Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Side 5
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1991.
5
Allt að 35% afslátturí
REYKJAYJi^ig
★ Washburn
Hljóðfæri
★ Aukahlutir
★ o.m.fl.
Þaö er verið að reisa hús á Suður-
eyri. Reyndar er það ekki íbúðarhús
sem verið er að byggja, því slík
standa nú mörg auð á staðnum, held-
ur veiðarfærageymslu og beitninga-
aðstöðu niðri við höfnina.
„Við erum ekki á förum, okkur
flytur enginn burt,“ segja þeir sem
að nýbyggingunni standa, Guð-
mundur Ingimarsson og Valgeir
Hallbjörnsson. Þeir stunda línuveið-
ar á eigin mótorbát og segja að það
sé gott að róa frá Suðureyri. Um leið
benda þeir á bátinn sinn þar sem
hann liggur skammt frá togaranum
Elínu Þorbjarnardóttur sem nú hef-
ur verið innsiglaður vegna vangold-
ins virðisaukaskatts. Togarinn fylgdi
með í kaupunum á Fiskiðjunni
Freyju á Suðureyri sem Byggða-
stofnun seldi Norðurtanganum á
ísafirði og Frosta á Súðavík. Kauptil-
boðið var samþykkt með þeim fyrir-
vara að tryggt yrði að til vinnslu
kæmu 2.500 tonn af hráefni á ári.
Eins og fram kom í DV í gær hefur
Baldur Jónsson, framkvæmdastjóri
Freyju, tjáð Byggðastofnun að hann
ætli að nýta sér forkaupsrétt sinn á
hlutabréfum stofnunarinnar. Hann
verður því að ganga inn í kauptilboð
Norðurtangans og Frosta.
Þeir félagamir segjast vilja fá meiri
kvóta til Suðureyrar. „Það á ekki að
láta hann allan til Granda eða Út-
gerðarfélags Akureyrar. Menn þurfa
að fara að hugsa betur um byggða-
stefnuna. Reykjavík byggist ekki upp
ef landið veröur sett í rúst.“
Gardínulausir gluggar
Suðureyri er enn ekki komin í rúst
en augljóst er að margir hafa haft sig
á brott. Þegar blaðamaður DV hefur
á orði við þá Guðmund og Valgeir
að gardínulaust sé á mörgum stöðum
svarar Valgeir í hálfkæringi: „Ætli
það sé ekki bara verið að þvo gardín-
urnar fyrir jóhn,“ en játar því svo
að margir séu farnir.
suður,“
áherslu á.
leggja Súgfirðingarnir
I hressingargöngu. Valgerður Hallbjörnsdóttir og Ósk Bára Bjarnadóttir segjast aldrei ætla að fara frá Suður-
eyri. Valgerður er einn af þeim mörgu bæjarbúum sem eru atvinnulausir. DV-mynd GVA
Það er eiginlega líka í hálfkæringi
sem þeir segja að nýbygging þeirra
sé fyrsta verk húsasmíðameistarans
Elvars Friðbertssonar. Elvar segir
það vera rétt að þetta sé fyrsta verk-
ið síðan hann hlaut meistararéttindi
í húsasmíði 1977 fyrir utan orkubúið
og fiskverkunina Kögurás sem var
boðið út. Það hefur ekki verið nein
þörf á að byggja á Suðureyri.
„Það þarf að koma fjármagninu út
á landsbyggðina, núna sogast allt
Þyrlunefnd vlll aukið samstarf við vamarliðið:
Tæknilega virð-
ast engir mögu-
leikar lokaðir
- segirupplýsingafulltrúivamarliðsins
Valgeir Hallbjörnsson, Guðmundur Ingimarsson og Elvar Friðbertsson við
nýbyggingu við höfnina á Suðureyri. Valgeir og Guðmundur eru að koma
sér upp veiðarfærageymslu og beitningaaðstöðu. Nýbyggingin er eiginlega
fyrsta verk trésmiðsins Elvars Friðbertssonar síðan hann hlaut meistararétt-
indi í húsasmiði 1977. DV-myndGVA
„Það er ekki varnarliðsins að gera
milliríkjasamning, sem fæli í sér
aukna samvinnu á sviði björgunar-
mála, heldur íslenskra og banda-
rískra stjórnvalda. Tæknilega virð-
ast hins vegar engir möguleikar vera
lokaðir í þessum efnurn," segir Frið-
þór Eydal, upplýsingafulltrúi varn-
arliðsins.
Síðastliðið vor skipaði dómsmála-
ráðherra svokallaða þyrlunefnd til
að undirbúa kaup á nýrri og fullkom-
inni björgunarþyrlu fyrir Landhelg-
isgæsluna. Verkefni hennar var
einnig að gera tillögur um samstarf
við aðra björgunaraðila og varnarlið-
ið á Keflavíkurflugvelli. Formaður
nefndarinnar var skipaður Björn
Bjarnason alþingismaður.
í nýlegri skýrslu nefndarinnar
kemur fram það álit hennar að það
sé nauðsynlegt að íslenska ríkið
starfræki björgunarsveit, vel búna
þyrlum, og að æskilegt sé að fram-
hald verði á núverandi samstarfi
Landhelgisgæslunnar og þyrluvakt-
ar lækna. Þá leggur nefndin til að
íslensk stjórnvöld afli sér heimildar
til formlegra viðræðna við bandarísk
stórnvöld um framtíðarskipan björg-
unarstarfsemi fyrir varnarliðið um
leið og kannað verði til þrautar hvort
nýjar þyrlur varnarliðsins hæfi ís-
lenskum björgunaraðilum.
í áliti nefndarinnar er vitnað til
greinargerðar Alberts Jónssonar,
starfsmanns öryggismálanefndar,
þar sem skýrt er frá möguleikunum
á nánari samvinnu íslendinga og
varnarliðsins á sviði björgunarmála.
Albert segir einkum tvo kosti koma
til greina. Annars vegar að íslending-
ar annist rekstur allra björgunar-
þyrlna á landinu og að varnarhðið
greiöi fyrir þá þjónustu sem það fái,
til dæmis meö því að láta af hendi
þyrlur, eldneytisflugvél og önnur
tæki. Hins vegar sér hann kost í því
að íslendingar kaupi sér sams konar
þyrlu og Bandaríkjaher notar og á
sömu kjörum. Telur hann að með því
mætti bæði spara stofn- og rekstrar-
kostnað. Segir hann þennan kost gefa
möguleika á margs konar samstarfi,
til dæmis að íslenskir og bandarískir
flugmenn fljúgi saman en það gæti
skipt miklu vegna þekkingar ís-
lenskra flugmanna á staðháttum.
-kaa
Skrifin neikvæð
Þeim þykir skrif fjölmiðla um
ástandið á Suöureyri hafa verið nei-
kvæð og dregið kjark úr fólki. „Við
hefðum viljað vera í friði. Umfjöllun
fjölmiðla gerði illt verra þegar erfið-
leikar Freyju byrjuðu og það sama
var uppi á teningnum þegar hrepp-
urinn þurfti að semja við lánar-
drottna."
Elvar hefur þó ekki látið draga úr
sér kjark frekar en þeir Guðmundur
og Valgeir sem aldrei hafa landað
einum ugga annars staðar þó nú
gæti orðið breyting á þegar enginn
er til að taka á móti aflanum. Elvar
hefur ásamt félaga sínum fjárfest í
gamla kaupfélagshúsinu. Hugmynd
þeirra er að opna byggingavöru-
verslun með tímanum og vera með
aðra þjónustu tengda bygginga-
vinnu.
Þessir hreinræktuðu Súgfirðingar
geta einnig hugsað sér annars konar
þjónustu á staðnum, eins og til dæm-
is þjónustu við útlendinga. í fyrravor
var þýskri konu, sem heillaðist af
Suðureyri og umhverfi og vildi reisa
sumarhús á staðnum, úthlutað leigu-
lóð en hún hefur enn ekki látið í sér
heyra.
í hressingargöngu
Það virðist einnig ríkja óvissa varð-
andi margt annað á Suðureyri þó
heimamenn vilji sem minnst um það
tala. Nokkrir tugir íbúanna eru at-
vinnulausir og framtíðin óljós. Marg-
ar kvennanna, sem annars væru í
fiski, hafa tekið sig saman og stunda
gönguferðir sér til hressingar. Út-
sendarar DV rákust á tvær göngu-
konur, Valgerði Hallbjörnsdóttur og
Ósk Báru Bjarnadóttur sem voru að
koma úr sinni daglegu átta kílómetra
göngu. Valgerður vann hjá Freyju en
Ósk Bára tekur það fram að hún
hafi verið heimavinnandi og sé því
ekki atvinnulaus.
Þær eru, eins og bjartsýnismenn-
irnir við höfnina, reiðar skrifum
íjölmiðla. „Það hefur verið gert lítið
úr okkur. Þaö er skrifaö um okkur
eins og Vestfirðir séu baggi á þjóðfé-
laginu. Þetta þorp hefur skilað sínu
og vel það gegnum árin.“
Um auðu húsin segja þær: „Það
fóru héðan tvær fjölskyldur í haust
en það var ekki vegna atvinnu-
ástandsins. Það var einnig margt fólk
flutt héðan áður en Freyja var seld.
En það er ekki rétt að nánast allir
séu farnir nema presturinn," segja
þær og taka fram að þær muni aldr-
ei fara.
-IBS
Fréttir
Suðureyri:
„Við erum ekki á förum“
- segja bjartsýnir Súgfirðingar og reisa hús