Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Síða 9
' FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1991.
9
Utlönd
DV
Það var Ijót aðkoma eftir umferðarslys skammt frá Washington í Bandaríkjunum i gær þegar öskubíll keyrði yfir
lítinn fólksbíl. Hér sést hvar verið er að bjarga farþega úr aftursæti litla bílsins. Hann komst lifs af en farþegi í
framsæti lést. Simamynd Reuter
NÝ SENDING AF
HÚSGÖGNUM
GLÆSILEGIRHORNSÓFAR, SÓFA-
SETT, SVEFNSÓFAR OG BORÐ-
STOFUHÚSGÖGri
ÚRVAL ÁKLÆÐA
Verð 86.000 staðgr.
% húsgögn
Banaslys skammt frá Washington DC:
Öskubíll flatftð smábfl
FAXAFENI 5, SIMI 674080 - 686675
Ein kona lét lífiö og þrennt slasað-
ist, þar af þriggja ára gamalt barn, í
hryllilegu bílslysi skammt frá Was-
hington, höfuöborg Bandaríkjanna, í
gær.
Slysið varð með þeim hætti að stór
og þungur öskubíll ók aftan á litla
fólksbifreið og fór hreinlega yfir
hana. Bílamir tveir runnu síðan
áfram á stóran flutningabíl sem var
á þjóðveginum.
Farþegi í aftursæti fólksbílsins var
fastur í flakinu í eina og hálfa
klukkustund áður en tókst að bjarga
honum. Þykir mikil mildi að hann
skuli hafa sloppið lifandi undan
öskubílnum. Flogið var með hann á
sjúkrahús í borginni Fairfax í Virgi-
níufylki þar sem honum var sagt líða
vel eftir atvikum.
Konan sem lést var farþegi í fram-
sæti. Eiginmaður hennar ók bílnum
og slasaðist hann nokkuö, svo og
þriggjaárasonurþeirra. Reuter
Bílstjórinn var
njósnari ffyrir KGB
Bílstjóri breska sendiherrans í
Moskvu hefur játað að hafa stundað
njósnir fyrir sovésku leyniþjón-
ustuna, KGB. Hann hleraði m.a. sam-
töl bresku sendiherranna sem hann
þjónaði á meðan hann ók þeim um í
Rolls Royce glæsivagni sendiráðsins.
Á blaðamannafundi í Moskvu í gær
iðraðist Konstantín Demakhín bíl-
stjóri tvöfeldni sinnar og sagðist hafa
verið miklu betri bílstjóri en njósn-
ari í þau tuttugu ár sem hann hefur
unnið fyrir sendiráðið. Hann var
„enginn James Bond“ sagði hann.
„Eg er þeirrar skoöunar að KGB
sé orðin jafnrotin og „kommúnísk
framtíð okkar“. Útblásnir starfs-
menn hennar voru gegnsýrðir þeirri
hugmynd að aö þeir stæðu sig vel í
baráttunni við heimsvaldastefnuna,"
sagði Demakhín.
Starfsmenn breska sendiráðsins
tóku fréttinni um bílstjórann með
hinni mestu ró og neituðu að tjá sig
um málið. Tímaritið Literaturnaya
Gazeta skýrði fyrst frá njósnum bíl-
stjórans í síðustu viku.
Talsmaður breska sendiráðsins
sagði líklegt að Demakhín héldi
áfram starfi sínu sem bílstjóri núver-
andi sendiherra Bretlands, Sir
Rodric Braithwaite.
Konstantín Demakhín, bilstjóri
breska sendiráðsins í Moskvu til
tuttugu ára, hefur játað að hafa
stundað njósnir fyrir leyniþjón-
ustuna KGB. Simamynd Reuter
Demakhín sagði að hann hefði afl-
að fremur lítilla upplýsinga með því
að hlera samtöl manna í sendiráðinu
þar sem alltaf væri gert ráð fyrir því
að bílstjórinn væri á mála KGB.
Reuter
Grænlands-
verslun skipt upp
Hinu tvö hundruð ára gamla fyrir-
tæki, Grænlandsverslun, verður á
næstunni skipt í smærri sjálfstæð
fyrirtæki. Og þar með hefst nýr
kapítuli í atvinnulífi á Grænlandi.
Það var meirihluti þingmanna á
grænlenska landsþinginu sem ákvað
þetta á þriðjudag. Ekki hefur enn
verið ákveðið hvernig fyrirtækinu,
sem áður fyrr hét Hin konunglega
Grænlandsverslun, verður skipt en
líklegt má þó telja að það verði í út-
gerðarfélag, heildsölu, verslun, póst-
þjónustu o.fl. Ákvörðun um það
verður ekki tekin fyrr en á vorfundi
landsþingsins.
Hugmynd landsþingsins er að
markaðsöflin eigi að hafa meiri áhrif
á þróun mála í landinu, m.a. í þá átt
að lækka allan tilkostnað atvinnu-
lífsins.
3ja daga
tilaoð
EURO SKO
DOMUSKOR
Litur: Svartur
Stærð: 36-41
Verð: 1990,-
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
Auglýst eftir
menntastefnu
Opinn umræðufundur um menntastefnu og viðhorf í menntamálum; námslán,
framhaldsskólann, menntun á háskólastigi, iðnmenntun, brottfall úr námi.
Fundurinn er haldinn á vegum útgáfu- og fræðslunefndar BSRB í samráði við
Stúdentaráð, Bandalag íslenskra sérskólanema og Iðnnemasamband íslands.
Markmið fundarins eru opin skoðanaskipti og upplýsingamiðlun um stöðu fram-
haldsmenntunar í landinu.
Fundurinn verður haldinn að Grettisgötu 89, 4. hæð, í dag - fimmtudaginn 31.
október - kl. 17.00 til 19.00.
F rummælendur:
Gísli Árni Eggertsson, æskulýðsfulltrúi og varaformaður Starfsmannafélags
Reykj avíkurborgar
Guðmundur Magnússon, formaður nefndar á vegum menntamálaráðherra um
endurskoðun námslánakerfisins
Steinunn V. Óskarsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Islands
Kristinn H. Einarsson, framkvæmdastjóri Iðnnemasambands Islands.
Einnig sitja fyrir svörum:
Pétur Óskarsson, fulltrúi námsmanna í stjórn LÍN
Bjarni Ingólfsson, formaður BÍSN
fulltrúi frá menntamálaráðuneytinu
Útgáfu- og fræðslunefnd BSRB
Ritzau