Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1991.
3"
Fréttir
Trausti Jónsson veðurfræðingur:
Hitabylgja í Reykjavík
- þegar hitinn fer yfir tíu stig á þessum árstíma
Skútustaðahreppur:
Engin ef na-
mengun
íMývatni
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
hefur sent frá sér ályktun þar sem
fjallað er um skýrslu sérfræðinefnd-
arinnar um lífríki Mývatns og um
áhrif Kílsiliðjunnar á þaö. í ályktun-
inni segir meðal annars:
Sveitarstjórnin fagnar því að ekki
tókst með rannsóknum að rekja
tengsl milli sveiflna í dýrastofnum
vatnsins og starfsemi Kísihðjunnar.
Telur stjórnin að það komi skýrt
fram í áliti sérfræðinganna að ekki
sé um efnamengun að ræða í Mý-
vatni og ekki þurfi að hafa áhyggjur
af mældri aukningu næringarefna í
lindarvatni. -J.Mar
Náttúruvemdarráð:
Menn hafa
misskilið álit
nefndarinnar
„Skýrsla sérfræðinganefndarinnar
skýrir einungis frá ástandi lífríkisins
við Mývatn miðað við ákveðið ástand
og mælingar. í henni kemur ekki
fram neitt álit. Hún er einungis
fræðileg úttekt á ástandinu eins og
það er og hvernig það verður hugsan-
lega í framtíðinni. Það er ekki mælt
með einu eða neinu í skýrslunni. Það
hefur hins vegar viðgengist mikill
misskilningur í fréttaflutningi af
þessu máli,“ segir Arnþór Garðars-
son, formaður Náttúruverndarráðs.
„Álit sérfræðinganefndarinnar er
tekið saman í inngangskafla og þar
er bent á fjóra nýtingarmöguleika.
Sá fyrsti er að loka strax fyrir kísil-
gúrnámið, annar er að vera inni á
Ytra-Flóa og klára það efni sem þar
er innan náttúrumarka, þriðji kost-
urinn er að fara inn á nýtt vinnslu-
svæði, lokakosturinn er svo að halda
áfram af fullum krafti án nokkurra
takmarkana.
Sérfræðinganefndin mælir hins
vegar ekki með einum kosti öðrum
fremur. Það er Náttúrverndarráðs
og stjórnvalda að taka þá ákvörðun.
Mat Náttúrverndarráðs er að það
beri að fara mjög varlega og halda
sig inni á núverandi vinnslusvæði
og loka verksmiðjunni sem fyrst.“
-J.Mar
Kísiliðjan:
Náttúruverndar-
ráð segir hálfan
sannleikann
„Á sínum tíma fógnuðum við mjög
skýrslu sérfræðinganefndarinnar.
Við töldum að í henni væru mjög
athyglisverðar niðurstöður sem
fríuðu okkur af hinu og þessu sem
menn hafa verið að saka okkur um.
Því í skýrslunni kemur skýrt fram
að það hefur ekki tekist að tengja
sveiflur í dýrastofnum Mývatns við
Kísiliðjuna. í henni eru og dæmdar
dauðar og ómerkar allar mengunar-
kenningar. Ef dýralíflð er skoðað
kemur fram að það er ekki merkjan-
legur munur á fjölda fugla og magni
fiskjar á svæðum þar sem við höfum
verið að dæla og þeim svæðum þar
sem ekki hefur verið dælt,“ segir
Róbert Agnarsson, framkvæmda-
stjóri Kísiliðjunnar.
„Það eru einnig settar spurningar
um áhrif breyttra setflutninga á líf-
ríkið og það er tahð tilefni til frekari
rannsókna sem við að sjálfsögðu
styðjum.
í kjölfarið á þessu kom ályktun
Náttúruverndarráðs og hún gengur
að ýmsu leyti þvert á áhrif sérfræð-
inganefndarinnar og jafnvel ekki
sagður nema hálfur sannleikur í
ályktuninni. Þeir komast að þeirri
niöurstöðu að það beri að huga að
lokun Kísiliðjunnar. Það á þó
kannski ekki að koma manni veru-
lega á óvart ef maður ber þetta sam-
an við það sem Náttúruverndarráð
hefur áður sent frá sér.“ -J.Mar
„Það má segja að. það sé hita-
hylgja í Reykjavík þegar hitinn fer
yflr 10 stig á þessum árstíma. Veðr-
ið hefur verið óvenju hlýtt miðaö
við árstíma undanfarna tvo daga.
Ég held að veðrið verði áfram hlýtt
fram að helgi,“ segir Trausti Jóns-
son veðurfræðingur.
„Það er samt ekkert sérstaklega
óvenjulegt við þetta veðurfar. Okt-
óber hefur verið kaldur. Þegar Mtið
er' á hitastigið yflr allan mánuðinn
er það undir meðallagi því það var
fremur kalt þegar norðanáhlaupin
skuMu yflr. Októbermánuður hefur
á undanförnum árum verið mjög
misveðrasamur.
Hins vegar hafa komiöfjórir heit-
ir nóvembermánuðir 1 röð. Þessi
hlýju mánuðir komu eftir óvenju
Ianga syrpu af köldum nóvember-
mánuðum.
Síðasti vetur var i hópi hlýrri
vetra en veturnir 1988 og 1989 voru
slæmir. Það sýndi sig hins vegar ’89
og ’90 að veðrið var leiðinlegt eftir
áramótin þó haustið hafi veriö
hlýtt. Það er því ekkert samband
þar á rnillí.”
-J.Mar
Þú átt það
skilið...
Það hefur alltaf verið okkur kappsmál að geta boðið viðskiptavinum okkar fyrsta flokks vörur
á sem lægsta verði, og það hefur okkur tekist.
Við þökkum það öllum þeim fjölda viðskiptavina sem verslað hafa við Japis i gegnum árin
og þeirri viðurkenningu sem vörur okkar hafa fengið.
Með beinum innflutningi frá Japan höfum við stuðlað að enn lægra vöruverði.
Stöndum saman í baráttunni fyrir lægra vöruverði - við eigum það öll skilið.
Panasonic VHS MOVIE
Nýja Panasonic NV-Gl videotökuvélin færir þig nær raunveruleikanum hvad vardar myndgædi og verð.
Hún er einföld í notkun, með fullkomnum sjálfvirkum fókus, vegur aðeins 900 grömm og er aðeins 3 lux.
Komið og kynnist þessari nýju og frábæru vél því sjón er jú sögu rikari.
JAPIS3
BRAUTARHOLTl OG KRINGLUNNI
SÍMI 62 52 00