Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1991.
Viðskipti____________________________________________________________________________pv
Mikið magn hlutabréfa
í Granda og ÚA til sölu
Lækkandi verð á hráolíu, áli og
dollar ber hæst þessa vikuna á er-
lendum mörkuðum. Á innlendum
hlutafjármarkaöi vekur mesta at-
hygli að verulegt magn hlutabréfa í
útgerðarfyrirtækjunum Granda og
ÚA, Útgerðarfélagi Akureyringa, er
til sölu hjá Landsbréfum.
Verð á hráolíunni Brent hefur
lækkað þessa vikuna um næstum
einn dollar eða niður í 21,67 dollara
tunnan. Það verð er engu að síður
fremur hátt til lengri tíma litið.
Ástæðan fyrir lækkandi hráohuverði
er aukið magn hráolíu frá Sovétríkj-
unum út á markaðinn.
Sovétmenn auka hins vegar ekki
magn sitt af olíu til íslands þessa
dagana. Umsaminn 14 þúsund tonna
gasolíufarmur, sem átti að koma í
byrjun október, kemur ekki til lands-
ins. íslensku olíufélögin hafa þess í
stað keypt gasolíu frá Shell í Hol-
landi og kemur sá farmur upp úr
helgi.
Engu að síður hefur það valdið
forráðamönnum íslensku olíufélag-
anna nokkrum áhyggjum að undan-
förnu að Sovétmenn skyldu ekki
senda farminn og hve illa hefur geng-
ið að fá útskýringar.
Á álmörkuðum heldur verð á áli
áfram aö lækka í þessari viku. Verð-
ið er núna 1.152 dollarar tonnið og
fer lækkandi.
Fyrir rúmum tveimur vikum rauk
verðið upp fyrir rúma 1.200 dollara
eftir yfirlýsingu bandaríska fyrir-
tækisins Álcan, stærsta álfyrirtækis
í heiminum, um að draga saman segl-
in.
Verðið lækkaði í síðustu viku þegar
Alumax og Alco sögðust ekki ætla
að draga saman. í þessari viku var
búisl við því að Spánverjar tilkynntu
um samdrátt í framleiðslu áls. Þeir
ætla hins vegar að bíða með allar
ákvarðanir fram yfir áramót.
Verð á dollar hefur lækkað lítillega
á alþjóðamörkuðum þrátt fyrir að
hagvöxtur á þriðja ársijórðungi hafi
verið um 2,4 prósent.
Ástæðan er sú að markaðurinn átti
von á enn meiri hagvexti eða 2,6 pró-
sentum. Enn eru miklar vangaveltur
um horfur í Bandaríkjunum í efna-
hagsmálum og sitt sýnist hverjum.
Verð á dollar var 59,90 krónur hér-
lendis í gær. í fyrradag var það um
60,60 krónur.
Á íslenska hlutabréfamarkaðnum
er enn mikill dofi í hlutabréfasölu.
Hlutabréfavísitalan HMARK stend-
ur í 790 stigum aðra vikuna í röð.
Nú hefur hún í rúma tvo mánuði
verið í kringum 795 stig. Eftirspurn
er enn mjög lítil.
Engu að síður hefur verðbréfafyr-
irtækinu Landsbréfum verið falið að
leita kauptilboða í hlutabréf Granda
að nafnverði 17,5 milljónir króna og
nemur hluturinn 2 prósentum af
heildarhlutafé í fyrirtækinu. Á
markaðsverði er upphæðin rúmar
48 milljónir króna.
Þá leita Landsbréf einnig kauptil-
boöa í hlutabréf ÚA að nafnverði 24
milljónir króna. Það er um 5 prósent
eignarhluti. Á markaðsverði er upp-
hæðin um 113 milljónir króna.
Fróðlegt veröur að sjá hvort Lands-
bréfum gengur vel að fmna kaupend-
ur að svo miklu hlutafé.
Verð á erlendum
mörkuðum
Bensín og olía
Rotterdam, fob.
Bensín, blýlaust, .223$ tonnið,
eða um......10,2 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um...............222$ tonnið
Bensín, súper,...236$ tonnið,
eða um......10,7 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um..........................236$ tonnið
Gasolía.....................215$ tonnið,
eða um......11,0 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um..........................221$ tonnið
Svartolía...................118$ tonnið,
eða um......6,5 ísl. kr. lítrinn
Verð i siðustu viku
Um..........................123$ tonnið
Hráolía
Um..........21,67$ tunnan,
eða um...1.290 ísl. kr. tunnan
Verðísíðustuviku
Um..............22,54$ tunnan
Gull
London
Um..........................360$ únsan,
eða um....21.564 ísl. kr. únsan
Verð í siðustu viku
Um..........................363$ únsan
Ál
London
Um.........1.152 dollar tonnið,
eða um....69.005 ísl. kr. tonnið
Verðísíðustu viku
Um...........1.200 dollar tonnið
Ull
Sydney, Ástralíu
Um..........4,41 dollarar kílóið
eða um........266 ísl. kr. kílóið
Verð í siðustu viku
Um..........4,41 dollarar kílóið
Bómull
London
Um.............67 cent pundið,
eða um.........98 ísl. kr. kílóið
Verð í síðustu viku
Um.............71 cent pundið
Hrásykur
London
Um.......233 dollarar tonnið,
eða um...13.956 ísl. kr. tonnið
Verð í síðustu viku
Um........232 dollarar tonnið
Sojamjöl
Chicago
Um........178 dollarar tonnið,
eða um...10.662 ísl. kr. tonnið
Verðísíðustu viku
Um........195 dollarar tonnið
Kaffibaunir
London
Um...............63 cent pundið,
eða um........88 ísl. kr. kílóið
Verð í síðustu viku
Um............ 63 cent pundið
Verðáíslenskum
vörum erlendis
Refaskinn
K.höfn., júní.
Blárefur...........327 d. kr.
Skuggarefur........288 d. kr.
Silfurrefur........339 .d. kr.
BlueFrost..........332 d. kr.
Minkaskinn
K.höfn, sept.
Svartminkur........119 d. kr.
Brúnminkur.........322 d. kr.
Ljósbrúnn (pastel).141 d. kr.
Grásleppuhrogn
Um....1.025 þýsk mörk tunnan
Kísiljárn
Um.......652 dollarar tonnið
Loðnumjöl
Um....330 sterlingspund tonnið
Loðnulýsi
Um.......330 dollarar tonnið
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLÁN överðtryggð
Sparisjóðsbækur óbundnar 3,5-4 Allir nema Sparisjóðir
Sparireikningar
3ja mánaða uppsögn 4 6,5 Sparisjóðirnir
6 mánaða uppsögn 5-7,5 Sparisjóðirnir
Tékkareikningar, almennir 1 Allir
Sértékkareikningar 4-7 Landsbanki
VlSITÖLUBUNDNIR REIKNINGAR
6 mánaða uppsögn 3,0 Allir
1 5-24 mánaða 7-7,75 Sparisjóðirnir
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisbundnir reikningar í SDR 6,5-8 Landsbanki
Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsbanki
ÖBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-4 Búnaðarbanki
Óverðtryggð kjör, hreyfðir 3-8,5 Sparisjóðirnir
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innan tímabils)
Vísitölubundnir reikningar 4-8 Landsbanki
Gengisbundir reikningar 4-8 Landsbanki
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki
Óverðtryggð kjör 10,5-11 Búnaðarbanki
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR
Bandaríkjadalir 3,75-4,1 Sparisjóðirnir
Sterlingspund 8,25-8,8 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 7,5 7,8 Sparisjóðirnir
Danskar krónur 7,75-8 Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
OTLAN överðtr yggð
Almennir víxlar (forvextir) 16,5-19 Sparisjóðirnir
Viðskiptavíxlar (forvextir)’ kaupgengi
Almenn skuldabréf 17-20 Sparisjóðirnir
Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdráttur) 20-22,5 Sparisjóðirnir
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
Skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki
AFURÐALÁN
islenskar krónur 16,5-19,25 Sparisjóðirnir
SDR 9-9,5 Islandsbanki, Landsbanki
Bandaríkjadalir 7,25-8,0 Sparisjóðirnir
Sterlingspund 12-12,75 Landsbanki
Þýsk mörk 11 Allir
Húsnæðislón 4,9
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 30,0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf september 21,6
Verðtryggð lán september 10,0
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóvember 3205 stig
Lánskjaravísitala október 31 94 stig
Byggingavísitala október 598 stig
Byggingavísitala október 1 87 stig
Framfærsluvísitala september 1 58,1 stig
Húsaleiguvísitala 1,9% hækkun 1. október
VEBOBBÉFASJÓOIR HLUTABRÉF
Gengi bréfa veröbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Einingabréf 1 5,985 Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,40
Einingabréf 2 3,191 Ármannsfell hf. 2,33 2,45
Einingabréf 3 3,931 Eimskip 5,70 5,95
Skammtímabréf 1,996 Flugleiðir 2,00 2,20
Kjarabréf 5,615 Hampiðjan 1,80 1,90
Markbréf 3,013 Haraldur Böðvarsson 2,95 3,10
Tekjubréf 2,131 Hlutabréfasjóður VlB 1,00 1,05
Skyndibréf 1,745 Hlutabréfasjóðurinn 1,64 1,72
Sjóðsbréf 1 2,876 islandsbanki hf. 1,66 1,74
Sjóðsbréf 2 1,942 Eignfél. Alþýðub. 1,65 1,73
Sjóðsbréf 3 1,986 Eignfél. Iðnaðarb. 2,43 2,53
Sjóðsbréf 4 1,737 Eignfél. Verslb. 1,72 1,80
Sjóðsbréf 5 1,195 Grandi hf. 2,75 2,85
Vaxtarbréf 2,0269 Olíufélagiö hf. 5,10 5,40
Valbréf 1,9000 Olís 2,05 2,15
Islandsbréf 1,251 Skeljungur hf. 5,65 5,95
Fjórðungsbréf 1,134 Skagstrendingur hf. 4,80 5,05
Þingbréf 1,248 Sæplast 7,33 7,65
Öndvegisbréf 1,229 Tollvörugeymslan hf. 1,04 1,09
Sýslubréf 1,269 Útgerðarfélag Ak. 4,70 4,90
Reiðubréf 1,215 Fjárfestingarfélagið 1,35 1,42
Almenni hlutabréfasj. 1,12 1,17
Auðlindarbréf 1,03 1,08
islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20
Síldarvinnslan, Neskaup. 3,23 3,40
1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.
-JGH
Irrnlán með sérkjörum
islandsbanki
Sparileiö 1 Óbundinn reikningur. Úttektargjald, 0,5%. Innfærðir vextir tveggja síðustu vaxtatímabila
lausir án úttektargjalds. Grunnvextir eru 8,0%. Verðtryggð kjör eru 3,25% raunvextir.
Sparileið 2 Óbundinn reikningur. Úttektargjald, 0,25%, dregst af hverri úttekt. Innfærðir vextir tveggja
síðustu vaxtatímabila lausir án úttektargjalds. Reikningurinn er í tveimur þrepum og ber stighækkandi
vexti eftir upphæðum. Grunnvextir eru 8,75% í fyrra þrepi en 9,25% í öðru þrepi. Verðtryggð kjör eru
3,75% raunvextir í fyrra þrepi og 4,25 prósent raunvextir í öðru þrepi.
Sparileið 3 óbundinn reikningur. óhreyfð innstæða í 12 mánuði ber 11,25% nafnvexti. Verðtryggð
kjör eru 6,0% raunvextir. Úttektargjald, 1,5%, dregst ekki af upphæð sem staðið hefur óhreyfð í tólf
mánuði.
Sparileið 4 Bundinn reikningur í minnst 2 ár sem ber 7,5% verðtryggða vexti. Vaxtatímabil er eitt ár og
eru vextir færðir á höfuðstól um áramót. Innfærðir vextir eru lausir til útborgunar á sama tíma og reikn-
ingurinn.
Búnaöarbankinn
Gullbók er óbundin með 10% nafnvöxtum á óhreyfðri innstæðu. Verðtryggð kjör eru 4,0 prósent
raunvextir.
Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mánuði á 13% nafnvöxtum. Verðtryggð kjör reikningsins
eru 7,0% raunvextir.
Landsbankinn
Kjörbók er óbundin með 11,0% nafnvöxtum. Eftir 16 mánuði greiðast 12,4% nafnvextir af óhreyfðum
hluta innstæðunnar. Eftir 24 mánuði greiðast 13,0% nafnvextir. Verðtryggð kjör eru eftir þrepum
3,5%,4,9% og 5,5% raunvextir með 6 mánaða bindingu.
Landsbók
Landsbók Landsbankans er bundin 15 mánaða verðtryggður reikningur sem ber 7,0% raunvexti.
Hávaxtareikningur. Er orðin að Kjörbók Landsbankans.
Hávaxtabók Er orðin að Kjörbók Landsbankans og ber sömu kjör.
Sparisjóðir
Trompbók er óbundinn reikningur með ekkert úttektargjald. óverðtryggðir grunnvextir eru 9,25%.
Verðtryggðir vextir eru 3,75%. Sérstakur vaxtaauki, 0,5%, bætist um áramót við þá upphæð sem hefur
staðið óhreyfð í heilt ár. Þessi sérstaki vaxtaauki er 0,75% hjá 67 ára og eldri.
öryggisbók sparisjóöanna er bundin í 12 mánuði. Vextir eru 11,25% upp að 500 þúsund krónum.
Verðtryggð kjör eru 6,25% raunvextir. Yfir 500 þúsund krónum eru vextirnir 11,5%. Verðtryggð kjör
eru 6,5% raunvextir. Yfir einni milljón króna eru 11,75% vextir. Verðtryggð kjör eru 6,75% raunvextir.
Að binditíma loknum er fjárhæðin laus í einn mánuð en bindst eftir það að nýju í sex mánuði.
Bakhjarler 24 mánaða bundinn verðtryggður reikningur með 7,75% raunvöxtum. Eftir 24 mánuði frá
stofnun þá opnast hann og verður laus í einn mánuð. Eftir það á sex,rnánaða fresti.