Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1991. LífsstHI DV kannar verð í matvöruverslunum: Mikill munur á hæsta og lægsta verði Neytendasíða DV kannaði að þessu sinni verð í eftirtöldum verslunum: Bónusi, Hafnarflrði, Fjarðarkaupi, Hafnarfirði, Hagkaupi, Eiðistorgi, Kjötstöðinni, Glæsibæ, og Mikla- garði vestur í bæ. Bónusbúðirnar selja grænmeti sitt í stykkjatali á meðan hinar saman- burðarverslanirnar selja eftir vigt. Til þess að fá samanburð þar á milli er grænmeti í Bónusi vigtað og um- reiknað eftir meðalþyngd yfir í kíló- verð. Að þessu sinni var kannað verð á grænum vínberjum, grænni papriku, kínakáli, hvítu greipi, appelsínum, rauðum eplum, gullaugakartöflum, 2 kg af Pillsbury’s hveiti, ýsuflaki með roði, Gillette Sensor rakvél, Trópí appelsínusafa, 11, og 400 grömmum af Léttu og laggóðu. Græn vínber eru mjög misdýr eftir verslunum. Lægsta verðið er i Hag- kaupi þar sem kílóiö var selt á 84 krónur. í Kjötstöðinni var það selt á 239, í Fjarðarkaupi á 255 og í Mikla- garði á 278 krónur en græn vínber fengust ekki í Bónusi. Munur á hæsta og lægsta verði er 231%. Verðmunur er einnig mikill á grænni papriku og er hægt að fá 2 paprikur fyrir hverja eina ef verslað er á ódýrasta stað í stað þess dýr- asta. Lægsta verðið var í Bónusi, 299 kr. kg, síðan kom Fjarðarkaup, 340 Meðalverð á grænum vínberjum hefur hækkað um tæplega 20 af hundraði á eins mánaðar tímabili. DV-mynd Hanna Hagkaup 399, Kjötstöðin, 540, og Mikligarður, 599. Munur á hæsta og lægsta verði er 100%. Hæsta og lægsta verð Kartöflur Rakvélar 600 500 —-------------- 400----—~~ ■ Bónus 300 H jgg 20Í.....I......I..... _______Hæst Lægst Hveiti Hæst Lægst Ýsuflök 500 Hæst Lægst Appelsínusafi 180 160 140 120 100 Hæst Lægst Létt og laggott 190 Hæst 'Lægst Kínakál fékkst ekki í Bónusi að þessu sinni en lægsta verðið var að finna í Kjötstöðinni þar sem kUóverð var 89 krónur. Á eftir koma Hag- kaup, 138, Fjarðarkaup, 139, ogMikli- garður, 145. Munur á hæsta og lægsta verði á kínakáli er 63 af hundraði. Hvítt greip er á svipuðu verði í þremur samanburðarverslunum, langlægsta verðinu í Bónusi og lang- hæsta í Kjötstöðinni. Verðið í Bónusi var 103, í Hagkaupi 148, í Miklagarði og Fjarðarkaupi 149 og 215 í Kjöt- stöðinni. Verðmunur á hæsta og lægsta verði er 109%. Munurinn á hæsta og lægsta verði á appelsínum er 105%. Lægsta verðið var í Bónusi, 80 krónur kílóið. Næst kom Fjarðarkaup, 95 kr., Hagkaup, 99, Mikligarður, 121, og Kjötstöðin, 164. Verðið á rauðum eplum var sömuleiðis lægst í Bónusi, 132 kr. kg, en á eftir fylgdu Fjarðarkaup, 159, Hagkaup, 169, Mikligarður, 172, og Kjötstöðin, 218 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði á rauðum epl- um er 65 af hundraði. Kartöflur voru á lægsta verðinu í Bónusi, á 22,50 kr. kg, en þar var reyndar til mjög lítið magn á því vérði. Næst kom verðið í Fjarðar- kaupi, 64,50, Kjötstöðin og Hagkaup voru með sama verð, 74,50, en Mikli- Verðlag stór- hækkar á sumum teg- undum Verðlag á grænmeti stefnir hrað- byri upp á við á flestum tegundum sem könnunin nær til. Hækkanirnar eru það miklar að varla er hægt að rökstyðja þær með vetrarverðs- hækkunum. Verð er á uppleið á öll- um tegundunum sem teknar eru fyr- ir í línuritunum hér til hhðar en mismikið þó. Mest er áberandi mikil hækkun á grænni papriku. Meðal- verð hennar er nú 435 krónur kg en var rúmar 250 krónur fyrir 20 dögum. Ástæðan er að mestu leyti sú að miklu verðstríði Bónuss og Fjarðar- kaups á þessari tegund papriku virð- ist vera lokið í bih. Meðalverð á kínakáh tekur einnig stökk upp á við. Það er nú 128 kr. kg en var 75 krónur fyrir rúmum mánuði. Þess verður að vísu að gæta að þá var verðið í lágmarki. Verðlag á appelsínum er hins vegar mjög stöðugt, stendur nú í 112 krónum kg og er á hægri uppleið. Meðalverð hvíts greips er nú 153 krónur kg en var rúmar 140 krónur í byrjun þessa mánaðar. Svipaða sögu er að segja af meðalverði á rauð- um eplum. Það er nú 171 króna sem er rúmlega 10 króna hækkun á með- alverði á einum mánuði. Sveiflur á meðalverði grænna vínberja eru miklar. í byijun september var með- alverðið 235 krónur kg, í lok sept- embermánaðar var verðið komið niður í rúmar 180 krónur en er nú 214 krónur. Ástæðan er ef th vill sú að verð hefur ekki verið kannað á grænum vínberjum í heilan mánuð og hefur verðið hækkað í milhtíð- inni. -ÍS garður seldi kílóið af gullauga á 84,50 krónur kg. Pillsbury’s hveiti fæst ekki f Bón- usi en lægsta verðið var í Hagkaupi og Fjarðarkaupi, 145 krónur pokinn af rúmum tveimur kílóum. Verðið var 166 kr. í Kjötstöðinni og 176 kr. í Miklagarði. Munur á hæsta og lægsta verði er eðlilegur eða 21%. Verðið á 1 kg af ýsuflökum með roði er með eðhlegum hætti milli samanburðarverslananna. Lægsta verðið var í Bónusi, 410 kr„ næst kom Hagkaup, 449, Fjarðarkaup og Kjöt- stöðin voru með sama verðið, 465, en Mikligarður 471. Munur á hæsta og lægsta verði er ekki mikill eða 15%. Verðmunur er aftur á móti mikill á Gillette Sensor rakvéhnni á milli verslana. Verðið var 306 kr. i Bón- usi, 378 í Fjarðarkaupi, 473 í Hag- kaupi, 499 í Kjötstöðinni og 586 í Mik- lagarði. Munur á hæsta og lægsta verði er 92 af hundraði sem er ansi mikill munur fyrir vöru af þessu tagi. Nokkuð á óvart kemur töluverður verðmunur á einum lítra af Trópí, hreinum appelsínusafa. Lægsta verðið var 127 kr. í Bónusi, næst kom Hagkaup, 133, Fjarðarkaup, 134, Kjötstöðin, 149, og Mikligarður, 167 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði er 31%. Létt og laggott viðbitið (400 g) er á svipuðu verði í öllum verslununum. Fjarðarkaup var með lægsta verðið, 160 krónur, Bónus, 161, og Mikligarð- ur, Hagkaup og Kjötstöðin, 171 krónu. Munur á hæsta og lægsta verði er tæplega 7%. -ÍS Sértilboð og afsláttur: Nauta- og lambahakk í Bónusi í Hafnarfirði er Kit Kat súkkulaðikexið vinsæla á sértil- boði, 7 stykki í pakka á 109 krón- ur. Eínnig eru á sértilboði 6 stk. af Hi C epla- eða appelsinusafa á 89 krónur, Eldorado grænar baunir í dós, 400 g, á 46 og tómat- ar í dós frá sama fyrirtæki, 400 g, á 33 krónur dósin. Fjarðarkaup var með allar hreinlætisvörur frá Green Force á afslætti en þær eru umhverfis- vænar. Þar má telja uppþvotta- lög, mýkingarefni, þvottaefni og klósettsteina. Tveir htrar af Coca Cola eða Pepsi er á sértilboði á 158 kr. og einnigLibby’s blandað- ir ávextir eða perur í dös, 78 krón- ur hver 420 gramma dós. í Hagkaupi, Eiðistorgi, var ver- ið að setja afsláttarverð á nauta- og lambahakk og kostar það 499 krónur kílóið næsta hálfa mán- uöinn. Afsláttarverð verður einn- ig í ghdi á /i lítra af súrmjólk, öhum bragðtegundum, og kostar hún 79 kr., Cocoa Puffs morgun- korni, 400 grömmum, sem kostar 169 og frönskum kartöflum frá Queens Gardens sem kosta 149 krónur khóið. Kjötstöðin í Glæsibæ er meö dilkaskrokka af nýslátruöu á 379 kr. kg og kjötfars á 298 krónur kg. I grænmetisboröinu voru tómatar á sérthboði á 150 kr. khó- ið og sömuleiðis perur sem kosta 169 krónur kílóið, í Miklagarði vestur í bæ eru danskir grautar í eins litra fem- um á 159 kr. en þeir eru með aprí- kósu-, sveskju-, epla- og jaröar- berjabragði. Sparís kostar 235 krónur htrinn, reykt folaldakjöt 358 kr. kg og kindabjúgu 416 kr. kg. -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.