, vináttu og aðra jákvæða hluti í samskiptum
manna í stað þess að dvelja við skuggahliðar lifsins, eins og ofbeldi eða vimuefnanotkun. Krakkarnir i Folda-
skóla tóku örlítið forskot á vináttusæluna í gær, tókust í hendur og mynduðu vináttuhring.
DV-mynd Brynjar Gauti
Verkfall bitnar á neyt-
endum strax á fyrsta degi
- segir mj ólkursamlagsstj órinn á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er eðlilegur gangur þegar
samningar eru lausir og ekki semst
að boðað sé til verkfalls,” segir Þór-
arinn E. Sveinsson, mjólkursamlags-
stjóri KEA á Akureyri, en verkalýðs-
félagið Iðja hyggst grípa til verkfalls
hjá fyrirtækinu innan skamms takist
ekki samningar varöandi greiöslur
til Iðjufélaga hjá fyrirtækinu vegna
starfsnáms.
Um 30 félagsmenn Iðju starfa hjá
Mjólkursamlaginu og þeir hafa sótt
slík námskeið, en deilan stendur um
þaö að Mjólkursamlagið viil ekki
meta slík námskeið til launahækk-
ana.
„Ég vil ekki opinbera neina skoðun
um það hvort og þá hversu mikið á
að meta slík námskeið til launa-
hækkunar. Það er metið til launa-
hækkunar í öllufh matvælaiðnaöi
nema í mjólkuriðnaði ef fólk hefur
sótt slík námskeið, en það eru ýmis
rök fyrir því að gera það ekki. Þetta
mál er hins-vegar komið á rétta leið
núna að mínu mati, hingað til hefur
verið þrýst á mjólkursamlög KEA og
KÞ á Húsavík í þessu máli en nú er
farið að tala við heildarsamtökin.
Það verður að semja við mjólkuriðn-
aðinn í heild í þessu máh en ekki
bara eitt eða tvö samlög."
Þórarinn sagöi að verkfall myndi
hafa áhrif strax á fyrsta degi. „Það
bitnar á neytendum að fá enga mjólk
í verslanir og strax á fyrsta degi færi
að vanta fersku vörurnar," sagði
Þórarinn.
„Það geta ekki orðið nema örfáir
dagar þangað til við boðum til verk-
fallsins ef það kemst ekki hreyfing á
þetta mál,“ segir Kristín Hjádmars-
dóttir, formaður Iðju á Akureyri.
Hún sagði aö viðsemjendur þeirra
yrðu að fara að sýna máhnu áhuga.
Gerist það ekki mega Akureyringar
eiga von á mjólkurleysi o.þ.h. áður
en langt um líöur, því til verkfaUsins
verður þá boöað með viku fyrirvara.
Vöruskiptahallinn 329 milljónir fyrstu átta mánuðina:
Verðmæti sjávaraf urða
jókst um 6,3 prósent
- einungis fjórðungur útflutningsverslunar við lönd utan EES
HalUnn á vöruskiptum við útlönd
var fyrstu átta mánuöi ársins rúm-
lega 329 milljónir. Án viðskipta ís-
lenska álfélagsins hefði hallinn orðið
1.913 mUljónir. Vöruskiptajöfnuður-
inn á sama tíma í fyrra var jákvæður
um 4,4 milljarða á sama gengi. Þessar
upplýsingar koma fram í nýjasta
hefti Hagtíðinda.
Frá janúarbyrjun til loka ágúst í
ár voru alls fluttar út vörur fyrir ríf-
lega 62,4 milljarða, þar af nam verð-
mæti úttfluttra sjávarafurða 51,3
milljörðum. Samanborið við sama
tímabU í fyrra er 0,6 prósent aukn-
ingu í útflutningi. Vegur þar þyngst
6,3 prósent aukning í verðmæti sjáv-
arafurða. Verðmæti innfluttra vara
reyndist tæplega 62,8 milljarðar, sem
er aukning upp á 8,8 prósent miðað
við í fyrra.
Það sem af er árinu hefur útflutn-
ingurinn veriö mestur til Bretlands,
en þangað höfðu í lok ágúst verið
seldar vörur fyrir rUlega 14,3 millj-
arða. Næst á eftir koma Bandaríkin
sem keypt hafa fyrir um 8 milljarða
og síöan Þýskaland með tæplega 7,4
milljarða. Varðandi innflutninginn
hefur hann verið mestur frá Þýska-
landi en samtals höfðu verið fluttar
þaðan vörur fyrir tæplega 8,8 millj-
arða í lok ágúst. Næst á eftir koma
Bandaríkin með tæplega 7,7 millj-
arða og þá Holland með tæplega 7,2
milljarða.
Tæplega 76 prósent útflutnings-
verslunar og rúmlega 69 prósent inn-
flutningsverslunarinnar var fyrstu
átta mánuðina til þeirra landa Evr-
ópu sem samið hafa um myndun
evrópsks efnahagssvæðis. Innflutn-
ingur á sama tímabili frá Bandarikj-
unum og Kanada var tæplega 12 pró-
sent af heildinni og útflutningurinn
rúmlega 13 prósent.
-kaa
Atlantslax:
Gjaldþroti enn frestað
Beiðni um gjaldþrot laxeldisfyrir-
tækisins Atlantslax í Grindavík var
enn frestaö hjá bæjarfógetanum í
Keflavík á mánudag. Lánardrottnar
féllust á að fresta-gj aldþrotaú rsk urði
til 3. desember. Ástæðu frestunar-
innar má rekja til áhuga norskra
aðila á að koma inn í fyrirtækið með
fjármagn og hefja ræktun sjaldgæfra
fisktegunda. Gjaldþrotsúrskuröi At-
lantslax var frestað á sömu forsend-
um fyrir hálfum mánuði.
Um sama leyti sagði DV fréttir af
slæmu ástandi laxa í kerum fyrir-
tækisins. Þeir voru illa fóðraðir og
mjög horaðir. Héraðsdýralæknir
sagðist aldrei hafa komið að öðru
eins og vöknuðu auk þess grunsemd-
ir um að sýking, kýlapest, hefði
stungið sér niöur.
Hjá fógetanum í Keflavík fengust
þær upplýsingar að sýking hefði ekki
fundist við rannsókn sýna úr kerun-
um en að dýralæknir hefði gefið fyr-
irmæli um að laxinn yrði flokkaður
og hirtur betur eftirleiðis. -hlh
Útgerðarfélag Akureyringa:
Styttist í að gamli
Sólbakur f ái hvíldina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Einn af sjö togurum Útgerðarfé-
lags Akureyringa fær senn hvíld-
ina en ákveðið hefur veriö að leggja
„gamla“ Sólbak um áramótin.
Kvóti hans verður þá fluttur yfir
á aðra togara fyrirtækisins, en þeir
eru frystiskipin Sléttbakur og
„nýi“ Sólbakur og ísfisktogararnir
Harðbakur, Kaldbakur, Svalbakur
og Hrímbakur.
Að sögn Einars Óskarssonar hjá
UA hefur afli togara fyrirtækisins
verið fremur slakur að undanf-
örnu, enda hefur tíðarfar verið erf-
itt þótt vetrarhörkur hafi enn ekki
gert vart viö sig.